Þjóðviljinn - 11.10.1977, Qupperneq 4

Þjóðviljinn - 11.10.1977, Qupperneq 4
4 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Þriöjudagur II. október 1977. Málgagn sósíalisma, verkalýöshreyfingar og þjóöfrelsis Útgefandi: Ctgáfufélag Þjóöviljans. Framkvæmdastjóri: Eiöur Bergmann Ritstjórar: Kjartan ólafsson, Svavar Gestsson. Fréttastjóri: Einar Karl Haraldsson. Umsjón meö sunnudagsblaöi: Árni Bergmann. Auglýsingastjdri: Clfar Þormóösson Kitstjórn, afgreiðsla, auglýsingar: Sfðumúla 6. Simi 81333. Prentun: Blaöaprent hf. Áætlunarbú- skapur er ein meginforsendan I siðustu viku var i forustugrein minnt á nokkur grundvallaratriði sem menn verða að hafa i huga þegar þeir fjalla um islenska atvinnustefnu Alþýðubandalags- ins. Þessi atriði eru: 1. íslensk atvinnustefna er framhald og útfærsla þeirrar stefnu sem sósialistar hafa markað i nýsköpunarstjórninni og tveimur vinstristjórnum með eflingu at- vinnuveganna og með útfærslu landhelg- innar. 2. íslensk atvinnustefna er andsvar við áformum um útfærslu erlendrar stóriðju á íslandi, svar við áætlun Integral, ásókn Alusuisse og Norsk Hydro i islenskar auðiindir. 3. Islensk atvinnustefna bendir á þá fjöl- þættu möguleika sem islenska þjóðin hef- ur til þess að vinna úr eigin auðlindum; þær auðlindir, til dæmis hafsins, eru svo gjöfular og bjóða upp á svo risavaxin tækifæri að nægja myndu sem verkefni fyrir mun stærri þjóð i þessu landi. A þessi verkefni var meðal annars bent i sérritum Þjóðviljans um islenska atvinnustefnu. 4. íslensk atvinnustefna gerir ráð fyrir vaxandi hlutdeild fólksins sjálfs i stjórn atvinnulifsins. íslensk atvinnustefna hef- ur þannig félagslega hlið sem nauðsynlegt er að hafa i huga, og einmitt þetta atriði greinir islenska atvinnustefnu Alþýðu- bandalagsins frá þeirri stefnu sem aðrir flokkar hafa. íslensk atvinnustefna gerir ráð fyrir breytingum á grundvallargerð þjóðfélagsins sem einni meginforsend- unni. Islensk atvinnustefna án þessa félagslega inntaks ris ekki undir nafni. Islensk atvinnustefna er sprottin upp af starfi og stefnu islenskra sósialista um áratuga skeið. En hvernig yrði islenskri atvinnustefnu komið i framkvæmd? Svarið við þeirri spurningu er margþætt og verður ekki tæmandi i stuttri forystu- grein. Ljóst er að til þess að koma islenskri atvinnustefnu i framkvæmd þarf atbeina viðtækra félagshreyfinga. Þar þarf verkalýðshreyfingin að leggja sitt af mörkum, eins og hún gerði til dæmis 1. mai i Reykjavik sl. vor. Þar þarf sam- vinnuhreyfingin einnig að koma til skjalanna; fátt væri i betra samræmi við upphafsár samvinnuhreyfingarinnar og baráttu hennar gegn kaupmönnunum dönsku að samvinnuhreyfingin nú beitti sér fyrir framkvæmd islenskrar atvinnu- stefnu i samstarfi við aðra. Vissulega eru forystumenn SIS orðnir óhugnanlega tengdir auðstéttinni sem ræður Sjálf- stæðisflokknum, en það breytir þó ekki þeirri staðreynd að hreyfingin á að geta beitt sér til þess að koma sinum stefnu- málum á framfæri á félagslegum grund- velli. Atbeini þessara hreyfinga er nauðsynleg forsenda þess að takist að glæða islenska atvinnustefnu lifi félags- legra hugsjóna og lýðræðis. Spurningin um framkvæmd islenskrar atvinnustefnu snýst einnig um það hverjir og hvernig best yrði staðið að framkvæmd hennar. Eigi vel að takast til þarf að taka upp virkan áætlunarbúskap. Með honum þarf að tryggja að fjármagnið verði hag- nýtt skipulega hvort sem það fjármagn kemur úr fjárfestingarlánasjóðum eða bankakerfinu almennt. Þetta þýðir með öðrum orðum heildarstjórn fjárfestingar i landinu. Til þess að leggja grundvöll islenskrar atvinnustefnu þarf verulegt nýtt f jármagn að koma til. Þetta fjármagn verður að skila sér með þvi að skerða verðbólgu- gróða og verðbólgufjárfestingu milli- liðanna sem reisa miljónatuga stein- steypuhallir aðeins til þess að tryggja einkafjármagninu gróða. Grundvöllur islenskrar atvinnustefnu verður þannig að vera það f jármagn sem til er i landinu, en er nú sólundað i þágu einkagróðaaflanna. Alþýðubandalagið mun leggja á það verulega áherslu á næstu mánuðum að efla fylgi landsmanna við islenska at- vinnustefnu. Baráttan fyrir framkvæmd hennar er eitt meginverkefni islenskra sósialista á næstu mánuðum og árum. — s. ar bókmenntalegu stælur eru bókaþjóðinni æði oft til litils sóma. Nýlega mátti lesa i Þjóðvilj- anum og Visi greinar sem bera umræðu af þessu tagi glöggt vitni. Sunnudaginn 2. okt. skrif- ar Silja Aðalsteinsdóttir itarleg- an ritdóm i Þjóðviljann um ný verðlaunaða barnabók, Bjarta daga eftir Þorvald Sæmunds- son. Er skemmst frá þvi aö segja að Silja er algerlega á öndverðum meiði við þá er lir- skurðuðu bókina verölauna- verða. Færir hún fjölmörg rök fyrir þessari skoöun sinni, öll aö þvi er virðist reist á skiljanlegu mati á þvi hvað séu vondar eöa góðar bókmenntir. Hún tilfærir dæmi úr bókinni skoðunum sin- um til stuðnings og hún setur fram hugmyndir sinar um það hvaö góða barnabók eigi að prýða og telur verðlaunaveit- ingu ekki trúverðuga nema þvi 2. árgangur Fimmtudagur 6. október 1977 34. tölublað Hefðbundin leiöaraskrif Leiðaraskrif dagblaðanna eru oft fjarska einhæf. Stundum eru þaö aöeins örfá þemu sem eru reifuð i forystugreinum svo vik- um skiptir. Þeir sem hlusta á leiðaralestur i morgunútvarpi eða fá linuna i blaði sinu á hverjum morgni hljóta að kom- ast að þeirri niðurstöðu að dæg- urbaráttu stjórnmálaflokkanna standi um örfáa málaflokka. í Norðurlandi, málgagni sósi- alista i Norðurlandskjördæmi eystra, sem undir ritsjórn Vil- borgar Haröardóttur hefur orð- iö eitt besta vikublað landsins, er oft bryddaö upp á hressileg- um hlutum í forystugreinum. Nú eru orðin ritsjóraskipti á Norðurlandi og Þröstur Har- aldsson tekinn við ritstjórn.l rit- nefnd með honum eru sem i tið Vilborgar ágætir pennar, og þar á meðal Helgi Guðmundsson, trésmiður. Hann ritar eina af þessum sjaldgæfu undantekn- ingum á leiöaraskrifum póli- tiskra blaða, þar sem hann fer út fyrir hefðbundin viðfangs- efni, og leggur út af deilum um barnabækur. Ritstjórnargreinin heitir Menningarmafia og borg- aralegt sakleysi: Kátleg menning- armálaumrœöa „Umræður um menningar- mál eru einatt næsta kátlegar i blööum hér á landi. Ekki er þetta vegna þess að þeir sem leggja þar til mála séu að jafn- aði meinfyndnari en aðrir höf- undar efnis i blööum, heldur af þvi hversu fjarri hver öðrum i málflutningi þeir menn eru sem fást við slik skrif. Þetta virðist vera hvað mest áberandi i skrif- um um bókmenntir, kannski af þvi að þau eru fyrirferðarmest. Nú er það ekki nema eölilegt að þeir sem aðhyllast ólik viðhorf i bókmenntum deili og skiptist á rökum og vist myndi þá ekki bara vera kátlegt að lesa um bækur og bókmenntir heldur beinlinis stór skemmtilegt. Þessu er þvi miður ekki til að dreifa og sé nánar hugað aö, þá verður að viðurkennast, aö hin- Indriöi Helgi aðeins að henni ráði bók- menntaleg sjónarmið. Hér skal enginn dómur lagöur á hvort bókmenntalegt mat greinarhöfundar er rétt eða rangt. Það sem skiptir máli er að gagnrýnandinn styður mat sitt rökum sem lesandinn á að geta tekið afstöðu til að lestri umgetinnar bókar loknum.” Borgaralegt sakleysi — eöa skynsemi „Það hefur Svarthöfði Visis hins vegar ekki gert er hann reit grein þá, sem hann birtir i Visi strax daginn eftir. Ekki hefur skáldið Svarthöfði fyrir þvi aö svara fram bornum rökum fyrir þvi að hin umrædda bók sé vond, nei ó nei. Þess i stað hefur hann upp hefðbundinn söng um þá menningarmafiu, sem kommúnistar eru alls ráðandi i aö hans mati. Ekki er greinar- höfundur Þjóðviljans marktæk- ur þvi hann er bara einhver út- varpsskvisa, sem sér um út- varpsþátt með Ólafi Jónssyni, en sá hefur vist „púngapróf i bókmenntum utan frá Sviþjóð”. Að mati Svarthöfða „ræöst Silja á bókina” vegna þess eins að hún „fékk verðlaun Fræðsluráðs Reykjavikur”, sem besta barnabókin útgefin á árinu 1976. Og vondir menningarmafiu- kommar (sumir með púngapróf frá Sviþjóð, sem sennilega er það allra hættulegasta) hafa sannarlega ekki setið auðum höndum undanfarin ár. Þeim hefur tekist að loka Norðurlönd- unum að meira eöa minna leyti fyrir islenskum höfundum með þvi „að forða útlendingum frá þvi að misstiga sig á gæða- stimplum”. Hér skulu ekki tiunduð fleiri dæmi um fáránleikann i svona andsvari við umfjöllun um bók. En ástæða er samt til að spyrja einnar spurningar: Hver er á- stæðan fyrir syona skrifum (sem sannarlega eru ekki eins- dæmi)? Þvi er best að hver svari fyrir sig. Kannski er skýr- ingin svo einföld að rökin bara vanti. Þau finnast ekki. Kommúnistar njóta „þegj- andi samþykkis þess ruglaða hóps borgaralega sinnaðs fólks, sem telur að kommúnistar einir viti hvað sé menning, enda hafi þeir átt á að skipa svo mörgum framúrskarandi menningar- mönnum að þeir hljóti að fara með satt mál”, segir Svarthöfði einnig. Það skyldi þó aldrei vera að hinn ruglaði borgaralegi hópur viti sinu viti þegar allt kemur til alls.” e.k.h. NORÐURIAND

x

Þjóðviljinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.