Þjóðviljinn - 11.05.1977, Blaðsíða 14
14 SIÐA — ÞJÓÐVILJINN Miövikudagur 11. mai 1977
Ragnar Arnalds.
Alþýðubandalagið á Seltjarnarnesi.
Umræðufundur verður haldinn meö Ragnari
Arnalds miðvikudaginn 11. mai kl. 20.30 i Félags-
heimilinu á Seltjarnarnesi.
Afundinum situr Ragnar Arnalds fyrir svörum um
störf miðstjórnar Alþýðubandalagsins og stöðuna i
stjórnmálunum. — Stjórn Alþýðubandalagsins á
Seltjarnarnesi.
2. umræðufundur um flokksstarfið i Reykjavík
þriðjudaginn 17. mai kl. 20 (átta) verður haldinn umræðufundur að
Grettisgötu 3. — Alþýðubandalagið i Reykjavik.
Vænta má
Framhald af bls. l
Gert er ráð fyrir hagstæðum
viðskiptajöfnuði i kringum 1%.
1 Greinargerö Þjóðhagsstofn-
unar kemur fram að á siðasta ári
óx útflutningsframleiðslan um
9%, og olli þar mestu 8 og 1/2%
aukning sjávarvöruframleiðslu.
Otflutningsverðlag i erlendri
mynt hækkaði um rúm 18% aö
meðaltali árið 1976, en inn-
flutningsverðlag um aðeins 5%.
Fyrir árið 1977 er þvi spáð að út-
flutningsverðlag sjávarafurða
hækki um 17% frá ársmeðaltali
1976.
Siðast en ekki sist skal þess get-
ið, að i skýrslu Þjóðh§gsstofnun-
ar kemur fram, að kaupmáttur
kauptaxta allra launþega rýrnaði
um 4,5% árið 1976 að jafnaði og
um tæp 15% árið 1975.
Upplög
Framhald af bls. 3.‘
útgefinna dagblaða og timarita er
samningurinn nær til og birta
niðurstöður.”
1. Ekki væri hægt að taka
ákvörðun um að fara af stað með
þessa takmörkuðu upplags-
könnun meðan ekkert væri
ákveðið um aðra þætti út-
breiðslukönnunarinnar. 2. Fram-
kvæmdin yröi að vera i höndun-
um á óháðum aðila, sem ekki
væri háður stéttarlegum eða póli-
tískum hagsmunum. Að þessum
atriðum undanskildum var upp-
kastið litið sem ekki rætt, én Þor-
varði Eliassyni falið að kanna af-
stöðu aðila, sem ekki sendu full-
trúa á fundinn, til mála. Einnig
var itrekað að Verslunarráð
aflaði gagna um erlendar kann-
anir, en það hafði ekkert gert i þvi
máli i nær fjóra mánuði. Akveðið
var siðan að halda fund að viku
liðinni, en þann fund er ekki farið
að halda enn.
1 ljósi þessa er það meira en lit-
ið undarlegt að lesa það i Dag-
blaðinu i dag (10. mai), haft eftir
Þorvarði Eliassyni, að hann
reikni með að hægt verði að
undirrita samning um upplags-
eftirlit innan skamms. ,,Sá
samningur yrði á milli blaðanna,
Verslunarráðs tslands og aug-
lýsingastofnanna,” lætur Þor-
varður hafa eftir sér. Eðlilegt að
spurt sé: Hvaö um timaritin?
Hefur Þorvarður á sitt eindæmi
útskúfað þeim? Og aðrir fjöl-
miðlar, sem gert var ráð fyrir i
uppkasti þvi að verksamningi
sem Verslunarráðið lagði fram
10. mars?
Og að lokum ein spurning til
þeirra auglýsingastofa og fjöl-
miðla sem telja sér málið skylt:
Er ekki Verslunarráðið búið að
sýna nægilegt hangs og sleifarlag
i málinu til þess að það verði los-
að við frekari ábyrgð?
Pósturinn
Framhald af bls. 2.
ingur mjög gott verðsk’yn og
menn spekúlera i verði jafnvel
hinna minnstu hluta. Þvi mætti
ætla að litið væri um ósvifiö ok-
ur. En okrarar eru allsstaðar ef
tækifærin eru fyrir hendi. Eitt
er þó vist, að dálkar blaösins
eru mikið aðhald að þeim sem
slikt reyna. Sá sem lent hefur i
okurdálki blaðsins má þakka
fyrir að fara ekki á hausinn.
Kaupmannastétt Vestur-Þýska-
lands sveið svo undan þessum
dálkum Stern, að farið var i mál
við blaöið út af nafngiftinni ,,ok-
ur”. Þeir unnu málið i þeim
skilningi, að lögfræðingar kom-
ust að þeirri niðurstöðu, aö
nafngiftin okur væri svo
teygjanlegt hugtak, en um leiö
svo ærumeiðandi, að blaöið
mætti búast við málsókn i viku
hverri, ef það titlaði hvern þann
kaupmann, sem „smurði” rif-
lega á vöruna, okrara. Eitt próf-
mál var haldið, sem blaðið tap-
aði. En þeir hjá Stern létu ekki
slá sig út af laginu og breyttu
aðeins um nafn á dálkum sinum
og nefndu þá „Hressileg álagn-
ing”.
Ég hef áhuga á að fá islensk-
um neytendum I hendur slikan
vönd á þá menn, sem leggja svo
hressilega á vöru sina að heita
mundi i hvers manns munni ok-
ur. Hvergi er brýnna en einmitt
hér að hrista til I þessum mái-
um. Ekki held ég aö dugi aö
leita til annarra dagblaða en
Þjóðviljans með slikar hug-
myndir, enda er hér um hags-
munamál almennings aö ræða,
og þarf ekki að útskýra það
frekar.
Ef af yrði, dygöu engin vett-
lingatök, nafn og mynd af okur-
holunum yrði aö birta. Gaman
væri einnig að láta reyna á það,
hvort Islenskir dómstólar
myndu láta hafa sig út i það að
vana íslenska tungu með dóms-
orði um aö þreföld álagning
væri ekki okur, færu kaupmenn
eitthvaö aö sprikla Neytandi.
Pípulagnir
Nýlagnir, breytingar
hitaveitutengingar.
Simi 36929 (milli kl. 12 og
1 og eftir kl. 7 á kvöldin)
Framlag
Framhald af bls. 16
sameiginlega til að ná fram
hækkuöu fiskverði. Það væri eina
raunhæfa leiöin til að hækka laun
sjómanna. Var þetta það eina
sem fram kom á fundinum sem
túlka mátti sem tilboð til sjó-
manna.
Þá sneri Kristján sér að ann-
arri meginkröfu sjómanna sem er
sú að kauptryggingin á bátaflot-
anum verði gerð upp mánaðar-
iega en ekki þrisvar á ári eins og
nú er gert. Með þessari kröfu
sagði Kristján að sjómenn væru i
raun að krefjast afnáms hluta-
skiptanna, þeir vildu fleyta rjóm-
ann ofan af þegar vel gehgi en
ekki taka neina áhættu þegar illa
fiskast. Annars væri það vanda-
mál að sjómönnum hefði ekkitek-
ist að koma sér saman um
heildarstefnu i hlutaskiptamál-
inu.
Loks nefndi Kristján þá kröfu
sjómanna að stofnfjársjóöur
verði lagður niður. Kvað hann út-
gerðarmenn andviga þvi, þessi
sjóöur hefði gert mikið til að efla
útgerðina.
Framlagið i stofnfjársjóð er
tekið af óskiptum afla og skv.
áætlunum útgerðarmanna mun
þaö nema 3.2 miljörðum á þessu
ári. Skv. sömu áætlunum verður
heildaraflahlutur allra sjómanna
— miðað við óbreytta skiptapró-
sentu — 11. miljarðar svo menn
sjáglöggtaðhér er ekki um neina
smáupphæð að ræða sem sjó-
menn veita til uppbyggingar flot-
ans sem þéír eiga ekkert i.
Þess má geta hér i lokin að Sjó-
mannasambandið hefur boðað
blaðamannafund kl. 14 I dag þar
sem sjómenn munu svara út-
gerðarmönnum. —ÞH
Hneyksli
Framhald af bls. 16
hennar sem kvöldsögu, þá var i
vetur samþykkt i tengslum við 60
ára afmæli Alþýðusambands Is-
lands að hafa viðtöl við ýmsa
fyrrverandi forustumenn verka-
lýðshreyfingarinnar, og einnig að
lesa úr endurminningum frá
verkalýðsbaráttunni á kreppu-
árunum, þar á meðal bók Jóns
Rafnssonar. Var sú kvöldsaga at-
hugasemdalaust samþykkt af út-
varpsráði.
Viðkvæmni Benedikts Gröndals
varðandi umfjöllun um einstaka
menn, sem Jón Rafnsson minnist
á I bókinni. er hálf- hjákátleg.
Þarna er um að ræöa endur-
minningar manns, sem hafði
ákveönar skoðanir á baráttunni,
jafnt samherjum sem and-
stæðingum, og útvarpshlustendur
hljóta að dæma söguna i sam-
ræmi við það — nema að sjálf-
sögðu Benedikt Gröndal.
Stjómmálakempur frá kreppu-
árunum teldu það sjálfsagt „róg
og nið” ef andstæðingar færu að
hrósa þeim.
Það er auðséð að Benedikt
Gröndal sýnir þarna enn einu
sinni hið afturhaldssama sjónar-
mið Alþýðuflokksforusfunnar og
virðist sakna þess aö geta ekki
lengur ritskoöað útvarpsefni. Ég
hefði annars frekar átt von á þvi
að fulltrúar atvinnurekenda
kvörtuðu yfir þessari upprifjun á
verkalýðsbaráttu millistriðsár-
anna en formaður Alþýðuflokks-
ins. ” dþ.
leikf£lag2i2 22
REYKJAVlKUR “
STRAUMROF
i kvöld kl. 20,30,
laugardag kl. 20,30.
BLESSAÐ BARNALAN
7. sýn. fimmtudag, uppselt.
Hvit kort gilda
sunnudag, uppselt.
SAUMASTOFAN
föstudag kl. 20,30.
SKJALDHAMRAR
þriðjudag kl. 20,30.
Miðasaia i Iðnó kl. 14-20,30.
Simi 16620.
Nemendaleikhúsið
Fimmtudag 12- mai, kl. 20:30
Föstudag 13,mai kl. 20:30.
Síðustu sýningar.
Miöasala kl. 17-19 alla virka
daga. Pantanir i sima 21971
frá kl. 17-19.
Minning
Framhald af bls 10
mótlæti með manndómi og
hjartaprýði” (Faxi 1959), og ég
held, að Guðrún Petrea hafi erft
þennan eiginleika föður sins,
enda veitti nú ekki af.
Og nú var dvölinni i Sauölauks-
dal senn lokið, og um sumarið
1943 fluttist hún til Keflavikur
meö tvö yngstu börn sin, en Elin
systir hennar og maður hennar
Guðmundur Guðmundsson spari-
sjóðsstjóri buðu henni að koma til
sin.
Varð sú dvöl töluvert lengri en
ætlað var, þvi að þremur árum
siðar dó Elin systir hennar og
eftir það varð Guðrún ráðskona
hjá Guðmundi mági sinum næstu
árin.
Ariö 1953 flutti hún svo til
Reykjavikur, þar sem hún bjó
siðan með Guðrúnu dóttur sinni
og dóttur hennar, siðustu 15 árin i
Alftamýri 8, þar til hún s.l. vetur
dvaldi oftast á sjúkrahúsi og lést
þar þ. 2. mai s.l.
Og við, sem kynntumst henni
best og áttum þvi láni að fagna,
að heimili hennar i Reykjavik
stóð okkur alltaf opiö^kveðjum
hana i dag með söknuði og trega
og minnumst ekki hvað sist þeirr-
ar fórnfýsi og góðvildar, sem hún
sýndi börnum okkar og biðjum
henni blessunar á nýjum vegum.
Sigurjón Einarson.
Kaupfélag
hafnfirðinga
Aðalfundur Kaupfélags hafnfirðinga
verður haldinn i Skiphóli
mánudaginn 16. mai kl. 20,30
Fundarefni:
Venjuleg aðalfundarstörf.
Stjórnin
AÐALFUNDUR
Alliance Francaise verður haldinn þriðju-
daginn 17. mai 1977 kl. 20.30 i Franska
bókasafninu Laufásvegi 12.
Dagskrá:
1. Venjuleg aðalfundarstörf
2. Lagabreytingar.
Stjórnin
Tilkynning til
söluskattsgreiðenda
Athygli söluskattsgreiðenda er vakin á
þvi, að gjalddagi söluskatts fyrir april-
mánuð er 15. mai. Ber þá að skila skatt-
inum til innheimtumanna rikissjóðs
ásamt söluskattsskýrslu i þririti.
10. mai 1977
Fjármálaráðuneytið
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda hjálp og vinarhug viö
andlát og jarðarför
Sigurðar Ágústssonar,
Birkigrund 39, Kópavogi.
Unnur ólafsdóttir Ellsabet Jónsdóttir
og börn hins látna.
*m^m^mmmmm^mmmm^m^mmm^mé
*—^———m—mmm^mmm^mmm^
Eiginmaður minn, faðir og tengdafaðir
Páll G. Þorleifsson,
Kleppsvegi 18
andaðist á Landakotsspitala sunnudaginn 8. mai.
Elka Guðbjörg Þorláksdóttir
Valgerður Pálsdóttir
Hreinn Bergsveinsson
Réttindi til
hópferðaaksturs
Þann 1. júni 1977 falla úr gildi réttindi til
hópferðaaksturs útgefin á árinu 1976.
Umsóknir um hópferðaréttindi fyrir árið
1977-1978 skulu sendar Umferðarmála-
deild pósts og sima, Umferðarmiðstöð-
inni, Reykjavik, fyrir 20. mai n.k.
1 umsókn skal tilgreina árgerð, tegund og
sæ|tafjölda þeirra bifreiða, sem sótt er
um hópferðaréttindi fyrir.
Reykjavik, 10. mai 1977,
Umferðarmáladeild pósts og sima.