Þjóðviljinn - 03.10.1976, Page 20
20 SIÐA — ÞJÓDVILJINN Sannndagur 3. október 1976
Auglýsing
um störf við Norræna
f já rf esti nga rba n ka n n
Norræni fjárfestingarbankinn i Helsing-
fors auglýsir hér með eftirtalin störf til
umsóknar.
Starf forstöðumanns útlánastarfsemi.
Starf lögfræðings bankans.
Starf hagfræðings (utredningsekonom).
Umsóknir um störfin sendist Nordiska in-
vesteringsbanken, Mannerheimvegen
16a, 00100 Helsingfors 10.
Nánari upplýsingar um störfin veita Bert
Lindström, bankastjóri, Peter Laurson,
ritari bankaráðs, og fulltrúar Islands i
bankaráðinu, Þórhallur Ásgeirsson, ráðu-
neytisstjóri, og Jón Sigurðsson, hagrann-
sóknarstjóri.
Norræni fjárfestingarbankinn.
STYRKIR
til íslenskra vísindamanna til
námsdvalar og rannsóknastarfa
í Sambandslýðveldinu
Þýskalandi
Þýska sendiráðiö I Reykjavik hefuf tjáB Isienskum
stjórnvöldum aB boðnir séu fram nokkrir styrkir handa
islenskum visindamönnum til námsdvalar og rannsókna-
starfa I SambandslýBveldinu Þýskalandi um allt aB
þriggja mánaða skeið á árinu 1977. Styrkirnir nema 1.000.-
þýskum mörkum á mánuBi hiB lægsta, auk þess sem til
greina kemur aB greiddur verBi ferBakostnaður aB
nokkru.
Umsóknum um styrki þessa skal komiö til menntamála-
ráöuneytisins, Hverfisgötu 6, Reykjavík, fyrir 15.
nóvember n.k. — Sérstök umsóknareyöublöö fást I ráðu-
neytinu.
MenntamálaráBuneytið,
29. september 1976.
Styrkir til háskóla-
náms í Noregi
Norsk stjórnvöld hafa tilkynnt að þau bjóBi fram í löndum
sem aðild eiga aö Evrópuráðinu fjóra styrki til háskóla-
náms I Noregi háskólaáriö 1977-78. — Ekki er vitaö fyrir-
fram hvort einhver þessara styrkja muni koma I hlut Is-
lendinga. — Styrkir þessir eru eingöngu ætlaöir til fram-
haldsnáms við háskóla og eru veittir til nlu mánaða náms-
dvalar. StyrkfjárhæBin er 2.200.- n.kr. á mánuBi, auk allt
að 1.500.- n.kr. til nauBsynlegs feröakostnaðar innan
Noregs.
Umsækjendur skulu hafa góða þekkingu á norsku eða
ensku og hafa lokið háskólaprófi áöur en styrktlmabil
hefst. Æskilegt er aö umsækjendur séu eigi eldri en 40 ára.
Umsóknir um styrki þessa skulu sendar til:
Utenriksdepartementet
Kontoret for kulterelt samkvem med utlandet
Stipendieseksjonen
N-Oslo-Dep., Norge.
fyrir 1. april 1977 og lætur sú stofnun I té frekari upp-
lýsingar.
Menntamálaráöuneytið,
29. september 1976.
Styrkir til háskóla-
náms í Sambands-
lýöveldinu Þýskalandi
Þýska sendiráöið I Reykjavik hefur tilkynnt islenskum
stjórnvöldum að boðnir séu fram þrir styrkir handa Is-
lenskum námsmönnum tii háskólanáms I Sambandslýð-
veldinu Þýskalandi háskólaárið 1977-78. Styrkirnir nema
650 þýzkum mörkum á mánuði hið lægsta auk 100 marka á
námsmisseri til bókakaupa, en auk þess eru styrkþegar
undanþegnir skólagjöldum og fá ferðakostnað greiddan að
nokkru. Styrktimabilið er 10 mánuðir frá 1. október 1977
að telja en framienging kemur til greina aö fullnægðum
ákveðnum skilyrðum.
Umsækjendur skulu eigi vera eldri en 32 ára. Þeir skulu
hafa lokiö a.m.k. tveggja ára háskólanámi.
Umsóknir, ásamt tilskildum fylgigögnum, skulu hafa bor
ist menntamálaráðuneytinu, Hverfisgötu 6, Reykjavlk,
fyrir 15. nóvember nk. — Sérstök umsóknareyðublöð fást I
ráðuneytinu.
Menntamálaráðuneytið,
29. september 1976.
Ásgeir Höskuldsson
sextugur
A morgun 4. okt. er Asgeir
Höskuldsson póstvarðstjóri 60
ára. Og það má með sanni segja,
að tíminn liöur án þess að maður
verði hans var. Að minnstakosti
finnst mér Asgeir, I sjón og raun
vera jafn ungur og fyrir 25 árum
þegar ég kynntist honum fyrst. —
Og hann hefur lika borið árin
betur en margur annar I póst-
manna stétt, þó ekki sé lengra
farið.
Asgeir Höskuldsson, er f. 4 okt.
1916 að Hallsstöðum I Nauteyr-
arhreppi I N-Isafjarðarsýslu.
Foreldrar hans voru Höskuldur
Jónsson, bóndi þar — og Petra
Guömundsdóttir ljósmóðir. —
Asgeir var á Hallsstöðum til sjö
ára aldurs eða þar til hann flutti
að Tungu I sömu sveit, með
foreldrum sinum árið 1923.
— Það, — er ekkert efamál.að I
tsafjarðarsýslu, I sveit og við sjó,
hafa fæöst og dafnað margir
hraustustu stofnar alþýðu þessa
lands. Svo ekki sé talað um
sjósóknara og þurrabúðarmenn,
sem sannarlega fengu að kenna á
.fátæktinni en létu hana ekki
smækka sig...
Og Asgeir Höskuldsson er einn
þeirra manna, sem haslaði
. sér völl I hópi vaskra drengja
vestur þar, og hefur ætlð gert, að
ég best veit. Hann hefur ætið
staðiö þar sem baráttan hefur
veriðhörðust fyrir hinn fátæka og
smáa — fyrir bættum kjörum og
réttlæti.
Og nú. — Einmitt nú — ætla ég
að minnast I örfáum orðum þess
helsta, sem ég veit úr 60 ára lífs-
baráttu Asgeirs, einkum þó
félagsmálin, sem voru honum
eldskfrn.
Asgeir var aðeins 16 ára að
aldri er hann var kjörinn I stjórn
U.M.F. Huld — og þar mun hinn
ungi piltur hafa fengið slna fyrstu
reynslu á félagsmálasviðinu.
Hann lét þá þegar fræðslumál til
sin taka, sem og var I anda þeirra
samtaka. Eitt er vist að Asgeir
leitaði sér nokkurrar menntunar
þó litill væri fjárhagur hans og
annarra á dögum „kreppunnar”
miklu, eins og hún hefur verið
kölluð og- það með réttu. En
Asgeir var stórhuga I.þvl, sem
öðru og stundaði nám við
Menntaskólann á Akureyri árin
1933 — 36. Og vissulega hefur
skólamálið styrkt hann og hert I
hans lifsbaráttu. Arið 1936 að
námiloknu kom hann heim og tók
til við fyrri störf I sveitinni. Og
fljótt varð Asgeir einn af framá-
mönnum þar, þvl árið 1938, var
hann kjörinn I hreppsnefnd
Nauteyrarhrepps og nóg voru
verkefni fyrir menn, sem lentu I
sveitarstjórn á þeim árum —
kannski ekki minna þá en nú, þó
kapitaliö sé meira. —
Arið 1941 giftist Asgeir, Ingu
Markúsdóttur ættaðri úr Sléttu-
hrepp hinni ágætustu konu, sem
stóö viöhlið hans I bliðu og striöu.
Þau bjuggu I Tungu I nokkur ár,
slðan veittu þau forstöðu stóru —
<H>"‘
PÚSTSENDUM
TROLOFUNARHRINGA
3foljauncs lcifsson
laugaUcgi 30
é>imí 19 209
Pípulagnir
Nylagnir, breytingar
hiídveitutengingar.
Sími 36929 (milli kl. 12 og
1 og eftir kl. 7 á kvöldin)
búi I Borgarfirði en komu siðan til
Reykjavlkur 1944.
Þess skal getið, að þau hjónin
misstu þrjú börn öll kornung svo
ekki fóru þau varhluta af sorg-
inni. En þau báru hana svo vel að
fátítt mun. En áður en lengra er
haldið vil ég geta þess, að Inga
Markúsdóttir lést 8 ágúst sl. og vil
ég lýsa samúð minni með Asgeiri
og sonunum tveim, sem eftir lifa.
Asgeir gekk I póstþjónustuna
1945, og hefur unnið þar siðan.
Hann hefur gegnt mörgum
trúnaðarstörfum fyrir félag sitt
P.F.I. — I stjórn þess — þar af
formaður I tvö ár. Hann var m.a.
aðalhvatamaður þess að P.F.I.
kom sér upp orlofshúsum að
Hreðavatni. Og tvö þeirra risu I
stjórnartlð hans.
Hér hefur verið stiklað á stóru I
lifsgötu Asgeirs, enda vist ekki til
annars ætlast I stuttri afmælis-
grein. En eitt skal sagt hér, að
það hefur aldrei verið nein logn-
molla I kringum Asgeir Höskulds-
son. Hann hefur ætið staðið eða
falliðmeðsinum málstaðsem og I
Póstmannafélaginu. Og þaö svo,
að margir mættu taka "hann til
fyrirmyndar.
AB lokum óska ég Asgeiri til
hamingju með daginn, með þeirri
ósk, að enn megi hann um sinn
takast á við félagsmálastorminn
fremur en lognkyrruna.
GIsli T. Guðmundsson.
Símaskráin 1977
Símnotendur í Reykjavík, Sel
tjarnarnesi, Kópavogi, Garöa-
og Bessastaöahreppi og
Hafnarfiröi
Vegna útgáfu nýrrar simaskrár er nauð-
synlegt að senda skriflega breytingar, ef
einhverjar eru, fyrir 1. nóv. n.k. til Sbrif-
stofu simaskrárinnar, Landssimahúsinu
við Austurvöll.
Nauðsynlegt er að viðkomandi rétthafi
simanúmers tilkynni skriflega um
breytingar, ef einhverjar eru. Athugið að
skrifa greinilega.
AthygJi skal nánar vakin á auglýsingu um
breytingar i simaskrána á baksiðu kápu
simaskrár 1976, innanverðri.
Atvinnu- og viðskiptaskráin verður
prentuð i gulum lit og geta simnotendur
birt smáauglýsingar þar, sem eru ódyrari
en auglýsingar i nafnaská, enda tak-
markaður fjöldi auglýsinga sem hægt er
að birta i nafnaskránni.
Nánari upplýsingar i simum 22356 og 26000
og á skrifstofu simaskrárinnar.
Ritstjóri simaskrárinnar
Sendlar óskast
Fyrir hádegi eða allan daginn.
Verzlun O. Ellingsen hf.,
Ánanaustum,
sími 28855.
ÚTBOÐ
Tilboð óskast I að grafa út og byggja sökkla og botnplötu
með lögnum fyrir Borgarleikhús I Kringlumýri.
Útboösgögn eru afhent á skrifstofu vorri, Fríkirkjuvegi 3,
gegn 10.000.- kr. skilatryggingu.
Tilboðin verða opnuð á sama stað föstudaginn 15. október
n.k. kl. 11.00 f.h.
INNKAUi'ASTOFNUN REYKJáVÍKURBO.íGA?
Fríkirkju
Sím: 25800