Þjóðviljinn - 11.05.1977, Blaðsíða 10
10 SIÐA — ÞJÓÐVILJINN Miövikudagur 11. mal 1977
MINNING
Gudrún Petrea Jónsdóttir
Fædd 24.12 1901 - Dáin 2.5. 1977
1 dag, 11. mai, fer fram frá
Fossvogskapellu útför Guðrúnar
Petreu Jónsdóttur frá Sauðlauks-
dal.
Hún fæddist i Keflavik 24. des-
ember 1901 og voru foreldrar
hennar Jón Jónsson trésmiður i
Keflavik (f. 7. sépt. 1861 i Ferju-
nesi við Þjórsá) og kona hans
Þóra Eyjólfsdóttir (f. 10. febr.
1864 á Undirhrauni i Meðallandi).
Bjuggu þau allan sinn búskap i
Keflavik og munu aldraðir Kefl-
vikingar enn muna hús þeirra,
sem ætið var kallað Eldhúsið, af
þvi að upphaflega hafði staðið þar
eldhús Duusverslunar, en þegar
ibúðarhús var byggt á staðnum
mun nafnið hafa orðið eftir, þótt
eldhúsið hyrfi.
Þau hjónin, Jón og Þóra, voru
kunn fyrir snyrtimennsku og
reglusemi, og var Jón ágætur
smiður, enda aðalhúsasmiðurinn
i Keflavik um og eftir aldamótin
— sivinnandi dag hvern — og
veitti heldur ekki af, þvi að börnin
voru mörg, eða tiu talsins, og
komust átta þeirra til fullorðins
ára.
Hjá þeim dvöldu lika foreldrar
Þóru, og var mikill gestagangur i
Eldhúsinu, skaftfellingar, sem
voru að koma i útver eða fara
austur voru þar tiðir gestir, eink-
um á meðan Eyjólfur lifði.
Og til þess að drýgja tekjurnar
hafði Jón dálitið verkstæði heima
og þar smiðaði hann marga góða
gripi, ekki sist kommóður sem þá
voru eftirsóttar mublur i stáss-
stofum islenskra timburhúsa.
Einnig fékkst Jón svolitið við
kennslu, en hann var ágætlega
að sér i islenskum bókmenntum
og dönsku kunni hann til hlýtar,
þótt aldrei hefði hann setið á
skólabekk.
Og i þessu sjávarplássi is-
lenskra sveitamanna, sem fluttir
voru á mölina, ólst Guðrún
Petrea upp — og var æska hennar
Tveir nýir
útibússtjórar
Bankaráð Iðnaðarbankans hef-
ur ráðið Jakob J. Havsteen, lög-
fræðing, i stöðu útibússtjóra I úti-
búi bankans, sem opnað verður á
Selfossi siðar á þessu ári.
Jakob er fæddur 26. april 1941
og lauk kandidatsprófi í lögræði
frá Háskóla Islands i júni 1968.
Frá þeim tima hefur hann gegnt
starfi fulltrúa hjá sýslumanni
Arnessýslu á Selfossi.
Þá hefur bankaráðið nýlega
ráðið Jóhann T. Egilsson, i stöðu
útibússtjóra i Hafnarfirði og mun
hann taka við starfinu i sumar.
Jóhann er fæddur 29. ágúst 1926
og hefur hann gegnt starfi
skrifstofustjóra útibús bankans á
Akureyri frá stofnun þess, i
nóvember 1965. Bjarni Tómasson,
sem gegnt hefur starfi útibús-
stjóra i Hafnarfirði undanfarin
ár, mun nú að nýju koma til
starfa við aðalbankann i Reykja-
vik.
og vöxtur þorpsins eins og tveir
þættir sama strengs, og mundi
hún margt frá þessum frumbýl-
ingsárum staðarins, fólk og atvik,
sem mótaði hið daglega lif.
Veturinn 1916-1917 var ungur
guðfræðingur, Þorsteinn
Kristjánsson frá Þverá i Eyja-
hreppi, ráðinn skólastjóri ung-
lingaskólans i Keflavik og leiddu
kynni þeirra Guðrúnar Petreu
þennan vetur til þess, að þau
giftu sig rúmu ári seinna, þ. 8.
sept. 1918.
En nokkru eftir að. unglinga-
skólanum lauk vorið 1917, eða þ.
28. mai, var Þorsteinn vigður til
Mjóaf jarðarprestakalls, sem
hann þá um veturinn hefði fengið
veitingu fyrir.
Fór Þorsteinn austur um vorið,
en unnusta hans varð eftir hjá
foreldrum sinum i Keflavik.
Dvaldi hann fyrst i Firði, en siðar
á Brekku, þar sem hlýrri voru
húsakynni, en eftir áramótin 1917-
1918 iögðust að kuldar og frost-
hörkur, frostaveturinn mikli var
að ganga i garð.
Vorið 1918 kemur svo séra Þor-
steinn aftur að austan og hafði þá
fengið veitingu fyrir Breiðaból-
stað á Skógarströnd, en vegna
. samgönguerfiðleika dróst för
hans að austan, svo að ekki mun
hann hafa tekið við jörðinni á
Breiðabólsstað þetta vor.
Um sumarið fór svo Guðrún
Petrea með honum vestur i kynn-
isför og dvöldu þau þá mest hjá
foreldrum Þorsteins, Kristjáni
hreppstjóra Jörundssyni á Þverá
og konu hans Helgu Þorkelsdótt-
ur.
Þar kynntist hin unga, tilvon-
andi prestkona úr Keflavik nýjum
heimi, en Kristján var hinn mesti
búforkur, einarður og fylginn sér,
eins og lesa má um I ævisögu séra
Árna Þórarinssonar. Helga, kona
hans, var óvenju greind og fjöl-
menntuð þótt aldrei hefði á skóla-
'bekk setið og tók hinni ungu
tengdadóttur með slikri hlýju, að.
aldrei kólnaði meðan báðar lifðu.
Dvaldist nú Guðrún þarna um
sumarið i hinum besta fagnaði, en
Þorsteinn var einkasonur þeirra
hjóna og þarna vestra voru þau
siðan gefin saman i hjónaband af
séra Arna Þórarinssyni þ. 8. sept.
um haustið. Siðan lá leiðin suður
til Keflavikur i heimsókn til fjöl-
skyldu Guðrúnar, en nú gripu
óvæntir atburðir i taumana og.
sannaðist þá hið fornkveðna, að
enginn ræður sinum næturstað.
1 Reykjavik og um Suðurnes
herjaði sjálf pestin, spænska
veikin. Hún lagðist eins og farg
yfir þjóðina, sem senn ætlaði að
fagna fullveldi, og sópaði heilu
fjölskyldunum ofan i kirkjugarð-
ana, eins og verið væri að minna
þjóðina á harðæri og pestir þús-
und ára sögu — og austur i heim-
kynnum afa og ömmu hinnar ný-
giftu konu stráði Katla ösku og
eimyrju yfir landið, og i sömu
vikunni létust i Eldhúsinu i
Keflavik húsmóðirin og næst-elsta
dóttirin, rétt tvitug að aldri, en
unga brúðurin liggur vikum sam-
an milli héims og helju.
Þegar svo var komið hag fjöl-
skyldunnar var gripið til þess
ráðs að flytja Guðrúnu fársjúka
til vinafólks i Keflavik og fyrst
eftir áramótin kom batinn, æska
og ilmur sumarsins frá Þverá
sigraði að lokum hinn bleika gest.
Voriðeftir, 1919, flytja svo ungu
prestshjónin að Breiðabólsstað,
og með þeim flytja einnig faðir
Guðrúnar og tvö yngstu systkini
hennar. Var aðkoman að hinu
forna setri á Skógarströnd heldur
kuldaleg, húsin óvistleg og köld —
og kom sér nú vel, að Jón smiður
kunni öðrum mönnum betur að
halda á hamri og sög.
A Breiðabólsstað búa þau svo i
þrjú ár, og þar eignast þau fyrsta
barn sitt, Guðrúnu (kennari i
Reykjavik).
Breiðabólsstaður var mannfrek
jörð til búskapar, ef nýta átti öll
gögn hennar og gæði, og hentaði
þvi ekki vel ungu fólki með tvær
hendur tómar.
Þau munu þvi ekki hafa hugsað
sér þar langa setu og veturinn
1922 fékk séra Þorsteinn veitingu
fyrir Sauðlauksdal og fluttu þau
þangað um vorið.
1 Sauðlauksdal bjuggu þau sið-
an i 21 ár og undu hag sinum hið
besta.
Séra Þorsteinn og Guðrún
Petrea voru samferðameiin
þeirrar presthjónakynslóðar,
sem stuðluðu að menningar-
kveikju i sveitum landsins og
héldu i heiðri starf fyrri kynslóða
að skapa ungum og greindum
unglingum undirstöðumenntun og
visa til vegar að æðra námi.
Séra Þorsteinn hélt skóla á
heimili sinu flest þessi ár og á
haustin kom ungt fólk og var
meira og minna viðloðandi yfir
veturinn og þaðan ýtti margur
unglingurinn úr vör til æðra
náms.
Prestskonan varð að hafa auga
á hverjum fingri, að nægur væri
maturinn i búrinu og i hennar hlut
kom að skipa fólkinu til sængur
og sjá um, að sá andi svifi yfir
vötnum, að öllum kæmi saman og
öllum liði vel, þvi að oft var
þröngt setinn bekkurinn þótt
húsakynni i Sauðlauksdal væru
býsna rúm, og þá kom sér vel að
eiga jafnaðargeð og kunna þá
vandlærðu list að gera gott úr
öllu.
Eins og kunnugt er verða mikl-
ar breytingar i islensku þjóðlifi á
þessum árum.
Vinnufólki tekur að fækka i
sveitunum, hin fjölmennu heimili
verða fágætari með ári hverju, en
enn halda þó prestssetrin stöðu
sinni, sér i lagi þar sem prestarn-
ir sinna fræðslumálum og taka
þátt i félagsmálum byggðarinn-
ar.
Þessi menningarlegi þáttur
kirkjunnar á Islandi, prestsheim-
ilið og áhrif þess i samfélaginu, er
enn svo nærri okkur, að hans er
sjaldan getið, en einn daginn
munum við skynja, að þetta er
orðin saga ein.
Og þeim fækkar lika óðum
prestskonunum, sem mótuðu
þessi heimili, og voru svo likar að
stil og yfirbragði, að maður
þekkti þær á götunum i Reykja-
vík, þegar þær komu á synódus
með mönnum sinum.
Guðrún Petrea sómdi sér vel i
hópi þessara kvenna.
t Sauðlauksdal liða svo árin eitt
af öðru. Börnunum f jölgar, fjögur
fæðast til viðbótar: Bragi
(verkfræðingur i Reykjavik,
kvæntur Friðu Sveinsdóttur
læknaritara), Baldur (skógfræð-
ingur i Kópavogi, kvæntur
Jóhönnu Friðriksdóttur kenn-
ara), Jóna (kennari á Kirkju-
bæjarklaustri, gift séra Sigurjóni
Einarssyni), Helgi (skólastjóri á
Dalvik, kvæntur Svanhildi Björg-
vinsdóttur kennara).
Eftir að þau höfðu búið nokkur
ár í Sauðlauksdal flytja foreldrar
séra Þorsteins til þeirra og dvelja
þar til dauðadags. Hjónunum
helst vel á vinnufólki og allt er i
föstum skorðum.
Og fyrr en varir eru elstu börn-
in komin i skóla i öðrum lands-
fjórðungi — og þeim vegnar vel,
og þótt úti i heimi geisi strið og
ógn þess hafi færst að ströndum
Islands þá rikir kyrrð og öryggi i
Sauðlauksdal — og fólkið kemur
prúðbúið til messu á sunnudögum
og hringing klukknanna berst yfir
dalinn og presturinn stendur fyrir
altarinu skrýddur höklinum, sem
foreldrar Eggerts Ólafssonar
gáfu kirkjunni — og eftir messuna
er bærinn öllum opinn, ilmur af
kaffi og nýbökuðum kökum berst
út á hlaðið og prestsfrúin sér svo
um, að allir fái góðgerðir.
Þetta er messudagur i islenskri
sveit, miðpunktur mannlifs og
öryggis i litlu samfélagi.
En svo einn dag er öryggi dals-
ins rofið og kaldur gustur dauð-
ans leikur þar um hverja gætt.
Presturinn hefur farið yfir á
Eyrar til að fá ferð til Reykjavik-
ur. Þetta er um miðjan febrúar
1943.
Vélskipið Þormóður leggst við
bryggju á Patreksfirði og þar
stiga um borð tveir farþegar, en
fyrir er i skipinu f jöldi fólks, sem
komið hafði um borð i heimahöfn
þess á Bildudal.
Og febrúarveðrin láta ekki að
sér hæða. Eitt ógnvænlegasta sjó-
slys aldarinnar var á næsta leiti,
þegar Þormóður leysti festar á
Patreksfirði og stefndi til hafs i
stinnum kalda. Hann batt hvergi
festar aftur, en fórst með allri
áhöfn og öllum farþegum út af
Stafnesi aðraranótt þess 18.
febrúar 1943.
Sóknarpresturinn i Sauðlauks-
dal var einn þessara farþega og
30 aðrir gistu hina votu gröf þessa
nótt.
Heim i Sauðlauksdal barst
fregnin skjótt — og á einni nóttu
sópaðist öryggið brott, og sá sem
þarf að axla slikar byrðar verður
aldrei sami á eftir, þó að sagt sé,
að timinn græði öll sár.
Marta Valgerður Jónsdóttir
ættfræðingur kemst svo að orði
um Jón föður Guðrúnar Petreu,
að hann hafi kunnað ,,að taka öllu
Framhald á 14. siðu
Skógræktarfélag Reykjavíkur:
Líflegt starf
á síðasta ári
Aöalfundur Skógræktarfélags
Reykjavikur var haldinn i
Tjarnarbúö 27. april s.l.
Verkefni Félagsins s.l. ár voru
meö svipuöum hætti og undanfar-
in ár. Plöntuframleiösia i Skóg-
ræktarstööinni I Fossvogi,
gróöursetning á Heiömörk,
öskjuhliö, Rauöavatni og viöar.
Framleiddar voru 170. þús.
skógarplöntur og 70. þús. garða-
plöntur. Sáð var trjáfræi i um 700
ferm. i gróðurhús og græðireiti.
Dreifsettar voru um 300. þús.
plöntur i reiti og settir niður 85.
þús. græðlingar til uppeldis.
A Heimörk voru gróðursettar
107. þús. plöntur, öskjuhlið 13.
þús. Rauðavatni 1350, og á aðra
staði i borgarlandinu um 4 þús.
plöntur.
Unglingar frá Vinnuskóla
gróðursettu mest af þessum
plöntum, og var það gert af alúð
og vandvirkni.
Fræðslustarf var með mesta
móti, haldinn var einn fræðslu-
fundur og tvær sýnikennslur i
Fossvogsstöðinni. A sýnikennsl-
urnar kom nærri 1000 manns.
Skógræktarfélagið sendir með-
limum sinum ýmsan fróðleik með
blaði sem heitir „Skógurinn”
tvisvar — þrisvar á ári og allir
meðlimir fá Arsrit Skógræktar-
félags Islands árlega.
Aðalstjórn félagsins er óbreytt
en i varastjórn var kosinn Kjart-
an Thors i stað Bjarna Helgason-
ar er ekki gaf kost á sér.
Stjórn féiagsins skipa: Guðm.
Marteinsson, formaður, Lárus
Blöndal Guðmundsson varaform.
Björn Ófeigsson gjaldkeri^ Jón
Birgir Jónsson, ritari og meðstj.
er Sveinbjörn Jónsson, i vara-
stjórn eru Kjartan Sveinsson
Kjartan Thors og Ragnar Jónssn.
Framkv.stjóri er Vilhjálmur
Sigtryggsson.
Vetrarstarf Samvinnuskólans
Samvinnuskólinn var settur
hinn 21. september s.l. og sátu 37
nemendur i 2. bekk en 44 I 1. bekk,
en þeir voru valdir úr hópi nálægt
200 umsækjenda. Nemendur aö
Bifröst voru þvi alls 81 nú i vetur,
48 piltar og 33 stúlkur.
Nemendur skiptast þannig eftir
búsetu:
Vesturlandskjördæmi 14 17.28%
Noröurland — eystra 14 17.28%
Reykjavik 1316.04%
Reykjanes 13 16.04%
Noröurland — vestra 10 12.35%
Austurlandskjördæmi 6 7.40%
Vestfjaröarkjördæmi 5 6.17%
Suöurlandskjördæmi 5 6.17%.
1 vetur var sú nýjung I starfi
skólans að tvö orlofshús I eigu
starfsmanna Samvinnufélaga
voru nýtt þannig að tveir nem-
endur hafa búið sitt i hvoru hús-
inu ásamt fjölskyldum sfnum og
hafa þessar búðir verið kallaðar
hjónagarðar. Tilraunin tókst
miög vel.
A þessu ári hefur orðið
veruleg aukning i tækjabúnaði
skólans og hefur hann ma. eign-
ast 25 rafmagnsritvélar og tölvu.
Verslunarnámskeið voru i
samvinnu við Kaupfélag borg-
firðinga og farnar voru skoðunar-
ferðir til kynningar á atvinnulifi.
Þeir nemendur sem braut-
skrást úr 2. bekk hljóta nú sjálf-
krafa viðurkenningu Æskulýös-
ráðs til að taka að sér stjórn
og kennslu á félagsmálanám-
skeiðum Æskulýðsráðs.
Skólaslit fóru að venju fram 1.
mai,. Skólastjóri, Haukur Ingi-
bergsson, bauð gesti velkomna,
einkum þó foreldra nemenda.
Hann rakti nokkuð starf skólans á
starfsárinu og gerði aö þvi loknu
grein fyrir úrslitum prófa, sem
hófust aö loknu páskaleyfi.
I 1. bekk urðu hæst:
Guðmundur Páll Jónsson, Akra-
nesi, 8.93, Erlendur Hjaltason,
Reykjavik, 8.86, Lára Agústa
Snorradóttir, Patreksfirði, 8.79.
I 2. bekk urðu hæst:
Kristin Bryndis Guðmundsdóttir,
Stöðvarfirði, 9.44 Sigrún Inga
Sigurðardóttir, Skagafirði, 9.20,
Rósa Hansen, Vestmannaeyjum,
8.95.
Er árangur Kristinar Bryndis-
ar Guðmundsdóttur sá besti sem
náðst hefur siðan Samvinnuskól-
inn fluttist að Bifröst og afhenti
Haukur Ingibergsson skólastjóri
skólastjóri Kristinu sérstök verð-
laun vegna þessa afreks. —GFr