Þjóðviljinn - 02.06.1976, Page 3

Þjóðviljinn - 02.06.1976, Page 3
Miðvikudagur 2. júni 1976. ÞJÓÐVILJINN — SÍÐA 3 Leiklistarskóla ríkisins slitið í fyrradag Fyrstu leikararnir útskrifaðir eftir fjögurra ára hlé 1 fyrradag voru útskrifaðir frá Leiklistarskóla rikisins ellefu nýir leikarar og eru þeir fyrstu leikararnir sem útskrif- ast á sl. fjórum árum. Þar meö er jafnframt lokið fyrsta starfs- ári fyrsta rikisrekna leiklistar- skólans, en hingað til hafa leik- húsin sjálf og önnur félagasam- tök séð um menntun sins fólks. Þjóðviljinn hafði samband við Pétur skólastjóra. — Við tókum við nemendum frá leiklistarskóla SÁL og Húsa- skólanum svonefnda, sagði Pét- ur, og þeir sem voru komnir lengst hjá SAL útskrifuðust frá okkur núna. — Og gekk þetta vel hjá ykkur i vetur? — Það er jú allt gott þegar endirinn er góður og úr þvi okk- ur tókst að ljúka þessu starfsári er ég ánægður.Það komu marg- ir erfiðleikar upp og óneitanlega var þetta erfitt á köflum. Ekki bætti úr skák hið slæma húsnæði sem við urðum að notast við i Búnaðarfélagshúsinu gamla og Iðnskólanum gamla i Lækjar- götunni. Við fengum þrjá árganga frá SAL og einn úr Húsaskóla og i Pétur Einarsson. vetur voru hjá okkur 42 nem- endur i fjórum bekkjardeildum. Þeir hafa sótt að meðaltali 40 — 45 kennslustundir á viku og þetta er fjögurra ára nám hjá okkur áður en að útskrift kem- ur. ' — Og hvernig eru atvinnu- möguleikar fyrir þetta fólk? — Þeir ættu að vera nokkuð góðir. Leikarar hafa ekki út- skrifast hérlendis i fjögur ár, og einn leikhússtjórinn sagði ekki alls fyrir löngu að ef vel ætti að vera þyrfti að útskrifa að meðaltali tiu nýja leikara á hverju ári. Hitt er jú auðvitað annað hver raunveruleikinn er en a.m.k. ætti þetta fólk að getað skapað sér sina eigin vinnu að einhverju leyti. — Og þetta var erfitt i vetur? — Já, það verður ekki annað sagt. Við höfðum aðeins einn fastan starfsmann við skól- ann, þ.e.a.s. mig sjálfan, og all- ir aðrir voru lausráðnir. Slikt veldur alltaf erfiðleikum og vandamálum. — Svo það verður kærkomið fri i sumar? — Nei það veröur sko ekkert fri. Nú fyrst er hægt að snúa sér að allri skrifstofuvinnunni sem hefur verið hunsuð i sumar. Það verður áreiðanlega nóg að gera til haustsins við frágang og undirbúning. gsp Orðsendingar utan- ríkisráðherranna á Oslóar-fundinum Þegar viðræðum utanrikis- ráðherra tslands og Bretlands lauk i Osló f gær skiptust þeir Einar Ágústsson og Crosland á eftirfarandi orðsendingum er fela i sér samkomulag i fisk- veiðideilunni. Eins og fram - kemur annars staðar i blaðinu lét Crosland gera sérstaka bókun varðandi ákvæði bókunar sex. En hér fer á eftir texti orð- sendinganna, er utanrikis- ráðuneytið dreifði i fréttatil- kynningu i gær: , ,Hæstvirti utanrikisráðherra, Ég leyfi mér að visa til við- ræðna milli rlkisstjórna okkar varöandi samkomulag um fisk- veiðar innan 200 milna fisk- veiðilögsögunnar, sem kveðið er á um i hinni islensku reglugerð frá 15. júli 1975. A grundvelli þessara viðræðna leyfi ég mér að staðfesta eftirfarandi fyrir- komulag, sem samkomulag hef- ur náðst um: 1. Rikisstjórn Bretlands ábyrgist, að fiskveiðar breta á ofangreindu svæði veröi tak- markaðar við 24 togara að meðaltali á dag, miöað við veiðidaga svo sem lýst er i hjá- lagðri greinargerö, sbr. fylgi- skjal 1. 2. Innan þeirra takmarka, sem getiðer i 1. gr. munuaðeins þeir togarar stunda veiðar, sem eru á skrá skv. fylgiskjali II og byggist á skrá þeirri, sem gerð var vegna bráðabirgöasam- komulagsins frá 13. nóvember 1973. 3. a) Rikisstjórn Bretlands ábyrgist, að breskii' togarar virði friðunarsvæði þau, sem greind eru i bráðabirgðasam- komulaginu eins og þeim hefur verið breytt af islenskum stjórnvöldum eftir að það sam- komulag féll úr gildi, á þeim timum, sem um er að ræða. b) Rikisstjórn Bretlands ábyrgist að breskir togarar stundi ekki veiðar nær en 20 sjó- milur frá grunnlinum Islands og ekki nær en 30 sjómilur frá grunnlinum á þeim svæðum, sem nefnd eru I liðum 31 og 3 II i bráðabirgðasamkomulaginu. c) Svæði þau, sem nefnd eru i stafliðum a) og b) að ofan, eru nánar skýrgreind i fylgiskjali 3. 4.1 þvl skyni að vernda svæði þar sem mikiðer af ungfiski eða hrygningarfiski á hafsvæðinu umhverfis tsland ábyrgist rikis- stjórn Bretlands, að breskir togarar stundi ekki þær veiðar, sem Islenskum skipum eru bannaöar af þar til bærum stjórnvöldum Shkar ráöstafan- ir, sem skulu byggðar á hlútlæg- um og visindalegum sjónarmið- um og ekki fela isér mismunun i reynd eða að lögum, munu til- kynntar rikisstjórn Bretlands. 5. Til frekari vemdar fiski- stofnum umhverfis Island mun rikisstjórn Bretlands ábyrgjast að bresk skip fari eftir ákvæð- um, sem greind eru i fylgiskjali 4. 6. Rikisstjórn Bretlands ábyrgist, að staðsetning breskra skipa, er veiðar stunda samkvæmt ákvæðum sam- komulags þessa og aflamagn þeirra, verði tilkynnt islenskum stjórnvöldum með þeim hætti, sem kveðið er á um i greinar- gerð þeirri, sem visað er til i 1. gr. 7. Sé skip staöiö að veiðum i bága við samkomulagið, geta hlutaðeigandi islensk yfirvöld stöðvað það og rannsakað máls- atvik, og ef grunur leikur á um brot, kvatt til það aðstoðarskip breskt, sem næst er. Togari, sení rofið hefur samkomulagið, verður strikaður út af listanum. 8. Rikisstjórn Bretlands mun tafarlaust leggja til viö Efna- hagsbandalag Evrópu, að svo fljótt sem nauðsynlegar ráð- stafanir hafa verið gerðar, muni ákvæði bókunar nr. 6 viö samn- ing milli Islands og Efnahags- bandalags Evrópu frá 22.6. 1972 taka gildi. Hún mun einnig beita sér fyrir þvi, að tollalækkanir, sem kveðið er á um I þeirri bók- un, verði framkvæmdar með þeim hætti, sem oröiö heföi, ef bókunin hefði veriö i gildi siðan 1973. 9. Ekkert ákvæði samnings þessa skal talið hafa áhrif á inn- byrðis afmörkun lögsögu milli ianda aðilanna. 10. Samningur þessi skal gilda i 6 mánuði frá gildistöku. Eftir að samningurinn fellur úr gildi, munu bresk skip aðeins stunda veiðar á þvi svæði, sem greint er i hinni fslensku reglu- gerð frá 15. júli 1975 i samræmi við það sem samþykkt kann að verða af tslands hálfu”. Erlendar fréttir í stuttu máli Sýrlendingar gera innrás Beirut 1/6 ntb — Sýrlenskt herlið gerði i dag innrás I Líbanon og sótti að bæ kristinna manna I norðurhluta landsins sem hermenn vinstriafianna hafa haldið i herkvi undanfarna fjóra daga. Að sögn palestinsku fréttastofunnar WAFA tóku 4.000 menn úr fastaher Sýrlands þátt i innrásinni og hægrisinnuð útvarpsstöð kvað þá hafa haft 200 skriðdreka með i för. I gær gerðu sýrlend- ingar einnig innrás til að frelsa umsetna bæi kristinna manna og voru þá tvö þúsund talsins með 60 skriðdreka. Sýrlendingarnir báðu deiluaðila i landinu um aö veita ekki mótspyrnu en ljóst var að palestinumenn ætluðu ekki að verða við beiðninni. Leiðtogar þeirra siðarnefndu og libanskra vinstri- afla komu saman til fundar i Beirut i dag til að ræða siöustu við- burði i borgarastyrjöldinni sem nú hefur staöið með litlum hlé- um i 14 mánuði. Areiðanlegar heimildir hermdu að sennilega myndu palestinumenn senda út almenna herkvaðningu. Leiðtogar kristinna kváðu sina menn hafa hörfaö úr stöðvum sinum undan sýrlendingum án mótspyrnu. Þeir hafa áður stutt i- hlutun sýrlendinga i borgarastriðið þvi þeir vonast til að þeir komi i veg fyrir að vinstriöflin taki bæi og vigstöövar kristinna manna. Undir kvöld voru sýrlensku fiersveitirnar komnar að útjaðri bæjarins Zahle, sem vinstriöflin hafa haldið i herkvi undanfarna daga. Alexei Kosigyn, forsætisráðherra Sovétrikjanna, kom i dag i opinbera heimsókn til Damaskus, höfuðborgar Sýrlands. Eru menn á þvi að heimsóknina beri uppá mjög viðkvæmt augnablik fyrir Kosigyn, sem ekki vill styggja palestinumenn. Spánn Hœgrimenn að linast Madrid 1/6 ntb reuter — Svo virðist sem æstustu hægriöflin i spænskum stjórnmálum hafi gert það upp við sig að þau geti ekki komið i veg fyrir að umbótaáætlun stjórnarinnar nái fram að ganga. Heimildir meðal þingmanna herma að hægrimenn hyggist nú styðja stjórnina með ráðum og dáð. Telja þeir að meö þvi verði komið I veg fyrir að þeim verði ýtt algjörlega til hliðar i spænsk- um stjórnmálum. Þannig muni þeir styðja lagafrumvarp stjórnarinnar um aö leyfa starfsemi allra stjórnmálasamtaka að kommúnistum, anarkistum og aðskilnaðarsinnum (böskum, katalóniumönnum) undanteknum. Fyrri tillögur hægrimanna hljóðuðu upp á að leyfa skyldi sex starfandi stjórnmálaflokka en aðrir yröu að sýna fram á að þeir hefðu amk. 25 þúsund félaga til að fá leyfi til að starfa. Timaritið Cuadernos para el diaiogo skýrði frá þvi i dag að það hefði hætt við að birta grein um pyntingar i spænskum fang- elsum. Astæðan var sögð sú að þjóðvaröliðið hótaði. blaðinu Cambio 16 málshöfðun vegna svipaðrar greinar. Lögreglan á Spáni tilkynnti i dag að hún hefði handtekið niu manns sem hún grunar um að vera félagar i maóiskum skæru- liöasamtökum sem nefnast FRAP en þrir fimmenninganna sem Franco myrti sl. haust voru félagar i FRAP. Sprenging i Frankfurt Frankfurt 1/6 ntb — 16 manns siösuöust er tvær sprengjur sprungu I höfuðstöövum bandariska hersins i Frankfurt i dag, nákvæmlega fjórum árum eftir aö sama bygging varö fyrir sprengjuárás siöast. Allir þeir sem særðust voru bandarikjamenn utan einn inn- fæddur. Farið var með alla á sjúkrahús en enginn þeirra er i lifs- hættu. Lögreglan hefur handtekið fjóra menn sem hún grunar um að standa að tilræðinu en hefur neitað að gefa nokkrar upplýsingar um þá. Hefur lögreglan þá kenningu að tilræðið sé hugsað sem hefnd fyrir dauða Ulrike Meinhof á dögunum en félagi hennar, Andreas Baader, er nú fyrir rétti ákærður fyrir sprengjutilræði viö sömu byggingu 1. júni 1972. Þá féll einn bandariskur her- foringi og 13 aðrir særðust. Höfuðstöðvar bandarikjahers i Frankfurt hefur verið gætt sér- staklega. Höfuðstöðva bandarikjahers I Frankfurt hefur verið gætt sér- staklega vel siðan fyrri sprengingin varö og skilur lögreglan ekkert i þvi hvernig hægt hefur verið að laumast inn i þær og koma þar fyrir sprengjum. Olíuleit að hefjast við Grœnland Kaupmannahöfn 1/6 ntb — Eftir örfáa daga hefjast boranir und- an ströndum Grænlands i oliuleitarskyni. Þá veröur einu full- komnasta oliuleitarskipi heims, Pelican, lagt uþb. 120 km úti fyrir Syðra—Straumsfirði á vesturströnd Græniands. Skipiö er gert út af fyrirtækinu TGA—Grepco sem i er bundið danskt, franskt og kanadiskt fjármagn. Þetta fyrirtæki verður sennilega eitt um hituna i oliuleit við Grænland á þessu ári þótt 20 fyrirtæki hafi fengið leitarleyfi. Boranirnar áttu að hefjast fyrir mánuði en mikill is á þessum slóðum kom i veg fyrir að þær hæfust. Boranirnar standa senni- lega yfir i tvo mánuði i þessari lotu.

x

Þjóðviljinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.