Þjóðviljinn - 22.12.1977, Qupperneq 1

Þjóðviljinn - 22.12.1977, Qupperneq 1
UOWIUINN Fimmtudagur 22. desember 1977 —42. árg. 287. tbl. SÓL RÍS skemmstu? sólar- gangur var í gær og í dag verður bjart einni minútu lengur en i gær Þá hefur hiö drungalega skammdegi hins langa islenska vetrar loks náö hámarki, þvi aö i gser var skemmstur sólar- gangur, vetrarsólhvörf, og þá byrjaöi Mörsugur, samkvæmt gamla mánaöaheitinu. i gær var sólaruppkoma i Reykjavlk kl. XI.22 en sólsetur kl. 15.30, þannig aö sól var á lofti i 4 klukkustundir og 8 minútur. En þótt daginn taki aö lengja i dag, er þaö ósköp stutt fyrsta fetiö, aöeinsein mínúta. Siöan lengist dagurinn ekkert á morgun, Þor- láksmessu og ekki heldur á aö- fangadag, en strax á jóladag bætist ein minúta viö, og fram yfir áramót lengist svo dagur- inn um þetta eina til tvær min- útur. Uppúr miöjum janúar fer hinsvegar aö muna meiru og þegar fram á útmánuö kemur fer daginn aö lengja um 6 — 7 mlnútur á dag uns komiö er jafndægur á vori 22. mars. Margir halda þvi fram aö skammdegiöfari illa meö sálar- llffölks, menn séu haldnir þung- lyndi, eigi erfitt meö aö vakna á morgnana. og fleiri skammdeg- | ískvillar hrjái manmoiKio a is landi þessa dimmustu mánuöi ársins. Þeir sem þannig er ástattum lita þvi án efa bjartari augum á tilveruna strax i dag, eöa um leiö og þeir vita aö sól tekur aö hækka á lofti, og þótt enn sé langt aö biöa vorsins veröur þvi vart neitað aö fyrsti dagur hækkandi sólar er allrá fyrsti vorboöinn, þótt langsóttur sé. — S.dór. Lögðu blessun yfir kaupín á Vídishúsinu Samþykkt á þingi með atk. 30 stjórnarliða og hjásetu 10 Stjórnarflokkarnir samþykktu i gær viö 3ju umræöu fjárlaga kaupin á hinu umdeilda Visishúsi. Þingmennimir Lúövik Jósepsson og Ragnar Arnalds báru fram breytingatillögu viö fjárlaga- frumvarpiö þess efnis aö fjárveit- ingar til kaupa á húsinu yröu felldar niöur. Fram fór nafnakall um tillöguna og var hún felld meö 30 atkv. st jórnarþingmanna gegn 17 atkvæöum stjórnarand- stæöinga; 10 sátu hjá en þrir þing- menn voru fjarverandi. Af þeim 10 stjórnarþingmönnum er sátu hjá viö atkvæöagreiðsluna voru þrir ráöherrar, þeir Einar Agústsson utanrikisráöherra, Gunnar Thoroddsen iönaöarráö- herra og Halldór E. Sigurösson landbúnaöarráöherra. Sú staöreynd hversu margir stjórnarþingmenn sátu hjá sýnir þá óánægju sem rikjandi er i stjdrnarherbúöunum meö þessi kaup. Þannig greiddi t.d. Páll Pétursson þingmaöur Framsóknarflokksins atkvæöi meö kaupunum, en geröi sérstaka grein fyrir atkvæöi sinu þar sem fram kom aö úr þvl er veriö væri aö eyða 8 miljöröum i framkvæmdir eins og Grundar- tangaverksmiðjuna þá væru fjármunirnir sem færu i Viöishús- iö bara smámunir i þeim saman- buröi. Næst- sfðasti skiladagur i dag er næstsiöasti skila- dagur fyrir umboösmenn og aöra aö gera skil til Happ- drættis Þjóðviljans, en vinn- ingsnúmerin veröa birt á aö- fangadag. Sk'rifstofan á Grettisgötu 3 veröur opin til kl. 6 i dag.en á morgun eitt- hvaö fram eftir kvöldi. Sim- inn er 17500 og 28655. Flestir hafa nú þegar gert skil I happdrættinaen til þess að unnt verði 'að birta vinn- ingsnúmer á aöfangadag þurfa allir aö hafa lokiö skil- um. Er heitiö á menn að draga það ekki lengur. Eins og kunnugt er hefur þegar verið dregiö um vinn- ingana, en númerin blða enn innsigluö á skrifstofu borg- arfógeta. Lúövik Jósepsson. Samkvæmt ummæl- um Geirs Hallgríms- sonar forsætisráðherra ÞINGMENN SENDIR HEIM f GÆR Stórfelldir örðugleikar atvinnuveganna óleystir á Alþingi i gærmorgun þá virðist rikisstjórnin ekki hafa gert sér neinar fastmótaðar hugmyndir um það hvernig leysa skuli þann mikla vanda sem atvinnuvegirnir,' eiga nú við að glima. Jafnframt kom fram hjá forsætisráðherra, að til greina komi að gefa út bráðabirgðalög ef nauð- syn ber til lausnar þess- um vanda i fjarveru þingsins. Þessi atriði komu fram er Lúðvik Jósepsson gerði vanda- mál atvinnuveganna að umtalsefni, þegar rædd Framhald á 18. siöu Gífurlegt taugastríð í skákeinvíginu Spasskí hótar að yfirgefa Belgrad Frá Eves Kraushaar, frétta- manni Þjóöviljans I Belgrad: Gífurlegt taugastríð í einvígi þeirra Spasskis og Kortsnojs hefur náð há- marki sínu. Eftir alls kyns smáskærur og átök hefur einvígishaldið siglt í strand/ og i dag mætti Spasskí ekki til leiks er tólfta umferðin átti að hefjast. Tilkynnti hann engin forföll og var skák- ef ekki verður gengið að kröfum hans fyrir hádegi i dag in dæmd honum töpuð að klukkustund liðinni. Spasskí hefur hótað að yfirgefa Belgrad strax á morgun, þ.e. 22. desem- ber, verði ekki gengið að þeim kröfum sem hann hefur sett fram. Engum dylst aö Spasski hefur með markvissum aðgerðum tekist að brjóta stáltaugar Kortsnojs, en engu að siður var það Kortsnoj sem vann siðustu orustuna er hann fékk móts- haldara til þess að fjarlægja Spasski hefur nú i fyrsta sinn sýnt af sér verulega grimmd og hörku I taugastriðinu kringum skákeinvigin. Og hann þarf ekki að kvarta yfir árangrinum, þvi jafnvel Kortsnoj sjálfur viöur- kennir ósigur sinn i þeirri or- veggskákborð sem Spasski hafði notað til stöðurannsókna, i stað þess að sitja gegnt Kortsnoj við sjálft keppnisborðið. En Spasski undi þvi ekki að missa veggborðið. Mætti hann ekki til leiks i dag og hótaði þvi jafn- framt að hætta keppni algjör- lega verði veggborðið ekki kom- ið á sinn stað fyrir hádegi 22. desember. Kortsnoj neitaði hins vegar að taka við vinningnum úr skák- inni i dag. Sagðist hann lita á forföll Spasskls sem hans þriðju og siðustu frestun i þessu ein- vigi, og vildi hann þvi halda upphaflegri áætlun um leik- daga. Búist er við að stöðug fundahöld muni standa yfir i alla nótt, en óvist er hvort hægt sé að draga til baka fyrri ákvörðun um hið umdeilda veggborð. Kortsnoj hefur sýnt stigvax- andi merki taugaveiklunar i sið- ustu umferðunum og viðurkenn- ir hann það sjálfur að Spasski hafi komið sér úr jafnvægi með ýmsum uppátækjum tengdum sovéska fánanum, rauöum háls- bindum o.s.frv. — gsp.

x

Þjóðviljinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.