Þjóðviljinn - 29.01.1977, Síða 9
Laugardagur 29. janúar 1977 þJöÐVlLJINN — SIÐA — 9
SVERRIR HÓLMARSSON
SKRIFAR LEIKHÚSPISTIL
LÍFSGÁTUR
Sveinafélag
pipulagningarmanna
Ákveðið hefur verið að viðhafa allsherjar-
atkvæðagreiðslu um kjör stjórnar og
trúnaðarmannaráðs.
Framboðslistum skal skilað á skrifstofu
félagsins fyrir klukkan 18 þann 31. janúar
Stjórnin
Auglýsingasíminn
er 8-13-33
Ferskir
litir
faUMí
umhverfi
GIsli Alfreösson og Róbert Arnfinnsson I Meistara Odds Björnssonar.
Meistarinn
eftir Odd Björnsson
á kjallarasviöi Þjóöleikhússins
Leikstjóri: Benedikt Arnason.
Leikmynd: Birgir Engilberts.
Aöalpersónan i þessu nýja leik-
riti Odds Björnssonar er örvasa
karlhlunkur sem naumast getur
staulast um óstuddur, enda kom-
inn á grafarbakkann. Hann raus-
ar mestallt verkiö i gegn um lifiö,
skáldskapinn, konur, lifsgátuna
og þar fram eftir götunum, við
nýja lækninn á staönum, sem
kemur til þess aö skoöa hann en
veröur þess i staö drykkjunautur
hans og skáldbróöir, erfingi aö
meistarastykki hans, konu hans
og að lokum dauöa hans. Oddur
hefur sjálfur kallað leik sinn
gestaþraut, og vissulega inni-
heldur hann ákveðna ráögátu,
sem hlýtur að veröa hverjum
áhorfanda umhugunarefni, en
hollast aö hver hafi sina lausn
fyrirsig. Þaö sem máli skiptir er
aö Oddur leiðir hér fram raun-
veruleg viöfangsefni og gerir
þeim skil án þess aö detta niöur i
flatneskju eöa hefja sig upp i
rembing. Slikt er ævinlega guös-
þakkarvert.
An þess ég vilji þröngva
þeirri skoöun uppá nokk-
um mann get ég ekki stillt
mig um aö nefna, aö eftir þvi sem
leiö á leikritiö og einkum eftir
umskiptini lokin, sóttiþaömjög á
mig að lausn krossgátunnar væri
i þvi fólgin að ungi maöurinn og
gamalmennið séu i rauninni einn
og sami maðurinn á tveimur
aldursskeiðum. Og kom þá upp i
huga mér kvæðiskorn eftir Yeats,
sem ég læt fljóta hér með til
skemmtunar:
GIRL’S SONG.
I went out alone’
To sing a song or two,
My fancy on a man,
And you know who.
Another came in sight
That on a stick relied
To hold himself upright
I sat and cried.
And that was all my song —
When everything is told,
Saw I an oid man young
Or young man old?
Leikrit Odds hafa gjarnan ein-
kennst af frumlegum og smelln-
um hugmyndum sem hann setur
fram I sérkennilegum og oft m jög
virkum stil. Hann hefur næmt
auga fyrir leikhúsi og næmt eyra
fyrir samtölum sem lifna á sviði.
Hins vegar hefur oft skort á út-
haldið i verkum hans, honum hef-
úr stundum ekki fylliíega enst ör-
endið til aö leiöa verkin fyllilega
til lykta. Þetta nýjasta verk hans
er um margt sama markinu
brennt. Það er sérkennilegt og
þónokkuö frumlegt, langar og
endurtekningasamar orðræður
hins örvasa og fordrukkna
gamalmennis búa yfir töluverðu
seiömagni og viða eru verulega
hrifandi sprettir i leikritinu. Þaö
er hins vegar eins og einhvern
herslumun vanti til aö hér sé al-
veg fullskapað verk á feröinni.
Þaö er reyndar alls ekki óhugs-
andi að uppsetningin eigi hér ein-
hverja sök. Það var eins og hún
gerði ósköp litiö til aö auöga text-
ann sjónrænt eöa skapa verkinu
áhrifamikla hrynjandi. Það var
erfitt að koma auga á aö leik-
stjórinn hefði unniö eftir ákveö-
inni hugmynd eða stefnt aö ljósu
markmiöi. Skarpari, áherslurik-
ari sviðsetning hefði eflaust getaö
skerpt textann til muna.
Að visu er hlutur leikaranna
allgóður. Róbert nýtur sin frá-
bærlega vel i hlutverki meistar-
ans — nær verulegum meistara-
Lökum á þessum karlskrögg.
Margrét Guðmundsdóttir er af-
skaplega sterk i litlu en veiga-
miklu hlutverki konunnar. Gisli
Alfreðsson á dálitið erfiðan leik
framan af, þarf aö hlusta mestan-
part timans, sem er eitt það örö-
ugasta sem leikari kemst i, en
sækir mjög i sig veöriö þegar
fram i sækir og kemur út
skemmtilega sterkur i lokin.
Það er trúa min aö Oddur
Björnsson hafi að mörgu leyti
frumlegasta gáfu þeirra leikrita-
löfunda sem nú skrifa á tslandi.
Meistarinn er staðfesting þess aö
Bddur er enn að auka. viö sig og
vib megum vænta frekari afreka
if hans hendi þegar fram liða
stundir.
Sverrir Hólmarsson.
Málum til að prýða híbýli og umhverfið,
hressum upp á utlitið með nýjum KÖPAL
litum úr KÖPAL litabókinni.
Veljum litina strax og málum svo einn
góðan veðurdag.
Kópal
Þaóermálning
málninghlf