Þjóðviljinn - 14.08.1976, Blaðsíða 3
Laugardagur 14. ágúst 1976 ÞJÓÐVILJINN — StÐA 3
Libanon:
Yfir 2000 féllu
í Tel Al-zaatar
Beirut 3/8 reuter ntb
— Nályktin lá yfir flótta-
mannabúðunum Tel
Al-zaatar i dag þegar
ræningjar fóru á stjá i
leit að verðmætum í
búðunum sem hægri-
menn náðu á sitt vald i
gær.
Tveir palestinskir læknar sem
störfuöu i búöunum sökuöu
hægrimenn um aö hafa drepið 60
hjúkrunarkonur eftir aö læknaliö-
iö yfirgaf búöirnar i gær.
ForystumaöurRauða krossins i
Libanon, Jean Hoefliger, sagöi i
dag að sex þUsund manns heföu
yfirgefið bUöirnar eftir aö þær
féllu. Þegar fólkið streymdi i
gegnum viglinu hægrimanna
voru flestir karlmennirnir hand-
teknir. Sumum var skilaö aftur i
hendur fulltrUa Arababandalags-
ins en nokkrum var haldiö áfram.
Leiötogi einnar stærstu fylking-
ar hægrimanna, Dany Chamoun,
sagðist i dag giska á aö yfir tvö
þUsund manns heföu fallið I bUð-
unum meöan á umsátrinu stóö. Af
hans eigin liði féllu 83 o g 215 særö-
ust aö hans sögn. Hann taldi aö i
búöunum heföu veriö rúmlega
1.200 vopnaöir menn auk 25
sýrlenskra hermanna og nokk-
urra sovéskra tæknimanna sem
hefðu hjálpaö þeim til að smiöa
ný vopn.
Chamoun sagði að striöið i
Libanon hefði nú breyst i baráttu
milli heimskommUnismans sem
beitti palestlnumönnum fyrir sig
og hægrimanna. Þvi til stuönings
sagöi hannað 400alsirmenn heföu
komiö til hafnarborgarinnar
Sidon i dag og að vinstriöflin
fengju 450 tonn af vopnum i viku
hverri. >
Leiðtogi vinstriaflanna, Kamal
Junblatt, sagði á blaöamanna-
fundi i dag aö vinstriöflin heföu
fengiö þrjár miljónir dollara i aö-
stoð frá trak.
Vinstrimenn hafa haldiö þvi
fram að málaliðar berjist með
hægriöflunum. Chamoun neitaöi
þessu i dag. Einn af leiötogum
falangista Bashir Gemayel, hélt
þvi fram aö hægrimenn heföu
orðið að hertaka Tel Al-zaatar þvi
búöirnar heföu verið orðnar aö
bækistöðvum alþjóölegra hryöju-
verka og einskonar riki i rikinu
sem stjórnvöld i Libanon gætu
ekki haft stjórn á.
Breska stjórnin lagði nýlega fram tillögu um umiangsiuiKiiiu
sparnað i rikisrekstrinum. Samstaöa náöist um þær i rikisstjórn-
inni en breski teiknarinn JAK hefur sinar grunsemdir um það
hvernig hún var til komin. Caliaghan: — Þeir sem eru samþykk-
ir sparnaðartillögunum rétti upp hægri hönd.
Berlinarmúrinn 15 ára
V-þjóðverjum snúið
við á landamærunum
Berlin 13/8 reuter — Berllnar-
múrinn átti 15 ára afmæli i dag og
af þvi tilefni skipulögöu æsku-
lýðssamtök kristilegra
demókrata i Vestur-Þýskaiandi
rútuferðir tii Berlinar þar sem til
stóð að mótmæla tilveru múrsins.
Ekkert varö þó úr þeim mót-
mælum þvi austur-þýskir landa-
mæraverðir stöövuðu rúturnar
áöur en þær komust til Berltaar.
Kváöust þeir hafa snúið 10 rútum
viö á landamærunum en hinum
var snúiö við innan viö landa-
mærin. Alls voru rúturnar 17 og i
þeim um 1.200 manns.
Stjórnvöld i þýska alþýöulýð-
veldinu mótmæltu þessari ferö
fyrr i vikunni. Fréttastofa lands-
ins, ADN.sagöi i dag aö rútunum
herói verið snúið til baka vegna
grunsemda um að farþegar
þeirra ætluðu að „misnota veg-
inn (milli Vestur-Þýskalands og
Vestur-Berlinar) i ögrunar skyni
við þýska alþýöulyðveldið.”
Flokkur kristilegra demókrata
gaf út yfirlýsingu um aö hindrun
á ferð bilanna væri brot á samn-
ingum þýsku rikjanna um frjálsa
umferð til og frá Vestur-Berlin.
1 Bestur-Berlin var afmæli
múrsins minnst á ýmsan hátt.
Stjórnmálamenn lögöu blóm-
sveiga á leiði þeirra sem falliö
hafa við tilraunir til aö komast
yfir múrinn og óvenjumargir
voru á ferli við múrinn.
Austan við múrinn gekk lifiö
sinn vanagang aö ööru leyti en þvi
aö samtök sem nefnast „baráttu
hópar” og tóku þátt i aö reisa
múrinn efndu til göngu á Karl
Marx AUee til að minnast bygg-
ingar hins „andfasiska varnar-
múrs ' Blöö birtu heUusiðurnar af
myndum af landamæravöröum
sem falliö hafa viö mUrinn. Af
opinberri hálfu var ekki minnst á
afmæli múrsins f þýska alþýðu-
lýðveldinu.
Eiturborgin Seveso
F ósturey ðingar hafnar
Milanó 13/8 reuter — Læknar á
sjúkrahúsum i Milanó fram-
kvæmdu i dag fyrstu þrjár fóstur-
eyðingarnar á konum frá Seveso
þar sem eiturský hefur legiö yfir
borginni á annan mánuð.
Þrettánda
gengisfellingin
Montevideo 13/8 reuter —
Stjórnin i Uruguay felldi i dag
gengi pesóans um rúmlega
2%. Þetta er þrettánda
gengisfelling hans þaö sem af
er þessu ári.
Samtals er vitað um 113 konur
frá borginni sem eru á fyrstu
þrem mánuðum meögöngutíma.
Fyrstu fósturejíiingarnar voru
framkvæmdar á Mangigalli spit-
alanum iMilanóogþrjár konur til
viöbótar hafa fengið vilyrði fyrir
eyöingu. Er búist viö aö þær veröi
teknar til meöferöar einhvern
næstu daga.
Fóstureyðing er saknæm sam-
kvæmt itölskum lögum en rflús-
stjórnin hefur heimilaö undan-
tekningu i þessu tilviki og vitnar
til úrskuröar hæstaréttar Itallu
fra þvl i fyrra um aö leyfa megi
fóstureyðingu ef heilsu móðurinn-
ar er ógnaö.
Kaþólska kirkjan hefur beitt
sér hart gegn fóstureyðingunum
og kallar þær „ómannlegar fórn-
ir”. Er gefið i sÍQín að þær séu i
ætt viö tilraunir til kynbóta sem
þýskir nasistar fengust við á
striösárunum. Málgagn páfa-
stóls, Osservatore Romano, it-
rekaöi I dag fyrri röksemdir um
aö engin sönnun væri fyrir þvi aö
fóstrin heföu orðiö fyrir áhrifum
af eitrinu. Prestar i nágrenni
Seveso hafa dreift flugmiöum
gegn fóstureyöingum.
Kona ein i Seveso svaraöi kirkj-
unni á þennan hátt i dag: —
Prestunum má vera sama, þeir
ganga ekki með börn. Ég er
kaþólsk en samt ætla ég að gang-
ast undir fóstureyðingu.
Erlendar
fréttir í stuttu
máli
Bretar mótmœla síldarkvóta
London 13/8 reuter — Breska
stjórnin skýrði frá þvi i dag að
hún sætti sig ekki lengur viö
aflakvóta þann sem bretum
var skammtaður þegar sild-
veiðum i Norðursjó var skipt
milli þjóða fyrir árið 1976.
Samkvæmt úrskurði
Noraustur-Atlantshafs-
fiskveiðinefndarinnar var
bretum Utdeilt 9.700 tonnum af
sild úr Norðursjó á þessu ári.
Breska stjórnin sætti sig við
þetta þar til norðmenn mót-
mæltusinum kvóta um miðjan
júli.
Norðmenn kváöust
óánægöir meö sinn skerf af
heildaraflanum en hann átti
að vera 23.900 lestir. Kváðust
þeir ætla að veiða 27.600 lestir.
Eftir þaö lýstu bretar þvi yfir
að þeir myndu ekki viröa
kvótann og er sagt aö aflinn sé
nú þegar orðinn meiri en 9.700
lestir.
Breskir embættismenn
segja að mikill fjöldi erlendra
skipa stundi nú sildveiöar i
Norðursjó alveg upp að 12
milna lögsögu Bretlands.
Castro fimmtugur — eða hvað?
Havana 13/8 reuter — Fidel
Castro forsætisráðherra Kúbu
fekk i dag fjölda heillaóska að
úr heiminum i tilefni af
fimmtugsafmæli sinu.
Nokkur ágreiningur rikir
um aldur Castros þvi sumir
halda þvi fram að hann verði
ekki fimmtugur fyrr en að ári.
Kúbönsk blöð hafa ekkert
talað um afmæli leiötogans og
engin ævisaga hefur komiö út.
Fréttamaður Reuter i
Havana hefur það eftir út-
lendum ævisagnaritara að
Castro hafi látið skrá
fæðingardag sinn ári fyrr en
rétt er til að komast fyrr i
gagnfræðaskóla.
Kremlverjar draga hins
vegar ekki i efa að Castro
verði fimmtugur i dag og i til-
efni af þvi var hann sæmdur
Leninorðunni fyrir þátt hans i
aö efla samskipti Kúbu og
Sovétrikjanna.
Sex farast i bilslysi i Noregi
Bergen 13/8 reuter ntb — Sex
farþegar létust og 40 slösuöust
þegar rúta full af ferða-
mönnum ók út af fjallavegi
nærri Kinsaravik I Vestur-
Noregi og féll 50 metra niður i
fjöru i dag.
Bfllinn sem var i leigu hjá
danskri ferðaskrifstofu fór frá
ósló i gær til Vesturlandsins
þar sem skoöa átti firðina. 1
honum voru 30 danir, 10
norðmenn, þrir spánverjar,
tveir þjóðverjar og einn
bandarikjamaður.
Tvær þyrlur og sex sjúkra-
bílar komu á slysstað og fluttu
hina særðu á sjúkrahús.
Læknr sögðu að 20 af far-
þegunum væru alvarlega
slasaðir.
Ráðstefna hlutlausra rikja
Colombo 13/8 reuter — Þrem
rikjum — Rúmeniu, Portugal
og Filippseyjum — sem öll
eiga aðild að hernaðarbanda-
lögum var i dag leyft að sitja
ráðstefnu rikja utan
hernaðarbandalaga sem nú
stendur yfir i Colombo á Sri
Lanka en aðeins sem gestir.
Miklar umræður uröu um
það hvort leyfa bæri þessum
rikjum að sitja ráöstefnuna.
Portúgalir eru aðilar að Nató,
filippseyingar að Seato og
rúmenar að Varsjárbanda-
laginu.
Fjögur önnur riki sitja ráö-
stefnuna sem gestir en þau eru
Sviss, Sviþjóð, Finnland og
Austurriki sem öll standa utan
hernaðarbandalaga. Gestir
hafa ekki málfrelsi á ráðstefn-
unni.
Verkfallsboðun i Kanada
Ottawa 13/8 reuter — Verka-
lýðssamband Kanada (CLC)
hefur boðað til allsherjarverk-
falls i einn dag 14. október nk.
til að mótmæla stefnu stjórn-
valda i verðlags- og kaup-
gjaldsmálum.
Fyrir einu ári kom stjórn
Pierre Trudeau á hömlum á
hækkunum verðlags og kaup-
gjalds en samkvæmt þeim
mega laun ekki hækka um
meira en 10% á ári.
Félagar i verkalýðs-
sambandinu eru uþb 2,3
miljónir talsins.
Fjölmenn jarðarför i Belfast
Bclfast 13/8 reuter ntb —
Þúsundir kaþólikka fylgdu i
dag til grafar börnunum
þremur sem létust er bíll með
liðsmönnum Irska lýðveldis-
hersins valt og lenti á þeim og
móður þeirra sl. þriðjudag.
Atburður þessi hefur oröið
til þess að fylla konur
kaþólsku hverfanna reiði i
garð IRA og hafa þær efnt til
mótmælaaðgerða og krafist
þess aö IRA hætti að nota
stræti norður-irskra borga
sem vigvelli. Konurnar hafa
hvað eftir annað hrakiö byssu-
menn Ur IRA af götunum og
einu sinni komu þær i veg
fyrir að þeir rændu strætis-
vagni og brenndu hann en
slikar aðgerðir hafa verið
mjög tiöar aö undanförnu.
Konurnar stukku upp i bilinn
og hrópuðu: — Ef þið ætlið að
kveikja i i þessum bil verðið
þið að brenna okkur með.
Lýðveldisherinn gaf út yfir-
lýsingu i dag þar sem lát barn-
anna er harmað. Er sökinni
varpað á breska herinn sem
skaut bilstjórann til bana við
stýrið.
Monsúnflóð i Pakistan
Lahore 13/8 reuter — Miklir
vatnavextir sem stafa af
monsúnrigningum hafa haft
áhrif á lif liðiega fjögurra
miljón manna i Pakistan
undanfarna daga.
Nokkur hundruð manns
hafa farist af völdum flóð-
anna, 55 þúsund hús hafa eyði-
lagst og 40 þúsund til viðbótar
skemmst. Flóðin voru framan
af mest i Punjab héraði en þar
hefur ástandið skánað undan-
farna daga. Þar á móti kemur
að fljótið Indus veldur nú
miklum usia i Sind héraði.