Þjóðviljinn - 27.01.1977, Page 16
ÍJJOÐVIIJINM
Fimmtudagur 27. janúar 1977
Áðalsfmi Þjóðviljans er 81333 ki. 9-21 mánudaga til föstu-
daga, kl. 9-12 á laugardögum og sunnudögum.
Utan þessa tima er hægt að ná 1 blaðamenn og aöra
starfsmenn blaðsins I þessum simum Ritstjórn 81382,
81527, 81257 og 81285, útbreiösla81482 og Blaðaprent 81348.
@81333
Einnig skal bent'á,
heimasíma starfsmanna'
undir nafni Þjóðviljans i
simaskrá.
Bandaríski eiturlyfjasalinn ófundinn:
Var honum komið
úr landi?
Hávœrar raddir um að flótti hans
hafi verið sviðsettur og honum
komið úr landi vegna tengsla
háttsettra manna á Keflavíkur-
flugvelli við eiturlyfjasölu hans
..Herra/tjóðin ** svnir liúshóndavaldið
Hermanni sleppt úr haldi\
þótt rannsókn sé ólokið (
• \ ar H’iigdur laiigsUvrsla
fikiiieJiiasniYgli a Islandi
• ikva’ði ln’rslöðvasainn-
ingsins nni islenska
lögsögn lilisviri
Frt pvi helur verió qremt «0 umkveml i*rst«kri
bei&ni bandarivkra herytirvalcU * IsUndi. þa tuli nu
sleppl ur^gjluvarðhaldi bandarisfcun^h
//Það hefur ekkert
spurst til bandaríska
strokufangans Christ-
ophers Barba Smith enn/
en málið er í gangi ef ein-
hverjar upplýsingar
berast utan vallar, en
innan vallar er það
bandaríska lögreglan
sem annast málið, við
komum þar ekki nærri,
nema bandaríska lög-
reglan óski aðstoðar
okkar", sagði ólafur
Hannesson, fultrúi lög-
reglustjóra á Keflavíkur-
flugvelli í gær.
Mál þessa bandariska stroku-
fanga verður æ kyndugra með
hverjum deginum sem liður.
Þess eru engin dæmi frá siðari
árum að mönnum, sem sloppiö
hafa úr fangelsum á Islandi hafi
tekist að leynast svo lengi, sem
þessum bandariska eiturlyfja-
sala.
„Þáttur þessa manns I slðara
eiturlyfjamálinu var alls ekki
fullrannsakaður þegar hann
var afhentur bandariskum yfir-
völdum. Það var komið að þeim
punkti að rannsaka þurfti þann
jiátt málsins sem við kom dreif-
ingu hans á eiturlyfjum innan
Kefiavikurflugvallar”, sagði
Asgeir Friðjónsson hjá fikni-
efnadómstólnum i gær. Ásgeir
sagði að saksóknari, sem tók
ákvörðun um að afhenda Smith
bandariskum yfirvöldum, hefði
ekkert rætt við sig um það mál
fyrr en eftir á. ,,Ég hefði sjálf-
sagt ekki lagst gegn þvi að af-
Þetta sagði Þjóöviljinn daginn eftir að bandariska eiturlyfjasal-
anum var sleppt úr Islenskri lögsögu...
og dbl. Vfsir hneykslaðist mjög á þessum ummælum eins og iesa
mátti i þætti þess með svarta hausinn.
henda manninn, enda þurfti að
rannsaka hegðun hans innan
vallarins og ég álit að það hefðu
bandarisk yfirvöld alveg eins
getað gert eins og við”, sagði
Ásgeir.
Mjög margir hallast að þvi að
flótti eiturlyfjasalans úr fang-
elsinu á Keflavikurflugvelli hafi
verið sviðsettur og að honum
hafi verið komið úr landi. Menn
telja að hann hafi verið i tengsl-
um við mjög háttsetta menn
innan hersins i sambandi við
dreifingu eiturlyfjanna og það
sé ástæðan fyrir þessari svið-
setningu á flótta hans.
Hvers vegna óskuðu heryfir-
völd eftir þvi að fá manninn i
sinar hendur, einmitt þegar
komið var að þvi að rannsaka
eiturlyf jadreifinguna innan
hersins á Keflavikurflugvelli?
Hvers vegna var ekki óskað
eftir lögsögu yfir téðum Smith
meðan verið var að rannsaka
þátt hans utan vallarins? Hvers
vegna hefur hans ekkert verið
leitað innan vallarins?
Þessar spurningar vakna
vissulega þegar um þetta
furðulega mál er fjallað.
Islensk yfirvöld hafa enga
aöstöðu til að fylgjast með þvi
hverjir koma eða fara með
bandariskum herflugvélum,
sem fljúga á milli tslands og
Bandarikjanna, þau hafa
heldur ekki leyfi til að leita
innan Keflavikurflugvallar. 011
rannsókn þessa máls þar, hefur
þvl verið i höndum bandaríkja-
mannanna sjálfra og blaða-
fulltrúi hersins er þögull sem
gröfin og neitar að svara blöð-
unum þegar spurninga er spurt.
Þaö er alveg ljóst að strok
þessa fanga úr herfangelsi er
áfall fyrir bandarikjaherinn á
Keflavikurflugvelli, en hvað er
það á móti stripumissi ein-
stakra háttsettra manna innan
hersins fyrir samneyti við
þennan eiturlyfjasala? Hvað
var þvi heppilegra en að Smith
kæmist úr landi?
—S.dór
4 slökkviliðsmenn óska rannsóknar
á reykköfunartækj um
án vitundar slökkvistjórans
t fyrradag var tekið fyrir i
borgarráði Reykjavikur bréf frá
deildarfulltrúa og þremur að-
stoðarvarðstjórum Slökkviliðsins
1 Reykjavik þar sem farið er fram
á að rannsakað verði hvort reyk-
köfunartæki slökkviliðsins séu
nógu góð, viðhald á þeim sé i lagi
og hvort kunnátta í meöhöndlun
þeirra sé fullnægjandi. Borgarráð
samþykkti að maður yrði sendur
til útlanda til að kanna þetta mál.
Slökkviiiðsstjórinn i Reykjavik
var viöstaddur fundinn og kvart-
aði hann undan þvi að undirmenn
sinir hefðu ekki borið þetta mál
fyrst undir sig.
Þingi Norðurlandaráðs frestað
Að beiönidanska þingsins hefur
25. þingi Norðurlandaráðs, sem
halda átti í Helsinki 19.-24.
febrúar veriö frestað um óákveð-
inn tima.
Astæðan fyrir beiöni dana eru
þingkosningarnar, sem ákveðnar
hafa verið 15. febrúar, og óvissa
um stjórnarmyndun ; eftir þær
og kjarasamningana sem i hönd
fara. Friðjón Sigurðsson, skrif-
stofustjóri Alþingis, sagði I gær,
að sér vitanlega væri ekki enn bú-
ið að ákveða þingdaga. Helst
hefði verið rætt um tvö timabil,
annaðhvort 31. mars til 4. april,
eða 19. april til 22. april. Fyrr
telja danir sig ekki reiðubúna til
þess að fara á afmælisþingið i
Helsinki og það tekur sinn tlma að
breyta hótel — og salarpöntunum
fyrir svo fjölmenna samkomu
sem Norðurlandaráðsþing eru, en
i kringum þau eru að jafnaði 5-600
manns
ekh.
Bréf þetta mun vera þannig til
komið að bilanir hafa orðið I fyrr-
greindum tækjum og ma. hefur
aðvörunarflauta brugðist en hún
á að gefa til kynna að 5 mlnútur.
séu þangað til þrýstingur fellur á
tækinu. Kom það ma. fyrir i
Æskufellsbrunanum.
Þá telja slökkviliðsmenn sig
ekki hafa fengið neinar leiöbein-
ingar um hvernig á að halda þess-
um tækjum við né þrifa þau og
álita að bilanirnar standi etv. I
sambandi við það en þessi reyk-
köfunartæki eiga að vera marg-
prófuð og þaulreynd hjá verk-
smiðjunum sem framleiöa þau.
Þess vegna þurfi etv. sérstakan
mann á slökkviliösstööina sem er
sérfróöur i viðhaldi og þrifnaði
þeirra.
Ástæðan fyrir þvi að bréf-
ritararnir höfðu ekki samráð við
slökkviliðsstjórann i þessu máli
mun vera sú, eftir þvi sem Þjóð-
vilji-nn hefur fregnaö, aö
kvartanir og óskir um úrbætur
eða breytingar hafa hingað til
verið sem goluþytur I eyrum hans
sem hann hefur litt látið hafa
áhrif á sig.
Þeir sem skrifuðu undir bréfið
til borgarráðs eru þeir Asmundur
J. Jóhannsson deildarfulltrúi, Ar-
mann Pétursson aðstoðarvarð-
stjóri, Karl Magnússon aðstoðar-
varðstjóri og Jóhann Sævar Jó-
hannsson aðstoðarvarðstjóri.
GFr
SVONA ER KJARASKERÐINGIN
Við birtum i dag fjórða dæmið um kjaraskeröinguna siðustu þrjú
ár. Dæmin sýna hversu miklu lengur en áður verkamaður er nú að
vinna fyrir sama magni af vörum. Við tökum eina vörutegund á
dag.
Upplýsingar um vöruverð höfum við frá Hagstofu tslands, en
upplýsingar um kaupið fraf Verkamannafélaginu Dagsbrún, og er
miðað við byrjunarlaun samkvæmt 6. taxta Dagsbrúnar.
FJÓRÐA DÆMI:
1 kg. ýsuflök Verð Kaup
Febrúar 1974 . ...kr. 118,- kr. 166,30
Maí 1974 ...kr. 150,- kr. 205,40
I dag/jan.1977 .... kr. 395,-
NIÐURSTAÐA:
1. I febrúar 1974 (fyrir kjarasamningana þá) var
verkamaður 42 og hálfa mínútu að vinna fyrir einu
kilói af ýsuflökum.
2. I maí 1974 var verkamaður 44 mínútur að vinna
fyrir einu kílói af ýsuflökum.
3. I dag/ 27. janúar 1977/ er verkamaður 56 og hálfa
mínútu að vinna fyrir einu kílói af ýsuflökum.
Vinnutíminn hefur lengst um 14 mínútur/ eða 33%, sé
miðaðvið febrúar 1974 og um tólf og hálfa mínútu/
eða 28-29% sé miðað við maí 1974.