Þjóðviljinn - 11.10.1977, Side 1
UOÐVIUINN
Þriðjudagur 11. október 1977 —42. árg. 225. tbl.
FELLDU SAM-
KOMULAGIÐ
Siöustu fréttir í nótt: — Borgarstarfs-
menn i Reykjavik felldu samkomu-
lagið við launamálanefnd borgarinnar
með 378 atkvæðum gegn 338.
Verkfall BSRB er hafið
Munum heyja þessa baráttu af fullum krafti, sagði
Haraldur Steinþórsson
Fyrsta verkfall opinberra
starfsmanna á Islandi kom til
framkvæmdar á miönætti sl.
Siðasti sáttafundur deiluaðila,
sem hófst kl. 5 i gær, var stuttur
og tiðindalaus. Ekkert nýtt tilboð
kom fram af hálfu rikisins og
Húsverðir
opna ekki
Á fundi verkfallsnefndar
BSRB I gærkvöld var sam-
þykkt, að húsverðir i skólum
og öðrum opinberum stofn-
unum skyldu aöeins sinna
eftirliti og eignavörslu, en .
ekki vinna að daglegum
störfum. Þeir mega þvi ekki
stuðla að þvi að starfsfóik
eða nemendur komist inn i
húsin. — eös
siitnaði þvi fljótlega upp úr við-
ræðunum. Nýr sáttafundur hefur
ekki verið boðaður.
Haraldur Steinþórsson
framkvæmdastjóri BSRB sagði i
viðtali við Þjóðviljann i gærkvöld,
að ekkertnýtthefði komið fram á
fundinum og enginn grundvöllur
væri til frekari viðræðna i bíli.—
,,Við reyndum I alvöru að ná
samkomulagi og teygðum okkur
hvert skrefið á fætur öðru I þvi
skyni,” sagði Haraldur. „Ég tel
hörmulegt að rlkisstjóm íslands
skuli hafa ákveðið aö ganga ekki
lengra og þar með að stefna lit i
fyrsta verkfall opinberra
starfsmanna. Við munum heyja
þessa baráttu af fullum krafti.
Það eru ótal vandamál sem kalla
að við framkvæmd þessa fyrsta
verkfalls opinberra starfsmanna,
en mér sýnist ákveðnin og viljinn
hjá okkar félagsmönnum vera
slikur að ég treysti þvi að þetta
takist vel og að þessi barátta okk-
ar eigi eftir að skila árangri. Þau
tilboð sem okkur hafa verið gerð
eru um svo sáralitlar breytingar
frá sáttatillögunni, og ég vænti
þess að þessi samstöðuhugur
verði áfram fyrir hendi.”
í gærkvöldi voru BSRB-menn
að undirbúa og skipuleggja verk-
fallsvörslu. Haraldur Steinþórs-
Fjármálaráðherra
falsar tölur
i gærkvöldi sendi BSRB frá sér
svohljóðandi athugasemd:
Fjármáráðherra bar það á
borð fyrir alþjóð I kvöldfréttum
(mánudagskvöld) að kaup skv.
tilboði hans i 12. flokki yrði 175
þús. kr. I desember. Rétta talan
er 154.589. Fjármálaráðherra
bætti rúmlega 20 þús. kr. á
kauptilboðið, en þá upphæð fær
fólk ekki i vasann, nema að dýr-
tiðin vaxi a.m.k. um sömu upp-
hæð. Slikt hefur ekki verið talið
til kjarabóta hingaðtil.
son sagði, að Kjaradeilunefnd
hefði ekki skilað nafnalistum um
starfsfólk sjúkrahúsa sem ætti að
mæta til vinnu og BSRB ætlaði
þvi að skora á starfsfólk sjúkra-
húsa að mæta til starfa. —eös.
Samið á
Akranesi
Samningar tókust i gær-
kvöld milli samninganefndar
Akraneskaupstaðar og
samninganefndar bæjar-
starfsmanna. Verkfalli var
frestað um einn sólarhring á
Akranesi, en samkomulagið
verður borið undir atkvæði I t
dag kl. 5.
I gærkvöld stóð yfir samn-
ingafundur Bæjarstarfs-
mannafélags Akureyrar og
fulltrúa bæjarstjórnar.- eös
Fjölmennur fundur borgarstarfsmanna
A fundi Starfsmannafélags
Reykjavikurborgar og launa-
málaráðs borgarinnar i gær
náðist samkomulag um tillögur
að nýjum aðalkjarasamningi.
Samkomuiagið var undirritað
með fyrirvara. I gærkvMd kl. 9
hófst fundur i félaginu á Hótei
Sögu, þar sem samkomulagið
var kynnt og borið undir at-
kvæði. Fundurinn var haldinn i
Súlnasalnum og var þar troð-
fulltút úr dyrum. Mörg hundruö
manns sóttu fundinn og margir
tóku til máls. Umræðum lauk kl.
rúmlegá 11 i gærkvöld og sfðan
hófst atkvæðagreiðsla um sam-
komulagið.
Atkvæði voru talin i nótt.
Myndina tók — eik af hluta
fundarmanna á hinum fjöl-
menna fundi i gærkvöld.
Langir en árangurslausir
samningafundir um helgina
Um helgina voru nær stöðug
fundarhöld með deiluaðilum i
kjaradeiiu BSRB og rikisins. t há-
tiöasai Háskólans stóð fundur frá
kl. 10 á luagardagsmorgun og til
kl. 6 á sunnudagsmorgun. Siðan
hófst annar fundur kl. 2 á sunnu-
dag og stóð til kl. að ganga 3 að-
faranótt mánudags. Kl. 5 i gær
hófst svo þriðji samningafundur-
inn i þessari lotu og lauk ki. 7.
Sem dæmi um þær örlitlu hækk-
anir, sem fulltrúar rikisvaldsins
buðu á þessum löngu og ströngu
fundum, má taka launaflokk B5.
KrafaBSRB varaðlaunin ihæsta
þrepi þess launaflokks yrðu kr.
150.000.- Sáttatilboðið hljóðaði
upp á kr. 118.560 og fyrra tilboð
rikisins um hækkun var kr.
119.762. BSRB lækkaði siðan kröf-
ur sinar niður i kr. 142.256,- og
rikið bauð 120.443. BSRB lækkaöi
kröfu sina enn og nú i kr. 136.181.
Síöasta tilboð rikisins á fundun-
um um helgina var um föst laun
skv. launatöflu, og var þar um
litlar breytingar að ræða frá fyrri
tilboðum.
í þessu tilboði rikisins fólst
éinnig, að eftir 15 ára starfsaldur
hækki starfsmenn um einn launa-
flokk miðaö við röðun starfa þess,
sem þeir gegna á hverjum tíma.
Þá var boðin 3% launahækkun 1.
april 1979 i stað 1. júli 1979. Aðsið-
ustu bauð rikið upp á ákvæði um,
að ef breytingar verði gerðar á
vísitölureglum almennra kjara-
samninga i landinu á gildistima
þessa samningsmeð lögum, skuli
samningsaðilar taka upp viðræð-
ur i þvi skyni að tryggja þann til-
gang ákvæða samningsins um
verðbætur, að þau verði eigi lak-
ari en hjá öðrum fjölmennum
launþegasamtökum i landinu.
Eins og sjá má er þetta tilboð
langtfráþviað mæta kröfuBSRB
um óskoraðan samnings- og verk-
fallsrétt á samningstimanum, ef
visitaian raskast.
Samninganefnd BSRB svaraði
þessu siðasta tilboði rikisins að-
faranóttmánudags þannig með 49
samhljóöa atkvæðum:
„Samninganefnd Bandalags
starfsmanna rikis og bæja hefur
móttekið gagntilboð fra samn-
inganefnd rikisins, sem fjármála-
ráðherra hefur tilkynnt samn-
inganefnd BSRB að sé lokaboð
um launastiga og kröfu banda-
lagsins um endurskoðunarrétt á
launaliö á samningstimabili, ef
tilgreindar aðstæður skapast.
Synjað er viðræðum um önnur
atriði i kröfum BSRB.
Samninganefnd BSRB beinir
þvitilsáttasemjara,að hann beiti
sér fyrir þvi, að fulltrúar rikisins
taki upp viðræður i alvöru um
kjarakröfur bandalagsins i
heild.”
—eös
national
hlaut
verðlaun-
in í ár
ÓSLÓ 10/10 Reuter — Frið-
arverðlaun Nóbels fyrir árin
1976 og 1977 voru veitt I ósló i
dag, og fengu tvær konur,
sem barist hafa fyrir þvi að
binda enda á ofbeldi i Norð-
ur-irlandi, verðlaunin fyrir,
árið 1976, en alþjóöasamtök-
unum Amnesty Internation-
al, sem hafa aðalbækistöð
sina I London, var veitt verð-
iaunin fyrir árið 1977.
Norður-irsku konurnar,
sem heita Betty Williams og
Mairead Corrigan, hafa hætt
lifi sinu til aö reyna að koma
á sáttum milli kaþólskra
manna og mótmælenda á
Norður-Irlandi. Þær stofn-
uðu friðarhreyfingu sina
1976, þegar Betty Williams
hafði orðið vitni að þvi að
þrjú börn létu lifiö i Belfast.
Mairead Corrigan var
frænka þessara þriggja
barna. Hreyfing þeirra vakti
mikla athygii viða um heim,
og voru þaö vestur-þýskir
þingmenn sem stungu upp á
þvi i fyrra að þeim yrðu veitt
friðarverðlaun Nóbels. Sú
uppástunga kom þó of seint,
en úthiutunarnefndin ákvaö
að veita engin verðlaun þá,
og voru þau þvi veitt núna,
ári siðar. Konumar tvær
sögðu að verðlaunin myndu
ganga til hreyfingar þeirra.
Samtökin Amnesty Inter-
national eru heimsþekkt og
hafa 133 deildir viða um
heim. Tilgangur þeirra er sá
að fá þá menn, sem sitja i
fangelsum vegna skoöana
sinna, látna lausa og hafa
þau oft orðiö fyrir barðinu á
rikisstjórnum i austri og
vestri. Þau'hafa mjög tekið
málsstaö andófsmanna i
Sovétrikjunum, en einnig
reittu þau breta til reiði með
ásökunum um að breski her-
inn beitti pyndingum i Norð-
ur-lrlandi. Bækistöövar
samtakanna eru i London, og
er formaöur þeirra sænskur
biaðamaöur, Thomas
Hammarberg. Þegar honum
var tilkynnt um verðlauna-
veitinguna sagði hann að
samtökin myndu nota féð til
að auka starfsemi sina i
þriðja heiminum, þ.á.m.
Asiu og Rómönsku Ameriku.
Sagöi hann aö verölaunin
væru viðurkenning frá opin-
berum aðilum á mikilvægi
starfs þess sem samtökin
ynnu og hvatti jafnframt rik-
isstjórnir til aö láta lausa
alla, sem sætu i fangelsi
vegna skoðana sinna, og til
að afnema pyndingar og
dauðarefsingu.