Þjóðviljinn - 17.06.1977, Blaðsíða 9
Föstudagur 17. júni 1977 ÞJÓÐVILJINN — SIÐA 9
I
greni, sem plantaö er I skóginn.
ABur en plöntun hefst er birki-
skógurinn grisja&ur og fallegustu
trén skilin eftir. Næstu árin skýla
þau ungplöntunum, og eftir 15-20
ár hafa greniplönturnar náö um
tveggja metra hæö, lerkiplönt-
urnar þó fyrr, en þá eru skerm-
trén, sem birkiö kallast i þessu
tilfelli, felld. Þau hafa þá lokiö
fóstrunarhlutverki sinu, en eru
um leiö oröin aö fyrirtaks smiöa-
viö.
/
A þá að útrýma
birkiskóginum?
Þegar ókunnugir velta þessum
vinnubrögöum fyrir sér skýtur
upp kollinum spurningin um þaö
hvort meö þessu sé ekki stefnt aö
þvi aö útrýma birkiskóginum,
sem tók meira en hálfa öld aö
gera aö stolti þeirra islendinga
sem álita trjágróöur til prýöi i
landinu, og rækta I hans staö
lerki, furu og greni. Svar Jóns viö
þessu er einfalt. Birkiskógurinn
innan skógargiröingarinnar er
um 700 hektarar aö flatarmáli. Af
þvl svæöi hafa um 180 ha veriö
lagðir undir erlendar trjáteg-
undir, þar af hefur veriö plantaö
I 170 ha siðan 1950. Ætlunin er að
halda birkiskóginum I u.þ.b.
helmingi þessara 700 hektara i
framtiöinni, en til þess aö hann
dafni þarf aö grisja hann. Þaö er
hinsvegar æriö verkefni, og enn
hefur ekki veriö unnt aö komast
yfir aö grisja hann allan. Nú eru
ekki felldir nema um 100 rúm-
metrar af birki á ári, en áætlaö er
aö ársvöxturinn sé um 500 rúm-
metrar. Fjögur hundruö rúm-
metrar birkis deyja þvi drottni
sinum árlega, og stór flæmi
skógarins eru svo þétt, aö varla
er unnt aö komast um þau nema
brjóta sér leið meö frumskógar-
sveöju.
Jólatrén gefa
mest af sér
Þegar liða tekur aö jólum tekur
viö grisjun á greni og furu, en
sala á þeim trjám sem þar falla
er reyndar stærsta tekjulind
skógræktarinnar. Mörgum
finnst dálitiö öfugsnúið, aö marg-
falt meira skuli vera upp úr þvi aö
hafa aö selja mönnum jólatré,
sem höfö eru örfáa daga til
augnayndis, eöa kannski bara til
aö fullnægja gömlum jólasiö, inn-
fluttum úr barrskógabeltinu, en
sölu á giröingarstaurum. En þaö
er nú einu sinni svo, að það er
ekki alltaf gagnsemi hlutanna
sem ræöur markaösveröinu —
kannski sem betur fer i þessu til-
felli. Þaö væri ekki mikið girt
með Islenskum girðingarstaurum
ef þeir væru verölagöir á sama
hátt og jólatré.
Þaö er kannski aö fara dálitiö
aftan aö hlutunum aö byrja á þvi
aö segja hvað gert er viö trén i
Hallormsstaöaskógi eftir aö búiö
er aö fella þau, I stað þess aö
segja frá þvi hvernig þau eru
ræktuö. Uppeldiö og plöntunin eru
aö sjálfsögöu sá grunnur sem allt
byggist á, en þegar þetta er
skrifaö er sá þáttur vinnunnar
rétt aö hefjast, og sjálf plöntunin
hefst að likindum I þessari viku.
Þá veröur byrjaö að planta
trjám, sem komast i gagniö eftir
15-20 ár. Þaö er þó nokkuö
drjúgur timi, — en ekki i augum
skógræktarmanna, þvi þeir hugsa
I áratugum þegar aörir hugsa I
árum.
—Þorri
Framkvæmdastjóri
Samtök sunnlenskra sveitarfélaga aug-
lýsa hér með lausa stöðu framkvæmda-
stjóra samtakanna. Umsóknir um stöðuna
þurfa að hafa borist skrifstofu samtak-
anna, Austurvegi 22, Selfossi, fyrir 30. júni
næstkomandi.
UTBOÐ
Tilboð óskast i lagningu aðveituæðar fyrir
Hitaveitu Akureyrar: Steyptur stokkur og
pipulögn, um 1.1 km. að lengd.
Útboðsgögn eru afhent á skrifstofu Hita-
veitu Akureyrar, Hafnarstræti 88b Akur-
eyri, gegn tiu þúsund króna skilatrygg-
ingu. Tilboð verða opnuð á skrifstofu
Akureyrarbæjar, Geislagötu 9, Akureyri,
þriðjudaginn 28. júni 1977 klukkan 14.00.
Hitaveita Akureyrar
16. júni 1977.
Treystum böndin
Eflum samstarfið
Kaupfélag Beruf jarðar i Djúpavogi sendir
landsmönnum bestu kveðjur i tilefni þjóð-
hátiðardagsins og minnir á 75 ára afmæli
Samvinnuhreyfingarinnar á Islandi.
Verslum i kaupfélaginu — eflum eigin hag
og byggðarlagsins.
KAUPFÉLAG
BERUFJARÐAR,
Djúpavogi
Það er ykkar hagnaður að versla við
kaupfélagið. Eflið eigin hag og byggðar-
lagsins verslið þar sem verðið er sann-
gjarnt.
Kaupfélag
Tálknafjarðar
sendir landsmönnum öllum
þjóðhátiðarkveðjur