Þjóðviljinn - 18.01.1976, Blaðsíða 14

Þjóðviljinn - 18.01.1976, Blaðsíða 14
14 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Sunnudagur 18. janúar 1976 Kirkjan gegn kynlífsfjölbreytni VATtKANINU — Rómversk-ka- þólska kirkjan fordæmdi í dag frjálsar ástir og hverskonar til- breytni og lausung i þeim efnum. Segir i yfiriýsingu, sem Páll páfi hefur lagt blessun sina yfir, að „hver einasta athöfn kynfæranna verði að fara fram innan hjóna- bands”. Kynvilla er fordæmd, svo og sjálfsfróun. Mikilsvirtur kaþólskur guðfræðingur hefur þegar for- dæmt yfirlýsinguna og telur hana einkennast af kúgunaranda. Italskir kynvillingar hafa einnig snúist gegn kirkjunni Alþýðubandalagið Neskaupstað Helgarerindi fyrir almenning i Egilsbúð, fundar- sal, sunnudaginn 18. janúar kl. 16. Lúðvik Jósepsson talar um efnið: „Landhelgis- málið og nýting fiskimiðanna.” Allir velkomnir. Stjórn Alþýðubandalagsins Neskaupstað. Soffía Framhald af 2 stæðra foreldra er ekkisvo mikið sem til umræðu i þessu sambandi, auk heldur það standi til að rétta hann að neinu leyti. Aformaðeraðgera launatekjur giftra kvenna þungvægari til skatts en verið hefur með þvi að afnema rétt þeirra til 50% frá- dráttar. Þetta mun draga stór- lega úr vinnu giftra kvenna utan heimilis, einkum þeirra, er ekki eiga kost á sérlega vellaunaðri vinnu og konur munu siður stefna að þvi að afla sér menntunar og starfsþjálfunar. Hér er verið að beina konunum inn á við i enn rikari mæli en verið hefur og félagslega séð þýðir það '----- stórt spor aftur á bak. Sú staða á greinilega að haldast, að einungis skuli gert ráð fyrir dreifðu, ó- stöðugu vinnuframlagi kvenna, og meðan svo er verður staða þeirra óörugg hvað svo sem hjalað er störfum þeirra á heimilunum til vegsömunar. Það er ástæða til að spyrja, hvort islenskar konur, sem ný- verið blésu til myndarlegrar at- lögaætla nú að taka þvi þegjandi, að hagur þeirra flestra verði færður til stórum lakara horfs, lagalegur réttur þeirra til starfa gerður að markleysu og sókn þeirra út i atvinnulifið hindruð. Vist er um það, að fjölmörg og að- kallandi verkefni biða framfara- sinnaðrar kvennahreyfingar á komandi tið.'* ... \ Utför Brynjúlfs Eirikssonar Brúarlandi, Mýrum fer fram frá Borgarneskirkju þriðjudaginn 20. þ.m. kl. 13.30. Blóm og kransar afbeðin. Þeim sem vilja minnast hins látna er vinsamlega bent á Alftársjóð. Ferð verður frá BSt kl. 9.30. Alþýðubandaiagið Sósialistar Hafnarfirði. Hver er leið íslands til sósialismans? Hvernig náum við markmiðinu? Hvað ber að varast? Framhaldsfundur miðvikudag 20. jan. kl. 20.30 i Gúttó uppi. Einar Olgeirsson fjallar um leið íslands til sósialisma. Mætið stundvislega. Alþýðubandalagið I Hafnarfirði. Akurnesingar Alþýðubandalagið á Akranesi heldur fund i Reyn mánudaginn 19. jan kl. 21. Dagskrá: 1. Bæjarmál, 2. Inntaka nýrra félaga, 3. önnur mál. Bæjarmálaráð Alþýðubandalags Akraness Halldóra Guöbrandsdóttir og börn. - Faðir okkar Sigurður Gestsson frá Melbæ Eskifirði lést á Vífilsstaðaspitala 10. jan. Minningarathöfn fer fram i Fossvogskapellu þriðjudaginn 20. jan. kl. 3 e.h. Jarðsctt verður á Eskifirði. Asta, Hulda og Auður Brynja Sigurðardætur. Ensk stúlka, sem á ís- lenska móður, vakti í sumar athygli fyrir frumsamda smásögu, sem hún las í breska sjónvarpið. Hún er tólf ára gömul og heitir: Helga Maughan, 33 Verona Road, Chandler's Ford, Eastleigh, Eng- land. Storytime var smá- þáttur sem sýndur var á B.B.C. South í ágúst, unglingum og börnum til skemmtunar meðan sumarleyfin voru. B.B.C. bað börn á aldrinum 7 til 14 ára að taka þátt i keppni og myndu bestu sögurnar verða lesnar af höfundunum í sjónvarpinu. Yfir 500 börn sendu inn sögur og þar af voru 18 valdar, 9 eftir yngri þátt- takendurnar (7—12 ára), og 9 eftir þá eldri (12—14 ára), og var ein á dagskrá hvern virkan dag ágúst- mánaðar. Til að dæma um sögurnar og sjónvarps- framkomu voru Valery Singelton (frá „Blue Peter") og Joan Aiken, rithöfundur (ritar barna- bækur). Helga var ekki ein af þeim sem fengu verð- laun, en það voru nr. 1 og 2 úr hvorum flokki, en Joan Aiken minntist hennar sérstaklega áður en úrslit voru birt. Dæmt var um sjónvarpsfram- komu jafnframt, en Helga var dálítið feimin fyrir framan sjónvarps- vélarnar svo hún komst ekki í úrslitin. Þetta var reglulega skemmtileg reynsla fyrir hana. Mestur spenningurinn var þegar fyrsta bréfið kom frá B.B.C. með tilkynningu að sagan hennar hefði verið valin til sjónvarpsf lutnings. Brynja Maughan, 13 ára, send- ir þessa skemmtilegu skop- myndasamstæðu sem hún kallar „KENNARAMENNTUN". Á efri myndinni stendur GYMNASIUM, það þýðir menntaskóli, en getur líka þýtt fimleikahús. Orðið er komið úr grísku inn í enskuna, en i grísku lærdómsskólunum var mikil áhersla lögð á likamsrækt, samanber máltækið „Heilbrigð sál í hraustum líkama." Á neðri myndinni eru nokkur ensk orð: Teachers training course, sem merkir kennara- námskeið, Intelligence test, sem þýðir gáfnapróf. Yfir dyrunum sfendur QUALIFIED TEACH- ERS og útleggst HÆFIR KENNARAR. Hún ritar orðin viljandi vitlaust til að sýna fram á afkáraskapinn í kennara- menntuninni. Þótt myndirnar séu framúr- skarandi vel teiknaðar kemur ekki síður í Ijós hæfileiki Brynju til að leika sér með orðin.

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.