Þjóðviljinn - 11.10.1977, Síða 10

Þjóðviljinn - 11.10.1977, Síða 10
10 SIÐA — ÞJÓÐVILJINN Þriðjudagur 11. október 1977. FH öruggt í 2. umferð ✓ Ohugsandi að Finnarnir geti unnið upp forskot FH í Bikarmeistarar FH hreinlega léku sér aö finnsku meisturunum Kiffen í fyrri leik liðanna í Evrópumeistarakeppn- inni/ eins og köttur að mús, og sigruðu 29:13. Það hvarflar sjálfsagt ekki að neinum, sem sá þennan leik, að Finnarnir geti unn- ið þennan mun upp þegar liðin mætast öðru sinni og þá i Finnlandi. Það hefur heyrst að Geir Hallsteins- son geti ekki farið með FH utan, en þrátt fyrir það dettur manni ekki i hug að Finnarnir vinni upp mun- inn. Það vantar mjög mikið á að Finnar leiki handknatt- leik af sama gæðaf lokki og aðrar Noröurlandaþjóöir. Þetta liö, Kiffen, er svipað að styrkleika og miðlungs 2. deildarlið á íslandi. I þessum leik náði FH-liðið með Geir Hallsteinsson, sem yfir- burðamann, að sýna allar sinar bestu hliðar, og Geir fékk óáreitt- ur að mestu að leika listir sinar og það gerði hann svo sannarlega. Það myndi ekkert islenskt lið leyfa Geir að leika svo lausum hala, sem hann fékk að gera i leiknum við Finnana; fái hann það, fær ekkert stöðvað hann. Og heimaleiknum árangurinn varð 8 mörk sem hann skoraði sjálfur, auk fjöl- margra marka sem aðrir skor- uðu, eftir að Geir hafði tætt finnsku vörnina i sundur og gefið á óvaldaða félaga sina. 1 leikhléi var staðan 13:4 FH i vil, og hefði getað verið meiri munur, ef FH hefði ekki verið nokkuð seint i gang. Það var jafnt 1:1 og 2:2,þá sáust tölurnar 3:2, 6:2, 10:3, og 13:4. Mestur varð munurinn 17 mörk, 26:9 og hefði FH ekki slakað á undir lokin, þá hefði munurinn sjálfsagt orðið yfir 20 mörk. Sem sagt yfirburða sigur FH, uppá 16 mörk, sem óhugsandi er að Finnarnir nái að vinna upp ytra. Geir bar af i FH-diðinu eins og áður segir, var allt i öllu i sóknar* leik liðsins. Þeir Janus Guðlaugs- son og Þórarinn Hagnarsson áttu einnig báðir góðan leik, svo og Guðmundur Árni, sem sjaldan hefur leikið betur. En þess ber auðvitað að geta að litið var gert til að stöðva þessa bestu menn FH, enda vörn Finnanna ekki uppá marga fiska. Sá eini sem sýndi einhverja getu á Norðurlandamælikvarða i finnska liðinu var markvörðurinn Bjarne Winberg, afar snjall markvörður greinilega og á skilið að hafa sterkari vörn fyrir fram- an sig en hann hafði þarna. Mörk FH: Geir 8, Þórarinn 6, Janus 5, Guðmundur Arni 5, Guð- mundur M. 3, örn og Valgarður 1 mark hvor. —S.dór Geir Hallsteinsson var alger yfirburöamaöur á vellinum I leik FH og Kiffen á laugardaginn. Hér svlfur hann inn í teiginn og lætur vaöa aö finnska markinu. Erlendu leikmennirnir í körfuknattleiknum hér á landi gera það svo sannar- lega gott, hreinlega tröll- ríða íþróttinni. Á laugardaginn setti einn þeirra Dirk Dunbar nýtt met á stigaskorun, en Dunbar leikur með ÍS. Hann gerði sér litið fyrir og skoraði 58 stig og bætti þar með gamla metið hans Þóris Magnússonar en þaö var 57 stig. Þórir lék á þeim tima með KFR sem siðar var breytt i Val. ÍS sigruðu Fram með 102 stig- um gegn 86 i mjög hörðum og að mörgu leyti góðum leik. Fram hefur á að skipa mörgum mjög góðum leikmönnum, en þar ris hæst Simon Ólafsson sem sýndi mjög skemmtileg tilþrif á laugar- daginn. Einn annar leikur var á laugar- daginn. Armann vann ÍR örugg- lega með 89stigum gegn 55. Þeiri Armanni hafa yfir einni stiga- maskinu að ráða, sá heitir Mike Wood, og skoraði hann 36 stig. Þarf vart að fara i grafgötur með hversu þessir erlendu leikmenn gerbreyta styrkleikahlutföllum hinna einstöku liða hér á landi. Getraunir i 7. leikviku Getrauna komu fram 4 raðir meö 11 réttum leikjum og var vinn- ingurinn kr. 110.000.- Einn þessara seðla var frá Seyöis- firði, en hinir frá Reykja- vfkursvæöinu. Þá komu fram 20 raöir með 10 rétta og var vinning- urinn á hverja röö kr. 9.400.- NM í borðtennis: / Island rak lestina islendingar uröu neöstir á Noröurlandamótinu i borðtennis sem haldiö var í Stokkhólmi um siöustu helgi. Borötennissam- band íslands sendi þátttakendur aöeins I karlakeppnina og þar áttum viö viö algera ofjarla aö etja. Ergreinilegt aö mikilla úr- bota er þörf í málefnum borö- tennisiþróttarinnar; þar hlyti besta lausnin aö felast i komu erlends þjálfara hingaö til lands. t næsta mánuði fer fram afmælismót Borðtennissam- bandsins og aö sögn Gunnars Jóhannssonar, formanns þess, fengust loforð fyrir þátttöku borötennisieikara I þessu móti frá öllum Norðurlöndunum. Svi- ar voru eins og viö mátti búast i algerum sérflokki á Norður- landamótinu. AHir þeirra bestu leikmenn, aö þeim Kjell Jo- hansson og Mini Stellan Bengts- son undanskildum, voru mættir til leiks, enda fór svo, aö Sviar hirtu öll efstu verðlaunin. í flokkakeppni þjóöanna varö rööin þessi: 1. Sviþjóð 2. Danmörk 3. Noregur 4. Finnland 5. tsland 1 kvennaflokki unnu Sviar einnig sigur, en Danir uröu i 2. sæti, siðan Norðmenn og þá Finnar. Eins og áður sagöi sendu tslendingar ekki konur sinar til keppninnar. i einliöaleik karla sigraöi U. ThBrsell frá Sviþjóö og I kvennaflokki Anne Lie Lilje- gren. tslendingar komust hvergi i úrslitaleiki I þessari keppni og raunar vannst enginn leikur. Aðeins einn tslendingur, Stefán Konráösson, vann lotu. Það var I tvlliðaleik, en Stefán spilaöi þá með Norömanninum Rune Reb esen. Víkingur og Valur unnu Tveir leikir fóru fram I 1. deild tslandsmótsins i handknattleik á laugardaginn. Þaö voru þau lið sem flestir búast viö aö baráttan um sigurinn standi um, Valur og Víkingur sem léku gegn KR og Ármanni. Vikingur — Ármann 24:12 Það var aðeins á fyrstu minút- um leiksins sem Armenningar héldu eitthvað i Vikingana. En smátt og smátt sigu Vikingar fram úr, þannig að staðan i hálf- leik var 10:6. 1 seinni hálfleik var við það sama fyrstu minúturnar eða þar til staðan var 17:12. Þá var sem allt púður væri úr Ármenningum og sjö siðustu mörkin voru Vik- ings. Mörk Víkings: Viggó Sigurðsson 9(2 viti), Ölafur Einarsson 6, Bjö-gvin Björgvins- son 4, Þórbergur Aðalsteinsson 3, Erlendur Hermannsson 2. Mörk Ármanns: Jón Sigurðsson 4, Björn Jóhannsson 2, Jón Ást- valdsson2,Þráinn Asmundsson 1, Óskar Ásmundsson 1, Einar Þór- hallsson 1, Vilberg Sigtryggsson 1. Dómarar voru Gunnlaugur Hjálmarsson og Valur Benedikts- son. Vaiur — KR 19:17 Leikur Vals og KR var hinsveg- ar mun jafnari og alls ekki útséð um úrslit fyrr en leikurinn var flautaður af. Valsmenn höfðu örugga forystu eftir fyrri hálfleikinn, 10:7. 1 seinni hálfleik jafnaöist leikurinn mikið. Valsmenn höfðu alltaf yf- irhöndina en þó mjög nauma, t.d. stóð 17:16 og 18:17 þegar skammt vartilleiksloka. Jón Karlsson átti hinsvegar siðasta orðið i leiknum og tryggði sigur Vals. Mörk Vals: Jón P. Jónsson 5, Jón Karlsson 5 (4 viti), Þorbjöm Guð- mundsson 3, Gisli Blöndal 2, Björn Björnsson 2, Steindór Gunnarsson 2. Mörk KR: Björn Pétursson 5 (5 viti), Jóhannes Stefánsson 5, Sim- on Unndórsson 4, Haukur Ottesen 3. Leikinn dæmdu Sigurður Har- aldsson og Haukur Þorvaldsson. Staðan Staöan i 1. deild islands- mótsins I handknattleik er nú þessi: Vikingur ■ 2 2 0 0 43:30 4 FH 1 1 0 0 21:19 2 Valur 2 1 0 1 37:36 2 Haukar 2 0 2 0 39:39 2 ÍR 1010 18:18 1 Fram 2 0 1 1 40:42 1 KR 10 0 1 17:19 0 Ármann 1 0 0 1 12:24 0 í kvöld í kvöld fara fram tveir leikir i 1. deild islandsmóts- ins i handknattleik. Báöir leikirnir fara fram i Laugar- dalshöli. Fyrri leikurinn sem er á milli Ármanns og FH hefst kl. 20, en sá seinni sem er leikur KR og ÍR, hefst kl. 21,15 strax að fyrri leiknum loknum.

x

Þjóðviljinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.