Þjóðviljinn - 03.10.1976, Blaðsíða 2

Þjóðviljinn - 03.10.1976, Blaðsíða 2
2 StÐA — ÞJÓÐVILJINN Sunnudagur 3. október 1976 fræöi Matvæla- f#l hnifs og skeidar Umsjón: Þórunn Sigurðardóttir í Háskóla íslands Nú er loks komið að því, að kennsla hef jist hér í Há- skólanum í matvælafræði og matvælaverkfræði þar sem þessar greinar verða kenndar með það fyrir augum að útskrifa fólk eftir um f jögur ár. Er það raunar furðulegt, að við skulum ekki fyrr hafa tekið að sérmennta fólk í þessum greinum hérlendis, og koma þó um 40% út- flutningstekna okkar frá matvælum. Auk þess hef ur almenningsfræðsla í þess- um efnum verið algerlega vanrækt. Ljóst er þó, að þessi kennsla á enn nokkuð undir f járveitingavaldinu, þótt ekki geti leikið neinn vafi á, að hér er um að ræða eitt „hagnýtasta" nám fyrir þjóðina, sem til er. AAeð tilkomu grunn- skólalaganna er m.a. ráð fyrir því gert, að allir nem- endur læri næringar-, framleiðslu- og matreiðsluf ræði, auk neytendahagfræði og hreinlætisfræði. Er því Ijóst, að mikið vantar af sérmenntuðu fólki til kennslu, bæði í æðri skóla og einnig í grunnskóla. Vafalitiö er mikilvægi þess- arar kennslu mest fyrir innlend- an matvælaiðnaö, en hann er enn litt þróaöur. En auk þess aö vera lyftistöng fyrir slikan iön- aö felur hún i sér verðmæti, sem ekki veröa metin i peningum eingöngu, en snerta heilsufar, mataræöi og hreinlæti bæöi hjá einstaklingum og fyrirtækjum. Þau áhrif, sem fólk með þekk- ingu i matvælafræði getur haft á t.d. mataræði landsmanna, sem eins og kunnugt er er ekki alltaf uppá það besta, veröa vart mæld i peningum. Viö ræddum viö dr. Jón Óttar Ragnarsson, matvælaefnafræð- ing, en hann hefur tekið þátt i undirbúngi kennslunnar i mat- vælafræði og matvælaverkfræði ásamt þeim dr. Jónasi Bjarna- syni, dósent og Guöna Alfreðs- syni, dósent. Dr. Jón Óttar sagði, að Háskólanum hefði lengi veriö legið á hálsi fyrir að leggja of mikla áherslu á greinar, sem ekki væru ,,hag- nýtar’’ Þessi kennsla i mat- vælafræöi og matvælaverkfræöi væri liöur i þeirri viöleitni háskólans að opna fleiri slikar ,, hagnýtar” leiðir fyrir nem- endur. Hafi háskólinn nú gengiö frá þessu máli fyrir sitt leyti og væri það þvi undir fjárveitinga- valdinu komið hversu til tækist, þvi enn væri sú hlið málsins að mestu óleyst. Væri þó rétt að benda á, aö ekki væri um stórar fjárupphæðir að ræða, þar sem nokkur kennsla i þessum grein- um hefði átt sér stað fáein undanfarin ár við Verkfræði- og raunvisindadeild. Jafnframt væri til allmikið af nauðsynleg- um tækjum. Kennslan verður i nánu sambandi við rannsóknar- stofnanir atvinnuveganna og starfa flestir væntanlegra kennara innan þessara rann- sóknarstofnana. Dr. Jón Óttar benti á, að islendingar búa frá fornu fari yfir allmikilli matvælaþekk- ingu. Af illri nauðsyn lærði þjóö- in að nýta matvæli, finna upp geymsluaðferðir og að matreiða fæðuna þrátt fyrir erfið ytri skilyrði framboðs, veðráttu o.fl. Nú væri þaö meira en timabært að endurnýja þessa kunnáttu og koma henni á vísindalegan grunn. 1 greinargerð, sem lögð hefur veriðfram i Verkfræði- og raun- visindadeild er bent á, að veru- legar breytingareigi sér nú stað i mataræði viða um lönd. Mat- vælavinnslan er i vaxandi mæli að færast æ meir úr höndum húsmæðra yfir i stórvirkar verksmiðjur. Þessi þróun getur orðið stórlega varasöm þar sem slik matvæli innihalda venju- lega aðeins hluta nauðsynlegra næringarefna. Oft innihalda þessi matvæli lika ýmis við- bótarefni, sem matvælafram- leiðandinn bætir i til þess að auka geymsluþol eða auövelda vinnsluna. Meðferð slikra efna verður hins vegar að byggjast á mikilli þekkingu innan fyrir- tækjanna þar eð misnotkun ým- issa efna af þessu tagi getur verið stórvarasöm. Erlendis er reynt að mæta þessum vanda með ýtarlegum vörumerkingum og almenningsfræðslu. Hér á landi rikir hins vegar mikill þekkingarskortur bæði meöal framleiðenda og neytenda. Verður þess enn langt að biða, að unnt verði að koma á fót nægilega öruggu eftirliti með matvælunum, svo og góðri leiðbeiningarþjónustu viö neyt- endur varðandi meðferð og val matvæla. Er kennslan I mat- vælafræðum við Háskólann þýð- ingarmikið spor á þeirri braut. í ofannefndri greinargerð er jafnframt fjallað um þá þróun, að vaxandi fjöldi fólks I kaup- stöðum og á höfuðborgarsvæð- inu neytir reglulega máltiða i stórum mötuneytum. Þessi þró- un stóreykur hættuna á matar- eitrunum og sýkingu af völdum skemmdra matvæla. Nægir að nefna þau matareitrunartilfelli, sem komiö hafa upp á fác-inum undanförnum árum og náðu til allstórra hópa af fólki. Hins vegar fréttist yfirleitt ekki um nema litiö brot af þeim matar- eitrunum og sýkingum, sem raunverulega eiga sér stað. Ný- leg athugun á kennslu I mat- vælaörverufræði og öðrum mat- Siaukiö matvælaframboð krefst aukinnar þekkingar á innihaldi matvælanna. Þekking á matvælum, innihaldi þeirra og framreiðsiu veröur æ brýnni. Þessi mynd er tekin I mötuneyti Borgarspitalans, þar sem veriðer aðútbúa sérfæði fyrir sjúklinga. Rætt^viö dr. Jón Óttar Ragnars- son, matvæla- verkfræðing vælafræðigreinum I iðnskólum fyrir þær stéttir, sem bera ábyrgð á matvælaframleiðslu og framleiðslu þeirra, bendir til þess að þar sé mikilla úrbóta þörf. Aö lokum eru markmið með kennslunni samkvæmt greinar- gerðinni eftirfarandi: (a) Að beina námsfólki að framleiðslustörfum og út- flutningsiönaöi. (b) Að auka sérþekkingu i matvælaiðnaði, svo og gæði, fjölbreytni og erlenda markaðs- möguleika fyrir islenskar fram- ieiðsluvörur úr matvælaiðnaði. (c) Að hækka vinnslustig sjávarafla og landbúnaðar- afurða og efla Htt þróaðar greinar svo sem niðursuðu- iðnað. (d) Að efla innlent eftirlit með matvælum, bæði efna-, gerla- og annað eftirlit. (e) Að torvelda vörusvik. Undirbúningur að kennslu i matvælafræði og matvælaverk- fræði hófst fyrir alvöru skömmu fyrir áramót 1972, þegar menntamálaráðuneytið skipaði nefnd til þess að gera tillögur uiri menntun á háskólastigi fyrir starfsfólk i matvælaiðnaði. t nefndinni voru, auk dr. Jóns Óttars, þeir dr. Guðni Alfreðs- son, dósent, dr. Björn Dag- bjartsson, matvælaverkfræð- ingur, Guðrún Hallgrimsdóttir, matvælafræðingur, Pétur Sigurðsson mjólkurfræðingur og Sigurður B Haraldsson, skólastjóri Fiskvinnsluskólans, en hann var jafnframt formaður nefndarinnar. t nefndarálitinu, sem lagt var fram I april 1974 kemur m.a. fram, að matvæla- iðnaður væri veigamikill og vaxandi þáttur í islensku atvinnulifi og að orðið væri meira en timabært aö taka upp kennslu i matvælafræðum við Verkfræöi- og raunvisindadeild Háskóla tslands. Nefndin gerði ýtarlegar tillögur um hvernig mætti koma þessu námi sem best fyrir og hvernig það gæti tengst við það nám, sem fyrir er i háskólanum. Voru þessar til- lögur m.a. byggðar á samanburði við sambærilegt nám I grannlöndunum. Það var niðurstaða nefndar- innar, aö heppilegast væri að haga kennslunni þannig að hún leiði til B.S.-náms eftir fjögur ár i eftirtöldum greinum: I mat- vælafræði, en kennsla i þeirri grein verður miðuð við hagnýtt nám fyrst og fremst svo og mat vælaverkfræði, sem verður tæknilegri og fræðilegri og er m.a. hugsuð fyrir þá, sem hyggja á framhaldsnám. Að öllu samanlögðu er ljóst hversu afarbrýnt það er fyrir þjóðarhag og heilsu lands- manna að við menntum sjálf það fólk, sem kemur til meö að starfa við framleiðslu matvæla hér á landi. Viö munum siöar fjalla meira um þessi mál og m.a. segja frá reglugerðum, sem settar hafa verið um vörumerkingu og um íblöndunarefni. Einnig munum við greina frá þvi helsta mark- verða, sem fram kom á ráð- stefnu um matvælaeftirlit, sem haldin var I nóvember 1974, en erindi ráðstefnunnar hafa ný- lega verið gefin út i timariti Verkfræðingafélags Islands..

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.