Þjóðviljinn - 27.01.1977, Qupperneq 16

Þjóðviljinn - 27.01.1977, Qupperneq 16
ÍJJOÐVIIJINM Fimmtudagur 27. janúar 1977 Áðalsfmi Þjóðviljans er 81333 ki. 9-21 mánudaga til föstu- daga, kl. 9-12 á laugardögum og sunnudögum. Utan þessa tima er hægt að ná 1 blaðamenn og aöra starfsmenn blaðsins I þessum simum Ritstjórn 81382, 81527, 81257 og 81285, útbreiösla81482 og Blaðaprent 81348. @81333 Einnig skal bent'á, heimasíma starfsmanna' undir nafni Þjóðviljans i simaskrá. Bandaríski eiturlyfjasalinn ófundinn: Var honum komið úr landi? Hávœrar raddir um að flótti hans hafi verið sviðsettur og honum komið úr landi vegna tengsla háttsettra manna á Keflavíkur- flugvelli við eiturlyfjasölu hans ..Herra/tjóðin ** svnir liúshóndavaldið Hermanni sleppt úr haldi\ þótt rannsókn sé ólokið ( • \ ar H’iigdur laiigsUvrsla fikiiieJiiasniYgli a Islandi • ikva’ði ln’rslöðvasainn- ingsins nni islenska lögsögn lilisviri Frt pvi helur verió qremt «0 umkveml i*rst«kri bei&ni bandarivkra herytirvalcU * IsUndi. þa tuli nu sleppl ur^gjluvarðhaldi bandarisfcun^h //Það hefur ekkert spurst til bandaríska strokufangans Christ- ophers Barba Smith enn/ en málið er í gangi ef ein- hverjar upplýsingar berast utan vallar, en innan vallar er það bandaríska lögreglan sem annast málið, við komum þar ekki nærri, nema bandaríska lög- reglan óski aðstoðar okkar", sagði ólafur Hannesson, fultrúi lög- reglustjóra á Keflavíkur- flugvelli í gær. Mál þessa bandariska stroku- fanga verður æ kyndugra með hverjum deginum sem liður. Þess eru engin dæmi frá siðari árum að mönnum, sem sloppiö hafa úr fangelsum á Islandi hafi tekist að leynast svo lengi, sem þessum bandariska eiturlyfja- sala. „Þáttur þessa manns I slðara eiturlyfjamálinu var alls ekki fullrannsakaður þegar hann var afhentur bandariskum yfir- völdum. Það var komið að þeim punkti að rannsaka þurfti þann jiátt málsins sem við kom dreif- ingu hans á eiturlyfjum innan Kefiavikurflugvallar”, sagði Asgeir Friðjónsson hjá fikni- efnadómstólnum i gær. Ásgeir sagði að saksóknari, sem tók ákvörðun um að afhenda Smith bandariskum yfirvöldum, hefði ekkert rætt við sig um það mál fyrr en eftir á. ,,Ég hefði sjálf- sagt ekki lagst gegn þvi að af- Þetta sagði Þjóöviljinn daginn eftir að bandariska eiturlyfjasal- anum var sleppt úr Islenskri lögsögu... og dbl. Vfsir hneykslaðist mjög á þessum ummælum eins og iesa mátti i þætti þess með svarta hausinn. henda manninn, enda þurfti að rannsaka hegðun hans innan vallarins og ég álit að það hefðu bandarisk yfirvöld alveg eins getað gert eins og við”, sagði Ásgeir. Mjög margir hallast að þvi að flótti eiturlyfjasalans úr fang- elsinu á Keflavikurflugvelli hafi verið sviðsettur og að honum hafi verið komið úr landi. Menn telja að hann hafi verið i tengsl- um við mjög háttsetta menn innan hersins i sambandi við dreifingu eiturlyfjanna og það sé ástæðan fyrir þessari svið- setningu á flótta hans. Hvers vegna óskuðu heryfir- völd eftir þvi að fá manninn i sinar hendur, einmitt þegar komið var að þvi að rannsaka eiturlyf jadreifinguna innan hersins á Keflavikurflugvelli? Hvers vegna var ekki óskað eftir lögsögu yfir téðum Smith meðan verið var að rannsaka þátt hans utan vallarins? Hvers vegna hefur hans ekkert verið leitað innan vallarins? Þessar spurningar vakna vissulega þegar um þetta furðulega mál er fjallað. Islensk yfirvöld hafa enga aöstöðu til að fylgjast með þvi hverjir koma eða fara með bandariskum herflugvélum, sem fljúga á milli tslands og Bandarikjanna, þau hafa heldur ekki leyfi til að leita innan Keflavikurflugvallar. 011 rannsókn þessa máls þar, hefur þvl verið i höndum bandaríkja- mannanna sjálfra og blaða- fulltrúi hersins er þögull sem gröfin og neitar að svara blöð- unum þegar spurninga er spurt. Þaö er alveg ljóst að strok þessa fanga úr herfangelsi er áfall fyrir bandarikjaherinn á Keflavikurflugvelli, en hvað er það á móti stripumissi ein- stakra háttsettra manna innan hersins fyrir samneyti við þennan eiturlyfjasala? Hvað var þvi heppilegra en að Smith kæmist úr landi? —S.dór 4 slökkviliðsmenn óska rannsóknar á reykköfunartækj um án vitundar slökkvistjórans t fyrradag var tekið fyrir i borgarráði Reykjavikur bréf frá deildarfulltrúa og þremur að- stoðarvarðstjórum Slökkviliðsins 1 Reykjavik þar sem farið er fram á að rannsakað verði hvort reyk- köfunartæki slökkviliðsins séu nógu góð, viðhald á þeim sé i lagi og hvort kunnátta í meöhöndlun þeirra sé fullnægjandi. Borgarráð samþykkti að maður yrði sendur til útlanda til að kanna þetta mál. Slökkviiiðsstjórinn i Reykjavik var viöstaddur fundinn og kvart- aði hann undan þvi að undirmenn sinir hefðu ekki borið þetta mál fyrst undir sig. Þingi Norðurlandaráðs frestað Að beiönidanska þingsins hefur 25. þingi Norðurlandaráðs, sem halda átti í Helsinki 19.-24. febrúar veriö frestað um óákveð- inn tima. Astæðan fyrir beiöni dana eru þingkosningarnar, sem ákveðnar hafa verið 15. febrúar, og óvissa um stjórnarmyndun ; eftir þær og kjarasamningana sem i hönd fara. Friðjón Sigurðsson, skrif- stofustjóri Alþingis, sagði I gær, að sér vitanlega væri ekki enn bú- ið að ákveða þingdaga. Helst hefði verið rætt um tvö timabil, annaðhvort 31. mars til 4. april, eða 19. april til 22. april. Fyrr telja danir sig ekki reiðubúna til þess að fara á afmælisþingið i Helsinki og það tekur sinn tlma að breyta hótel — og salarpöntunum fyrir svo fjölmenna samkomu sem Norðurlandaráðsþing eru, en i kringum þau eru að jafnaði 5-600 manns ekh. Bréf þetta mun vera þannig til komið að bilanir hafa orðið I fyrr- greindum tækjum og ma. hefur aðvörunarflauta brugðist en hún á að gefa til kynna að 5 mlnútur. séu þangað til þrýstingur fellur á tækinu. Kom það ma. fyrir i Æskufellsbrunanum. Þá telja slökkviliðsmenn sig ekki hafa fengið neinar leiöbein- ingar um hvernig á að halda þess- um tækjum við né þrifa þau og álita að bilanirnar standi etv. I sambandi við það en þessi reyk- köfunartæki eiga að vera marg- prófuð og þaulreynd hjá verk- smiðjunum sem framleiöa þau. Þess vegna þurfi etv. sérstakan mann á slökkviliösstööina sem er sérfróöur i viðhaldi og þrifnaði þeirra. Ástæðan fyrir þvi að bréf- ritararnir höfðu ekki samráð við slökkviliðsstjórann i þessu máli mun vera sú, eftir þvi sem Þjóð- vilji-nn hefur fregnaö, aö kvartanir og óskir um úrbætur eða breytingar hafa hingað til verið sem goluþytur I eyrum hans sem hann hefur litt látið hafa áhrif á sig. Þeir sem skrifuðu undir bréfið til borgarráðs eru þeir Asmundur J. Jóhannsson deildarfulltrúi, Ar- mann Pétursson aðstoðarvarð- stjóri, Karl Magnússon aðstoðar- varðstjóri og Jóhann Sævar Jó- hannsson aðstoðarvarðstjóri. GFr SVONA ER KJARASKERÐINGIN Við birtum i dag fjórða dæmið um kjaraskeröinguna siðustu þrjú ár. Dæmin sýna hversu miklu lengur en áður verkamaður er nú að vinna fyrir sama magni af vörum. Við tökum eina vörutegund á dag. Upplýsingar um vöruverð höfum við frá Hagstofu tslands, en upplýsingar um kaupið fraf Verkamannafélaginu Dagsbrún, og er miðað við byrjunarlaun samkvæmt 6. taxta Dagsbrúnar. FJÓRÐA DÆMI: 1 kg. ýsuflök Verð Kaup Febrúar 1974 . ...kr. 118,- kr. 166,30 Maí 1974 ...kr. 150,- kr. 205,40 I dag/jan.1977 .... kr. 395,- NIÐURSTAÐA: 1. I febrúar 1974 (fyrir kjarasamningana þá) var verkamaður 42 og hálfa mínútu að vinna fyrir einu kilói af ýsuflökum. 2. I maí 1974 var verkamaður 44 mínútur að vinna fyrir einu kílói af ýsuflökum. 3. I dag/ 27. janúar 1977/ er verkamaður 56 og hálfa mínútu að vinna fyrir einu kílói af ýsuflökum. Vinnutíminn hefur lengst um 14 mínútur/ eða 33%, sé miðaðvið febrúar 1974 og um tólf og hálfa mínútu/ eða 28-29% sé miðað við maí 1974.

x

Þjóðviljinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.