Þjóðviljinn - 27.01.1977, Side 12
12 — SIÐA — ÞJÓÐVILJINN Fimmtudagur 27. janúar 1977
Gjöf
Jóns Sigurðssonar
Verðlaunanefnd Gjafar Jóns Sigurðssonar
hefur til ráðstöfunar á árinu 1977 1,8 millj.
kr. Um verðlaunaveitingu og úthlutun
fjár úr sjóðnum gilda þær reglur, að fénu
skuli verja til „verðlauna fyrir vel samin
visindaleg rit, og annars kostar til þess að
styrkja útgáfu slikra rita og til þess að
styrkja útgáfur merkilegra heimildar-
rita”. Heimilt er og að „verja fé til viður-
kenningar á viðfangsefnum og störfum
höfunda sem hafa visindarit i smiðum.”
öll skulu rit þessi „lúta að sögu Islands,
bókmenntum þess, lögum stjórn og fram-
förum.”
Á siðastliðnu ári veitti verðlaunanefndin
tvenns konar viðurkenningu, verðlaun og
starfslaun. Upphæð verðlaunanna var 100
þús. kr. en starfslauna 250 þús. kr.
Verðlaun hlutu Arnór Sigurjónsson rit-
höfundur fyrir framlag til islenskrar
sagnfræði, Heimir Þorleifsson mennta-
skólakennari fyrir 1. bindi Sögu Reykja-
vikurskóla og Ólafur Halldórsson hand-
ritafræðingur fyrir ritið Grænland i is-
lenskum miðaldaheimildum.
Starfslaun hlutu Gunnar Karlsson sagn-
fræðingur til að ganga frá útgáfu ritsins
Frelsisbarátta Suður-Þingeyinga og Jón á
Gautlöndum, Hörður Agústsson listmálari
til að semja ritið Staðir og kirkjur I, Lauf-
ás, og séra Kolbeinn Þorleifsson til að
ljúka ævisögu séra Egils Þórhallssonar
Græn landstrúboða.
Verðlaunanefnd Gjafar Jóns Sigurðssonar
auglýsir hér með eftir umsóknum um
fjárveitingar úr sjóðnum. Skulu þær stil-
aðar til verðlaunanefndar, en sendar
menntamálaráðuneytinu, Hverfisgötu 6 i
Reykjavik, fyrir 15. mars n.k.
Umsóknum skulu fylgja rit, ritgerðir eða
greinagerðir um rit i smiðum.
Reykjavik i janúarmánuði 1977
1 verðlaunanefnd Gjafar Jóns Sigurðsson-
ar
Gils Guðmundsson
Magnús Már Lárusson
Þór Vilhjálmsson
Aðalfundur
Styrtarfélags lamaðra
og fatlaðra
verður haldinn að Háaleitisbraut 13
laugardaginn 5. febrúar kl. 14.
Venjuleg aðalfundarstörf.
Stjórnin.
F ólksf lutningabif reið
Óskum að kaupa 18-24 manna fólks-
flutningabifreið i góðu ástandi.
Tilboðum sé skilað á skrifstofu vora sem
fyrst.
INNKAUPASTOFNUN RÍKISINS
BORGARTÚNI 7 SÍMI 26844
^«janmánuöi
Ur óorgarstjórn v
frnrpMi <fp?r ^ i I/lHlemmur-Fell 1 í
Nagladekkjaumrœða
„Gildi nagladckkja er vissu-
lega umdeilanlegt, en I þessu
tilviki er um þaö aö ræöa, aö
vagnstjórar SVR fái aö gæta
þess öryggis, sem þeir óska.og
aö fá aö vera ábyrgir geröa
sinna, og kemur fébótaábyrgö
þar ekki máli viö. Ég styö þvi
vagnstjórnana I þeirri ákvöröun
þeirra aö hætta akstri i hálku
þegar þeim list ekki lengur á
blikuna.”
Þannig fórust Þorbirni
Broddasynima.orð I langri um
ræöu i borgarstjórn um öryggis-
útbunað strætisvagna SVR, en
á fundinum tók Alfreö Þor-
steinsson (B) upp tillögu,
sem fulltrúi Framsóknarflokks
ins i stjórn SVR, Finnur Karls-
son-hafði þar flutt þess efnis að
vagnar SVR væru búnir negld-
um snjódekkjum að framan
þegar akstursskilyrði væru siik
að lifi og limum væri stefnt I
voða vegna hálku á götum.
Sá ftiftdur i stjórn SVR sem
vitnað er til hér að framan var
„mjög i skötuliki” að sögn Þor-
bjarnar Broddasonar, en hann á
þar sæti af hálfu Alþýðubanda-
lagsins. Ekki var þessi umræða
siður I skötuliki og mörgum
þátttakandanum lltt til sóma,
þeim, sem ekki gátu með neinu
móti skilið að til sé nokkur önn-
ur þörf fyrir öryggi, en sú sem
verður til þess að gætt er
öryggis til þess að verjast fjár-
hagslegum skaða.
Mannslif?
Tillögunni var visað til
borgarráðs.
—úþ
Sjálfstœðisflokkurinn heldur völdum
MEÐ ÞVÍ AÐ SÝNAST
„Vinnubrögö borgarfulltrúa
Sjálfstæöisflokksins mótast mjög
af nauösyn þess aö flokkurinn
hafi i hugum fólks hæfilegan
félagshyggjublæ jafnvel snert af
sósialisma. Hafi hann ekki þá
mynd blasir viö fylgistap og jafn-
vel tap hinna dýrmætu valda yfir
Reykjavikurborg.
Þörfin á aö sýnast og vilji
sumra íhalds-fulltrúanna til þess
aö leysa félagsleg vandamál
rekst hins vegar I sifeliu á vilja-
leysi ráöamanna meirihlutans til
þess aö nota fé til félagslegra
þarfaogá beina andúö flokksins á
vaxandi samneyslu.
Glöggt dæmi um þetta er að
finna i meðferð borgarstjórnar á
atvinnumálum aldraöra og
öryrkja.”
Þannig hóf Adda Bára Sigfús-
dóttir borgarfulltrúi Alþýðu-
bandalagsins mál sitt við aðra
umræðu um fjárhagsáætlun
Reykjavikurborgar.
Adda sagði ennfremur:
Maður i hálfri stöðu
,,Ég rek söguna ekki lengra aft-
ur en til 18. mars I fyrra. Þá
þurftu Sjálfstæðismenn að mæta
tillögu um vinnustaði fyrir fólk
með skerta vinnugetu. Það gerðu
þeir meö þvi að leggja fram og
samþykkja snotra tillögu um sér-
hæfða vinnumiðlun á Ráöninga-
stofunni og könnun á möguleikum
á að fjölga vernduöum vinnu-
stöðum. Þetta gaf góðan blæ, en
þess var vandlega gætt aö setja
nákvæmlega ekkert fé á þá fjár-
hagsáætlun sem samþykkt var á
sama fundi til þess að fram-
kvæma samþykktina. A fundi
borgarstjórnar 18. nóv. sl.
rukkaði Guörún Helgadóttir um
athafnir i samræmi við orðin, en
henni var svarað þvi til aö þetta
væri öldungis ótimabær eftir-
rekstur, auðvitað yrðu allar
framkvæmdir að biða næstu fjár-
hagsáætlunar. Og nú er komið að
næstu fjárhagsáætlun og hún ber
það með sér aö fulltrúa i hálfu
starfi er ætlaö aö hafa hina sér-
hæföu vinnumiölun meö höndum
og engu ööru á aö kosta til þessa
verkefnis.
Til þess að bæta hér örlitið um
leggjum við borgarfulltrúarnir i
minnihlutanum til að fjárveiting
til þessa hækki um 2 miljónir um-
fram tillögu borgarráðs. Það á að
nægja ^11)688 að gera hálft starfiö
að heilu og að einhverju marki til
þess að undirbúa nýja vinnustaði
fyrir fólk með skerta vinnugetu,
gjarnan f samvinnu við þá at-
vinnurekendur sem kynnu að
vilja eiga þátt I að skapa öldruð-
um og öryrkjum tækifæri til
vinnu. —
Að sjálfsögðu á þetta að vinnast
I samráði við endurhæfingaráð og
aðra opinbera aðila sem um mál
þessa hóps fjalla. Það verður að
vinna beint að þvi að skapa nýja
atvinnumöguleika fyrir aldraða
og öryrkja ef við ætlum t.d. ekki
til frambúðar að búa við þá smán
að geta ekki bent fólki sem komið
er af léttasta skeiði og leitar eftir
vinnu á neitt annað en erfiðis-
vinnu sem oftast er einmitt þessu
fólki um megn.”
Kák
Þá vék Adda nokkrum orðum
að áfengisvörnum og fjárveiting-
um til þeirra. Ma. sagði hún:
„Borgarfulltrúar meirihlutans
hafa stundum, einkum þó á
siðasta kjörtimabili, flutt snotrar
ræður um áfengisvandamálið og
áfengisvarnir. Ræöur sem falla
vel inn I myndina af flokknum
sem lætur sér engin vandamál
borgaranna óviðkomandi. Tölur
fjárhagsáætlunar hafa hins vegar
aldrei borið þess merki að stór-
átök við vandamálið væru fram-
undan. Þar má sjá grátbroslegar
tölurum styrki til ýmsra félausra
aðila sem leitast við að leggja
áfengisvörnum lið. Ég nefni að nú
er gert ráð fyrir að veita áfengis-
varnanefnd kvenna kr 60 þús. og
er það hækkun um heilar 10 þús.
kr. frá siöustu fjárhagsáætlun.
1 heilsuverndarstöðinni hefur
áfengisvarnadeild hjarað við
þröngan kost um árabil. Heil-
brigðismálaráð hefur nú gert
samþykkt um endurskipulagn-
ingu þeirrar deildar.
Meginverkefni deildarinnar á
hér eftir að vera fólgið i ráð-
gjafarstarfi fyrir þá sem sýna
byrjunareinkenni áfengissýki og
meginvandinn er þá aö ná til
þessa fólksfá það til þess að leita
hjálpar I staö þess aö fela vand-
ann fyrir sjálfum sér og öörum og
afneita honum Ilengstu lög, langt
fram yfir það stig sem gerir hann
illviðráðanlegan.
Til þess að ná árangri i þessu
starfi verður að skipuleggja al-
menningsfræðslu um byrjunar-
einkenni áfengissýki. Sllk fræðsla
kostar óhjákvæmilega talsvert fé
eigi hún að vera i þvi formi og I
þvi magni sem vænlegt er til
árangurs. Hingað til hefur enginn
maður verið I fullu starfi viö
áfengisvarnadeildina,en nú hefur
borgarráð fallist á þau tilmæli
heilbrigðismálaráðs að félags-
fræðingur I fullu starfi skuli vinna
að því uppbyggingarstarfi sem
framundan er. Heilbrigðismála-
ráð fór ekki fram á meira. Viö
borgarfulltr. I minnihluta leggj-
um hins vegar til að deildin fái að
verja 1/2 miljón i þá fræðslustarf-
semi sem er undirstaða þess að
árangur náist.”
A eftir áætíun
Þessu næst vék Adda nokkrum
orðum að einstaka fjárveitingum,
sem um er getið i sérstakri grein
argerð um fyrirhugaðar fram
kvæmdir og send var borgarfuil-
trúum tæpum sólarhring fyrir
umræddan fund.
Sagðist Adda ekki betur sjá en
að gert væri ráð fyrir þvi að bygg-
ing drykkjumannahælisins að
Arnarholti yrði amk. 2 árum á
eftir áætlun; heildarverkinu yrði
ekki lokið fyrr en I mai 1978.
Til byggingar þjónustuálmu við
Borgarspltala vantar 80 miljónir
króna, en frá fyrri byggingaáætl-
un virðist byggingardeild
spitalans hafa horfið án þess að
heilbrigðisráð borgarinnar vissi
þar nokkuð um!
Til hvers nefnd?
Að lokum sagði Adda Bára:
„Það var fleira en greinargerð
um fyrirhugaðar framkvæmdir
borgarsjóðs, sem seint barst.
Þannig barst mér I hendur vit-
neskja um verulegar brey tingar á
f járhagsáætlun Hitaveitu
ReyJcjavikur og Rafmagnsveit-
unnar. Yfir þessum stofnunum er
svokölluðstjórn veitustofnana, en
I þeirri stjórn á ég sæti. Stjórnar-
nefndin kpm hvergi nærri þessum
breytingum.
Þvi spyr ég: Er ekki einlægara
aðleggja þessa nefnd niður en að
láta hana lifa?”
-út