Þjóðviljinn - 18.01.1976, Side 7
Sunnudagur 18. janúar 1976 ÞJÓÐVILJINN — SIÐA 7
hins vegar herskipainnrásin sem
er á ábyrgð Nató og Nató ber
skyida til þess að skipa herskip-
um breta út fyrir landhelg-
ismörkin. En i stað þess að krefj-
ast þess einarðlega að svo verði
gert aðhefst rlkisstjórnin ekkert
annað en að lofa og prísa banda-
lagið og ástarjátningarnar eru
eftir þvi ákafari sem bretar
ganga lengra I ofbeldisverkunum.
Það er þvl engu likara en að
ihaldið á íslandi vilji notfæra sér
herskipainnrás breta til þess að
koma landhelgismálinu á dag-
skrá hjá hernaðarbandalaginu.
Ihaldið rekur leynt og ljóst þá
stefnu að blanda þessum málum
saman, annars vegar innrásinni
og hins vegar ólöglegum veiðum
breta innan iandhelginnar, og
þessi málatilbúnaður er i þágu
Atlantshafsbandalagsins. Þjóð-
viljinn fordæmir þennan málatil-
búnað og leggur enn og aftur
áherslu á brýna nauðsyri þess að
halda Atlantshafsbandalaginu
eins langt fyrir utan landhelgis-
málið og frekast er unnt. Her-
skipin eru mál þess, ekkert
annað.
Þessi upprifjun hér á undan er
dregin fram i tilefni þeirra at-
burða sem nú eru að gerast, og
samandregið má orða hlutina á
þessa leið:
— 1958 var landhelgin færð út i
12sjómilur vegna þess að Alþýðu-
bandalagið var I stjórninni og þvi
tókst að hindra að Nató skipti sér
af málinu þá.
— 1961 var gerður „óuppsegj-
anlegur” nauðungarsa mningur
um landhelgismálið og þar með
var útlcndingum falin forsjá þess
máls. Þessi samningur var gerð-
ur af Nató og á vegum þægra
handbenda þess hér á landi, við-
reisnarstjórninni.
— 1972 var landhelgin færð út i
50 sjómilur þegar þjóðin hafði
hafnað þeirri stefnu viðreisnar-
flokkanna að ekkert mætti gera i
landhelgismálinu. Þá var At-
lantshafsbandalaginu haldið frá
landhelgismálinu vegna þess að
Alþýðubandalagið var i rikis-
stjórn. Samningurinn við breta
haustið 1973 var að visu gerður af
hálfu Ólafs Jóhannessonar með
hliðsjón af Nató, en I honum fólst
hvergi réttindaskcrðing og I hon-
um fólst viðurkenning breta á
yfirráðarétti okkar yfir landhelg-
inni.
— 1975 var landhelgin færð út i
200 milur eins og vinstristjórnin
hafði ákveðið að gera bæri. Nú er
hins vegar við völd hægristjórn,
hundflöt fyrir Nató. Forvigis-
menn stjórnarinnar gera allt sem
þeir geta til þess aö ofurselja
landhelgismálið I hendur Atlants-
hafsbandalagsins. Þessi grein er
til þess að vara þjóðina við sliku.
Nú er Alþýðubandalagið ekki I
rlkisstjórn til þess að hindra
óhæfuverkin. Þess vegna verður
fólkið i landinu að ganga feti
framar en nú ella væri til varnar
sæmd þjóðarinnar og sjálfstæði.
Rikisstjórninni treystir enginn
til ess að standast kröfur Nató-
úlfanna, sem einu sinni voru i
Boulogne-skógi en nú I Brússel.
Á fleygri
Jón Þórðarson frá Borgarholti. Á
fleygri stund. Ljóð. Fjölvaútgáf-
an.
Það ber ekki mikið á litlu ljóða-
kveri innan um alla þá skáldlegu
stórviði, er rekur á fjörur okkar I
jólakauptiðinni.
Litið ljóðakver getur þó búið
yfir þeim yndisleik, er kallar
fram i hugann dul og rómantik
löngu liðinna daga. Dregur loku
frá þeim tima þegar óskin var sú
ein að sameinast fegurðinni i ein-
hverskonar — nirvana — leysast
upp og sameinast dýrð blámjúkr-
ar sumarnætur og hvitri daggar-
móðu sólmorguns. Enginn
draumur um alvæpni og hólm-
göngu við timann og tlðina heldur
aðeins að fá að hverfa inn I feg-
urðina:
Frá einsemd, þröng og þysi
hve þráði ég okkar fund,
— I faðmi þinna fjalla
að felast litla stund
°g:
— Hér kýs sér kyrrð og næði
eitt korn af þinni mold.
Svo sannarlega skilar Jón þessu
gamla viðhorfi heilu i höfn:
Ég vakna I vitund þinni
þú vorsins djúpa sál,
sem Ijóð I dagsins draumi,
sem dropi I blómsins skál,
Orösending
til
lesenda
Vegna óviðráðanlegra
pappirsvandræða þurfti á sið-
ustu stundu að færa fjórar
siður meö fastaefni sunnu-
dagsblaðsins yfir i laugar-
dagsblaðið. Þessar siður eru
,,af erlendum vettvangi”,
Klásúlur, neytendasiðan Til
hnifs og skeiðar og myndlist-
arþáttur Nielsar Hafstein. Við
biðjum velvirðingar á þessum
ruglingi.
SENDlBÍLASTÖÐfN Hf
stund
Jón Þórðarson.
er árdagsbjarminn breiðist
um bláa himinlind
og sólariokkar leika
um Ljósufjalla tind.
Jón er heimamaður á okkar
gömlu -stuðla- stöðum. Hann
leikur sér að rimnaháttum
margskonar og gætir þess vel, að
hvergi sé hnökri á hætti eða máli.
Þá unir hann sér best þegar
byggð er að baki og hann vaknar
einn i morgunsárið og nýtur dýrð-
ar komandi dags:
Lýsir dagur
logafagur
lönd og höf,
hrynja lætur
heiðrar nætur
húmblá tröf.
Arið 1938 kom út eftir Jón ljóða-
bókin, Undir heiðum himni. Or
þeirri bók hefir Jón tekið nokkur
kvæði i þessa nýju bók.
Það ku vera mikil iþrótt að
teikna bókarkápur svo vel fari.
Mérþykir kápumynd Megasar
vera trú höfundi og innihaldi bók-
arinnar. Þar er allt æskuum-
hverfi Jóns, eldrautt sólarlag við
hvitan jökul yfir grösugri byggð
og biáum sæ. Er nema von að höf-
undinn dreymi um sameiningu
við slikt umhverfi?
Þakka þér fyrir kverið Jón. Þar
er margt, sem ég á eftir að tuldra
fyrir sjálfum mér, þegar færi
gefst i þessari vitlausu veröld,
þar sem:
Vélar glymja
amboð ymja
iðjuheims,
Pétur Sumarliðason.
ÁRNI
BJÖRNSSON
SKRIFAR:
Sjálfskipaðir
menningarvitar
Rétt eina ferðina hafa orðið
landskjálftar og fjöll tekið jóð-
sótt útaf listviðburði og umsögn
að honum litandi. Að þessu sinni
hér I Þjóðviljanum. Fyrst skrif-
ar Sverrir Hólmarsson stutt-
orða leikrýni um Góðu sálina i
Sesúan og tekur eitthvað ógæti-
lega uppi sig. Þá ritar annar
þýðandi verksins heilsiðugrein
móti gagnrýni Sverris og Olafs
Jónssonar. Siðan birtist sam-
þykkt leikarafélags Þjóðleik-
hússins með spurningum og
svörum um afstöðu ritstjórnar
Þjóðviljans i þessu máli. Og
loks reynir Flosi Ólafsson einu
sinni enn að gera grin að svo-
nefndum gagnrýnendum.
Núkunna allir þessir aðilar að
hafa mikið til sins máls varð-
andi umrædda leiksýningu, og
tek ég af eðlilegum sökum ekki
afstöðu til þess. En það sem
lengi hefur vakið undrun mina
er þessi óskaplega hvumpni
lisamanna i öllum greinum
gagnvart svokallaðri listrýni.
Þessir veslings gagnrýnendur
eru orðnir einsog hundeltur lýð-
ur og lítt skiljanlegt, hvernig
þeir haldast við þessa hötuðu
iðju sina. Lengi hefur helsta
skammaryrðið um þá verið
„sjálfskipaðir menningarvit-
ar”. En mérer vel kunnugt um,
að þetta er argasta lygimál. Það
er gengið á eftir mönnum með
grasið i skónum að fá þá til að
skrifa um listir og önnur menn-
ingarmál i blöðin. Og vei þeim
sem lætur undan.
Sálarháski
Ég get gilt úr flokki talað, þvi
að fyrir fáum árum hafði ein-
hverjum dottið i hug i vandræð-
um sinum að biðja mig að skrifa
um leikhús i þetta blað. Og það
m.a.s. eftir ábendingu eins eða
fleiri leikara Þjóðleikhússins.
Ég afakkaði þann heiður að
verða „sjálfskipaður menn-
ingarviti”. I fyrsta lagi fann ég
sárt til fáfræði minnar, og I öðru
lagi var það óbærileg tilhugsun
að eiga að standa i eilifu og ekki
indælu striði við suma bestu
kunningja sina. Ég hafði nefni-
lega skrifað sjónvarpsrýni heil-
an vetur og ekki af þvi mig lang-
aði I eitthvert menningarvita-
starf, þá frekar en nú, heldur
fyrir þrábeiðni ritstjóra. En þá
sjaldan islenzk leikrit voru i
sjónvarpinu og ég álpaðist til að
skrifa eitthvað, sem mér fannst,
þá hafði ég ævinlega verið að
hengja bakara fyrir smið að
dómi aðstandenda. En mig
langaði hvorki til að hengja
bakara né smið.
Enda var Ásgeir Hjartarson
orðinn svo heilapindur eftir ald-
arfjórðungs leikhúsumsagnir,
að hann var hættur að vilja
segja nokkuð, sem hugsanlega
gæti styggt einhvern góðvin
hans i leikhúsmannastétt. Ef
nokkrum er um að kenna, að
þessi óvinsæla gagnrýni skuli
höfð I frammi, þá eru það rit-
stjórnir blaðanna, sem endilega
vilja hafa einhvern i þessum
gapastokk. Og svo listamenn-
irnir sjálfir, sem ætla vitlausir
að verða, ef blöðin birta ekki
reglulega gagnrýni.
Manni getur nú
sárnað
Nú er það vel skiljanlegt, að
mönnum sárni, sem lagt hafa
langa, mikla og einlæga vinnu i
eitthvert verk. Siðan kemur ein-
hver maður utan úr bæ, horfir
einu sinni á verkið og skrifar
svo neikvæða umsögn i víðlesið
málgagn. En mér er mjög til
efs, að til sé nokkurs staðar sú
gagnrýni, sem aðstandendur
listaverks sætti sig við, sé hún
ekki jákvæði. Hvaða leikhús
varðar og raunar fleiri list-
greinar þyrfti gagnrýnandinn
helst að fylgjast með tilurð
verksins stig af stigi til að
skilja, hverju verið er að reyna
að ná fram.
En hitt sjónarmiðið er ekki
siður réttlætanlegt, að umsögn i
dagblaði eigi einmitt að koma
frá einhverjum i hópi hinna ó-
breyttu áhorfenda og sýni ein-
faldlega viðbrögð þess einstakl-
ings þessa stuttu stund. En þá
væri lika eðlilegast, að sami
maður skrifaði ekki um nema
eina sýningu.
Ofmat og vanmat
En hversvegna bregðast lista-
menn svona illa við neikvæðum
umsögnum? Það virðist ærið út-
breidd skoðun meðal þeirra, að
umsagnir blaöa hafi afgerandi
áhrif varðandi sókn á sýningar
eða kaup á bókum. Þetta mun
vera reginmisskilningur. Margt
fólk les að visu umsagnir blaða
að gamni sinu, en fæst af þvi
lætur þær ráða vali sinu. Það les
ekki sist um sýningu eða bók,
sem það hefur hvorteðer valið
sér, til að bera sina eigin skoðun
saman við umsögnina. En ein-
róma lof gagnrýnenda bjargar
hvorki bók né sýningu. Sömu-
leiðis getur bók selst upp og sýn-
ing gengið mánuðum og jafnvel
árum saman, þótt gagnrýnend-
ur hafi dæmt hana nauðaó-
merka i einum sextett. Það sem
mestu skiptir hér i landi fá-
mennisins og kunningsksparins
eruumsagnir fyrstu lesenda og
sýningargesta i sinn hóp. Það er
áhrifarikari f jölmiðill en öll blöð
og útvarp samanlagt og meira
mark á honum tekið, enda eru
blöð og útvarp einmitt talin hafa
á sinum snærum þessa sjálf-
skipuðu menningarvita, sem
misjafnlega góðir en jafnmóðg-
aðir listamenn hafa sannfært
þjóðina um, að séu flestum öðr-
um ómarktækari. Helst er þó,
að þeir'hafi einhver jákvæð á-
hrif á aðsókn, ef þeim tekst að
reita nógu marga til reiði.
Ekkert má maður
gera
Hvernig á gagnrýni þá að
vera? Heiðarleg, umfram allt
heiðarleg, segja listamenn. En
hvað er nú það? Skyldu t.d.
Matthias Johannessen og Þor-
steinn Þorsteinsson ævinlega
verða sammála um það?
1 skóla lærði maður, að
Matthias gamli Jochumsson
hefði verið svo jákvæður, að
hann hældi öllum skáldskap,
sem hann skrifaði um. Og það
var heldur gert litið úr gamla
manninum fyrir bragðið. Jakob
Smári hafði það vist fyrir reglu
að skrifa aldrei um neitt skáld-
verk, nema hann gæti sagt eitt-
hvað gott um það. Hitt leiddi
hann hjá sér, og var auðvitað
fólgin i þvi afstaða fyrir þá sem
vissu. En vart mundi slik regla
verða neitt fagnaðarefhi hjá
listamönnum, sem rjúka upp
með andfælum, ef einhver
gagnrýnandi veikist og ekki er
séð um að skrifa dóm i tæka tið.
Þegar Atli Heimir segir
manni frá tónleikum og tónlist-
armönnum,áhanntilaðtæta þá
sundur og skopast að þeim á
stórskemmtilegan hátt. En þeg-
ar umsögn hans birtist á prenti,
er hún ekkertnema mildin sjálf.
Annaðhvort hefur þá góð-
mennskan náð yfirhöndinni eða
samliðanin með öðrum lista-
mönnum. Kannski þetta sé
lausnin.
Leiö oss úr villu
Nú blifur þetta: Listamenn
vilja ólmir hafa gagnrýni i blöð-
unum. Blöðin eiga örðugt með
að finna alvitra skribenta, jafn-
vel ekki algóða. Sem betur fer
eru þeir heldur ekki almáttugir.
Almenningur kærir sig upp til
hópa kollóttan, hvort gagnrýni
er i blöðum eður ei, hvað þá
hann taki mark á henni. Gætu
nú ekki listamenn hugsaðsér að
taka i alvöru jafnlitið mark á
gagnrýnendum og þeir sjálfir og
almenningur?
Það virðast nefnilega ekki
vera neinir sjálfskipaðir menn-
ingarvitar á landi hér nema
listamenn sjálfir. Þeir einir
telja sig hafa meira vit á eigin
verkum en aðrir.
GLENS
Maður nokkur i bænum Clare
kom fyrir rétt, og var kærður fyr-
ir að hafa stolið hrífu. Honum var
sagt að stefnandi gæti komið með
tvö vitni, sem hefðu séð hann
stela grip þessum.
— Já, en ég gæti komiö með tólf
vitni sem ekki sáu mig gera það.
— Ertu kvæntur, frændi?
— Nei.
— Hvemig veistu þá hvað þú
átt aö gera?
Rakaraneminn kom of seint i
vinnuna og meistarinn lét hann fá
það óþvegið.
— Ég biðst afsökunar, meist-
ari, sagði neminn, — en veistu
bara hvað? Ég var að raka mig
fyrir framan spegilinn heima, og
áður en ég vissi, hafði ég prangað
inn á sjálfan mig klippingu og
hárþvotti.
Fangi nokkur fyrir rétti i
Dýflini:
— Ég var nógu algáður til að
vita að ég var fullur.
írskur betlari:
— Viljið þér ekki sjá af einum
skildingi handa mér. Ég stend
andspænis galtómum maga.