Þjóðviljinn - 16.01.1976, Page 8
8 SIÐA — ÞJÓÐVILJINN Föstudagur 16. janúar 1976.
Afgerandi
forysta
hjá Val
— eftir 21:15 sigur yfir Fram
— aðeins FH getur nú veitt Val
keppni um íslandsmeistaratitilinn
Valsmenn tóku stórt skref áleiðis að Islandsmeistara-
titlinum í fyrrakvöld er þeir sigruðu Fram 21:15 og hafa
nú hreina 3ja stiga forystu í deildinni að loknum 8 leikj-
um. Og nú er svo komið, að einungis FH getur veitt Val
einhverja keppni um íslandsmeistaratitilinn og þó því
aðeinsað FH tapi ekki leik það sem eftir er. Valur var án
eins síns besta manns í fyrrakvöld, Jóns Karlssonar
landsliðsmanns, en það virtist ekki koma svo mjög að
sök, svo jafnt er liðið orðið. Fram veitti Val ekki keppni
nema rétt í byrjun leiksins, síðan náði Valur afgerandi
forystu og hélt henni út leikinn. Framhaid á io. siöu
Komu beint frá
Danmörku í leikinn
— en Vals-stúlkurnar sigruðu samt og
fengu 10 þús. kr.
frá Tobba í Val að launum
1 fyrrakvöld fór fram einn þýð-
ingarmesti leikurinn i 1. deild
kvenna þegar við áttust Valur og
Fram. Vals-stúlurnar hafa verið
veðurtepptar út i Kaupmanna-
höfn siðan um siðustu helgi og
komu til landsins i gær, svo að
segja beint i þennan leik. Það var
þvi varla búist við sigri þeirra
gegn Fram, en svo fór nú samt að
Valur sigraði 11:10 eftir að Fram
hafði haft yfir i leikhléi 6:4.
Leikurinn var, eins og lokatöl-
urnar gefa til kynna mjög jafn.
Valur hafði yfir i siðari hálfl. 9:7
en Fram jafnaði 9:9 og komst yfir
10:9 en Valur jafnaði og Sigrún
Guðmundsdóttir skoraði sigur-
mark Vals úr vitakasti þegar inn-
an við ein minúta var til leiks-
loka..
Þorbjörn Aðalbjörnsson (Tobbi
i Val) hinn eldheiti Valsmaður
kom aðvifandi eftir leikinn og
færði fyrirliða Vals-liðsins 10 þús.
kr. að gjöf fyrir sigurinn, — ég
var bara ekki með meira á mér,
sagði þessi káti sjómaður þegar
hann fagnaði stúlkunum sinum.
—S.dór
íslenskum knattspyrnu-
liðum boðin þátttaka í
mörgum mótum erlendis
Stjórn Knattspyrnusambands
tslands hafa borist boð um þátt-
töku íslenskra flokka i mótum er-
lendis. Þetta hefur verið tilkynnt
sambandsaðilum, en áhugi þeirra
virðist ekki vera umtalsverður,
og þvi er ekki búist við mikilli
þátttöku fsienskra flokka erlendis
á árinu.
Samkvæmt lögum KSÍeiga þau
Norðmenn
sigruðu
júgóslava
Norðmenn sigruðu
júgóslava i handknattleiks-
landsleik í fyrra kvöld með
tuttugu mörkum gegn átján.
Þeir höfðu allan timann yfir-
höndina og staðan i leikhléi
var 9—8.
Leikurinn fór fram i Osló og
var liður f Polar-keppni. Norð-
menn sigruðu þar og hlutu sex
stig, júgóslavar 4, Búlgaría 2
og Frakkland ekkert.
félög, sem hyggjast taka þátt i
mótum erlendis, eða taka á móti
flokkum til keppni hérlendis, að
tilkynna það til stjórnar KSl.
Hér á eftir er getið þeirra boða,
sem KSl hefur borist að undan-
förnu:
Frá Flagg, Malmö. Þar er
keppni fyrir 15—16 ára drengi og
vcrður hún frá 28. júni til 4. júli.
Þessi ferð ætti að geta orðið ódýr.
Frá Luxemborg. Þaðan hefur
borist boð frá Wiltz, sem er
skammt frá höfuðborginni. Sú
keppni er fyrir drengi, sem eru
fæddir 1957 eða siðar og stendur
frá 18.—19. aprfl ( um páskana).
Frá Danmörku. A Fjóni verður
i sumar keppni fyrir marga
aldursflok ka, Dania Cup 1976
Júli.
Frá Sviþjóð. Þar verður einnig
fjölmennt mót fyrir ýmsa aldurs-
flokka, Gothia Cup. Þetta verð^
20.—25. júli, — i Gautaborg.
Frá Skotlandi. Þar verður
keppni fyrir aldursflokka frá
15—18 ára, European Youth Cup,
16.—19. april.
Búast má við, að þegar sé orðið
of seint að tilkynna þátttöku i sum
þessara móta, en allar upp-
lýsingar hér að lútandi eru gefnar
á skrifstofu KSi daglega frá kl.
13—15 i sima 84444.
Magnús Sigurðsson fyrrum Vikingur lék sinn fyrsta leik með Fram, hér skorar hann sitt fyrsta mark
fyrir félagið (Ljósm. S.dór)
Fallið blasir nú
við Gróttu-liðinu
eftir 18:20 tap fyrir Ármanni sem hefur 3 stig yfir Gróttu
Hætt er við að tap Gróttu fyrir
Ármanni hafi verið farseðill liðs-
ins niður í 2. deild í ár. — Ég skal
að visu ckkcrt um það segja en
hitt er ljóst að þetta verður mjög
crfitt hjá okkur það sem eftir er,
sagði Þórarinn Ragnarsson þjálf-
ari Gróttu eftir leikinn og vissu-
lega eru þetta orð að sönnu. Ar-
mann hefur nú hlotið 7 stig úr 8
lcikjum en Grótta aðeins 4. Að
visu hefur Grótta oft komið á ó-
vart i leikjum sinum og gæti þvi
allt eins náð sér i stig i þeim 6
leikjum sem liðiö á eftir en það er
Armanns-liðið likiegt til að gera
lika, þannig að miklar likur eru á
falli Grottu.
Leikurinn varð aldrei tvisýnn,
til þess voru yfirburðir Armanns
of mikiir. Armann náði þegar for-
ystu og hélt henni út allan leikinn.
Að visu munaði stundum ekki
nema 2 mörkum en mestur varð
munurinn 4 mörk Armanni i vil. t
leikhléi var staðan 11:8 Ármanni i
vil.
Það sem gerði útslagið i þess-
um leik var frábær markvarsla
Ragnars Gunnarsson i marki Ar-
mannsliðsin, hann varði m.a. 3
vitaköst og svo stjörnuleikur
Harðar Harðarsonar, sem þrátt
fyrir stranga gæslu var maður
liðsins i sókinni. Þá áttu þeir Pét-
ur Ingólfss. og hinn ungi og efrii-
legi Friðrik Jóhannsson mjög
góðan leik. Hörður Kristinsson
var sem fyrrklettur i vörninni og
honum ekki langt að baki kom
Stefán Hafstein, sem vex sem
varnarleikmaður með hverjum
leik.
Hjá Gróttu bar mest á þeim
Halldóri B. Kristjánssyni, Arna
Indriðasyni og Breiðabliksmann-
inum Herði Má, sem er nýbyrjað-
ur að leika með Gróttu. Björn
Pétursson hefur oftast leikið bet-
ur svo og Magnús Sigurðsson.
Mörk Ármanns: Pétur 6, Hörð-
ur H. 5, Friðrik 4, Hörður K. 2,
Björn 2, Jón 1 og Jens 1.
Mörk Gróttu: Arni 6, Hörður
Már 4, Halldór 3, Magnús 2,
Björn, Axel og Georg 1 mark
hver.
—S.dór
STAÐAN
Staöan eftir lcikina — Valur —
Fram 21:15 og Ármann — Grótta
20:18 i 1. deild er þessi:
Valur 8 6 1 1 157:118 13
FH 8 5 0 3 174:156 10
Iiaukar 9 4 2 3 168:156 9
Víkingur 8 4 0 4 165:166 8
Fram 9 3 2 4 141:146 8
Þróttur 9 3 2 4 167:177 8
Armann 9 3 1 5 151:188 7
Grótta 8 2 0 6 139:154 4
Markahæstu menn:
Friðrik Friðriksson Þrótti 55
Páli Björgvinsson Vikingi 52
Hörður Sigmarss. Haukum 47
Pálmi Pálmason Fram 46