Þjóðviljinn - 17.06.1977, Qupperneq 7
Föstudagur 17. júní 1977 ÞJÓÐVILJINN — SÍÐA 7
Rafafl annast allar raflagnaframkvæmdir viö Kröfluvirkjun og nú
þegar framkvæmdum viö vél 1. er um þaö bil aö Ijúka, hafa veriö
dregnir út tugþúsundir metra af rafstrengjum; hér á myndinni sést
hluti þeirra i kapalbökkum, og I sérstökum álrörum sem einnig eru not-
uö undir rafstrengi.
Rafafl opnað öllum iðnaðarmönnum
Framleiðslu-
samvinnufélag
í örum vexti
,,Það er trúa mín að þær
samþykktir sem gerðar
hafa verið á þessum fundi
muni síðar' vera taldar
marka tímamót í sam-
vinnusögu þessa lands",
sagði Sigurður Magnússon,
á aðalfundi Vinnufélags
raf iðnaðarmanna, Raf-
afls, sem haldinn var um
siðustu helgi en þar var
lögum félagsins og nafni
breytt. Heitir það nú
Framleiðslusamvinnu-
félag iðnaðarmanna og er
starfsemi þess nú ekki
lengur bundin við atvinnu-
rekstur í rafiðnaði, heldur
er markmið þess að hefja
starfsemi i flestum grein-
um iðnaðar. Á aðalfundin-
um gengu þegar í félagið
10 járniðnaðarmenn og
samþykkt var að hefja
undirbúning að starf-
rækslu fyrirtækis í járn-
iðnaði. Félagið starfar nú í
einni heild, en ekki tveimur
eins og áður. Þá var lögum
félagsins breytt til sam-
ræmis við breytingar á lög-
um um samvinnufélög sem
samþykkt voru á síðasta
alþingi.
Neytendaþjónusta
i Reykjavík.
A fundinum var samþykkt að
stofna sérstaka deild i fyrirtæki
Rafafls i Reykjavik til þjónustu
við almenning, en með henni vill
félagið ganga til móts við þarfir
almennings um hvers kyns
viðhaldsþjónustu á raflögnum og
raftækjum. Neytendaþjónusta
þessi mun verða sett á laggirnar
á næstu mánuðum. Félagið
greiddi starfsmönnum sinum
hærri laun á árinu, en almennt
þekkist i rafiðnaði, þrátt fyrir það
að viðskiptamönnum félagsins
væri veittur verulegur viðskipta-
afsláttur i formi sérstaks efnisaf-
sláttar, en afsláttur þessi nam á
áririu um 2 miljónum króna. Allir
rafvirkjar, sem starfa hjá félag-
inu njóta sömu launakjara, enda
er það yfirlýst stefna félagsins aö
stuðla að launajöfnuði.
Sem víðast um landið.
Félagið rak á siðasta ári raf-
virkjaverkstæði i Reykjavik, á
Sauðárkróki, á Kópaskeri og i
Hafnarfirði, en þar rekur félagið
einnig raftækjaverslun.
Félagið stefnir að þvi að koma
starfsemi sinni á sem viðast um
landið; þannig samþykkti aðal-
fundurinn nú að skrásetja raf-
magnsfyrirtæki á Raufarhöfn.
011 rafmagnsverkstæði félags-
ins starfa undir fyrirtækjanafn-
inu Rafafl. Fastir starfsmenn
félagsins voru milli 30 og 40 á
siðastaári og náðu verkefni þess til
allra greina rafiðnaðar, en félag-
ar alls milli 80 og 90.
A fundinum kom fram að rekst-
ur fyrirtækja félagsins gekk mjög
vel á árinu. Söluvelta félagsins
var á annað hundrað miljónir, og
var veltuaukning á milli áranna
1975 og 1976 68%.
1 stjórn félagsins eru nú Sig-
urður Magnússon, rafvélavirki,
form., Gisli Þ. Sigurðsson, raf-
virki, ritari, Stefán Ólafsson, raf-
virki, gjaldkeri, Jón Þ.
Guðmundsson, rafvirki, félags-
málafulltrúi og meðstjórn-
endurnir Gunnar Jónsson, plötu-
smiður, Jón Kristófersson, plötu-
smiður og Guðmundur Magnús-
son, rafvirki. — EKH.
Breyting á umferðarljósum
Akveðið hefur verið að gera til-
raun með breytta tilhögun á
skiptingu umferðartimans á mót-
um Bankastrætis og Lækjargötu.
Breytingin er i þvi fólgin, að hluti
umferðartimans verður einvörð-
ungu fyrir gangandi fólk um
gatnamótin, þ.e. að öll umferð
ökutækja verður um leið bönnuð
með rauðu ljósi. Hins vegar verð-
ur umferð gangandi fólks yfir
Lækjargötu sunnan gatnamót-
anna bönnuð með rauðu ljósi á
þeim tima, sem umferð ökutækja
er leyfð úr Bankastræti, en leyfð
að norðanverðu og er þaö eina
blöndun umferðar gangandi fólks
og bila á gatnamótunum.
Blikkandi umferðarljós
Ákveðið hefur verið að gera til-
raun með blikk á gulu ljósunum
að nóttu til á gatnamótum Hring-
brautar og Hofsvallagötu, þ.e. á
timabilinu á milli klukkan 01 og 07
og mun þá verðá slökkt á öllum
rauðu og grænu ljósunum.
Biðskylda er á Hofsvallagötu
við gatnamót Hringbrautar og
ber þvi umferð um Hofsvallagötu
að vlkja fyrir umferð um Hring-
braut, þegar umferðarljósin sýna
ekki annað. öllum vegfarendum,
ökumönnum og gangandi fólki,
ber þó að sýna sérstaka aðgæslu
þar sem gul blikkandi ljós loga.
LEIKRITASAMKEPPNI
Listahátíð 1978
Eins og fram hefur komið í fréttum efnir Framkvæmdastjórn Listahátíðar í
Reykjavík til leikritasamkeppni um gerð einþáttunga, sem frumfluttir verða á
Listahátið 1978.
Ljósmyndin sem birtist með þessari auglýsingu skal vera kveíkja eða yrkisefni
einþáttunganna/ og ætlunin er að flytja einþáttungana (einn eða fleiri)saman eða
hvern fyrir sig, en uppfærsla verkanna fer að sjálfsögðu eftir f jölda þeirra þátta
sem berast og viðurkenningu hljóta og eðli hvers og eins. Frum hugmyndin er þó
sú/ að sama myndin verði uppspretta ólíkra verka, sem geta þá myndað heila sýn-
ingu/ þar sem verkin visa hvert til annars, vegna sameiginlegs uppruna.
Samkeppnin er leynileg og skal senda leikritin í pósthólf 88. Skulu þau merkt dul-
nefni, en nafn höfundar fylgja í lokuðu umslagi. Umslögin merkt dulnefnunum
verða ekki opnuð fyrr en dómnef nd hef ur kveðið upp úrskurð sinn og nöf n höf unda
verðlaunaverkanna verða svo birt á Listahátíð 1978.
Myndin er birt hér í eitt skipti fyrir öll og ætlast til að það nægi, en sé þess sérstak-
lega óskað er hægt að fá hana á skrifstofu Listahátiðar í Gimli, sima 11244 eða hjá
framkvæmdastjóra Hrafni Gunnlaugssyni, síma 22517.
Heildarverðlaunaf járhæð samkeppninnar verður kr. 600.000 — og eru þau óháð
þeim höfundarlaunum, sem leikhús það mun greiða, sem kann að taka verkið til
sýningar.
Skilafrestur hefur verið ákveðinn 1. desember 1977
Dómnefnd leikritasamkeppni Listahátíðar í Reykjavík
Davið Oddsson
Bríet Héðinsdóttir
Hjörtur Pálsson
Erik SÖnderholm
Sigríður Hagalín