Þjóðviljinn - 29.01.1977, Side 16

Þjóðviljinn - 29.01.1977, Side 16
16 — SÍÐA — ÞJÖÐVILJINN Laugardagur 29. janúar 1977 Jónas Hermannsson, bóndi Norður-Hvammi, Mýrdal: A „ál í hvert mál” að vera kjörorð Mýrdælinga? Frá Vlk i Mýrdal — Séö austur til Hjörleifshöföa Tilefni þessar greinar er sú grátbroslega sviössetning sem fram hefur fariö á Suöurlancji undanfariö, þar sem tekist hefur aö fá byggðalögin til aö æpa hvert af ööru álverksmiöju, höfn og aö minu viti óbeint undirbjóöa hvert annaö. Gangur þessa máls hefst á þvi aö 8 janúar 1977 er haldinn svokallaöur kynningarfundur kreppsnefndarmanna um þessi mál I Vik. Eftir hann rigndi yfir fólk fréttum I fjölmiðlum, allar á þann veg, aö viö Mýrdælingar heföum mikinn áhuga á aö hreppa hnossiö. Var þaö tilviljun aö nokkur timi leið frá Vlkurfund- inum, þar til haldnir voru fundir meb Þykkvabæingum og Þorlákshafnarbúum? Var þaö til þess gert aö nægur timi liði til þessaö fréttirnar af Vikurfundin- um næöu allra eyrum og augum? Voru þessar fréttir byggðar á vilja allra Mýrdælinga?kynnu nú menn að spyrja. Ég skal nú rekja gang málsins frá minum bæjar- dyrum séð. Fréttirnar eru flestar haföar eftir oddvita Hvamms- hrepps, Ingimar Ingimarssyni, Vik, og birtust i flestum fjölmiöl- um og hljóðuðu allar á einn veg „mikill áhugi heimamanna aö Norsk-Hydro veröi veitt aöstaöa til byggingar álvers,” (orörétt fyrirsögn Timans 13. janúar 1977, haft eftir oddvitanum). Seinna segir I sömu grein Timans orörétt „Heimamenn austur i Mýrdal hafa sýnt mikinn áhpga á aö ál ver veröi reist i dalnum og höfn gerö viö Dyrhólaey.” Mér er spurn, hvar og hvenær hafa heimamenn sýnt þennan mikla áhuga á álveri i Mýrdalnum? Þessar fréttir er hægt aö hrekja meö rökum sem ósannan áróöur og túlka sennilega best óskir odd- vitans sjálfs. Ingimar heldur áfram að fara á kostum. Timinn 13. janúar s.l. sama grein: „aö sögn Ingimars Ingimarssonar oddvita i Vik i Mýrdal vilja heimamenn þar eiga frumkvæöiö aö þvi aö fara þess á leit viö norska fyrirtækið aö reisa álver i Mýrdalnum”. Við skulum nú athuga þetta örlitið betur og lita á yfirlýsingu hreppsnefndar Dyrhólahrepps frá 20.janúar s.l. „Hreppsnefnd Dyrhólahrepps átelur einnig harðlega þau brigö á trúnaöi sem fundarboöendur Vikurfundarins 8. janúar s.l. sýndu okkur heimamönnum ”. Ekki vill þetta passa viö sögu oddvitans aö heimamenn hafi átt frumkvæöið. Áfram heldur Ingi- mar 13. janúar s.l. i Timanum og fullyröir að aldrei veröi byggö höfn við Dyrhölaey nema að til komi stóriðja. En sannleikurinn er sá aö þessa sæludaga oddvit- ans sem hann barst mest á meö fréttaflutningi af þvi tagi sem ég hef bent á aö hér aö framan haföi hann ekki talað formlega viö þá menn sem aö minum dómi kemur þetta mest viö þ.e. ibúa Mýrdals- ins. Þaö haföi og hefur ekki veriö haldinn neinn fundur meö ibúum byggöarlagsins (almenningi). Þaö haföi ekki veriö talaö viö félag manna hér heima sem hafa unniöaö lendingarbótum viö Dyr- hólaey, ekki viö menn sem vinna aö þvi að fá Dyrhólaey friölýsta og ekki eitt orö viö landeigendur. 1 mlnum augum er þaö ámælis- vert fyrir framámann hrepps- félagsins að bera út ekki hald- betri fréttir en þessari i sliku stórmáli sem þarna var á ferðinni. Sýslunefnd V-Skaftafellssýslu sendi einnig fjölmiölum stuön- ingsyfirlýsingu við byggingu álverksmiöju og hafnar viö Dyrhólaey. Ekki gátu þeir veriö minni menn en aörir og láta ekk- ert frá sér heyra á slikum umrótatimum. En afhverju er ég aö rifja þetta upp? Þaö er vegna þess aö viö, andstæöingar álverksmiðju, — þvi fátt er svo heilagt aö ekki eigi andstæöinga, ekki einu sinni álverksmiöja.bárum saman bæk ur okkar um hvaö gera skyldi Kom okkur saman um aö setj£ niöur mótmæli á blaö þar senr lýst er undrun á áöurnefndurr vinnubrögöum og þeim mótmælt Þetta gerðum viö I þeirri góöu trú, aö viö hefðum leyfi til aö láta okkar skoöanir i ljós og veita meb þvi andóf og aöhald sem sist virtist af veita. Þetta tiltæki litu ekki allir sömu augum og báru sig illa. Við létum þó ekki glepjast og listinn gekk um Mýrdalinn 15. og 16.janúar s.l. Á hann skrifuöu 70 ibúar Hvamms- og Dyrhóla- hrepps 16 ára og eldri. Þaö skal tekiö fram aö listi þessi var alls ekki hugsaöur eöa kynntur sem atkvæöagreiðsla, þess vegna ekki hægtaö lita á þessa tölu sem slika enda fariö aöeins einu sinni meö listann um hreppana. Margt fólk var ekki heima viö, var aö vinna o.s.frv. Afrit af lista þessum hef- ur verið sent hreppsnefndum Mýrdalsins og sýslunefnd. Hreppsnefndir hreppanna nota sérhins vegar að mótmælalistinn' var ekki birtur utan héraös. Þannig er mál meö vexti aö þær skutu saman fundum og samþykktu ályktanir, broslegt yfirklór sem minnir mest á tilburöi kattarins aö afmá vegsummerki i sandkassanum. Úrþessari ályktun senda þeir svo aöeins nokkrar linur i hljóðvarp i gærkveldi 24. janúar s.l. og velja til þess þaö atriöi sem höföar til hártogunar á oröalagi margs- nefnds undirskriftalista. Meö þvi nota þeir fyrsta tækifæri til þess aö koma aftan aö okkur, sveit- ungum sinum, sem stóöum aö mótmælum. Þvi I ósköpunum senduö þiö háttvirtir hreppsnefndarmenn ekki frekar eöa llka næstu grein ályktunar ykkar, þar sem segir orörétt: „Hreppsnefndin átelur einnig harölega þau brigö á trúnaöi sem fundarboöendur Vikurfundarins 8. janúar s.l., sýndu okkur heimamönnum meö þvi aö nota fyrsta tækifæri til aö túlka aö eigin geöþótta niöurstööur fundarins, eftir aö hafa fariö þess eindregiö á leit viö okkur heimamenn á fundinum aö forðast umræður um hann i fjöl- miölurn, þar til okkur heföi gefizt kostur á aö kynna öllum ibúum máliö og heyra undirtektir þeirra.” Brast hetjurnar kjark til aö senda þetta? Töldu þeir áhættu- minna aö vega aö sinum sveit- ungum heldur en aö hrófla viö þeimstóru, þ.e.a.s aökomumönn- unum sem komu austur i Vik 8. janúar si til aö ginna þá svo eftir minnilega i þessu ógæfumáli? Þaö skal tekiö fram aö framan- greind yfirlýsing er úr samþykkt hreppsnefndar Dyrhólahrepps. I frétt hljóðvarpsins er þess jafn framtgetið að samþykkt hrepps- nefndar Hvammshrepps sé mjög á sama veg. Nú skulum viö skoöa betur þá setningu undirskriftalistans sem þessir heiöursmenn hafa reynt aö hártoga. Setning þessi hljóöar þannig: „Vekur þaö undrun okk- ar, aö ráöamenn héraösins skuli bjóöa land undir slikan erlendan ófögnuö sem Eyfirðingar hafa áöur neitaö um leyfi fyrir.” Viö sem að undirskriftalistanum og mótmælum stóöum og þeir sem undir hann skrifuöu, gátum á engu öðru byggt en þeim fréttum, sem okkur birtust i fjölmiölum um máliff. Oddviti Hvamms- hrepps segir i frétt i Timanum 13. janúar s.l. að heimamenn vilji eiga frumkvæðiö aö þvi aö fara þess á leit við norska fyrirtækiö aö reisa álver i Mýrdalnum. Ég veit satt aö segja ekki hvaö er aö bjóöa fram land ef þetta telst þaö ekki. Þaö gefur auga leiö aö eng- inn munur erá þvi aö bjóöast til aö taka viö verksmiöju inn i héraðiö og aö bjóöa land undir hana. Þarna er á feröinni aöeins orðalagsmunur, en ekki meiningarmunur. Þaö liggur i augum uppi aö margnefnd verk- smiöja muni þurfa land til aö standa á, svo framarlega sem þessi paradis hafi átt aö vera á jöröu niöri en ekki á himnum. Að lokum ábending til þeirra sem ennþá ganga meö álveikina aö lesa skrif Laugvetninga 22. janúar 1977 i dagblööunum. Þau eru veröugt kjaftshögg á alla vitleysuna. Hafiö þökk fyrir, Laugvetn- ingar. Skrifaö i Noröur-Hvammi 25. janúar 1977. JónasHermannsson. FRAMTALS AÐSTOP NJEYTF.NDAÞJÓIVUSTAIV LAUGAVEGI84, 2.HÆÐ SÍMI28084 Pípulagnir Nýlagnir, breytingar hitaveitutengingar. Simi 36929 (.milli kl. 12 og 1 og eftir kl. 7 á kvöldin) t h.». STEYPUSTÖÐ FfFUHVAMMI, KÖPAVOGI, S. 43500 SKRIFSTOFA:- LÁGMÚLA 9, RVK., S. 81550 GÓÐ STEYPA GÓÐ ÞJÓNUSTA GÓÐ KJÖR

x

Þjóðviljinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.