Þjóðviljinn - 03.10.1976, Qupperneq 22

Þjóðviljinn - 03.10.1976, Qupperneq 22
22 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN|Sunnudagur 3. október 1976 Bólusetning gegn tann- skemmdum Tannskemmdir eru mikiö vandamál I flestum löndum. Tilraunir til aö styrkja glerung- inn gegn þeim bakterium sem tannskemmdum valda t.d. með þvi aö blanda flúori I drykkjar- vatn hafa ekki boriö verulegan árangur. í Marburg I Þýskalandi er nú verið aö gera tilraunir sem lofa góðu um aö hægt sé aöbólusetja gegn tannskemmdum. Tilraunir sem til þessa hafa verið geröar á dýrum benda til þess, aö hægt sé með slikri „bólusetningu” aö virkja mótstöðu likamans gegn vexti þeirra bakteria sem hættu- legar eru tönnum. Ef til vill veröur hægt aö taka mótefni þetta I notkun eftir tvö ár. Askriftarsími 175 05 Tollvörugeymsla Suðurnesja Hafnargötu 90, Kef lavík auglýsir: Viö höfum til leigu geymslupláss í tollvörugeymslunni. Uppl. i síma 92-3500 kl. 13-17 virka daga. BLAÐBERAR Vinsamlega komiö á afgreiðsluna og sækið rukkunarheftin. ÞJÓÐVILJINN Dvalarheimili aldraðra Ákveðið er að auglýsa eftir væntanlegum vist- mönnum á dvalarheimilialdraðra í Garði sem áætlað er að taki til starfa um mánaðamótini okt. — nóv. 1976. Umsækjendur sendi umsóknir ánar til viðkom- andi sveitarfélaga fyrir 15. okt. n.k. Keflavíkurbær, Njarðvíkurbær, Hafnarhreppur, Miðneshreppur, Vatnsleysustrandarhreppur, Gerðahreppur. Þökkum auösýnda samúð og vinarhug viö andiát og jarða- för móður okkar Guðrúnar Filippusdóttur Reynimel 76 Guöbjörg Einarsdóttir Jakobina Björg Einarsdóttir Þórunn Einarsdóttir 5 miljónir atvinnu lausra í EBE- löndum Fjöldi atvinnuleysingja I lönd- um Efnahagsbandalagsins er nú kominn yfir fimm miljónir aö þvi er siðustu skýrslur herma. Skýrslur herma aö atvinnuleys- ingjar hafi verið 5.018.000 I ágúst en 4.990.000 í júlimánuði. 1 Danmörku voru atvinnulausir 111.700 en tæplega hundrað þúsund á miðju sumri. Atvinnuástandið hefur ögn batnað I Frakklandi og Vestur-Þýskalandi, en versnað allmikið I Bretlandi. Atvinnuleysi er alvarlegast meðal kvenna. í Danmörku er fjórðungur atvinnuleysingja kon- ur, I Italiu þriðjungur en meira en helmingur I Frakklandi og Vestur-Þýskalandi. Hátíðnibylgjur sauma föt Hátiðnihljóðbylgjur eru til margra hluta nytsamlegar. Þær eru notaðar við sjúkdómsgrein- ingar, lækningar, með þeim er hægt að skera ýmis efni og þær geta hafteftirlit með vörugæðum. En nú hefur enn einn möguleikinn bæst við: notkun hátlðnibylgja I saumaskap. Vlsindamenn I Moskvu hafa hannað saumavél sem saumar án nálar og tvinna. 1 stað þess sauma hátiðnibylgjurn- ar efnið saman. Málning gegn sjávardýrum Visindamenn hafa bent á margar aðferðir til að koma I veg fyrir að sjávardýr taki sér bólfestu utan á skipum. Ein þeirra er aðferð sem vlsinda- menn I tJkralnu og Leningrad fundu upp I sameiningu og hefur hún gefist allvel. Hún er fólgin i að mála skipin að utan með sér- stakri málningu, sem heldur þeim eiginleika I tvö þrjú ár að bægja óæskilegum gróðri og dýr- um frá skipinu. 1 málningunni er efni sem hindrar þroska lifranna. APN. Geimurinn Framhaldaf bls. 4 granna sinna um mörg ljósár. Þeim mun fremur sem við vitum að I geimnum er tiltöluiega litið um náttúrulegar útfjólubláar „uppsprettur”, en það þýðir þá að náttúrulegar truflanir eru ekki veruiegar Til athugunar hafa ver- ið valdar þrjár stjörnur sem stjörnufræðingar telja vera þungamiðju reikistjörnukerfa. Yfirmaður þessarar áætlunar hefur tekið fram, að litlar vonir séu til þess að leitin beri skjótan árangur, en hann bætir þvi við að illt gengi i upphafi skuli ekki spilla áhuga manna á þessu starfi. Ef að menn vildu ganga úr skugga um það með sæmilegri vissu, að „tilbúin” útfjólublá boð væru ekki sýnileg þurfti aó rannsaka stjörnuheiminn i um það bil hundrað ár. BLAÐBERAR óskast i eftirtalin hverfi: Reykjavik: Meistaravelli Melahverfi Bólstaðarhlíð Langahlíð Kópavogur: á Kársnesbraut 53 — 135 Vinsarnlegast haf ið sarnband við afgreiðsluna — sírni 17500. ÞJÓÐVILJINN ÚTBOÐ GUFUKETILL, BRENNARI o.fl. Tilboð óskast i smiði og uppsetningu á 1670 MKcal/klst. gufukatli, ásamt brennara, fæðivatnskerfi, stjórntækjum og reykháf úr stáli. Útboðsgögn eru afhent á skrifstofu vorri. INNKAUPASTOFNUN RÍKISINS BORGARTÚNI 7 SÍMI 26844 Styrkir til náms í Svíþjóö Sænsk stjórnvöld bjóða fram nokkra styrki handa erlend- um námsmönnum til að stunda nám I Svlþjóð námsárið 1977-78. Styrkir þessir eru boðnir fram I mörgum löndum og eru einkum ætlaðir námsmönnum sem ekki eiga kost á fjárhagsaðstoð frá heimalandi slnu og ekki hyggjast setj- ast að I Svlþjóð að námi loknu. Styrkfjárhæðin er 1.555.- sænskar krónur á mánuði námsárið, þ.e. 9 mánuði. Til greina kemur að styrkur verði veittur I alltað þrjú ár. Umsóknir um styrki þessa skulu sendar til Svenska insti- tutet, Box 7072, S-103 82 Stockholm, Sverige, 1. desember n.k. og lætur sú stofnun 1 té tilskilin umsóknareyðublöð. Menntamálaráöuneytiö, 29. september 1976. Miðstjórnarfundur Fundur er boðaður i miðstjórn Alþýðubandalagsins föstudaginn 15. október 1976 og hefst kl. 20.30. Dagskrá: 1. Akvörðun um flokksráösfund. 2. Flokksstarfið. 3. Verkalýösmál. 4. Störf Alþingis. 5. önnur mál. Ragnar Arnalds Opinn kjördæmisráðsfundur hjá Aiþýðubanda- laginu i Reykjaneskjördæmi. Aðalfundur kjördæmisráðs Alþýðubandalagsins I Reykjaneskjördæmi verður haldinn þriðjudaginn 5 október I Góðtemplarahúsinu, Hafnar- firði, og hefst kl. 20.30. Dagskrá: 1. Venjuleg aðalfundarstörf, 2. Gils Guðmundsson, alþm., ræðirum málatilbúnað Alþýðubandalagsins á Alþingi Ihaust. 3. Finnur Torfi Hjörleifsson ræðir um eflingu og útbreiðslu Þjóðviljans. Kjördæmisráðsfundurinn er opinn öllum Alþýðubandalagsmönnum I kjördæminu. Stjórnin.

x

Þjóðviljinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.