Þjóðviljinn - 14.08.1976, Blaðsíða 16
DJOBVIUINN
Laugardagur 14. ágúst 1976
Fimleikaflokkar frá Ollerup hafa
fariö vi a og sýndu m.a. f Japan
fyrirskömmu viö mikia hrifningu
Vestmannaeyjar:
Danskir
gestir við
vígslu
íþrótta-
hússins
t sambandi viö vigslu Iþrótta-
hússins i Vestmannaeyjum 12.
september nk. sendir Ollerup-
skólinn þangaö fimleikaflokka
skólans, sem feröuöusttil Japan á
sl. ári og vöktu þar mikla athygli.
Auk þátttöku i vigslu Iþrótta-
hússins I Eyjum munu flokkarnir
sýna I Reykjavik og á Akureyri.
Hinn kunni íþróttafrömuöur Niels
Bukh stofnaöi iþróttaskólann i
Ollerup 1920.
Viö Olympluleikana I Stokk-
hólmi 1912 stjórnaöi N. Bukh
dönskum alþýöufimleikum en á
sinn hátt, sem siöar var við hann
kenndur.
Þennan hátt kynnti hann meö
flokkum sinum á þrem Olympiu-
leikum, tveim heimssýningum og
með feröum um allar heimsálfur.
Hingað út hafa flokkar skólans
komið tvivegis og voru sýningar
þeirra fjölsóttar.
Skólastjóri skólans er nú og
hefur verið frá andláti N. Bukh
1950 Arne Mrotensen. Formaður
skólanefndar er annar forstjóri
byggingarfyrirtækisins Klemm-
ensen og Nielsen A/S, Johannes
Nielsen, sem reisir iþróttahúsiö á
Heimaey.
Hann og skólastjórinn hafa
verið frumkvöölar þessarar
Islandsferöar og þaö er ætlun
þeirra aðágóöi sýninganna veröi
varið til tækjakaupa i iþróttahús
Vestmannaeyinga. Er ekki aö efa
að marga fýsir aö sjá fimleika
hinna ágætu flokka Ollerup-
skólans, sem gistu Japan 1975 og
gátu sér frábæran orðstl.
Frœðslu-
hópar og
fyrirlestrar:
Okkur finnst þaö kraftaverki
likast aö tekist hefur aö reka
Listasafn tslands fyrir þá fjár-
upphæö sem þvi er ætluö, sagöi
Karla Kirsjánsdóttir fulltrúi hjá
Listasafninu á fundi meö frétta-
mönnum i gær. — Viö fáum 200
þúsund krónur á mánuöi fyrir
utan launakostnaö, og þessum
peningum þarf aö greiöa aiian
sima- og póstkostnaö, prenta
sýningarskrár, kosta viöhald og
Úr sölum listasafnsins.
Merkar nýjungar
í starfi Listasafns
setja upp myndir o.þ.h. Það
gefur þvl auga ieiö aö þaö þarf
býsna mikla hagsýni til aö reka
safnið þannig aö endar náist
saman.
A fundinum I gær kom i ljós,
að fjárveiting til listaverka-
kaupa er 4.750 þús. krónur og
hækkaði úr 1200 þús. I fyrra.
Þegar hafa verið keyptar 18
myndir fyrir um helming þess-
arar upphæðar, og er þar um að
ræða myndir eftir innlenda og
erlenda iistamenn.
Nýjungar í starfinu
A fundinum voru kynntar
nýjungar I starfi safnsins, sem
er fyrirlestrahald, fræðsluhópar
um listsögu og kvikmynda-
sýningar um myndlist.
Fyrirhugaðir eru þrir fyrir-
lestrar listsögulegs efnis. Hinn
fyrsti þeirra verður I næsta
mánuði og fjallar þá Hrafn-
hildur Schram um Ninu
Tryggvadóttur, I október mun
Ólafur Kvaran flytja fyrirlestur
um Septemberhópinn 1947-1952
og I nóvember flytur Guðbjörg
Kristjánsdóttir fyrirlestur um
islensku teiknibókina I
Arnasafni. Þessir fyrirlestrar
eru allir prófritgerðir fyrirles-
aranna I listfræði. Sagði Ólafur
Kvaran á fréttamanna-
fundinum, að ætlunin væri að
siikir fyrirlestrar væru rann-
sóknarfyrirlestrar, þannig að
þarna gæfist listfræðingum nýr
vettvangur fyrir rannsóknir
sinar, en á sllku væri einmitt
mikil þörf.
Fimm fræðsluhópar I listsögu
verða fram til áramóta.Kom
fram á fundinum að tilrauna-
hópar hefðu verið settir af stað I
april siðastliðnum og hefðu þá
vel yfir 100 manns sótt um að
komast i þá. Hins vegar hefði
ekki verið hægt að taka nema 50
i hópana þá, en vegna þessarar
miklu aðsóknar hefði vrið
ákveðið að halda áfram á þesari
braut.
Fræðsluhóparnir verða sem
hér segir:
Myndlist á 20. öld. 2 hópar.
Umsjón ÓlafurKvaran. 15. sept.
til 15. okt.
Islensk myndlist á 20. öld.
Umsjón Ólafur Kvaran. 15. okt.
til 15. nóv.
Húsagerðarlist á 20. öld.
Umsjón Hrafn Hallgrimsson.
15. okt. til 15. nóv.
Höggmyndalist á 20. öld.
Umsjón Júliana Gottskálks-
dóttir. 15. nóv. til 15. des.
Ný viðhorf i myndlist frá ca.
l960.Umsjón Ólafur Kvaran. 15.
nóv. til 15. des.
Þessir fræðsluhópar eru opnir
öllum og er ætlunin að þeir
hittist fjórum sinnum, tvo tima i
hvert sinn. 1 hverjum hóp verða
15-20 manns og verður þátttöku-
gjald 800 krónur. Athygli skal
vakin á þvi, að þátttöku i
fræðsluhópana þarf að tilkynna
til Listasafns Islands fyrir 1.
september nk.
Kvikmyndasýningar um
erlenda myndlist verða haldnar
tvisvar i mánuði. Þær hefjast i
september og verða nánar
auglýstar 'þegar að þeim
kemur. Þegar hafa verið
tryggðar myndir frá Banda-
rikjunum og Kina, auk þess sem
liklegt er að einnig verði myndir
frá a.m.k. Noregi og
Þýskalandi. Þessar myndir eru
fengnar i gegnum sendiráð
viðkomandi landa.
Góð aðsókn
Selma Jónsdóttir forstöðu-
maður Listasafns rikisins sagði
á fundinum, að aðsókn að þvi
hefði verið óvenjulega góð á
þessu ári. Alls hafa komið þar
um 25.000 gestir það sem af er
árinu, en til viðmiðunar má geta
þess að allt árið i fyrra komu
þar 30.000 manns. Fyrstu fimm
mánuði ársins var safnið opið
fjóra daga vikunnar kl. 13.30 til
16, en alla daga vikunnar á
sama tima yfir súmarmánuðina.
Selma sagðist gera ráð fyrir
að um mánuður á ári tapaðist
vegna undirbúningsvinnu við
sýningar, niðurtöku mynda og
sliks.
Á fundinum kom einnig fram
að fjórar einkasýningar hafa
veriðhaldnar á árinu, fyrir utan
sýningar á islenskum og erlend-
um myndum i eigu þess. Þá er
fyrirhuguð sýning á verkum
Finns Jónssonar i haust.
Auk þessa lánaði svo
safniðfjölda mynda til sýninga
utan safnsins.
Flutt 1979
Aðspurð kvaðst Selma Jóns-
dóttir vonast til að geta flutt
sem allra fyrst i nýja húsnæðið i
Herðubreið, eins og hún sagði,
en það er upprunalegt nafn
hússins að Frikirkjuvegi 7, sem
safnið hefur nú eignast. Eftir er
þó að smiða við húsnæðið og
kvaðst hún gera ráð fyrir að
unntyrði að flytja á árinu 1979.1
þvi húsi sem nú stendur á
lóðinni sagði hún að yrðu tveir
sýningarsalir, kaffistofa og
skrifstofur, en i viðbótarhús-
næðinu yrðu þær 2000 myndir
sem safnið á nú, fyrir utan
dánargjöf Gunnlaugs Schev-
ings, sem telur hundruð mynda.
hm
Lést í
bílslysi
suður á
Spáni
Fjórir islendingar lentu I bil-
slysi suöur á Spáni i fyrradag.
Einn þeirra, Jón örvar Geirsson,
læknir, iést, hinir þrir slösuöust
aivarlega.
Fjórmenningarnir voru á
ferðalagi á Spáni i bilaleigubii og
munu hafa lent undir palli vöru-
bils i nálægð borgarinnar Valens-
iu. Tveir islendinganna voru
lagðir á sjúkrahús og er annar
þeirra i lifshættu.
Jón örvar hafði nýlokið
kandidatsári sinu við iæknanám-
ið. Hann var ókvæntur.
Gefjun
byggir
°g byggir
Sambandsverksmiðjurnar á
Akureyri standa um þessar
mundir I verulegum byggingar-
framkvæmdum. Er annars vegar
um að ræða eittþúsund og fimm
hundruð fermetra vinnuskála
fyrir kembi- og spunavéiadeild
Gefjunar en hins vegar byggingu
600 fermetra lagarhúsnæöis.
Reiknað er með að hægt verði
að setja niður vélar I stóra húsið
ummiðjan september og fari allt
skv. áætlun ætti vinna að geta
hafist um eða upp úr áramótum.
—gsp
Fækkun í
skólum í
Reykjavík
15.500 nemendur eða þar um bil
munu hefja skólagöngu i barna-
og gagnfræðaskólum Reykjavik-
ur þann 6. september. Er þetta
um 450 nemendum færra en var i
fyrra.
Heitt við
Kröflu
Nýja borholan við Kröflu mun
innihalda heitasta vatn, sem
mælst hefur i borholu i heiminum
öllum, en þar mun hitinn vera
hvorki meira né minna en 341
Ekki mun vera unnt að láta
holuna blása út, svo enn mun
vatnið hitna, eða þar til útblástur
gegn um holuna hefur farið fram.
Falsaðir seðl-
ar í umferð
Rannsóknarlögreglan hefur
varaö fólk viö föslkum
seölum.sem kann aö vera reynt
aö setja i umferö. Þann 11. þessa
mánaöar voru vörur, sem
keyptar voru i búö einni hér i
borginni, greiddar meö peninga-
seöli, sem var harla torkenni-
legur. A framhliö hans stóö á
ensku: „Japanska stjórnin heitir
aö greiöa handhafa tiu doliara
gegn framvvisun þessa seðils.”
„(The Japanese Government
promises to pay the bearer on
demand Ten dollars mp.) Þetta
er grænleitur seðiil og sá sem
greiddi með honum sagði að hann
væri andvirði tiu bandarikjadala
og var hann tekinn á þvi gengi.
Seðillinn er einskis virði og
biður rannsókarlögreglan fólk um
að láta sig vita.efþað verður vart
viö slika seöla I umferð.
Lögreglan hefur ástæöu til þess
að ætla a peningafalsararnir
muni reyna að leika leikinn á ný.
I’flOHISÉS T0PAYTHE BEAHEfl
0NDEMAND