Þjóðviljinn - 02.06.1976, Blaðsíða 2
2 SIÐA — ÞJÓÐVILJINN Miövikudagur 2. júni 1976.
„Hún fæöir ekki hjálparlaust þessi” sagöi Helgi eftir aö hafa athugaö kindina sem greinilega leiö illa I
hrlöunum.
Þeir bræöur tóku þvi aö sér ljósmóöurstarfiö og sneru lambinu i kindinni þannig aö hún gat fætt og þeir
tóku á móti þvi.
Þaö var svo sem ekki stórt né buröugt svona nýfætt....
NÝTT LÍF
Flestum þykir það alltaf jafn mikið og
merkilegt ævintýri þegar nýtt lif fæðist, svo til
sama i hvaða mynd það er. Þegar blaðamaður
Þjóðviljans heimsótti Helga Jóhannsson bónda
að Núpum i ölfusi fyrir skömmu bar svo til að
kind var að bera i þann mund að okkur bar
þarna að. Það telst þó ekki til tiðinda i sveitinni
um þessar mundir, þegar sauðburður stendur
sem hæst.
En það er ekki á hverjum degi sem þessi at-
burður er ljósmyndaður. Það kom i ljós að
kindin gat ekki fætt hjálparlaust, lambið var
snúið. Og þá kom Helgi bóndi og bróðir hans
ánni til hjálpar, og ljósmyndirnar sem hér
fylgja eru frá þessum atburði. -s. dór
Móöurástin leynir sér ekki.
...en hresstist fijótt þegar móöirin haföi karaö þaö. Og hér er iambiö oröiö hiö sprækasta og reynir strax aö standa á fætur. (Ljósm. S.dór)