Þjóðviljinn - 11.10.1977, Page 5

Þjóðviljinn - 11.10.1977, Page 5
.Þriöjudagur XI. október X977. ÞJÓÐVILJINN — SIÐA 5 Tillögur öddu Báru Sigfúsdóttur 1. Borgarráö samþykkti 23. nóv. 1976 aö fara þess á leit viö Al- þingi og rikisstjórn aö felldur yröi niður söluskattur af raf- magni. Borgarstjórn itrekar þessa samþykkt og skorar á þingmenn Reykjavikur aö vinna aö framgangi málsins. Borgarmál 2. Meö visun til 5 gr. laga um Landsvirkjun og nánari ákvæða I 10. gr. reglugerðar um Landsvirkjun gerir borgarstjórn þá kröfu til fyrirtækisins, aö eignaraöil- um veröi greiddur arður af höfuðstólsframlögum þeirra. 3. Þar sem orkuver Landsvirkj- unar selja nú þegar orku viðs vegar um landiö og munu gera það i vaxandi mæli á næstu árum, telur borgar- stjórn ekki rétt, að Reykja- vikurborg ein allra sveitarfél- aga standi undir stofnkostn- aöi nýrra orkuvera ásamt ri*kissjóöi. Borgarstjórn beinir þvi þeim tiimælum til iðnaðarráð- herra, að hann beiti sér fyrir þviaðfá önnursveitarfélög til þess að gerast aðilar að Landsvirkjun og láti vinna að breytingum á lögum um Landsvirkjun til þess að svo megi verða. Tillögur Alþýðubandalagsins í borgarstjórn: Gegn ótímabærum verð- hækkunum á raforku Á fundi borgarstjórnar sl. fimmtudag var sam- þykkt tillaga öddu Báru Sigf úsdóttur um að skora á þingmenn Reykjavíkur að gangast fyrir niðurfellingu söluskatts af rafmagni. Adda Bára skýrði m.a. frá þvi að á undanförnum 3 árum hafi stjórnvöld ekki staðið gegn hækk- unum á raforkuverði af nægilegri festu. Nú sé svo komið, að raforka til heimilisnotkunar er langdýr- ust á íslandi af Norðurlöndum. Samanburður sem árlega er gerður af norrænu rafveitusam- böndunum sýnir, að raforka til heimilisnotkunar i Reykjavik er 109% dýrari en raforka til sömu nota i Noregi. 1 stað þess að velta auknum rekstrarkostnaði Rafmagnsveitu Reykjavikur beint yfir á neyt- endur, lagði Alþýðubandalggið þvi til að óhjákvæmilegum hækk- unum á rekstrarkostnaði yrði mætt með þvi að fella niður sölu- skatt á rafmagni. í þvi skyni að vinna gegn verð- hækkunum á rafmagni i Reykja- vik, lagði Adda Bára fram,ásamt þeirri sem samþykkt var, tvær aðrar tillögur. Hjúkrunar- fræðingar mótmæla úr- skurði kjara- deilunefndar Stjórn og trúnaöarráö Hjúkrun- arfélags tslands hefur sent frá sér eftirfarandi fréttatilkynningu: Stjórn og trUnaðarráð Hjúkrun- arfélags Islands bendir á að með Urskurði kjaradeilunefndar frá 03.10.1977 er brotin 26. gr. laga nr. 29/1976 um kjarasamninga Bandalags starfsmanna rikis og bæja, en þar segir m.a. „Kjara- deilunefnd ákveður hvaða einstakirmenn skuli vinna i verk- falli”. Stjórn og trúnaðarráð Hjúkr- unarfélags íslands mótmælir þvi harðlega úrskurði kjaradeilu- nefndar þar sem hjúkrunarfræð- ingum er meinuð þátttaka i verkfallsaðgerðum Bandalags starfsmanna rikis og bæja, og hefur þar með virt að vettugi mjög ábyrga verkfallsáætlun Hjúkrunarfélags tslands. Brunborgarstyrkur Or Minningarsjóði Olavs Brunborg verður veittur styrkur að upphæð fimm þúsund norskar krónur á. næsta ári. Tilgangur sjóðsins er að styrkja islenska stúdenta og kandidata til háskólanáms i Noregi. Umsóknir um styrkinn sendist skrifstofu Háskóla tslands fyrir 31. október 1977. Arður af Lands- virkjun önnur þessara tillagna miðar við ákvæði i lögum um Lands- virkjun, sem leyfir að eignaraðil- um Landsvirkjunar sé greiddur allt að 6% arður af höfuöstóls- framlögum þeirra. Reykjavikur- borg er helmingseignaraðili að Landsvirkjun, og telst hlutur borgarinnar samkvæmt efna- hagsreikningi Rafmagnsveitu Reykjavikur vera nær 4,4 mil- jarðar króna. Þar eð hér yrði um verulegar fjárhæðir að ræða, lögðu fulltrúar Alþýðubandalags- ins til að borgarstjórn gerði til- kall til Utborgunar á arði frá Landsvirkjun, sem siðan væri notaður i uppbyggingarkostnað Rafmagnsveitu Reykjavikur. Borgarstjóri lagði til að þessari tillögu yrði visað frá, á þeirri for- sendu að með hliðsjón af upp- byggingu Landsvirkjunar m.a. i Hrauneyjarfossvirkjun væri rétt að nota allan rekstrarafgang inn- an fyrirtækisins. Frávisunartil- laga borgarstjóra var samþykkt með öllum atkvæðum Sjálfstæðis- flokksins. Eignaraðild að Landsvirkjun Adda Bára kvaðst i tillöguflutn- ingi sinum túlka það sem nefna mætti eiginhagsmunastefnu Reykjavikur gagnvart öðrum landshlutum. Þriðja tillaga Al- þýðubandalagsins um ráðstafanir gegn verðhækkunum raforku stefnir að þvi að rétta hlut Reykjavikur og er ekki krafa um forréttindi höfuðborgarinnar. Það getur vart talist réttmætt að Reykjavikurborg ein allra sveitarfélaga standi undir stofn- kostnaði nýrra orkuvera ásamt rikissjóði, þegar þess er gætt að orkuver Landsvirkjunar selja orku viðsvegar um landið og i si- vaxandi mæli. Alþýðubandalagið lagði þessvegna til, að borgar- stjórn beindi þeim tilmælum til iðnaðarráðherra, ,,að hann beiti sér fyrir þvi að fá önnur sveitar- félög til þess að gerast aðilar að Landsvirkjun...”. Borgarstjóri sagði að ætlast væri til að gjaldskrá Rafmagns- veitunnar standi undir rekstrar- kostnaði og annarri eðlilegri út- gjaldaaukningu. Hann sagði að frumkvæði Reykjavikur i raf- orkumálum hefði tryggt borginni næga orku. önnur sveitarfélög hefðu ekki tekið rétt á þessum málum og treyst um of á rikis- valdið og alþingi. Borgarstjóri kvaðst andvigur tillögu Alþýðubandalagsins um fjölgun eignaraðila að Lands- virkjun. Sagði hann áætlað að Rafmagnsveitan þyrfti á helm- ingi orkuframleiðslu Landsvirkj- unar að halda á næstu árum. 1 frávisunartillögu sinni lagöi borgarstjóri til að ef eignaraðild Samtaka sveitarfélaga i Suður- og Vesturlandskjördæmi yrði, ,,og borgin dregur úr eignarhluta sinum, verður að sjálfsögðu að krefjast fullra bóta svo og hlut- fallslegrar ábyrgðar nýrra með- eigenda á skuldum Landsvirkjun- Ótimabœrar jjárfestingar Sigurjón Pétursson tók til máls og gagnrýndi einkum að Raf- magnsveitan hefði ótrauð haldið áfram framkvæmdum eftir að henni voru ekki heimilaðar um- beðnar gjaldskrár hækkanir á ár- unum 1970-74. Ráðist hefði verið i of miklar fjárfestingar á röngum tima, og afleiðingin væru illvið- ráðanlegar erlendar skuldir i dag. Sigurjón kvað spurninguna um eignarhlutföll i Landsvirkjun snúast um það, hvort allir þeir sem versla við Landsvirkjun eigi að standa undir stækkun. Jafnvel þótt Reykjavik komi til meö að nota helming af raforkufram- leiðslu Landsvirkjunar, þá þurfi menn að rökstyðja það, hvers- vegna borgin — ein allra sveitar- félaga — eigi að standa undir uppbyggingu Landsvirkjunar á móti rikinu. Tillögu öddu Báru Sigfúsdóttur um breytt eignarhlutföll i Lands- Adda Bára virkjun, var visað frá með 9 at- kvæðum Sjálfstæðisflokksins. —jás. 4 bókasýningar í Bókaverslun Snæbjarnar, Hafnarstræti 4og9, standa nú yfir 4 bókasýningar með nýjum bókum frá Bretlandi, Sovétríkjun- um, Danmörku og UNESCO í Paris. Bresk bókasýning — Hamlyn Books Mjög f jölbreytt úrval af bókum um hin marg- víslegustu efni m.a. matreiðslubækur, garð- yrkjubækur, föndurbækur, náttúrufræðibæk- ur, listaverkabækur, sagnfræði og landa- fræðibækur, tómstundabækur. Sovésk bókasýning — Aurora Art Publishers ofl. Nýkomnar frá Sovétríkjunum glæsilegar listaverkabækur með litmyndum úr sovéskum listasöfnum, svo og tæknibækur og orðabæk- ur. Bókaverslun Snæbjarnar Hafnarstræti 9 Dönsk bókasýning Nýjar danskar bækur í glæsilegu úrvali, m.a. skáldsögur, matreiðslubækur, garðyrkjubæk- ur, föndurbækur náttúruf ræðibækur, tóm- stundabækur. UNESCO bókasýning Sýnum nokkrar nýjustu útgáfubækur UNESCO (Menningar- og f ræðslustof nun Sameinuðu þjóðanna) svo og tímarit stofnun- arinnar: Bibliography, documentation, terminology — Cultures — Educational docu- mentation and information — Impact of sci- ence on society — International social science journal — Museum — Nature and resources — Prospects — UNESCO bulletin for libraries — UNESCO chronicle— UNESCO courier. Bókaverslun Snæbjarnar Hafnarstræti 4

x

Þjóðviljinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.