Þjóðviljinn - 18.01.1976, Side 5

Þjóðviljinn - 18.01.1976, Side 5
Sunnudagur 18. janúar 1976 bJÓÐVILJINN — SIÐA 5 ÁRNI BERGMANN SKRIFAR QflDuQ Þorsteinn Valdimarsson: Yrkjur. Heimskringla 1975, 126 bls. 1 hátiðarkvæði frá 1965 leggur Þorsteinn Valdimarsson Fjall- konunni I munn þessar hending- ar: Ó, ljóð mitt, söngur draums, musteri draumsins i blænum; dags önn er grunnur þess og hvolf þess.bæn á náttarþeli um kórinn rennur lind, — og arfar lánds mins og tungu lúta þar höfði andartak... Þessar linur verða i reynd nokkuð góð heimild um Þorstein og skáldskap hans. Af þessum toga eru myndir hans, i þessum lotningartóni er túlkun hans á náttúru, minningum og hugsjón- um. Hann sækist eftir upphöfnu, einatt iburðarmiklu máli, til að tjá með rómantiska náttúrudýrk- un sina og þjóðernishyggju. Hug- tökogmyndir úr heimi kristni og þjóðtrúar eru honum kærkom- inn efniviður, hvort heldur hann skoðar sögu lands og lýðs eða náttúru og samtið i ljósi auðmjúkrar dulhyggju eða i þágu friðarhvatningar. f kvæðum hans flytja brim og björg boðorðin „vertu frjáls” og „stattu fast”. Skáld úr Ynglingasögu, „eld- stólpinn” Jón forseti og Frans frá Assisi eru kallaðir til vitnis um friö og þjóðlega reisn. Þeim sem vilja eignast „skýrri sjón að baki Lindir af bergi drauma Þorsteinn Valdimarsson Hann kann ljómandi vel á and- blæ hinna ýmsu skáldskaparteg- unda — eða hver mundi ekki leggja blessun sina yfir þuluna þar sem kveðið er á um að þokan hneppi væng við hamraskor hefti fót við stigið spor - láti sjálft hið lygna fljót leita sjávar upp i mót.... Hver mun kunna betur að gefa nafn kennileitum á ferðalagi imyndunar — i kvæðinu Nætur- flug heita skýjalönd bernskunnar t.d.: Ullarhnjúkur, Fifudyngja Kembutögl og Flókahliðar Skúmdalir, Mánaborgir.... luktum brám” er bent á. að næra augu sin fegurð, lauga þau við lindir af bergi drauma. t Yrkjum er Þorsteinn Valdi- marsson kominn langt frá gamansemi og nálarstungum limrubóka sinna tveggja sem næst fóru á undan. Hann ber á borð fyrir okkur náttúrulýrik, heimspekikvæði, hvatningarorð, kveðjur til góðra manna, lífs og liðinna. Lesandinn hlýtur fýrst af öllu að nema það, hýe vel Þor- steinn er að sér um islenska hefð kveðskapar. Þessi kunnátta er að visu ekki eintóm guðsblessun. Það kemur oftar en ekki fyrir i þessari bók, aðhefðbundið mynd- mál, sem helst i hendur við vana- bundna hugsun taki völdin af per- sónulegri viðleitni. Kvæðið verð- ur þá mælskulegt og eins og sjálf- virkt í öllum sinum hagleik. Ég nefni hreinræktuð tækifæriskvæði eins og „Kópavogsbær” þar sem hiö hátiðlega og rómantiska mál- far rekst ansi harkalega á veru- leikann, tilefni kvæðisins. Eða kvæði eins og „Teigsbörn”, þar sem rimþrautin bindur hendur skáldsins. Eða ballöðu eins og „Þyrnirós,” sem kannski verður ekki fundin missmiði á, en sýnist engu bæta við þessa ágætu sögu. Sama má og segja um jólasálm- ana þrjá. En miklu oftar er það, að kunnáttan, hagleikurinn, verður kvæðunum til prýði. Þorsteinn kann að smiða mjög hefðbundnar vísur af stórri iþrótt: Þoka fyllir dali djúpa dularhúmi og kynjaþögn Skuggabjörg til bæna krjúpa bljúg sem tröll i helgisögn. Og þótt hvergi verði skapljónin, hefðir í efnismeðferð frekari en I vinaminnum og ættjarðarkvæð- um (og það sannast enn i þessari bók) þá ræður Þorsteinn Valdi- marsson eigi að siður yfir þeim smekk og þvi málfari, sem fær okkur til að trúa þvi, að fáum verði betur trúað fyrir þvi að yrkja slik kvæðiog hafi allir sóma af. Þessu til sönnunar mætti nefna „Fylgistef með skeifu” (til Þórarins Guðnasonar) og svo minningar sem þessar um gaml- an vin, Bjarna frá Hofteigi: og I sofanda ró hálfvaknar hálfgleymt hreimfall kvæða er eitt sinn áttu okkar ungu hjörtu eldfim að eldsneyti á undurslóðum haustmorgna hátt yfir byggð. Bók þessi er glima við hefðina og veitir ýmsum betur. Mest kæt- istáhorfandinn að sjálfsögðu þeg- ar skáldið sækir á, tuskar kellu til auðsveipni undir eigin reynslu og vilja. Það gerist I kvæðum af ýmsum toga. 1 kvæðinu Við Mekongósa, sem mér sýnist sterkastaf þeim sem eru i bálkin- um „Friður og strið”: Vietnami ris upp af risekru þar sem hann hefur andað i gegnum reyrstaf meðan sprengjuregn dundi — og hefur sár á siðu. Skýr útmálun samtiðarviðburða kallast á við Kristminni. 1 bernskuminning- unni Næturflug finnum við m.a. finlegar og þó sterkar tengingar sem þessa: Æ, ilmi þessa liðna dags andar úr tæmdri berjakrukku 1 upphafserindi kvæði sem heitir Tregier margt sagt i stuttu máli: Vængbreið þögn hringi hnitar i hverjum staf, sem þú ritar. Og að lokum skal minnt á upphafsljóð bókarinnar, Nykur- lilja.Þar er látinn i ljós mikill og einlægur náttúrufögnuður, sem er i sjálfu sér ekki nýmæli — en hann er allur músikalskur og þvi fersk- ur — ekki man ég til þess i svipinn að skáld hafi áður orðið „allur ein hlust” i þeim mæli sem hér, á göngu þar sem augað ræður oft- ast mestu: Hvað buldrar hinn holi brekkulúður I skugga slnum? Skyldi nokkur vera að leika hér á sytru undir söng fugla? á svarðpipu fyrir geisladansi á dropaspil... — A.B. (Jr Góðu sálinni I Þjóðleikhúsi Ekki er Brecht karlinn dauður úr öllum æðum fyrst hann getur vakið upp miklar ástríður i blöð- um þjóðar, sem margir telja að hafi skaplyndi er helst megi likja við hið kalda blóð þorskfiska. Sverrir Hólmarsson taldi það i leikdómi i' meira lagi hæpið, að Brecht kæmist til skila I Þjóðleik- húsinu, það væri svo skratti borg- aralegt, list þess mest höfð „til afþreyingar taugatrekktum borg- urum.” Þessu reiddust menn eins og búast mátti við. Og vist er veru- leikinn flóknari en þetta. Starf leikhúsmanna að þessari sýningu alvarlegra og samviskusamlegra en svo að það verði afgreitt á þennan hátt. En þar með er ekki tekin af dagskrá sú spurning, hvort kennsluleikrit eins og „Góða sálin frá Sesúan” geti komist alla leiö til þess fólks sem sækir leikhús hér og nú. Brecht er, sem og i mörgum öðrum verkum, að út- lista hvernig lögmál, maskina arðránsfélags, fara með manneskjuna. Jafnvel þá bestu manneskju, kljúfa þau i herðar niður. En vettvangurinn, sem leikurinn geristá, er reyndar öra- langt frá hinum islenska meðal- jóni. Þriðji heimurinn, upphaf iðnvæðingar, örbirgðarstig. Við skulum viðurkenna, að það er ekki auðvelt að koma þvi áleiöis, að sömu lögmál handtéri sálirnar i svipaða átt nú og hér — i söddu velferðarfélagi. Það er allt að þvi lygilega erfitt. Það erekki mitt að fjalla um það, að hve miklu leyti þetta kemst til skila i sýningu Þjóðleikhússins. Við skulum samt leyfa okkur að slá þvi föstu, að nógu margt sé vel, skynsamlega unnið i sýningunni til að réttlæta tilraunina. Og sjálfsagt að hvetja hvern og einn til að prófa hana á sjálfum sér. En vikjum nú að herópinu: niður með borgaraskapinn, sem heyra mátti óm af i upphafi Sesúankappræðunnar. Aður en lengra er haldið skulum við minna á, að sú ósáttfýsi sem þessi afstaða lýsir hefur i ýmsum til- vikum leitt til merkra hluta. Reynst i listum aflvaki nýjum leikhúsum eða rithöfundasam- tökum á hugsjónagrundvelli. An slikrar „ósanngirni” urðu ekki til leikhús Piscators eða Brechts, svo dæmi séu nefnd. Né heldur „Rauðir pennar” her heima. Þessi afneitunarafstaða getur semsagt leitt til nýsköpunar. En það gerist heldur ekki nema menn hafi vilja eða mátt til að bjóða upp á valkosti. Annars er eins vist að allt fari i kerfi. Það hendir á vinstrislóðum i samfélaginu, að menn taka að rökleiða á brott svotil alla list, vegna þess að hún sé i þeirri að- stöðu að hún hljótiað.hafa hæpin áhrif eða engin. Ég hef lesið lærðar og greindarlegar rit- smiðar, þar sem nútimabók- menntir, einkum skaldsagan, eru taldar borgaralegt fyrirbæri að eðli og uppruna og notkun. Þeim mun frekar sem skáldsagan sé læst inni i kerfi sem heitir „borg- araleg bókmenntastofpun”. Þar i felst, að hún sé varla undir mark- aðslögmálum, meðhöndluð sem stöðutákn, fái auk þess hefðbundna og þrengjandi með- ferð i gagnrýni og skólum. Allt þetta kerfi er til orðið á borgara- legum forsendum og svo gagnsýrt af þeim t.d. skáldsagan geti ekki lengur haft önnur áhrif en þau, að festa þjóðfélagið I sessi. „Þetta gerist hvað sem liður áformum hvers einstaks höfundar, hans góðum eða illum vilja” (Peer E. Sörensen. Elementær literatur- sociologi). Ég segi fyrir sjálfan mig: Það er viss freisting i þvi að hugsa svona. Kasta sér út i svall kata strófalismans. Þessi freisting er liklega fyrst og fremst tengd óvissu og miklum efasemdum um áhrifamátt lista og bókmennta yfir höfuð i samfélagi sem á sér eitt höfuðeinkenni i vitundariðn- aði.d vitundariðnaði eru listir og bókmenntir i venjulegum skiln- ingi vikjandi þáttur — vikjandi fyrir fjölmiðlainnrætingu, færi- bandaframleiðslu á afþreyingu o.s.frv.). Þetta er freistandi, og efasemdir um áhrifamátt og gildi leikhúss eða skáldsögu eiga mik- inn rétt á sér, maður guðs. En freistingin er einnig háskasam leg. Ef menn fylgja henni út i æs- ar, þá er sjálfgert að byltingar- mennirnir reyna alls ekki að spjara sig á hinum „borgara- lega” vettvangi (skáldsögunnar til dæmis). Þeir afhenda hann fyrirfram þeim sem sannarlega vilja ekkert annað en dyggð hins óbreytta ástands i hverri grein. Þeir muna þá heldur ekki eftir þvi að ekkerter i föstum skorðum — ekki heldur „stofnanir” borgara- legra lista og mennta. Hið nýja fæðist innan ramma hins gamla, segir sú gamla tik, dialektikin, sem margir vilja að sér hæna. Og i þriðja lagi: Þegar menn hafa rökleitt. á burt obbann af list- rænni framleiðslu með skemmtan og firverkeri — kynnu menn ekki að vakna upp við þann höfuðverk, að nú væri orðið sýnu leiðinlegra að lifa en áður? Arni Bergmann

x

Þjóðviljinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.