Þjóðviljinn - 18.01.1976, Qupperneq 1

Þjóðviljinn - 18.01.1976, Qupperneq 1
uúÐvium Sunnudagur 18. janúar 1976—41. árg. —14. tbl. SUNNU- DAGUR SÍÐUR Anna Sigríöur Björnsdóttir Anna Sigriður Björnsdóttir stundaði nám við Myndlistar- skólann við Freyjugötu i teikningu og málaralist. Lærði slðan grafik i Myndlista- og handiðaskólanum. Hefur haldið tvær sjálfstæðar sýningar i Reykjavik, aðra málverka- sýningu en hina málverka- og graflksýningu. Hefur tekið þátt I samsýningum austan hafs og vestan. Sjónvarpsmyndin Fiskur undir steini, segir Anna Sig- riður, vakti áhuga minn á að halda grafiksýningar i dreif- býlinu. Hafa sýningar verið haldnar á eftirtöldum stöðum á sl. ári: Keflavik, Akranesi, Grindavik, Selfossi, Þingeyri, ísafirði, Bolungarvik, Súganda firði, Flateyri, Tálknafirði, Bildudal, Akureyri, Grenivik,» Grimsey, Húsavik. Aðsókn hefur yfirleitt verið mjög góð, fjöldi sýningargesta er kominn yfir 2000. A mörgum smærri stöðum höfðu listsýningar ekki verið haldnar áður. I nokkrum tilvikum fór ég með sýningunni og útskýrði myndirnar og helstu aðferðir grafiklistar, en i öðrum hafa áhugamenn fengið lánaðar myndirnar endurgjalds laust og hafa þeir séð um sýninguna hver á sinum stað. Með þessum undirtektum hefur fengist svar við spurningu sjónvarpsmyndarinnar: Að ef að andleg verðmæti eru i boði, þá skortir ekki áhugann fyrir þeim. Og einkum á þetta við um smærri staðina þar sem dæmi eru um að menn tóku sér fri frá vinnu i frystihúsi til að sjá hvað i boði var.

x

Þjóðviljinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.