Þjóðviljinn - 29.01.1977, Side 12

Þjóðviljinn - 29.01.1977, Side 12
12 — SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Laugardagur 29. janúar 1977 Stórkostlegur leikur islenska liðsins i gærkvöldi: Botnlaiis keyrsla í vörn og sókn gaf góðán sigur Tékkarnir fengu engum vörnum við komið þrátt fyrir dygga aðstoð þýsku dómaranna og islendingar sigruðu Þaö var gaman að sjá til íslenska liðsins í gærkvöldi i siðari leiknum gegn tékk- um. Strákarnir keyrðu á fullu allan tímann, léku af mikilli skynsemi og tóku fastar á tékkunum en í fyrri leiknum. Enda þótt veikleiki væri í miðjuvörn- inni framan af náðu tékk- arnir aldrei í leiknum yfir- höndinni og eftir æsispenn- andi lokamínútur tryggði islenska liðið sér tveggja marka sigur. Það gekk maður undir manns hönd að þessu sinni, einstakl- ingsframtakið var í lág- marki liðið vann sem ein heild og uppskeran lét ekki á sér standa. Tékkarnir, sem sýndu mun betri leik en í fyrra skiptið, fengu ekki við neitt ráðið og stóðu ráðþrota frammi fyrir glæsilegum leik íslenska liðsins. Já, það var stemn- ing í höllinni í gærkvöldi og Björgvin Björgvinsson stóö allan leikinn á linunni og barö- ist þar viö sterka og grófa tékkneska varnarmenn. Sannarlega er hann ekki öfundsveröur af sinu hlutverki og kannski vorkennir maöur honum einna helst yfir þvi aö bíöa eftir boltanum heilan ieik og fá hann ekki nema tvisvar eöa þrisvar. — Nei, blessaöur vertu, ég er alltaf ánægöur á meöan þeir þurfa aö eyöa heilum manni i aö passa mig. Viö byggjum okkar leik upp á ekki var hún minni í bún- ingsherbergi íslenska liðs- ins að leik loknum. Menn voru yfir sig ánægð- ir.... þreyttir, en alsælir með afrakstur kvöldsins. Það var Þorbjörn Guðmundsson, sem gaf landan- um tóninn strax á fyrstu minútu með fallegu marki. Drengurinn sá átti eftir að vera i sviðsljósinu allt kvöldið, þvi hann átti þarna sinn langbesta landsleik. Fjögur mörk skoraði hann i fyrri hálfleik og margoft braust hann i gegn á likamsstyrk sinum og skaphörku. Vaxandi leikmaður a tarna og sjálfstraustið eykst með hverjum leik. Tékkarnir jöfnuðu strax metin og þeir jöfnuðu siðan aftur 2-2, en eftir það sigldi islenska liðið fram úr. I leikhléi var staðan 14:12 og hafði landinn þá skorað jafn mörg mörk og i öllum fyrri leiknum gegn tékkunum. Geir var i essinu sinu, raðaði inn mörkunum (5 stórfalleg) og batt allt spil liðsins saman. Hann er greinilega heil- inn i sóknarleiknum og að þessu sinni lét hann sér ekki nægja að mata félaga sina heldur braust hann sjálfur i gegn og var þá ekki hornamönnum og útiskyttum, svo aö mitt hlutverk er fyrst og fremst aö trufia vörnina og blokkera fyrir hina strákana. Á meöan þaö tekst er ég ánægöur, og ef viö vinnum leik er mér nákvæmlega sama hvert mitt hlutskipti er... Og þaö var gaman aö þessu I kvöld. Ég náöi skemmtilegri sam- vinnu viö Geir I fyrri hálfleik og skoraöi auk þess tvo mörk sjálfur, Þannig aö fyrirmig var þessi leikur i alla staöi hinn ánægjulegasti. — gsp að sökum að spyrja. Tvö vftaköst fiskaði Geir i fyrri hálfleik auk markanna sinna fimm, og úr þeim báðum skoraði Jón Karls- son af öryggi. Þáttur Jóns má aldeilis ekki gleymast. 1 leikjunum gegn tékk- um tók hann samtals tiu vitaköst og skoraði úr þeim öllum, og i gærkvöldi reif hann sig lausan hvað eftir annað eftir að Geir var tekinn úr umferð. Afraksturinn varð þrjú mörk til viðbótar við vitaköstin fjögur og stóð „Ponni” svo sannarlega fyrir sinu að þessu sinni. Og það gerðu fleiri. Of langt mál er að telja upp einstök afrek þeirra allra, en ekki má þó láta staðar numið án þess að geta Björgvins Björgvinssonar. Hann þvældist og barðist um á linunni allan leikinn, átti tvö skot að marki og skoraði úr báðum, en fyrst og fremst blokkeraði hann skemmtilega fyrir Geir i fyrri hálfleiknum. Tékkarnir lögðu mikla áherslu á að geta Björg- vins, slepptu honum aldrei laus- um og um leið opnaðist fyrir úti- spilarana. Það ber ekki mikið á Björgvini i þessu þófi, en hann vinnur þó meira fyrir liðið en flestir aðrir. En i gærkvöldi var það i heild- ina óvenju samstætt og baráttu- glatt islenskt lið sem þeyttist um fjalir Laugardalshallar. Vörnin var til mikillar fyrirmyndar er á leið, eftir að lekinn i gegnum miðjuna hafði verið stöðvaður, og enda þótt þýsku dómararnir flautuðu látlaus friköst á islensku vörnina tókst þeim ekki að hjálpa tékkum til sigurs. Undir lokin sóttu útlendingarnir þó langtim- um saman án nokkurs árangurs og i staðinn fyrir að fá dæmda á sig leiktöf var flautað frikast á landann I hvert sinn sem hann vogaði sér að snerta andstæðing sinn ... og það þurfti jafnvel ekki svo mikið til. Þetta voru hörmungardómarar, en islend- ingar svöruðu af skynsemi og héldu sér vakandi i vörninni allan timann. Og að venju brást Ólafur Bene- diktsson ekki. Tólf sinnum varði hann i þessum leik... og það voru engir „banaboltar” sem bárust frá -tékkunum. Hörkugóðar skytt- ur þeirra sendu sannkölluð fall- byssuskot á markið, en Ólafur kann sitt fag trúlega betur en flestir aðrir markmenn i heimin- um. „Ég er alltaf ánægður ef við bara vmmim” — sagði Björgvin eftir þvælinginn á linunni „Við æfum tíu sinnum meira en oftast áður” — og dæmið er greinilega að ganga upp hjá okkur, sagði Geir Hallsteinsson — Viö æfum tlu sinnum meira en oftast áður, ef þá nokkru sinni fyrr, sagði Geir Hali- steinsson að leik loknum, — og árangur þess erfiðis er núna að koma i ljós. Við höfum unnið bæði póiverja og tékka og ég er viss um að betra veganesti fyrir Austurrikisferðina er ekki hægt að fá. Þetta er aö koma hjá okk- ur, leikurinn I kvöld var frábær og það eina sem vantar er meiri hraða I sóknarkerfin. — Jú, það er erfitt að spila á móti tékkunum. Þeir eru ieiðin- lega grófir, og lúmskir eftir þvi. Þetta er ekkert nema kurteisin uppmáluð þegar þeir berja mann hvað eftir annað með krepptum hnefa. Það hefur svo sem fokið i mann af minna til- efni heldur en I kvöld. -gsp Þorbjörn Guömundsson vex með hverjum landsleik og I gærkvöldi sýndi hann af sér mikið haröfylgi og baráttugleði. Það mæddi mikið á þessum unga landsliðsmanni, en hann kiknaði siður en svo undan álag- inu. Myndina tók —eik i gærkvöldi. Eins og áður segir var staðan i leikhléi 14:14. En þá gripu dóm- ararnir i taumana, auk þess sem slæmur kafli kom hjá landanum. Staðan breyttist i 18:18, enda var Geir nú tekinn nr umferð og is- lenska sóknin ofboðlitið ráðvillt. Jón Karlsson hafði fram að þessu skorað þrjú af fjórum mörkum Islands i seinni hálfleik, og er staðan var 18:18 reif hann sig lausan, óð i gegnum tékkneska varnarmúrinn... og fiskaði viti. Jón tók það sjálfur ... og skoraði! 19 :18 og isinn var brotinn. Jón skoraði 20:18 og islenskur sigur var nánast i höfn. Stórleikur hjá Jóni i siðari hálf- leik, en i þeim fyrri kom hann ,ekki inn á nema til þess að fram- kvæma vitaköstin. En landsliðs- fyrirliðinn brást ekki er Geir fékk á sig „frakka” og landinn hélt sinu striki frá fystu minútu til hinnar siðustu. Mörk Islands: Jón Karlsson 7 (4 viti), Geir Hallsteinsson 5, Þor- björn 5, Björgvin 2, Viðar lú Tékkneska liðið var að venju nokkuð jafnt, enginn einn skorar áberandi meira en annar, skytt- urnar þeirra tvær, númer 3 og 15, ógnuðu þó alltaf verulega og voru virkar i spilinu. —-gsp Sjö þyngdarflokkar á afmælismóti JSI Sunnudaginn 30. janúar fer fram fyrsti hluti Afmælismóts Judosdmbands tslands. Keppt verður i þyngdarflokkum karla — sjö flokkum samkvæmt hinni nýju þyngdarflokkaskiptingu sem tók gildi um áramótin. Þetta er i fyrsta sinn sem keppni einstaklinga i öllum þess- um þyngdarflokkum er háð hér á landi, en fyrr i mánuðinum fór fram Sveitakeppni JSl þar sem keppt var i 7 manna sveitum. Allir bestu judomenn landsins keppa á mótinu á sunnudag og er búist við mjög góðri þátttöku Nýja þyngdarflokkaskiptingin örvar mjög þátttökuna þar sem fleiri fá nú góð tækifæri en áður og keppnin verður jafnari og harðari. Judomenn hafa æft mjög vel i öllum judofélögunum i vetur og verður keppnin áreiðanlega spennandi á þessu fyrsta stórmóti vetrarins i judo. Keppnin verður i Iþróttahúsi Kennaraháskólans og hefst kl. 14.00. 1 byrjun febrúar verður svo keppt i flokkum kvenna og ung- linga og i opnum flokki karla á Afmælismótinu. Glímumót með nýju sniði í dag Glimusamband tslands gengst I dag fyrir glimumóti, sem nefnt er — Miðsvetrarglima GSt — Þetta mót er nokkuð sérstakt að þvi leyti að útsláttarfyrirkomulag veröur viðhaft i keppninni. Hverj- ir tveir glima tvær glimur og sá sem tapar þeim báðum er úr og eins ef hann fær aðeins 1/2 vinn- ing gegn 1 1/2. Vinni hvor kepp- andi sitt hvora glimuna, skal glima 3ju glimuna og þá án tima- lengdar. Flestir bestu giimumenn lands- ins verða meðal þátttakenda, þ.a.m. bræðurnir Pétur og Ingi Ingvasynir, Guðmundur Freyr Ilalldórsson og Guðmundur Ólafsson. Keppnin fer fram i iþróttahúsi Vogaskólans og hefst kl. 16.30 i dag. — S.dór

x

Þjóðviljinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.