Þjóðviljinn - 19.11.1977, Blaðsíða 10

Þjóðviljinn - 19.11.1977, Blaðsíða 10
10 StÐA — ÞJÓÐVILJINN Laugardagur 19. nóvember 1977 i kjallara Norræna hússins stendur sýning þriggja mynd- listarmanna. barna er Maggi Pálsmeð sfna kimni, sittþjóðlega fas og sinn örugga smekk. Rikki Valtingojer meö sin nákvæmu, vitsmunalegu og ótfskubundnu vinnubrögð i teiknun, og Salome með sitt rauðhærða skap i bloss- andi tengfngu við ytri sem innri náttúruöfl. Fyrir augun ber jötna og menn lifandi og dauða i tedkn- ingu Rikka, pottþétta islenska þoku i myndgervingu Magga og öldur af Breiðafirði komnar alla- leið innf vef Salóme berandi með sér þáng og seltu. bað er ekki ónýtt að fá svona fólk inn til sin i þann mund að vetur leggst að. Ljóshirsla Bakkabræðra allra tlma. Nú eru Bakkabræður norður i landi að byggja stórt hús oná eldgosi. beir segja aö húsið sé ekki saklaust grin (til þess kostar það of mikið) heldur blásvalur raunveruleiki. Aragrúi fræðinga og pólitikusa hefur slegist I lið með Bakkabræðrum og hamast allir við að bera þjóðinni ljós og yl i húfupottlokunum sinum. En við sem hlýðum á útvarpsfréttir af húsinu sem lyftist og hnigur og veltist, vitum aðþetta erbara spil og blekking Bakkabræðranna. bvi er nefnilega þannig varið aö Bakkabröðir númer eitt kallar sig ráðherra orkumála, eða eitthvað þanniglagað, og er i óða önn að bera ljós og yl I bæinn I svörtum pípuhatti. 1 blaðinu minu I dag var greint fráþvfað úngur menntamaður úr Reykjavik sæi ekkert athugavert við það þótt jötnar þeir sem þykjast vera að vernda þjóðina verndi hana með þeim hætti að leggja kjarnorkusprengju undir koddann hennar. Hugmynd únga mannsins um öryggi virðist vera sú hin sama og hjá hetjum kúrekamyndanna: vakinn og sofinn með fingurinn á gikk sexhleypunnar. öryggið er að eiga kjamorkusprengju i fata- skápnum til aö kasta á innbrots- þjófa. Ég þekki þennan únga mann ekki persónulega, en séu þessiorðrétteftirhonum höfð, þá verður það að segjast einsog það er: óttinn étur sálina úr mönnum. Ég held það hafifarið eins fyrir svona sál og fer fyrir fótum sam- kvæmiskvenna þeirra i austur- löndum sem nefndust geishur. Fætur þeirra voru nefnilega reyrðir fastoglengi svo þeir hættu aö vaxa. Fæturnir voru svo úr lagi færðir að margar af þessum konum voru verulega hreyfi- hamlaðar. bað er óttalegt að þurfaaö draga svona samlikingu, en þó er óttalegra að hugsa til þessa að fjöldi manna kýs sjálf- viljugur að láta fara svona með sálina i sér. Fjöldi manna vill hafa her inná gafli hjá sér. bað er staðreynd. En þegar menn sjá ekkert athugavert viö það að búa i ást og samlyndi með kjarnorku- sprengju, er þá ekki klikkunin komin á hástig? begar menn álita sig þeim mun öruggari sem sprengjan er nær þeim. bessi af dönkum sálarinnar er eitt af þvi sem listamenn á öllum timum hafa reynt aö afhjúpa. Angistin nagar sálina uns ekkert er eftir nema gamall sveskjusteinn. ÓRI- Myndin hans Magga Páls af skráargötum Ora-Mór er maka- laust þjóðlegt verk. Hún er einsog klippt útúr einhverri innan- sveitarkröníkunni. óri-Mór er strákur sem ekki má nefna. Hann leggur leið sina gegnum veggi og skráargöt. Öri-Mór er löngu orð- inn þekktur fyrir bellibrögð sin, þessvegna gæti hann alveg eins heitiö eitthvað annað og boðið sig fram i prófkjöri hjá Alþýðu- flokknum. Öri-Mór smýgur um skráargöt og gerir mönnum glennur. Ruglaðir og trúgjarnir, einsog menn verða af miklum lestri siðdegisblaðanna, sjá þeir vart annaö en strákinn óra-Mór. Virðulegir múrarar útibæ hrynja irúst af völdum óra-Mór og feitir kallar i nefndum óttast það mest af öllu að Óri—Mór komi vaðandi inni á þá, hrifsi eitthað úr hönd- unum á þeim og geri moldviðri i kjöllurum' drullugustu siðdegis'- blaðanna. Óri-Mór er uppvakn- ingur vitlauss tima. begar timinn er snarbilaður og óheilindin og lýgin vaxa einsog arfi á haug, þá Maður nokkur hverfur. bað er einsog jörðin hafi gleypt hann. Ekkert lik. Úr viðfægu réttarriki (þarsem sakamenn finnast hengdir i klefunum sinum i full- komnustu og tæknivæddustu fángelsum álfunnar) kemur maður hingað út að leysa gátuna. Útlendingurinn finnur einhvern botn og það er ákveðið i snatri að þetta sé ekki verri botn i málið en hver annar. Fargi er létt af þjóðinni, segir oddviti dómsmálanna. Borgar- arnir anda léttar og dansa fagn- andi kringum innpakkaðar óheillakrákur. En ekkert lik. Og maður á sendibil tekur aftur framburð sinnn. 1 ameriskum reyfurum er þóaltént sagt: „Málið liggur ljóst fyrir drengir, það eina sem okkur vantar nú er lik”. Sumir hafa á orði að nýjar miðaldir séu runnar upp og styðji það kenninguna um kúlulögun timans. Páfinn situr enn I Róm. En það situr annar páfi i Brussel. Hann heitirTalva og ræður Efna- hagsbandalagi Evrópu. En þessi nýi páfi er einsog þeir hinir sem á undan hafa gengið hallur undir auððmagnið þegar á reynir. Evrópa skal gjörskipulögð! er dagskipunin. Hafiþér orðið það á þegar þú varst þrettán vetra aö hnuppla lengju af vindlingum þá geturöu bókað að nafn þitt prýðir tölvuskrár allra meiriháttar lög- reglustöðva og svárthola álf- unnar. Simar eru hleraöir, póstur opnaður.ferillmanna rakinn inná tölvuspólur sem stórfyrirtækin geta keypt sér aðgáng að. Evrópa skal gjörskipulögð! Og það eru engin meðöl spöruð. Skrifstofu- báknið og hinn grái her eyðu- blaðahermanna vex samkvæmt uppskrift herra Parkinsons. Ég heiti 3835-0846 hvað sem kann að standa skrifað i kirkjubækur (enda kirkjubækur liklega fals- net hraöbrautanna nær alla leið aðar frá upphafi vega). Ég flýg inni innstu hugarfylgsni mln. yfir álfuna og mér verður ljóst að Asta Sóllilja vinnur i Karnabæ. Ólafur Haukur Símonarson hugleiðir myndir á sýningu

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.