Þjóðviljinn - 29.01.1977, Page 3
c
Laugardagur 29. janúar 197,7 ÞJÓÐVILJINN — SÍÐA — 3
Bretastjórn stefnir
að atvinnulýðræði
HUDDERSFIELD, Englandi 28/1
Reuter — James Callaghan, for-
sætisráðherra Bretlands, lýsti þvi
yfir i dag að stjórn hans myndi
ótrauð halda áfram að stefna að
atvinnulýðræði i landinu, þrátt
fyrir harða andstöðu ihalds-
manna og atvinnurekenda. Til-
lögur nefndar um þetta mál eru á
þá leið, að starfsmenn stærri fyr-
irtækja fái jafna hlutdeild i stjórn
þeirra á við hlutafjáreigendur.
Sagði Callaghan að von væri á til-
lögum um löggjöf um þetta mál i
sumar.
Sovéskir sendiráðsmenn
reknir úr Noregi fyrir njósnir
OSLö 28/1 Reuter —• Norska
stjórnin fyrirskipaði i dag að
fimm sovéskir sendiráðsmenn og
fréttamaður Tass-fréttastofnunn-
ar sovésku skuli hverfa úr landi i
sambandi við mál starfsmanns
norska utanrikisráðuneytisins,
sem játað hefur á sig að hafa
njósnað fyrir sovésku leyniþjón-
ustuna i nokkur ár. Ráðuneytis-
starfsmaður þessi var handtekinn
i gær eftir að hafa hitt þriðja rit-
ara sovéska sendiráðsins, A.K.
Printsipalof að nafni.
Odvar Nordli, forsætisráðherra
Noregs, sagði á blaðamannafundi
að njósnamál þetta væri mjög
flókið og rannsóknum i þvi ekki
enn lokið.
Búið að ráða
einn til Kenya
1 gær ákváðu fjórmenningarnir
sem komu hingað til lands vegna
þróunaraðstoðar Norðurland-
anna við Kenýa að bjóöa Tómasi
Sveinssyni viðskiptafræðingi
starf I Mombasa sem er helsta
hafnarborg landsins.
Að sögn Björns Þorsteinssonar
starfsmanns Aðstoðar Islands við
þróunarlöndin verður starf
Tómasar einkum fólgið i stjórnun
og áætlanagerð fyrir landbúnað
og fiskveiðar á austurströnd
Kenýa.
Samvinnuhreyfingunni i Kenýa
er skipt upp i héraðsmiðstöðvar
og litiar deildir. Tómas mun
starfa við héraðsmiðstöðina i
Mombasa en hún sér um áður-
nefnda áætlanagerð. I héraðinu
umhverfis Mombasa rækta menn
hnetur, kaffi og maðmull en auk
þess er verið að skipuleggja nú-
tima fiskveiðar úti fyrir strönd-
inni. Verður það hlutverk Tómas-
ar — ef hann tekur starfinu — að
aðstoða litlu deildirnar við upp-
bygginguna, skipulagningu flutn-
inga o.þ.h.
Björn sagði að allar likur væru
á að 1 eða 2 islendingar til viðbót-
ar yrðu ráðnir til starfa i Kenýa.
Eru þeir varamenn og koma
fyrstir til álita ef einhver á hinum
Noröurlöndunum getur ekki tekið
þvi starfi sem honum er boðið.
—ÞH
SVONA ER KJARASKERÐINGIN
Við birtum í dag sjötta
dæmið um kjaraskerð-
inguna siðustu þrjú ár.
Dæmin sýna hversu
miklu lengur en áður
verkamaður er nú aö
vinna fyrir sama magni
af vörum. Við tökum eina
vörutegund á dag.
Upplýsingar um vöru-
verð höfum við frá Hag-
stofu islands/ en upplýs-
ingar um kaupið frá
Verkamannafélaginu
Dagsbrún/ og er miðað
við byrjunarlaun sam-
kvæmt 6. taxta Dags-
brúnar.
GERIISNEVDD
HÝMJOLK NÍf
2 LfTRAR 2LÍ1IM,
• ' 'æ
2 lítrar nýmjólk
SJÖTTA DÆMI: 2 lítrar nýmjólk:
Verð Kaup
Febrúar 1974 Kr. 50.60 Kr. 166.30
Maí 1974 65-20 205-40
í dag , jan. 1977 150.00 395-00
NIÐURSTAÐA
1. I febrúar 1974 (fyrir
kjarasamningana) þá var
verkamaður 18 mínútur
að vinna f yrir 2 lítrum af
nýmjólk.
2. i maí 1974 var verka-
maður 19 mínútur að
vinna fyrir 2 lítrum af
nýmjólk.
3. I dag, 29. janúar 1977,
er verkamaður 23 mínút-
ur að vinna f yrir 2 lítrum
af nýmjólk.
Vinnutiminn hefur lengst
um 27% sé míðað við
febrúar 1974 og um 22%
sé miðað við mai 1974.
Nýjustu
SELKO
spjaldahurðirnar
Falleg smíði. Vandaðar hurðir á
hagstæðu verði.
Spjaldhurðirnar eru afgreiddar tilbúnar
undir málningu með grunnmáluðum
flötum í Ijósum lit. Þær eru frágengnar í
körmum, sem eru sniðnir eftir veggja
þykktum. Dyrabúnaður er úr valinni furu.
Komið og skoðið Selkó —
nýjustu spjaldahurðirnar frá Sigurði Elíassyni.
SIGURÐUR
ELÍASSON HF.
AUÐBREKKU 52,
KÓPAVOGI, SÍMI 41380
<OpAyO$
tlthlutunarnefnd listamanna-
launa hefur lokið störfum og
hljóta alls 137 manns listamanna-
laun I ár, þar af 12 sem fá 500.000
kr. veitingu hver frá Alþingi. Fé
það, sem nefndin hafði nú til ráð-
stöfunar var 17 miljónir króna en
var i fyrra 13.5 miljónir króna. Þá
voru laun fyrir efri flokk 150.000
kr. og 75.000 kr. fyrir þann lægri
en eru nú 180.000 og 90.000 kr. 1
fyrra voru I úthlutun á vegum
nefndarinnar 63 i efra flokki og 50
i hinum, 113 alls. Nú eru 65 i hærri
flokki og 60 i hinum.
Nú eru i úthlutun 28 listamenn,
sem ekki voru með i fyrra, 2 i
hærri flokki og 26 i hinum. Þar af
eru 14, sem aldrei hafa hlotið
listamannalaun á vegum nefnd-
arinnar fyrr. Þrir menn nýir eru
nú i hærri flokki, þeir Atli Heimir
Sveinsson, Eyjólfur Eyfells og
Þórleifur Bjarnason. hefð er að
menn séu ekki látnir út eftir að
þeir eru komnir I hærri flokk.
I úthlutunarnefnd eiga sæti:
Halldór Kristjánsson ritstjóri,
formaður nefndarinnar, Jón R.
Hjálmarsson, fræðslustjóri (rit-
ari), Helgi Sæmundsson, ritstjóri,
Hjörtur Kristmundsson, fyrrum
skólastjóri, Magnús Þórðarson,
framkvæmdastjóri, Ólafur B.
Thors, lögfræðingur og Sverrir
Hólmarsson M. Litt. dþ.
BANKI ÞEIRRA SEM
AD FRAMTÍÐINNI
Hvernig verða kjör ókkar napstu árin ? Megum við vænta bættrar
afkomu? £aó veróur því ájðeins að íslenskur iðnaöur eflist til muna.
amiklu hlutverki í þróun hans.
Við gegnum ' v^j
Atli Heimir Sveinsson.
Eyjolfur Eyfells.
Þórleifur Bjarnason.
Listamannalaunum úthlutað:
Þrír færast upp
í hærri flokk