Þjóðviljinn - 29.01.1977, Blaðsíða 13

Þjóðviljinn - 29.01.1977, Blaðsíða 13
Laugardagur 29. janúar 1977 ÞJÓÐVILJINN — SIÐA — 13 Bárdur Danlelsson lýsirdómum og dómsforsendum. Menn hlusta á ræöu Báröar Danlelssonar fyrir sýningu. Hlýtt á dómsorö og kynningu i störfum dómnefndar, — fyrir opnun sýningar. Skipulagskeppni Vestmannaeyjabœjar (Jrslit skipulagssamkeppni fyrir Vestmannaeyjabæ voru gerð heyrum kunn hinn 23. jan. s.l. Þessi dagur var valinn sem skiladagur úrslita úr þessari keppni vegna þess, að þá voru liðin rétt 4 ár síðan eldgosið á Heimaey hófst og öll sú eyöi- legging og eiturmóða, sem þvi fylgdi, þar sem heimili og æsku- stöðvar fjölda manns var svo gersamlega þurrkað út af jörð- inni að engin leið er að benda á hvar það stóð. En nálægt 300 hús auk túna og sögustaða eru nú grafin i iður jarðar. Viðlagasjóður var stofnaður til þess að reyna eftir megni að bæta það, sem bætanlegt var af þessum glötuðu verömætum, þótt fáir muni telja sig hafa fengið í bætur jafnvirði þess er þeir misstu. Um það veröur þó ekki deilt, að Viðlagasjóður hef- ur lyft þvl Grettistaki í úrbótum og við endurreisn Heimaeyjar, aö enginn, sem ekki hefur fylgst Litiö eitt dr tillögu 1. verölauna hafa náið með þeim málum, getur imyndað sér hve stórt það átak var. Einn þáttur þessarar við- reisnar er skipulagssamkeppni, þar sem byggja þarf sæg nýrra húsa, sem mikilvægt er að fari sem best úr hendi og haganleg- ast. Það var þvl vel við hæfi, að bæjarstjóm bauð til hádegis- verðar I samkomuhúsi Vest- mannaeyja stjórn Viðlaga- sjóðs, sem nú er niöur lagður, dómnefnd skipulagskeppninn- ar, bæjarfulltrúum, bygginga- nefnd, o.fl. Mætti kannski i og með telja þetta kveöjusamsæti meö stjórn Viölagasjóðs. Og i þvi tilefni afhenti Helgi Bergs, fyrrverandi formaður stjórnar Viðlagasjóðs,Vestmannaeyjabæ eitt eintak af heimildakvikm ynd um sögu eldgossins, björgunar- starfinu og endurreisnarstarf- inu fram til þessa dags. Mynd- ina gerði Heiðar Marteinsson o.fl. Var myndin sýnd boðsgest- um i samkomuhúsinu eftir snæðing og töldu flesti hana vel tekna og vel uppbyggða, með tilliti til þess hversu margþættu og óliku efni, sem nær yfir f jög- urra ára timabil, er komið fyrir á stuttri filmu. Að kvikmyndasýningunni lok- inni var haldið upp I hið nýja Safnhús, sem enn er ekki nærri lokið við, og skoðaðar skipu- lagstillögurnar, yfir 30 talsins. Dómnefndarmenn voru: Bárður Danielsson, fyrir skipu- lagsstjóra, Vilhjálmur Hjálm- arsson, fyrir arkitektafélagið, Páll Zóhoniasson bæjarstjóri og Jóhann Friðfinnsson, bæjarfull- trúi, skipaðir af bæjarstjórn Vestmannaeyja, og Eric Adler- kreutz, skipaður af arkitektafél- lögum á norðurlöndum. Fyrir sýningu lýsti Bárður Danielsson störfum dómnefndar og þeim forsendum, semhún byggði mat sitt á. (Jrslit keppninnar urðu þau, að fyrstu verðlaun hlaut norsk kona, sem býr i Kanada, Elin Corneil að nafnL og voru verð- launin 60 þús.kr. d. Tillaga þeirra Gunnars Inga Ragnars- sonar verkfræðings, Gylfa Guð- jónssonar arkitekts, Sigurþórs Aðalsteinssonar arkitekts og Valdisar Bjarnadóttur arki- tekts fékk önnur verðlaun, 35 þús.kr. d. og þriðju verðlaun, 25 þús. kr. d. hlutu arkitektarnir Ole Bergman, Per Seiving og Janne Svensson,en þeir eru allir sænskir. Auk hinna þriggja verðlauna- tillagna var ákveðið að kaupa fimm tillögur, þvi flestar tillög- umar mega teljast meira og minna snjallar, en talið einsýnt aðengin ein yrðitekin óbreytt og þvi ástæða til að sameina það besta úr fleiri tillögum. Sýningin verður opin þessa viku. þm/mhg STÓR—ÚTSALA Q Opið ídag kl. 10-7. Á morgun kl. 1-7 og alla næstu viku frá kl. 1-6. A .. 1 • CI -vtl/ i ■ • Inni C rtrl n Knnrl RílaionnaKntai* I íiiA nnlluA ÍAnni Opið ídag kl. 10-7. Á morgun kl. 1-7 og alla næstu viku frá kl A íitsölnnni Flækjulopi Endaband Bílateppabútar Hespulopi Prjónaband Teppabútar Flækjuband Vefnaðarbútar Teppamottur Litið gölluð teppi Fatnaður Og ýmislegt fleira ÁLAFOSS HF., MOSFELLSSVEIT m Frábær harðfiskur HJALLFISKUR Ljúffengur — Bætiefnarikur — Styrkir tennurnar Harðfiskur — Saltfiskur Mareneruð sild — Fryst ýsuflök HJALLFISKUR HF. i Hafnarbraut 6 Kópavogi Sími 40170.

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.