Þjóðviljinn - 29.01.1977, Síða 4

Þjóðviljinn - 29.01.1977, Síða 4
4 — SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Laugardagur 29. janúar 1977 DJODVIUINN AAÁLGAGN SÓSÍALISMA, VERKALÝÐSHREYFINGAR OG ÞJÓÐFRELSIS. Útgefandi: Útgáfufélag Þjóöviljans. Framkvæmdastjóri: Eiður Bergmann Ritstjórar: Kjartan ólafsson Svavar Gestsson Fréttastjóri: Einar Karl Haraldsson. Umsjón meö sunnudagsblaöi Árni Bergmann Útbreiöslustjóri: Finnur Torfi Hjörleifsson. Augiýsingastjóri: Úlfar Þormóösson Ritstjórn, afgreiösla, auglýsingar: Siöumúla 6. Simi 81333 Prentun: Biaöaprent hf. Á MEÐAN ÞEIR SOFA Fyrir nokkrum árum tók að seilast til á- hrifa hér á landi auðhringurinn IBM, sem framleiðir og starfrækir bókhaldsvélar og tölvubúnað hverskonar um allan heim. Auðhringur þessi hefur nú um helming heimsmarkaðarins á umræddum búnaði og er einn af tiu stærstu fjölþjóðahringum heims. Viða um heim td. i Vestur-Evrópu hafa ráðamenn áhyggjur af þvi að erlend- ur aðili skuli oft hafa náð úrslitatökum á mikilvægustu þáttum þjóðlifs og efna- hagsstarfsemi. Hefur td. i Bretlandi Frakklandi ög i Svíþjóð verið gripið til sérstakra ráðstafana til þess að sporna við yfirgangi þessa auðhrings og eru það yfir- völd, rikisvaldið, sem getur haft forgöngu um þessar aðgerðir gegn auðhringnum. Hér á Islandi hefur þessum málum ver- ið komið fyrir með öðrum hætti; hér hefur auðhringurinn IBM komist að furðu hag- stæðum samningum við rikið og stærsta sveitarfélagið, Reykjavikurborg. Hafa þessir tveir opinberu aðilar stofnað með sér fyrirtækið skýrsluvélar rikisins og Reykjavikurborgar og hefur það gerst þjónn IBM. Þetta fyrirtæki hefur eingöngu haft viðskipti viðlBM, sérfræðingar IBM ráða þar lögum og lofum, starfsmenn IBM hafa jafnvel verið samtimis starfsmenn Skýrsluvéla og auðhringsins o.s.frv. Þá hefur fyrirtæki þetta séð Reiknistofnun bankanna fyrir öllum vélakosti og sér- fræði- og tækniaðstoð. Hið sama er að segja um ýmis stórfyrirtæki, til dæmis Sláturfélag Suðurlands og Flugleiðir. Hér er um ákaflega alvarlegt mál að ræða: Einn auðhringur hefur kverkatak á allri helstu þjónustu opinberra aðila og alls bankakerfisins. Ef ráðamenn IBM yrðu óánægðir með viðskiptin við Island — eða stjórnmálaástandið á Islandi — og tækju þá ákvörðun skyndilega að stöðva þjónustu sina hér á landi lamaðist á sama augnabliki nær allt daglegt efnahagslif, öll viðskipti banka, allra rikisstofnana, Reykjavikurborgar og stórfyrirtækja. Þetta erlenda stórfyrirtæki hefur spunnið net sin um nær allt þjóðlifið, það ræður 95% af allri töivustarfsemi i land- inu. Þessi staðreynd er þeim mun alvar- legri þegar þess er gætt að jafnan hefur verið pukrast með hana; forráðamenn fyrirtækisins smygluðu sér inn i landið. Engin löggjöf hefur verið sett um starf- semi þessa fyrirtækis hér á landi. Hvað yrði sagt ef erlend stórfyrirtæki allt i einu og án undangenginna viðræðna við islensk stjórnarvöld og samþykktar alþingis kæmu sér fyrir hér á landi? Hætt er við að mörgum likaði slikt háttalag miður, einn- ig þeim sem ella eru kannski hlynntir ál- draumum Alusuisse og Norsk-Hydro. Að- ferðir IBM eru hliðstæðar. Engin lög eru til um starfsemi þess hér, aldrei birtir fyr- irtækið opinberlega upplýsingar um um- svif sin hér á landi, aldrei hefur það komið fram hver gróði þess er né hvert hann fer o.s.frv. I borgarstjórn Reykjavikur hafa miklar umræður orðið um þessi mál að undan- förnu, en borgin er sem fyrr segir aðili að fyrirtækinu Skýrsluvélar rikisins og Reykjavikurborgar, SKÝRR. Er engu lik- ara en að stjórn þessa fyrirtækis sé i greipum IBM-manna og borgarstjórnari- haldið uggir ekki að sér. Hefur nýlega ver- ið gerður samningur um framhalds-við- skipti borgarinnar við fyrirtækið upp á 400-500 miljónir króna. Þrátt fyrir aðvar- anir borgarfulltrúa Alþýðubandalagsins hafa ráðsmenn ihaldsins ekki fengist til þess að endurskoða afstöðu sina, til þess' að spyrna gegn óeðlilegri og háskalegri útþenslu þessa auðhrings. Forráðamenn rikisins, þar með taldir embættismenn, hafa og verið furðu andvaralausir i þess- um efnumA meðan þeir sofa spinnur auð- hringurinn net sin; i vörslu hans er að finna allar grundvallarupplýsingar um efnahagslif landsins, hann á aðgang að ' upplýsingum um bankaviðskipti einstak- linga og fyrirtækja, hann getur á svip- stundu lamað islenskt efnahagslif. A meðan þeir sofa herðist kverkatakið æ þéttar að ráðamönnum og landsmönnum öllum — ef þeir ekki rumska strax fá þeir ekki við neitt ráðið. —s. Howard Matson er skemmt. Hinn fullkomni flótti Howard Matson, blaöafull- trúa hersins á Keflavikurflug- velli þykir þaö hlægilegt og fáránlegt, að Þjóðviljinn skuli gera þvi skóna aö háttsettir menn í setuliöinu hafi staðið að baki flótta Christophers Barba Smiths. Sem stendur er þó meira hleg- ið að Matson og öryggislögregl- unni á Vellinum en Þjóðviljan- um. Sagan um hinn „fullkomna flótta” Barba Smiths er nefni- lega annaðhvort dæmalaus upp- spunareifari eða vitnisburður um einstakan aulahátt. Og Matson getur huggað sig við þaö, að þessi tilgáta er ekki tilbúningur Þjóðviljans heldur byggð á viðtölum viö embættis- menn i islenska dómkerfinu. Það er staðreynd að i Banda- rikjaher er við að striða alvar- leg eiturlyfjavandamál og engin rök virðast mæla gegn þvi aö Keflavikurflugvöllur sé ööruvisi hvað þetta snertir en aðrar her- stöðvar Bandarikjamanna. Það liggur lika fyrir að „Korkurinn” seldi hass og fleira þviumlikt til samlanda sinna á Vellinum og spurningin er hverjir það voru? Um það er blaðafulltrúinn þögull sem gröfin og segir það andstætt bandarisku réttarfari aö gefa upplýsingar um mál á rannsóknarstigi. Ekki myndu hinir harðskeyttu fjölmiðlar i Bandarikjunum láta sér nægja slikt svar. Páll hinn landlausi Einn hinna landlausu sendi- herra i utanrikisráöuneytinu er Páll Asgeir Tryggvason, deild- arstjóri varnarmáladeildar. Hann er sendiherra íslands i bandarisku herstööinni á ts- landi. Það er i sjálfu sér skemmtileg vitleysa, en væri til of mikils mælst aö hann notaði nú virðingarsess sinn og krefðist þess af yfirmönnum hersins að öll rannsóknargögn um „Korkinn” yrðu lögö á borð- ið fyrir islensk yfirvöld, sam- timis þvi sem óskað væri óyggj- andi sannana fyrir þvi aö hon- um hafi ekki verið komið úr landi. Slik krafa hefur veriö til I- hugunar i öðrum ráðuneytum, þótt ekki hafi verið taliö fært að taka fram fyrir hendurnar á ut- anrikisráöuneytinu enn. Þaö er nauðsynlegt fyrir Isl. yfirvöld að vita hverjir voru viöskiptavinir „Korksins” á Keflavikurflug- velli til þess að þau geti metið hvort verið er að gera gys aö þeim eður ei. Ritskoðunarvilji 1 útvarpsráði er nú töluveröur áhugi á þvi meðal meirihluta- manna aö láta hætta lestri úr forystugreinum dagblaöanna. Menn minnast þess að þegar nýjar reglur voru settar á sl. ári um lestur úr landsmálablöðum komu þær verst niður á ýmsum málgögnum vinstri hópa. Nú hafa veöur skipast þannig i lofti að siðdegisblöðin halda á stund- um uppi andófi gegn stjórnarat- höfnum helmingaskiptastjórnar Framsóknar og thaldsins. Þessu una stjórnarsinnar illa og vilja bregða fæti fyrir. Nú er engu llkara en þeim hafi borist upp i hendurnar tækifæri, sem þeir munu ekki láta sér úr greipum ganga, ef að likum læt- ur. Utburður útvarpsstjóra Fyrir allnokkru sótti Halldór Pálsson, búnaðarmálastjóri, þaö fast að fá að svara fullyrö- ingum I Dagblaösleiðara, sem úrdráttur var lesinn úr i út- varpi. Þessari beiöni var hafnað en að forgöngu meirihlutans i útvarpsráöi var óskað eftir lög- fræðilegri rannsókn á þvi hver bæri ábyrgðina á ærumeiðandi ummælum, eða alvarlegri hlut- drægni og rangfærslum, sem lesnar væru I útvarp úr forystu- Andrés Björnsson ábyrgur fyrir ærumeiðingum I leiöurum. greinum. Niðurstaða lögfræö- ings útvarpsins liggur nú fyrir og er hún i stuttu máli sú að hægt sé aö draga útvarpsstjóra til ábyrgðar og getur hann átt yfir höfði sér fésektir og fang- elsi, ef honum er stefnt. Út- varpsráð ber hinsvegar enga á- byrgð, þótt þaö hafi endanlegt ákvörðunarvald um út- varpsefnL Það er semsagt hægt að dæma útvarpsstjóra fyrir aö bera út áróður um menn og málefni. Stefnt að öngþveiti Þegar hefur reynt á lögskýr- ingu lögfræðings útvarpsins. Rikisendurskoðunin hefur feng- ið lesna leiðréttingu á forystu- grein Dagblaðsins, sem byggði á grein Halldórs Halldórssonar um Afengisverslun rikisins og forstjóra hennar Jón Kjartans- son. Útvarpsstjóri mun vera þeirrar skoöunar að á meðan leiðarahöfundar halda sig viö að „ærumeiða” stjórnmálamenn og -stefnur sé ekki ástæða til að birta athugasemdir frá „æru- meiddum”, heldur aðeins þegar eiga I hlut fyrirtæki, félög og einstaklingar. En það er búið að opna fyrir athugasemdir. Og þá koma matsatriðin inn. Rikisendur- skoðun fær að lýsa Halldór Hall- dórsson ósannindamann, en honum er neitað um vörn i mál- inu. Nú má búast við þvi að kröfur fari að berast i striöum straumum um leiðréttingar við lestur forystugreina, nú þegar ekki sýnist hald i þvi lengur, aö óhlutdrægni sé gætt með þvi að lesa úr forystugreinum allra dagblaðanna. úr þessu verður innan tiðar algjört öngþveiti og þá er mál fyrir stjórnarsinna að leggja til að hætt verði lestri úr forystugreinum dagblaðanna. Úlfaldi úr mýflugu Hér er verið að gera úlfalda úr mýflugu. Það er aðeins i ör- fáum tilfellum aö forystugrein- ar eru þess eölis að i þeim felist hugsanlegar ærumeiðingar. Nær hefði verið aö leita ráða til þess að firra útvarpsstjóra per- sónulegri ábyrgð á forystu- greinalestri með breytingu á reglugeröum og lögum. Og það er einnig mjög ósennilegt að til slikra málaferla komi nokkurn- tima. Ekki fóru VL-menn i mál . við útvarpsstjóra þótt „ærumeið andi ummæli” að þeirra mati væru lesin upp i útvarp. Þeir stefndu aö sjálfsögðu ábyrgðar- manni blaðsins og leiðarahöf- undum. Þegar eins iögfróðir, en þó seinheppnir menn, eins og VL-ingar fara þessa leið er eng- in ástæða til annars en að ætla að aðrir „ærukærir” fari sömu leið. —ekh.

x

Þjóðviljinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.