Þjóðviljinn - 27.01.1977, Page 12

Þjóðviljinn - 27.01.1977, Page 12
12 — SIÐA — ÞJÓÐVILJINN Fimmtudagur 27. janúar 1977 Gjöf Jóns Sigurðssonar Verðlaunanefnd Gjafar Jóns Sigurðssonar hefur til ráðstöfunar á árinu 1977 1,8 millj. kr. Um verðlaunaveitingu og úthlutun fjár úr sjóðnum gilda þær reglur, að fénu skuli verja til „verðlauna fyrir vel samin visindaleg rit, og annars kostar til þess að styrkja útgáfu slikra rita og til þess að styrkja útgáfur merkilegra heimildar- rita”. Heimilt er og að „verja fé til viður- kenningar á viðfangsefnum og störfum höfunda sem hafa visindarit i smiðum.” öll skulu rit þessi „lúta að sögu Islands, bókmenntum þess, lögum stjórn og fram- förum.” Á siðastliðnu ári veitti verðlaunanefndin tvenns konar viðurkenningu, verðlaun og starfslaun. Upphæð verðlaunanna var 100 þús. kr. en starfslauna 250 þús. kr. Verðlaun hlutu Arnór Sigurjónsson rit- höfundur fyrir framlag til islenskrar sagnfræði, Heimir Þorleifsson mennta- skólakennari fyrir 1. bindi Sögu Reykja- vikurskóla og Ólafur Halldórsson hand- ritafræðingur fyrir ritið Grænland i is- lenskum miðaldaheimildum. Starfslaun hlutu Gunnar Karlsson sagn- fræðingur til að ganga frá útgáfu ritsins Frelsisbarátta Suður-Þingeyinga og Jón á Gautlöndum, Hörður Agústsson listmálari til að semja ritið Staðir og kirkjur I, Lauf- ás, og séra Kolbeinn Þorleifsson til að ljúka ævisögu séra Egils Þórhallssonar Græn landstrúboða. Verðlaunanefnd Gjafar Jóns Sigurðssonar auglýsir hér með eftir umsóknum um fjárveitingar úr sjóðnum. Skulu þær stil- aðar til verðlaunanefndar, en sendar menntamálaráðuneytinu, Hverfisgötu 6 i Reykjavik, fyrir 15. mars n.k. Umsóknum skulu fylgja rit, ritgerðir eða greinagerðir um rit i smiðum. Reykjavik i janúarmánuði 1977 1 verðlaunanefnd Gjafar Jóns Sigurðsson- ar Gils Guðmundsson Magnús Már Lárusson Þór Vilhjálmsson Aðalfundur Styrtarfélags lamaðra og fatlaðra verður haldinn að Háaleitisbraut 13 laugardaginn 5. febrúar kl. 14. Venjuleg aðalfundarstörf. Stjórnin. F ólksf lutningabif reið Óskum að kaupa 18-24 manna fólks- flutningabifreið i góðu ástandi. Tilboðum sé skilað á skrifstofu vora sem fyrst. INNKAUPASTOFNUN RÍKISINS BORGARTÚNI 7 SÍMI 26844 ^«janmánuöi Ur óorgarstjórn v frnrpMi <fp?r ^ i I/lHlemmur-Fell 1 í Nagladekkjaumrœða „Gildi nagladckkja er vissu- lega umdeilanlegt, en I þessu tilviki er um þaö aö ræöa, aö vagnstjórar SVR fái aö gæta þess öryggis, sem þeir óska.og aö fá aö vera ábyrgir geröa sinna, og kemur fébótaábyrgö þar ekki máli viö. Ég styö þvi vagnstjórnana I þeirri ákvöröun þeirra aö hætta akstri i hálku þegar þeim list ekki lengur á blikuna.” Þannig fórust Þorbirni Broddasynima.orð I langri um ræöu i borgarstjórn um öryggis- útbunað strætisvagna SVR, en á fundinum tók Alfreö Þor- steinsson (B) upp tillögu, sem fulltrúi Framsóknarflokks ins i stjórn SVR, Finnur Karls- son-hafði þar flutt þess efnis að vagnar SVR væru búnir negld- um snjódekkjum að framan þegar akstursskilyrði væru siik að lifi og limum væri stefnt I voða vegna hálku á götum. Sá ftiftdur i stjórn SVR sem vitnað er til hér að framan var „mjög i skötuliki” að sögn Þor- bjarnar Broddasonar, en hann á þar sæti af hálfu Alþýðubanda- lagsins. Ekki var þessi umræða siður I skötuliki og mörgum þátttakandanum lltt til sóma, þeim, sem ekki gátu með neinu móti skilið að til sé nokkur önn- ur þörf fyrir öryggi, en sú sem verður til þess að gætt er öryggis til þess að verjast fjár- hagslegum skaða. Mannslif? Tillögunni var visað til borgarráðs. —úþ Sjálfstœðisflokkurinn heldur völdum MEÐ ÞVÍ AÐ SÝNAST „Vinnubrögö borgarfulltrúa Sjálfstæöisflokksins mótast mjög af nauösyn þess aö flokkurinn hafi i hugum fólks hæfilegan félagshyggjublæ jafnvel snert af sósialisma. Hafi hann ekki þá mynd blasir viö fylgistap og jafn- vel tap hinna dýrmætu valda yfir Reykjavikurborg. Þörfin á aö sýnast og vilji sumra íhalds-fulltrúanna til þess aö leysa félagsleg vandamál rekst hins vegar I sifeliu á vilja- leysi ráöamanna meirihlutans til þess aö nota fé til félagslegra þarfaogá beina andúö flokksins á vaxandi samneyslu. Glöggt dæmi um þetta er að finna i meðferð borgarstjórnar á atvinnumálum aldraöra og öryrkja.” Þannig hóf Adda Bára Sigfús- dóttir borgarfulltrúi Alþýðu- bandalagsins mál sitt við aðra umræðu um fjárhagsáætlun Reykjavikurborgar. Adda sagði ennfremur: Maður i hálfri stöðu ,,Ég rek söguna ekki lengra aft- ur en til 18. mars I fyrra. Þá þurftu Sjálfstæðismenn að mæta tillögu um vinnustaði fyrir fólk með skerta vinnugetu. Það gerðu þeir meö þvi að leggja fram og samþykkja snotra tillögu um sér- hæfða vinnumiðlun á Ráöninga- stofunni og könnun á möguleikum á að fjölga vernduöum vinnu- stöðum. Þetta gaf góðan blæ, en þess var vandlega gætt aö setja nákvæmlega ekkert fé á þá fjár- hagsáætlun sem samþykkt var á sama fundi til þess að fram- kvæma samþykktina. A fundi borgarstjórnar 18. nóv. sl. rukkaði Guörún Helgadóttir um athafnir i samræmi við orðin, en henni var svarað þvi til aö þetta væri öldungis ótimabær eftir- rekstur, auðvitað yrðu allar framkvæmdir að biða næstu fjár- hagsáætlunar. Og nú er komið að næstu fjárhagsáætlun og hún ber það með sér aö fulltrúa i hálfu starfi er ætlaö aö hafa hina sér- hæföu vinnumiölun meö höndum og engu ööru á aö kosta til þessa verkefnis. Til þess að bæta hér örlitið um leggjum við borgarfulltrúarnir i minnihlutanum til að fjárveiting til þessa hækki um 2 miljónir um- fram tillögu borgarráðs. Það á að nægja ^11)688 að gera hálft starfiö að heilu og að einhverju marki til þess að undirbúa nýja vinnustaði fyrir fólk með skerta vinnugetu, gjarnan f samvinnu við þá at- vinnurekendur sem kynnu að vilja eiga þátt I að skapa öldruð- um og öryrkjum tækifæri til vinnu. — Að sjálfsögðu á þetta að vinnast I samráði við endurhæfingaráð og aðra opinbera aðila sem um mál þessa hóps fjalla. Það verður að vinna beint að þvi að skapa nýja atvinnumöguleika fyrir aldraða og öryrkja ef við ætlum t.d. ekki til frambúðar að búa við þá smán að geta ekki bent fólki sem komið er af léttasta skeiði og leitar eftir vinnu á neitt annað en erfiðis- vinnu sem oftast er einmitt þessu fólki um megn.” Kák Þá vék Adda nokkrum orðum að áfengisvörnum og fjárveiting- um til þeirra. Ma. sagði hún: „Borgarfulltrúar meirihlutans hafa stundum, einkum þó á siðasta kjörtimabili, flutt snotrar ræður um áfengisvandamálið og áfengisvarnir. Ræöur sem falla vel inn I myndina af flokknum sem lætur sér engin vandamál borgaranna óviðkomandi. Tölur fjárhagsáætlunar hafa hins vegar aldrei borið þess merki að stór- átök við vandamálið væru fram- undan. Þar má sjá grátbroslegar tölurum styrki til ýmsra félausra aðila sem leitast við að leggja áfengisvörnum lið. Ég nefni að nú er gert ráð fyrir að veita áfengis- varnanefnd kvenna kr 60 þús. og er það hækkun um heilar 10 þús. kr. frá siöustu fjárhagsáætlun. 1 heilsuverndarstöðinni hefur áfengisvarnadeild hjarað við þröngan kost um árabil. Heil- brigðismálaráð hefur nú gert samþykkt um endurskipulagn- ingu þeirrar deildar. Meginverkefni deildarinnar á hér eftir að vera fólgið i ráð- gjafarstarfi fyrir þá sem sýna byrjunareinkenni áfengissýki og meginvandinn er þá aö ná til þessa fólksfá það til þess að leita hjálpar I staö þess aö fela vand- ann fyrir sjálfum sér og öörum og afneita honum Ilengstu lög, langt fram yfir það stig sem gerir hann illviðráðanlegan. Til þess að ná árangri i þessu starfi verður að skipuleggja al- menningsfræðslu um byrjunar- einkenni áfengissýki. Sllk fræðsla kostar óhjákvæmilega talsvert fé eigi hún að vera i þvi formi og I þvi magni sem vænlegt er til árangurs. Hingað til hefur enginn maður verið I fullu starfi viö áfengisvarnadeildina,en nú hefur borgarráð fallist á þau tilmæli heilbrigðismálaráðs að félags- fræðingur I fullu starfi skuli vinna að því uppbyggingarstarfi sem framundan er. Heilbrigðismála- ráð fór ekki fram á meira. Viö borgarfulltr. I minnihluta leggj- um hins vegar til að deildin fái að verja 1/2 miljón i þá fræðslustarf- semi sem er undirstaða þess að árangur náist.” A eftir áætíun Þessu næst vék Adda nokkrum orðum að einstaka fjárveitingum, sem um er getið i sérstakri grein argerð um fyrirhugaðar fram kvæmdir og send var borgarfuil- trúum tæpum sólarhring fyrir umræddan fund. Sagðist Adda ekki betur sjá en að gert væri ráð fyrir þvi að bygg- ing drykkjumannahælisins að Arnarholti yrði amk. 2 árum á eftir áætlun; heildarverkinu yrði ekki lokið fyrr en I mai 1978. Til byggingar þjónustuálmu við Borgarspltala vantar 80 miljónir króna, en frá fyrri byggingaáætl- un virðist byggingardeild spitalans hafa horfið án þess að heilbrigðisráð borgarinnar vissi þar nokkuð um! Til hvers nefnd? Að lokum sagði Adda Bára: „Það var fleira en greinargerð um fyrirhugaðar framkvæmdir borgarsjóðs, sem seint barst. Þannig barst mér I hendur vit- neskja um verulegar brey tingar á f járhagsáætlun Hitaveitu ReyJcjavikur og Rafmagnsveit- unnar. Yfir þessum stofnunum er svokölluðstjórn veitustofnana, en I þeirri stjórn á ég sæti. Stjórnar- nefndin kpm hvergi nærri þessum breytingum. Þvi spyr ég: Er ekki einlægara aðleggja þessa nefnd niður en að láta hana lifa?” -út

x

Þjóðviljinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.