Þjóðviljinn - 17.06.1977, Page 14
14 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Föstudagur 17. júnl 1977
Áttunda umferö 1. deildar var
leikin i vikunni. Leikur vikunn-
ar var F.H. gegn K.R. i Hafnar-
firði. Gamlir hafnfirBingar
sögðu að Hamarinn þar syðra
hafi nötrað þegar knötturinn lá
niusinnum i netmöskvanum. Þö
að mörg mörk i leik séu
skemmtileg fyrir áhorfendur, er
það oftar álitið veikleiki hjá
liðunum. Sá leikur vikunnar
sem breytti þó mestu um stöðu
liðanna var stórsigur akurnes-
inga gegn keflvikingum þar
syðra. Kom þar greinilega i ljós
hvað reynsla i leik i hörðu móti
er mikilvæg á vissum timamót-
um, það sem keflavikurliðið
einmitt vantar, en keflvlkingar
hafa nú tapað tveimur leikjum i
röð og verða þvi tæplega með i
baráttunni i bráð.
Staða vikings styrkist með
hverri umferð, og það sem
verulega athygli vekur er geysi-
sterkur varnarleikur liðsins,
nánast múr sem ekkert kemst
innfyrir. bað má þvi gera ráð
fyrir aö einmitt i dag komi það
skýrast i ljós hvort vörn Vikings
stenst lipra og hratt leikandi
framlinu Vals, en þessi lið leika
i dag kl. 5. Óneitanlega einn af
úrslitaleikjum mótsins. Fram-
arar láta sér nú nægja hvert
stigið sem halast inn, og liðið
hefur aðeins fengið 2 stig i fimm
leikjum, þannig að Fram, sem
svo margir spáðu velgengni, er
ekki lengur með i baráttunni um
toppinn, og þarf alvarlega að
lita i kringum sig. Annars er
erfitt að tala um hver sé i botn-
baráttu, þvi sex lið eru nær i
einum heitum potti.
Vestmannaeyingar hækkuðu
flugið gegn Þór, og athyglis-
verður lykilmaður fyrir vest-
mannaeyinga er Sigurlás, sem
lék með að nýju eftir að hafa
verið meiddur i fjórum siðustu
’leikjum og skoraði tvö mörk.
Þór þarf aö reiða upp hamarinn,
ef ekki á að sökkva. Breiðablik
heldur áfram að berast með
straumnum.
2. deild.
Keppnin i annarri deild ætlar
að verða tvisýnni og harðari en
ég átti von á, og spáöi i upphafi.
Gott gengi K.A. frá Akureyri
ber hæst, ég spáði þeim að visu 2
sæti i deildinni en átti tæpast
von á svona sterkri útkomu,
miðað við s.l. ár. Einnig betri
árangur isfirðinga og Hauka.
Þróttur Reykjavik er mun
lakari en ég átti von á, og hlýtur
eitthvað að vera þar að, sálar-
lega eða annað, þvi liðið lék
ágætlega i vor og einstaklingar
eru þar margir ágætir. Þar
þurfa menn að setjast niður og
hugsa ráð sitt. Einnig átti ég
von á að selfyssingar yrðu
sterkari i byrjun mótsins, en
einmitt selfyssingar hafa leikið
bæði við toppinn og botninn,
þannig að meðalvegurinn virð-
ist blasa við. Reynir Sandgerði
fer allvel af stað og má vel una
sinum hag, enn sem komið er.
Það lið i deildinni sém kemur
mér einna mest á óvart með
slakri, frammistöðu miðað við
s.l. ár eru Völsungar. Það er oft
einkennilegt hjá liðum i annarri
lelks
deild hvað liðin erumisjöfnmilli
ára og er Völsungur gott dæmi
um það.1975 var liðið mjög slakt
næsta ár lék liðið vel og skilaði
góðum árangri, og i ár er aftur
farið i sömu gryfjuna. Svona
snöggar breytingar eru tæpast i
1. deild. Armenningar, sem
mörg undanfarin ár hafa skipað
sér i efstu sætin, virðast ekki
ætla að vera með i toppbarátt-
unni. Þróttur Nes., og Reynir
Árskógsströnd eru enn i mestu
erfiðleikunum, en öll nótt er
ekki úti enn og eins og sjómenn
vita, „fiska þeir sem róa.”
Landsleikurinn við n-íra.
Margt og mikið hefur verið
skrifað og talað um landsleikinn
við n-ira, og hefi ég ekki miklu
þar við að bæta. Sigurinn var
mjög sætur, en leikurinn all
mistækur, þó ekki hallaði þar
frekar á landann. írarnir léku
það sem stundum var kallað i
gamla daga kettiingafótbolta.
Þeir voru all liprir með knöttinn
en hálfrýrir og smáir til átaka,
eins og vantaði allt kjöt i
fæturna á þeim.
Leikurinn var ágætlega leik-
inn á köflum en datt þess á milli
niður i meðalmennsku og stund-
um neðar. Nú þarf að fylgja
þessum sigri eftir og herja næst
á norðmenn og svia. Stopper sat
i fyrsta skipti i blaðamanna-
stúku á þessum leik og undi hag
sinum vel.
Hlutur iþróttafréttaritara i
knattspyrnunni er og hefur ver-
ið mikill gegnum árin, meiri en
margan grunar. Það er ekki
bara að segja frá leikjum o.þ.h.
heldur eru öll skrif um knatt-
spyrnu, stór og smá, mjög
mikilvæg, þó helst að þau séu
jákvæð, en sem sagt, áróðurinn
i blöðunum og fjölmiðlum er það
besta sem hægt er að fá fyrir
knattspyrnuna. Þess vegna þarf
að veita þessum mönnum alla
bestu þjónustu sem völ er á,
jafnvel þó að þessir menn séu að
sinna sinni vinnu, og næst þegar
landsleikur verður ætti K.S.I að
sjá um að leikskrár lægu
framml þar uppi, ef til vill að
senda stráka með heitan kaffi-
bolla til þeirra i hálfleik. Eins og
áður sagði verður næsti leikur
sennilega við norðmenn 30 júni.
Fram að þeim tima þurfa allir
að æfa vel og dyggilega, einnig
atvinnumennirnir sem eru
komnir i fri.
Melavöllurinn.
Iþróttavöllurinn á Melunum
við Suðurgötu verður
samkvæmt viðtali við vallar-
stjóra, lagður niður i haust, og
upp mun risa á staðnum Þjóðar
bókhlaða. Melavöllurinn hefur
verið musteri til iþróttaiðkana i
Reykjavik i nær 70 ár, og verður
mikill sjónarsviptir, og ekki
grunlaust að einhverjir felli
jafnvel tár ef völlurinn hverfur.
Ef til vill er þetta nauðsynlegt.
fyrir kerfið eða skipulagið.
Iþróttasamtök hafa ekki svo ég;
viti mótmælt eða sagt álit sitt á
þessum málum, þannig að lita
má á að um samþykki sé að
ræða, — út af minna málefnit
hafa menn rifist.
Saga þessa gamla vallar er
litrik, svo litrik fyrir islenskar
iþróttir, að skrá verður sögui
þessa iþróttamusteris á spjöltíl
sögunnar á prenti. Min tillagai
er að reynt verði að tef ja málif)
eins lengi og unnt er, og ef ekkii
erhægt lengur, þá að flytja völl-
inn helst i heilu lagi á annan
stað t.d. niður á Háskólavöll.
Margir hafa látið þau orð falla'
að Melavöllurinn sé besti
malarvöllur i heimi, og ef
Stopper ætti þess kost þá vildi
hann eiga siðasta sparkið semi
þar verður sparkað, svo góðar
minningar á hann frá þessumi
velli.
Flautaö til leiksloka.
1 næsta þætti mun ég reyna að
ræða um leikkerfi, draga álykt-
un i hálfnuðu Islandsmóti og
segja fréttir frá Kvennaknatt-
spyrnu, en það er nokkuð sem er
i mikilli grósku. 1 dag,
þjóðhátiðardaginn, verður viða
flautað til leiks ýmist i knatt-
spyrnu eða öðrum leikjum, en
hæst mun bera leik Vals og Vik-
ings, sem fram fer á Laugar-
dalsvelli i dag kl. 5 og þegar þar
verður flautað til leiksloka
munu linurnar örlitið skýrast.
Gleðilega þjóöhátið,
STOPPER
Verkfrœöingar Reykjavíkurborgar:
Skorður settar
við einkabraski
Einn af verkfrœöingum Reykjavíkur-
borgar meö verkefni sem nœgja
myndi 5-10 manna teiknistofu
Þjóðviljinn skýröi fyrir nokkru
frá þvl hvernig þaö hefur veriö
látiö viögangast aö verkfræöing-
ar Reykjavikurborgar standi I
einkabraski og taki aö sér aö
teikna fyrir hvern sem er buröar-
virki bygginga. Eftir aö Þjóövilj-
inn haföi skýrt frá þessu var mál-
iö tekiö fyrir I borgarráöi og þar
hefur nú veriö samþykkt, aö
verkfræðingum borgarinnar sé
óheimilt aö taka aö sér hönnun
eöa teikningu á mannvirkjum,
nema meö skriflegu leyfi borgar-
verkfræðings I hvert sinn og hann
skal svo gera borgarráði grein
fyrir slikum undantekningartil-
fellum tvisvar á ári. Þetta bann
nær einnig yfir aöra eftirlitsaöila,
sem eru I þjónustu Reykjvikur-
borgar.
Sem dæmi um hve stórtækir
verkfræðingar borgarinnar voru
orðnir á þessu sviði má nefna aö
Þráinn Karlsson verkfræöingur
hefur á árunum 1975, 1976 og til 9.
mal 1977 teiknaö buröarvirk I 42
hús, samtals um 120 þúsund rúm-
metra. Af þessu eru 13 fjölbýlis-
hús og 9 iönaðarhús. Sá sem næst-
ur honum kemur, Hallgrimur
Sandholt. hefur á þessum sama
tima teiknað burðarvirki aö hús-
næöi uppá rúmlega 40 þúsund
rúmmetra.
Það er álit fróðra manna, að
það hefði dugað teiknistofu með 5
til 10 manns 1 vinnu, það sem Þrá-
inn Karlsson hefur teiknað á
þessu timabili. —S.dór
Jón Gunnarsson viö tvö verka sinna.
Jón Gunnarsson sýnir
að Kjarvalsstöðum
Jón Gunnarsson, listmálari,
opnaöi sýningu á 76 vatnslita-
myndum á Kjarvalsstööum hinn
Jarövísindamenn viö Háskólann:
Fordæma skrípaleikinn
Þjóðviljanum hefur borist
eftirfarandi ályktun:
Undirritaðir, fastir kennarar
og stundakennarar i jarð-
visindum við Háskóla Islands,
lýsa yfir furðu sinni og for-
dæmingu á skripaleik sem leik-
inn var á Kröfluslóðum nýlega.
Þeir telja algjört hneyksli, að
ráðuneytiö skuli leggja blessun
sina yfir bábiljur og loddara-
skap af þessu tagi. Astandiö við
Kröflu er ærin baggi á okkar
þjóð, þótt ekki sé bætt gráu ofan
á svart með þvi að gera hana að
athlægi.
Reykjavik 14. júni 1977:
Eysteinn Tryggvason,
Guttormur Sigbjarnarson,
Guömundur Sigvaldason,
Helgi Björnsson,
Ingvar Birgir Friðlcifsson,
Kristján Sæmundsson,
Leifur A. Simonarson,
Sigurður Steinþórsson,
Siguröur Þórarinsson,
Sveinbjörn Björnsson,
Sveinn P. Jakobsson,
Þorleifur Einarsson.
11. júni sl. og stendur hún yfir
fram á sunnudag. Sýningin er op-
in daglega frá kl. 2-10.
Þetta er áttunda einkasýning
Jóns og sú þriðja I Reykjavík. 1
Hafnarfirði hefur hann sýnt
þrisvar, einu sinni i Keflavik og
einu sinni i Vestmannaeyjum.
Auk þess hefur Jón Gunnarsson
tekið þátt i samsýningum bæði
hér heima og erlendis.
Allar eru myndirnar á sýning-
unni málaöar á þessu og siðasta
ári og flestar nú sl. vetur.
Jón Gunnarsson hefur stundað
nám við Myndiða- og handlistar-
skólann en er annars ofsetljós-
myndari og klisjugerðarmaður.
Aður stundaði hann sjómennsku.
Myndlistin er þvi algert tóm-
stundastarf. En ég hef verið aö
teikna frá þvi ég man eftir mér,
sagði Jón.
Góð aðsókn hefur veriö að sýn-
ingunni og allmargar myndir
þegar seldar. —-mhg