Þjóðviljinn - 14.09.1976, Qupperneq 7
Þriðjudagur 14. september 1976. ÞJÓÐVILJINN — SÍÐA 7
Þegar hægri menn hittast við
hátiðleg tækifæri og taka að
hæla sjálfum sér vill það oft
brenna við að þeim verði tiðrætt
um hina traustu fjármálastjórn
og öryggi i gjaldeyrismálum
sem einkenna eiga valdaferil
þeirra. tslenskum lesendum er
á stundum boðin þessi speki i
málgögnum hægri aflanna. i
siðustu þingkosningum sungu
hinir svokölluðu sjálfstæðis-
menn mjög um hina ábyrgu
efnahagsstjórn sem koma
myndi i kjölfar kosningasigurs
þeirra. Og það var ekki ör-
grannt að sérfræðikóngarnir i
Seðlabankanum, fjármálaráðu-
neytinu og stofnuninni sem
kennir sig við þjóðarhag hlökk-
uðu obbolitið til að fá nú i valda-
stólana gamla vini frá við-
reisnartimanum. Þá skyldi nú
vinstri mönnum og verkalýð,
sósialistum og öðrum liðsafnaði
almennings sýnt i eitt skipti
fyrir öll hvernig taka ætti til
hendinni i peningamálum og
gjaldeyrissjóðum þjóðarinnar.
Þegar kosnmgarnar voru
gengnar um garð og fram-
sóknarformaðurinn úr Pljót-
unum var búinn aö mynda
stjórnina fyrir heildsalann úr
höfuðborginni drógu allir finu
herrarnir i fjármálaheiminum
andann léttara. í helgidómi
Seðlabankans, harðviðarsölum
viðskiptabankanna, kontórum
stórkaupmannanna, hvita húsi
Sambandsins, leyndarsölum
fjármálaráðuneytisins og kaffi-
stofu Þjóðhagsstofnunarinnar
rikti kátina mikil og fögnuður.
Nú voru allir góðu strákarnir
komnir i sama kór.
Ráðherrar ihalds og fram-
sóknar, heildsalar og SÍSfor-
kólfar, bankabroddar og al-
vöruþrungnir efnahagssérfræð-
ingar tóku höndum saman og
hrópuðu húrra fyrir
þessum timamötum. Fulltrúar
verkalýðsins voru farnír úr
ráðuneytunum og alþýðusam-
tökin orðin utangarðs. Nú yrði
hægt að hefja þá einu og sönnu
efnahagspólitik sem hæfir
hinum finu herrum fjármagns-
ins.
En margt fér öðru visi en ætlað
er. Hinir háttsettu valdsmenn
hafa birst almenningi sem ráf-
andi hjörð. Þeir hafa glatað
öllum tökum á efnahagsmálum
þjóðarinnar, fórnað sjálfstæðri
stefnumörkun á alþjóðavett-
vangi fyrir siauknar lántökur
hjá útlendum fjármálastofn-
unum og hleypt yfir lifskjör al-
mennings einstöku verðbólgu-
báli sem brennt hefur upp alla
sigra alþýðusamtakanna frá
fyrri árum. Jafnframt hafa
þessir valdsmenn skapað fá-
mennri eignastétt með versl-
unarauðvaldið i broddi fylk-
ingar æ stórfenglegri tækifæri
til að sölsa undir sig sifellt
stærri hluta þjóðarverðmæt-
anna.
Þegar finheitunum og hinu
sérfræðilega dulmáli er svipt
burtu blasir við einfaldur ömur-
leikinn i efnahagsstjórn þessa
samansúrraða valdahóps ihalds
og framsóknar og hve blygð-
unarlaust þessir herrar hafa
tekið höndum saman um að
fórna hagsmunum þjöðarinnar i
þágu skammvinnar gróðaað-
stöðu auðaflanna. Svo langt er
jafnvel gengið að efnahagslegu
sjálfstæði hins unga lýðveldis er
teflt fram á ystu nöf.
Dómsorðið
1 hverjum mánuði birtist litið
kver sem flytur á hæverskan
hátt dómsorðið um stjórnar-
hætti rikisstjórnar viðskipta-
jöfranna. A titilsiðu er hið hlut-
lausa heiti: Hagtölur mánaðar-
ins. Og skjaldarmerki Seðla-
bankans er þrykkt að auki sem
sérstakur gæðastimpill. Sé
þetta litla kver greint i sundur
og merking hinna fjölmörgu
Lítið kver
um stóran
sannleik
HAGTÖLUR
MÁNAÐARINS
Júlí 1976
talnadálka færð i mælt mál flyt-
ur það auðskilinn en ógnþrung-
inn boðskap um hve grátt örlög
þjóðarinnar eru leikin i höndum
þessara afla.
Otgefandi ritlingsins, for-
stjóri Seðlabankans og sér-
stakur sendifulltrúi hinnar is-
lensku eignastéttar hjá út-
lendum lánadrottnum og auð-
hringjasamsteypum, gætir þess
auðvitað vandlega að skýringar
fylgi ekki með talnarununum.
Hinir fjölmörgu dálkar skulu
helst birtast almenningi sem
galdraverk — nútima töfraþula
fáeinna útvaldra i hópi hinna
lærðu.
Einföld túlkun á veruleik-
anum að baki talnaraðanna
leiðir hins vegar i ljós mikinn en
dapurlegan sannleika. t
hverjum mánuði sýna Hagtöl-
urnarhagsmunaandstæðurnar i
islensku þjóðfélagi: i þágu
hverra er stórnað og hverjum er
fórnað. Þær sýna hvernig rikis-
stjórn auðaflanna leitar i æ rik-
ari mæli á vit lagsbræðra sinna i
hinum erlenda fjármálaheimi,
eykur skuldabyrði þjóðarinnar
ár frá ári og hefur i reynd veð-
sett efnahagslegt sjálfstæði is-
lensku þjóðarinnar.
Margföld aukn-
ing á erlendum
skuldum
Fátt er fámennri þjóð mikil-
vægara, ætli hún að varðveita
sjálfstæði sitt, en að forðast að
binda sér bagga erlendra
skulda. Slikt boðorð er einkum
mikilvægt þegar aðalgjald-
eyrisöflunin byggist á jafn-
sveiflukenndum atvinnuvegi og
sjávarútvegi og fiskiðnaði.
Þegar byrði erlendra skulda er
orðin verulega há geta afla-
brestur og skyndilegt verðfall á
mörkuðum riðið greiðslugetu
þjóðarinnar að fullu. Hún yrði
þá að ofurselja sig erlendum
lánadrottnum eða hreinlega
lýsa sig gjaldþrota eins og dæmi
eru til um i veraldarsögu siðari
tima.
Hinar reglubundnu frásagnir i
Ilagtölum mánaðarinsaf siauk-
inni erlendri skuldasöfnun eru
orðnar eins konar hljómur i
timavirki efnahagslegrar tor-
timingarsprengju islenska lýð-
veldisins. Þær sýna glöggt i
hvers konar helfjötra hin
samansúrraða valdaklika
verslunarauðvaldsins og
skammsýnna fjarmálasér-
fræðinga hefur reyrt þjóðina.
Langtima erlt'ndar skuldir is-
lendinga hafa vaxið þannig á
aðeins hálfum áratug:
Ár Miljarðarkr.
Eri. lán
1970 ................... 11.1
1971 ....................14.4
1972 ................... 17.2
1973 ....................20.9
1974 ....................41.4
1975 ....................73.0
Þessar tölur sýna á ofur ein-
faldan hátt kjarna þeirra breyt-
inga sem núverand; rikisstjórn
hefur haft i för með sér. Á að-
eins tveimur árum hefur "hún
nær fjórfaldað hinn erlenda
skuldabagga lýðveldisins. Hún
hefur rekið þjóðarbúið á vixil-
lánum frá útlendum peninga-
musterum. Hún hefur steypt is-
lendingum úti mesta skuldafen
sem þekkst hefur frá stofnun
lýðveldisins. Hlutfallsleg aukn-
ing frá ári til árs varpar enn
skýrara ljósi á feril þessara finu
herra:
Ár Hlutfallsl.
aukning
1971 .................30.1.%
1972 ................. 19.4%
1973 ..................21.3%
1974 ..................98.0%
1975 ................. 76.2%
Þessar tölur syna ljóslega i
hnotskurn mur.inn á ábyrgri
efnahagsstefnu þeirrar stjórnar
sem verkalýðsöfiin áttu aðild að
og þeirri glæfrapólitik sem nú er
rekin i þágu heildsalavaldsins.
A valdatima siðustu rikisstjórn-
ar stóð aukningarhlutfallið i
stað i tvö ár og minnkaði til
muna frá siðasta ári viðreisnar-
innar. Þegar hægrabandalagið
hafði tekiö við forsjá þjóðarbús-
ins 4-5-faldaðist svo aukningar-
hlutfallið. Arið 1974 skilaði nær
100% aukning og árið 1975 rúm-
lega 75% aukningu. Á stjórnar-
tima verkalýðsaflanna var hlut-
fallið hins vegar um eða undir
20%.
Staðreyndirnar sýna þvi ótvi-
rætt að það eru stjórnmálaöfl
alþýðunnar sem reynast örugg-
ustu forráðaaðilar gjaldeyris-
mála þjóðarinnar. Hátiðaræður
hægri manna um hina ábyrgu
fjármálastjórn eru i ljósi stað-
reyndanna afhjúpaðar sem ir.n-
antómtfleipur. Saga siðustu ára
sannar að einungis áhrif verka-
lýðsaflanna og flokka alþýðunn-
ar á stjórn landsins getur tryggt
að efnahagslegu sjálfstæði þjóð-
arinnar verði ekki stefnt i hættu.
Skuldasúpa
ríkisins
Þessi munur á framiagi
verkalýðsaflanna annars vegar
og heildsaiavaldsins hins vegar
til traustrar fjármálastjórnar
kemur enn skýrar i ljós ef
skuldasöfnun opinberra aðila er
athuguð sérstaklega, en þar
eiga rikissjóður, rikisstofnanir
og rikisfyrirtæki stærstan hlut.
Opinber erlend lán hafa á und-
anförnum árum numið eftirfar-
andi upphæðum:
Ár Miljarðar
króna
1970 ................... 6.6
1971 ................... 8.0
1972 .................. 10.3
1973 .................. 12.3
1974 ...................23.2
1975 ...................41.9
Athugun á hlutfallslegri aukn-
ingu frá ári til árs leiðir i ljós að
á valdatima rikisstjórnarinnar
sem verkalýðsöflin áttu aðild að
var aukningunni ávallt haldið
innan 20-30% markanna og á
siðasta heila valdaári þeirrar
rikisstjórnar minnkaði aukn-
ingin niður i 20%. A ferli núver-
andi stjórnarherra hefur hún
hins vegar ætið verið 80-90%.
Ár Illutfallsl
aukning
1971 20.8%
1972 28.8%
1973 20.0%
1974 87.8%
1975 80.7%
Hinar einföldu tölur um er-
lenda skuldasöfnun i tið þessa
bandalags verslunarauðvalds-
ins sýna betur en nokkuð annað
hve óheillavænleg straumhvörf
hafa orðið siðan verkalýðsöflin
misstu tökin á stjórn islenska
rikisins.
Og áfram tifar
tímasprengjan
Hin erlenda skuidasöfnun,
sem er eins konar tortimingar-
sprengja fyrir efnahagslegt
sjálfstæði þjóðarinnar, hefur
haldið áfram að vaxa á þessu
ári. Hinn mánaðarlegi viðvör-
unarhljómur i Hagtölunum
verður æ hvellari. 1 júnimánuði
á þessu ári voru erlendar skuld-
ir 20 miljörðum meiri en á sama
tima á siðasta ári og erlend
skuldaaukning rikisins sjálfs
nam 14 miljörðumá þessum tólf
mánuðum. Herrarnir sem nú
eru svokallaðir stjórnendur
þessa lands hafa með öðrum
orðum á siðustu tólf mánuðum
aukið skuidir rikisins mun
meira en sem nemur heildar-
upphæð allra eriendra skulda
rikisins árið 1973.
Hið þjóðhættulega atferli
vaidhafanna i gjaldeyrismáium
hefur ekki aðeins aukið
greiðslubyrði lýðveldisins gagn-
vart erlendum lánadrottnum
um 50% á tveimur árum, heldur
hefur hún i reynd veðsett efna-
hagslegt sjálfstæði islendinga.
Meðan áfram er haldið á braut
vaxandi skuldasöfnunar eru
jafnt og þétt aukin itök banda-
riskra, bi eskra og vesturþýskra
fjármálajöfra ; islensku efna-
hagslifi. I krafii veldis lána-
drottnanna er nú knúið á um að
opna Island enn frekar fyrir er-
lendum auðhringum. Lána-
drottnarnir benda á hinar miklu
skuldir og bræða hugi ráðherr-
anna með voninni um meiri
gjaldeyri vegna starfsemi auð-
hringanna. Þannig hafa ófarir
heildsalavaldsins i stjórn efna-
hagsmálanna ieitt islensku
þjóðina i vitahring skuldasöfn-
unar og ásóknar erlendra auð-
hringa.
Meðan tortimingarsprengja
hins efnahagslega sjálfstæðis
tifar áfram með auknum hraða
biður hluti eignastéttarinnar
eftirvæntingarfuilur eftir meiri
lánum og stórfelldari umsvifum
auðhringanna. Það vill nefni-
lega stundum gleymast að
heildsalavaldið hefur haft bein-
harðar gróðaprósentur af allri
skuldasúpunni. Áframhaldandi
innflutningur i krafti erlendra
lána hefur skapað verslunar-
auðvaldinu enn eitt hagsældar-
árið. Hvað varðar heildsala-
kóngana um erlendar skuldir
lýðveldisins og efnahagslegt
sjálfstæði ef þeir geta áfram
halað inn sinn hluta?
Það er annars mikil synd að
Seðlabankinn skuli ekki bæta
litilli töflu um umboðslauna-
gróðann i kverið um hinar
mánaðarlegu hagtölur. En
kannski er hagnaður heildsal-
anna á óstjórn þjóðarbúsins
hinn óttalegi leyndardómur
höfðingjanna i Austurstræti?
—A.