Þjóðviljinn - 18.01.1976, Qupperneq 4

Þjóðviljinn - 18.01.1976, Qupperneq 4
4 SlÐA — ÞJÓÐVILJINN Sunnudagur 18. janúar 1976 DIÚÐVIUINN MÁLGAGN SÓSÍALISMA, VERKALÝÐSEININGAR OG ÞJÓÐFRELSIS. Útgefandi: Útgáfufélag Þjóðviljans Framkvæmdastjóri: Eiður Bergmann Ritstjórar: Kjartan ólafsson Svavar Gestsson Fréttastjóri: Einar Karl Haraldsson Umsjón með sunnudagsblaði: Árni Bergmann Ritstjórn, afgreiðsla, auglýsingar: Skólavörðust. 19. Simi 17500 (5 linur) Prentun: Blaðaprent h.f. FORSÆTISRÁÐHERRA RÆÐST AÐ LANDSMÖNNUM Nató-herskip hafa hvað eftir annað valdið stórfelldu tjóni á islenskum varð- skipum. Iðulega hefur legið við borð að is- lenskir sjómenn hafi verið i lifsháska vegna ofbeldisverka herskipanna. Breskir togarar hafa um margra vikna skeið hald- ið áfram ólöglegum veiðum innan islensku landhelginnar i skjóli breskra byssu- kjafta. Á sama tima og þetta gerist hefur aðal- málgagn rikisstjórnarinnar, Morgunblað- ið, skrifað hvern vegsemdarleiðarann af öðrum um Atlantshafsbandalagið. Þvi lengra sem herskip bandalagsins hafa gengið i grimmdarverkum sinum þeim mun hærra hefur Morgunblaðið hrópað um náð Atlantshafsbandalagsins og það hjálpræði sem i þvi væri falið að vera inn- an þess. Eftir að ofbeldisverk bretanna náðu há- marki hefur þjóðin sýnt hug sinn i verki. Hver einasti maður i landinu hefur fylgst af aðdáun með verki varðskipsmannanna á miðunum og þúsundir og aftur þúsundir landsmanna hafa efnt til virkrar andstöðu við framferði Nató-herskipanna. Sjómenn og útvegsmenn i Keflavik, Grindavik og Höfn i Bornafirði hafa lokað herstöðvum bandarikjamanna og flugumsjónarmenn hafa stöðvað alla þjónustu við æfingar bandariskra orrustuvéla. Þjóðin hefur sýnt hug sinn til þessara aðgerða með hundruðum simskeyta og mótmælaálykt- ana. Meðan á þessu stendur er forsætisráð- herra landsins i felum. Hann neitar að ræða við f jölmiðla og hann neitar að svara spurningum innlendra fréttamanna. Þá fyrst lætur hann á sér kræla þegar aðalrit- ari Nató kemur hingað til lands. Þá sér þjóðin loksins til forsætisráðherrans á ný þar sem hann bugtar sig og beygir skæl- brosandi frammi fyrir þessum yfirfor- ingja herskipa Atlantshafsbandalagsins. En Geir Hallgrimsson lét ekki sitja við hneigingarnar einar þegar Jósep Luns hafði setið með honum i veislum og á rik- isstjórnarfundi, sem fram fór á ensku, i tvo sólarhringa. Rétt i þann mund sem Jósep Luns leggur af stað til Bretlands burtu frá nistingsköldu andrúmslofti is- lensks vetrar og islenskrar andúðar held- ur Geir Hallgrimsson blaðamannafund. Þar lýsir hann þvi yfir að rikisstjórnin ætli ekki að láta koma til framkvæmda slit stjórnmálasambandsins, sem utanrikis- málanefnd alþingis hafði þó gert ráð fyrir samhljóða, að koma skyldi til fram- kvæmda nú um helgina. Og hann lætur þar ekki staðar numið þvi að nú hafði ráðherr- anum eflst kjarkur við að ræða við Luns: Forsætisráðherra landsins lýsti þvi yfir að aðgerðir grindvikinga, kefivikinga, horn- firðinga, flugumsjónarmanna og allra þeirra, sem hefðu lýst samstöðu með þeim þjónuðu ekki islenskum hagsmunum, slik- ar aðgerðir bæri að „harma”. Þanng leyf- ir forsætisráðherra landsins sér það að ráðast á fólkið i landinu, sá hinn sami ráð- herra og hefur þakkað Nató ofbeldisverk- in á fiskimiðunum daglega i blaði sinu. Þessi dæmalausa framkoma forsætisráð- herra Islands er algerlega einstæð. Sú framkoma þjónar ekki islenskum hags- mun heldur hagsmunum Atlantshafs- bandalagsins og breta. Þjóðviljinn fullyrðir að aldrei hafi verið til á íslandi óvinsælli forsætisráðherra en Geir Hallgrimsson er meðal landsmanna i dag. Hann hefur ráðist að sinni eigin þjóð á svo dæmalaust ósvifinn hátt að niu af hver jum tiu islendingum eiga þá ósk heit- asta i dag að hann segi af sér sem for- sætisráðherra íslands. Þvi þess skulu menn minnast að það voru allra flokka menn sem siðustu dagana beittu sér fyrir virkum aðgerðum gegn undansláttar- stefnu rikisstjórnarinnar i landhelgismál- inu, og raunar voru flokksmenn i Sjálf- stæðisflokknum þar einna fremst i flokki, en þeim sviður eðlilega sárast lydduháttur stjórnarvalda i framkomu þeirra við á- rásarrikið Bretland og árásarbandalagið Nató. —s. Ráöist á skóla og og læknavísindi sem kirkjur nútímans VÍSINDI OG SAMFÉLAG Ivan Illich heitir þjóðfélags- rýnir sem mikla athygli hefur vakið á undanförnum árum. Einkum hafa menn verið iðnir að þýða á hverja tunguna af annarri bækur hans um læknaþjónustu og skóla samtiðarinnar. Sú var tið að kirkjan (hin kaþólska) gerði tilkall til einok- unar á trúarbrögöum. Mönnum leyfðist ekki að vera trúaðir upp á eigin spýtur. Siðbótin var uppreisn gegn þessari einokun sem ekki er séð fyrir endan á enn þann dag i dag. Ivan Illich telur, að nú um stundir séu risnar tvær nýjar kirkjur, sem gera sama til- kall til alræðisvalds og hin gamla. Þær heita skólinn og heilbrigðis þjónustan, sem hafa breyst i voldugar stofnanir, sem lúta eigin vaxtarlögmálum og f jarlægjast æ meir raunverulegar þarfir manna. Þessar nýju kirkjur eru þeim mun hættulegri segir I. Illich, sem enginn þorir að efast um gildi þeirra — allir telja menntun og heilsugæslu sjálfsögð gæði. Illich neitar þvi ekki að hvort- tveggja hafi margt sér til ágætis, en hann telur að þróun þessara „kirkna” hafi farið mjög úr- skeiðis og mælir með róttækri endurskoðun á hinum nýju „kirkjum”, nýrri „siðbót”. Gera okkur ómyndug Ivan Illich færir að þvi mörg rök og dæmi hvernig skóli og læknavisindi geri manninn ómyndugan, svipti hann mörgum þeim möguleikum sem með hon- um búa til að rækta jafnt huga sem likama á eigin forsendum. Þegar i skólanum segir hann, verður maður að óvirkum neyt- anda (hann tekur aðeins við, hann er ekki með i að skapa þekkingu sina sjálfur). Þetta setur Illich i samband við það neytendasam- félag sem við höfum skapað okk- ur. Og sjúklingurinn þróast I sömu átt. Hann lærir að neyta heilsugæslu. Hann flytur ábyrgðina á heilsu sinni yfir á lækninn. Læknirinn er hetja vorra tima — og fær i samræmi við það hærri laun og nýtur meira álits en flestir aðrir menn. Það áhrifavald sem samfélagið hefur afhent læknum og kennur- um skapar þá hugmynd að heilsu- vernd sé aðeins að finna hjá læknum og menntun aðeins I skól- um og háskólum (rétt eins og áður var gert tilkall til þess að trú fýndist aðeins i kirkjunni). Með þvi að fá læknum i hendur alls- herjarábyrgð á heilsu manna er brotin niður geta sjúklinganna til að glima sjálfir við heilsubresti og sársauka. Mennirnir eru vandir af þvi að bera ábyrgð á eigin sjúkdómum. Vilja láta ljúga að sér Ivan Ilich heldur uppi harðri skothrið á trú manna á þvi valdi, sem læknar hafi á sjúkdómum. Hann bendir á það að meirihluti sjúkdóma læknist af sjálfu sér. Sjúkdómar eru eðlileg ferli og mannfólkið hefur komið sér upp vitneskju um það, hvernig beri að bregðast við þeim, sem gengið hefur frá kynslóð til kynslóðar. Bætt umhverfi hefur miklu meiri þýðingu fyrir heilbrigðisástand almennings en nokkur læknis- þjónusta. Hin skaðlegu aukaáhrif læknavisindanna — allir þeir sjúkdómar sem læknar koma af stað —eru að dómi Illich faraldur sem breiðist örar út en nokkur önnur pest. En þessum skaðlegu fylgjum læknisfræðinnar veita menn litla sem enga athygli, vegna þess aö læknar hafa smiðað sér sterk samtök sem gera tilkall til að ákvarða hvaðsé heilsa og hvað það geti kostað að verja þessa heilsu. Það er eitthvað djöfullegt við. kraftaverk nútima læknisfræði. Læknarnir gerast ekki aðeins herrar sjúkdómanna heldur og þeirra heilbrigðu, og við erum öll gerð að sjúklingum upp á lifstið með lækna að for- ráðamönnum okkar.” Æ fleiri, segir Illich, vita það með sjálfum sér, að þeir eru þreyttir og leiðir i starfi sinu og sinni fristunda- deyfð, en þeir vilja að það sé logið að þeim. Þeir vilja frétta það að likamlegur sjúkdómur sé á ferðinni og losi þá undan félags- legri og pólitiskri ábyrgð á eigin ásigkomulagi. Þeir vilja að læknir þeirra taki að sér að vera bæði lögfræðingur þeirra og prestur”. Skipting læknaþjónustu i æ fleiri sérgreinar eykir hættuna á skaðlegum áhrifum hennar. Auk þess leiðir þessi skipting til til- rauna með rándýrar og mikið auglýstar aðgerðir eins og hjarta- flutninga dr. Barnards, sem aldrei munu koma að gagni öðrum en litlum forréttindahópi. Menn þekkja goðsögnina um Prómeþeif. Honum var refsað fyrir að stela eldinum frá guðun- um með þvi að hann var hlekkjaður við klett og sleit þar gammur lifur hans. A næturna gáfu guðirnir honum nýja lifur til að kvalir hans gætu haldið áfram án enda. Læknarnir eru, segir myndbrjóturinn Illich, að breytast í slíka guði og björgunaraðgerðir þeirra verða að eilífu straffi. Ivan Illich: slátrar heilögum kúm. Viðbrögð Það sem hér fer á undan er endursögn á allangri grein sem Olof Lagercrantz skrifaði I DN um sænskar þýðingar á tveim bókum Ivans Illich, „Samfélag án skóla” og „Læknaþjónustan háskalega”. „Greinarhöfundur getur og um þau viðbrögð sem síðarnefnda bókin hafi hlotið i Sviþjóð, en ýmsir læknar farið mjög háðulegum orðum um þennan „innflutta kleppsmat”. LagercranU telur sjálfur, að styrkur Ivans Illich liggi I þvi, hve vel hann kunni að ydda gagn- rýni slna. Jákvæðar tillögur hans, þ.e.a.s. hugmyndir um það sem gæti komið i staðinn fyrir alveldi hinna tveggja „kirkna”, séu hins- vegar miklu óljósari, i lausu lofti, enda þótt margt gott megi um þær segja. En gagnrýnin er sem- sagt boðin velkomin og talin mjög nauðsynleg, enda sé hún borin fram af virkum kærleika til manna, en ekki af þvi að Illich ætli sér á nokkurn hátt að búa til röksemdir fyrir allskonar Glistrupa, sem ætla að verða sér úti um pólit. vinsældir með þvi að heimta niðurskurð á fé til skóla og sjúkrahúsa. Illich ætlar ekki að hafa af fólki skóla eða heilbrigðisþjónustu heldur leggja drög að öðruvisi sambandi al- mennings við þessar „kirkjur” samtiðarinnar. (áb endursagði)

x

Þjóðviljinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.