Þjóðviljinn - 17.06.1977, Blaðsíða 17

Þjóðviljinn - 17.06.1977, Blaðsíða 17
Föstudagur 17. júni 1977 ÞJÓÐVILJINN — SIÐA 17 Sjá rodann á hnjúkunum háu... Þegar 17. júní var fyrst hátíðlegur haldinn Kl. 10.30 í dag hefst að vanda útvarp frá Austur- velli á þjóðhátíðardegi/ þegar blómsveiaur verður lagður að fótstalli styttu Jóns Sigurðssonar, for- seta. Áður hefur þá verið lagður sveigur á gröf Jóns og konu hans í kirkjugarðinum við Suð- urgötu frá Reykjavíkur- borg og leikið hið fagra lag Jóns Laxdal, „Sjá roðann á hnjúkunum háu....," en samnefnt kvæði orti Hannes Haf- stein, sem alkunna er. Jón og kona hans voru jöröuð i kirkjugarðinum viö Suðurgötu i mai, árið 1880, en þau létust meö aðeins viku millibili árið 1879 i Kaupmannahöfn. Við jarðarförina var mikiö um að vera i hinni fámennu Reykjavik og til athafnarinnar vandað, eins og hægt var. Þarna var að vcnum margt um manninn, em- bættismenn og alþýða, og i lik- fylgdinni, þegar borið var frá kirkju, var mönnum skipaö i flokka, bændur, skólapiltar, iðn- útvarp Jón Sigurðsson. aöarmenn osfrv. Er trúlegt aö mönnum hafi þótt miklu varða að bera sig sem höfðinglegast við útförina og Matthias Jochumsson orti eftirfarandi lin» ur um Grim Thomsen, sem var i gráum frakka, en ekki svörtum, eins og Matthiasi þótti nauðsyn- legt: ,,Á gráum kufli Grimur fylgdi gamla Jóni,/ urðarköttur konungsljóni.” Milli Grims og Matthiasar var jafnan nokkur rigur. Við höfðum samband við Lúð- vik Kristjánsson, rithöfund, sem allra manna rækilegast hefur rannsakað æfi og starf Jóns Sigurðssonar og spurðum hve gamall sá siður mundi vera að minnast Jóns Sigurðssonar 17. júni. Lúðvik segir að þann sið megi rekja allt aftur til árs- ins 1886, en þá hefur Þorlákur Johnson veg og vanda af sam- sæti i húsi sinu 17. júni, þar sem hann hélt hótel, og voru drukkin minni Jóns af ,,nokkrum frjáls- lyndum og fjörugum mönnum,” eins og Reykjavikurblöðin kom- ast að orði daginn eftir, en ann- ars er látið heita að góðtempl- arareglan hafi staðið að hófinu. Arið 1911, á aldarártið Jóns og á stofári háskólans var stytta hans afhjúpuð og æ siðan hefur farið fram minningarathöfn þar hinn 17. júni. „Sjá roðann á hnjúkunum háu,” er það kvæði sem liklega er kunnast þeirra, sem lúta að minningu Jóns Sigurðssonar, en ekki má gleyma að fjöldi skálda orti hyllingarkvæði til Jóns, meðan hann lifði og má hér nefna nokkur. Elst mun kvæði sem Jónas Hallgrimsson orti til Jóns, þeg- ar hann hélt heim á fyrsta þing sitt, en i skáldahópnum eru lika nöfn þeirra Steingrims Thor- steinssonar, Benedikts Grönd- dal, Gisla Brynjólfssonar, Jó- hanns Jónssonar, Finns Magn- ússonar, Matthiasar Jochums- sonar, Bjarnar M Olsen, Gests Pálssonar og Indriða Einars- sonar. Er þannig sýnt að islend- ingar hafa þó ekki alltaf hrakið spámenn sina af höndum sér. ÚR ÁSTANDINU Or sýningu nemendaleikhússins. Nemendaleikhúsið sýnir Hlaupvídd sex eftir Sigurð Pálsson Leikstjóri: Þórhildur Þor- leif sdóttir Leikmynd: Messína Tómasdóttir Enn er Sigurður Pálsson kom- inn á stúfana með leikrit samið sérstaklega handa Nemendaleik- húsinu og miðað viö þarfir þess hóps sem nú var að útskrifast. I þetta skipti hefur hann valiö sér að yrkisefni upphaf hersetu á íslandi og einkum ástandið svo- kallaða, reynt að leiða fram hvernig islenskar konur leiddust nær óafvitandi út i skæjulifnaö með erlendum hermönnum, og notar þetta siðan sem almennt dæmi um herleiðingu þjóðar- innar, sem enn stendur. Þetta er mjög áhugavert efni, timabil sem þarf að kanna miklu betur, og einn afrakstur af starfi þessa hóps er bráðskemmtileg leikskrá. Mörg atriði i leikriti Sigurðar eru snjöll og bregða birtu á vanda- máliö, en einhvern veginn hefur honum ekki lánast aö gera sann- færandi heild úr þeim fjölmörgu stuttu atriðum sem hann byggir leikritið úr. Astæöan kann ekki sist að vera sú aö hér er blandaö saman ólikum stiltegundum: raunsæislegri lýsingu alþýöu- stúlknanna, öfgafullri skopfærslu borgarstéttarinnar og svo fanta- siskri útfærslu heimsveldanna i formi risavaxinna brúða. Þannig að þrátt fyrir mörg snjöll og leik- ræn einstök atriöi verður heildin sundurlaus um of. Þórhildur Þorleifsdóttir hefur leikstýrt af öryggi og festu, og leikmynd og búningar Messiönu eru meistararlegt verk, einfalt, stilhreint og mjög virkt. Leikhóp- urinn stendur sig yfirleittt af mik- ill prýði. Sterkustum tökum á áhorfendum náöi liklega Guðrún Gisladóttir með geysiöruggum, innlifuðum og tæknilega útfærð- um leik i hlutverki Katrinar Brynjúlfs. Edda Hólm sýndi góö tilþrif og skoplega tilburði i hlut- verki Kötlu Brimdal, drekkandi sérri og farandi með Einar Ben. 1 hlutverkum alþýðustúlkna voru þær Lisa Pálsdóttir og Guðlaug Bjarnadóttir einlægar og traust- ar. Þetta er önnur sýning Nemendaleikhússins i vetur, hin fyrri var á tveimur kennileikjum Brechts. Hvort tveggja hafa verið ánægjulegar og vel unnar sýning- ar sem mikill fengur var að, Það er þvi átakanlegt til þess að hugsa hvaða örlög biða þessa hóps. Það er grimmileg staðreynd að þessu fólki er algerlega kastað út á gaddinn og algerlega undir hæl- inn lagt hvort það fær nokkur tækifæri til að vinna að leikhús- störfum. Næreina vonin er fólgin i þvi aö komast að hjá atvinnu- leikhúsunum, og þar eru margir fyrir og dyrnar þröngar inn- göngu. Leikhúslögin á íslandi mæla svo fyrir að ekki skuli fara fram leiklist, utan þriggja til- greindra atvinnuleikhúsa, nema starf áhugafólks. Þessum lögum virðist beinlinis ætlaö að koma i veg fyrir að frjálsir leikhópar geti starfað, og þau hafa til dæmis vissulega gert Alþýðuleikhúsinu mjög erfitt fyrir. Þessum lögum veröur að vinna gegn og fá þeim breytt, þannig að fé fáist til starfs fleiri leikhópa. Meðan svo er ekki er það ábyrgðarhluti af hálfu rikisvaldsins að reka leiklistar- skóla, láta fólk eyða þar miklum tima og standa siðan upp mestan part vonlaust um atvinnu á eftir. Sverrir Hólmarsson Sverrir Hólmarsson skrifar f um ■ leiklist SAMBAND IÐNSKÓLA Á ÍSLANDI Staða framkvæmdastjóra Sambands iðn- skóla á íslandi er laus til umsóknar. Laun samkvæmt 17. launaflokki opinberra starfsmanna. Upplýsingar i sima 23730 milli kl. 14 og 17 virka daga, nema laugardaga. Umsóknarfrestur til mánudags 27. júni 1977. — Umsóknir sendist til Þórs Sand- holt, Iðnskólanum i Reykjavik. P ÚTBOÐ Tilboð óskast i efni i stálþil fyrir lengingu Sundbakka i Sundahöfn fyrir Reykjavik- urhöfn. Útboðsgögn eru afhent á skrifstofu vorri, Frikirkjuvegi 3, Reykjavik. Tilboðin verða opnuð á sama stað, þriðju- daginn 26. júli 1977, kl. 11,00 f.h. INNKAUPASTOFNUN REYKIAVÍKURBORGAR Ffikirkjuvegi 3 — Sími 25800 Frá Fræðsluskrif- stofu Reykjavíkur Við sálfræðideildir skóla i Reykjavik eru lausar til umsóknar stöður félagsráð- gjafa, sérkennara, sálfræðings og ritara. Umsóknareyðublöð fást i Fræðsluskrif- stofu Reykjavikur, Tjarnargötu 12. Umsóknir skulu hafa borist fyrir 10. júli n.k. Fræðslustjóri BARNAVINAFÉLAGIÐ SUMARGJÖF Fornhaga 8 - Sími 27277 Forstaða dagheimilis Staða forstöðumanns við Dagheimilið Sunnuborg er laus til umsóknar. Fóstru- menntun áskilin. Laun samkvæmt kjara- samningum borgarstarfsmanna. Um- sóknareyðublöð fást á skrifstofu Sumar- gjafar, en þar eru veittar nánari upplýs- ingar. Umsóknarfrestur er til 1. júli. |f| MÖTUNEYTI Starfsmaður, karl eða kona, óskast til að veita forstöðu mötuneytinu i Hafnarhús- inu frá og með 1. ágúst n.k. Nánari upplýs- ingar fást á skrifstofu Reykjavikurhafnar. Umsóknarfrestur er til 1. júli 1977. Reykjavikurhöfn.

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.