Þjóðviljinn - 28.12.1977, Blaðsíða 9

Þjóðviljinn - 28.12.1977, Blaðsíða 9
Miftvikudagur 28. desember 1977 i ÞJÓÐVILJINN — StÐA 9 sem m i n n i h 1 u t a s t j ó r n Framsóknarflokksins. Voriö 1939 var svo mynduð samsteypu- stjórn Framsóknarflokksins, Sjálfstæftisflokksins og Alþýftu- flokks, stjórn sem gaf sjálfri sér nafnift „þjóöstjórn.” Enginn einn maftur átti meiri þátt i myndun þessararstjórnar, sem fræg er aft endemum, en Jónas Jónsson,enda helgafti hún starf sitt, i hvivetna, hugsjónum hans. Rúmsins vegna verftur þó ferill hennar ekki rak- inn hér, aðeins minnt á frægasta sköpunarverk hennar, bráfta- birgftalög um gerftardóm i kaupgjalds- og verftlagsmálum, geröardómslögin illræmdu frá 1942. (Skylt er þó aft geta þess aft vegna þeirra sagði ráftherra Alþýðuflokksins af sér og fór úr stjórninni; hinir flokkarnir tveir stjórnuftu siöan án hans til næstu kosninga, vorift 1942). #/Leifslína" Jónasar frá Hrif lu. Meft falli þjóftstjórnarinnar var veldissól Jónasar Jónssonar að vifti hnigin, enda orftin tima- skekkja i islenskum stjórnmál- um. Ég hef nú rakift i grófum dráttum útlinur islenskrar stjórn- málasögu árin sem umsvif Jónasar Jónssonar frá Hriflu voru hvaft mest. Ekki endilega þin vegna,heldur i trausti þess aö einhverjir, sem lásu grein þina 6. nóvember s.l. lesi lika þessar lin- ur. Aft sjálfsögftu stökk hann ekki alskapaður inn i þá sögu vorift 1927 er ráftherradómur hans hófst og hann lagfti heldur ekki niftur „hugsjónakröfur” sinar voriö 1942 meft falli „þjóftstjórnarinn- ar”. Jónas Jónsson átti merira aft segja heilmikift vantalað við landslýö allan, eftir aö hin viöamikla útihurft Alþingishúss- ins féll aft stöfum á hæla hans i siftasta sinn áriö '49. Þaö væri svo sem nógu freistandi aö rifja upp viðhorf hans til nýsköpunar- stjórnarinnar 1944—1947; þú getur náttúrlega nefnt það viö Einar Olgeirsson efta Brynjólf Bjarna- son, i sima ef ekki vill betur, aft upplýsa þig um „hugsjónakröf- ur” hans frá þeim tima, og svo áttu auftvitaft að hafa aftgang aft Alþingistiftindunum. Þaft væri ekki siftur freistandi aft rifja upp viðhorfhans til kröfu Bandarikja- stjórnar frá 1945 úm leigu tiltek- inna þriggja landssvæfta undir herstöövar til 99 ára, efta til Keflavikursamningsins 1945, til Marshalláætlunarinnar 1947, til inngöngu tslands i NATO 1949 og til hernámsins 1951. „Leifslin- una” kallafti gamli mafturinn þessar hugsjónir sinar. Það vant- afti svo sem ekki þjóðlegheitin. Þaft væri lika fróftlegt aft rifja upp frá fyrri tift ofsóknir Jónasar Jónssonar á hendur islenskum æskulýft, lýsa tilraunum hans og nánustu fylgifiska til aft útiloka þann hluta hans, sem haffti rót- tækar skoftanir frá skólanámi, rifja upp útburft hans á sjúkling- um af sjúkrahúsum vegna pólitiskra skoftana, ofsóknir á hendur róttækum mennta- og listamönnum, m.ö.o. rifja upp hvafta hlutverki Jónas Jónsson gegndi fyrir borgarastéttina i landinu á sinni tift, þegar verift var aft móta og festa auðvalds- skipulagift i sessi á tslandi. Og siöast en ekki sist hvernig hann ruddi stöftugt brautina fyrir sér enn óvandaftri menn. Þvi miftur er ekki tækifæri til þess hér, enda alls ekki meiningin meft þessum linum aft rita ævisögu Jónasar Jónssonar frá Hriflu. ólíkir sjónarhólar. En mat mitt á Jónasi og starfi hans miftast auftvitaft vift hags- muni þeirrar stéttar, sem ég tilheyri, verkalýftsstéttarinnar. Frá hennar sjónarhóli séft er Jónas Jónsson einn mesti óheilla- fugl Islenskra stjórnmála. Borgarastéttin er aft sjálfsögftu á allt annarri skoftun. Frá hennar sjónarhóli séft er hann tvimæla- laust einn merkasti maftur Islandssögunnar. ÞU hefur einhverra hluta vegna gengift upp á rangan hól, ert kannske ekki alltof kunnugur I landslagi stétta- baráttunnar. Annars er þetta einkennileg árátta hjá þér aft upphefja si og æ gengna foringja isíensku borgaraflokkanna. Ég hefi til aö mynda æöi oft séft i greinum eftir þig aft allt hafi haft „annanróm” og betri þegar hann Bjarni heitinn Benediitsson réfti húsum á Ihaldsheimilinu. Þaft hafi nú aldeilis verift „manna- munur” á honum Bjarna heitnum og honum Geir. Þaft er auövitaft sjónarmift útaf fyrir sig aft þeir foringjar ihalds og Framsóknar, sem safnast hafa til feöra sinna séu geftf elldari heldur en þeir sem enn tyggja smériö, en einhvern veginn finnst mér þetta ekki fullnægjandi skýring á allri þessari mýkt þinni frammi fyrir ölturumhinna dauftu. Kannske er þetta bara gert i „bestu mein- ingu”. En gallinn er sá aft forustu- maöur i sósialiskum flokki (og Alþýöubandalagiö er svoleiftis, ekki satt), má aldrei tala efta rita gegn betri vitund. Hans hlutverk erauftvitaft allt annaft og meira. Hann verftur aft láta alþýöunnii té sannar upplýsingar, til þess aö hún skilji hlutina til fulls. Aö öftr- um kosti er hægt aft leifta flokkinn á villigötur. Og presturinn á Þingeyri talar ekki um Júdas //Sáluga" „Þaö má vel vera aft gleymsk- an á höfuðsjónarmiftum vegna stundarhagsmuna, þessi barátta og eftirsókn eftir augnabliks- árangri án tillits til siftari afleiftinga, þ'essi fórnun framtiöar hreyfingarinnar fyrir nútift henn- ar, sé allt i ,,bestu meiningu” gert, en hentistefna er og verftur þaft, og hentistefna „i bestu meiningu” er ef til vill sú hættulegasta”. (F.Engels). Óhappamenn veröa jafnan aö gjalda verka sinna i umfjöllun sögunnar. Norðmenn tala ekki um Vidkun „heitinn” Quisling, italir ekki um Benito „sáluga” Mussólini, þjóftverjar ekki (almennt) um Adólf „heitinn” Hitler og sóknarpresturinn á Þingeyri talar ekki um Júdas „sáluga” Iskariot. Þó er prestur Framsóknarmaftur, og eins og þú veist eru „gr jótjötnar” fjármálanna háttskrifáftir á þeim bæ, en samt. Þú ættir aft taka þessar ábendingar minar til greina. Þær eru fram bornar i „bestu meiningu”. Svo er þaö þetta með hann Staltn Svo er þaft þetta meö nann Stalin. Einkennileg tilviljun aft þú skulir rangla upp á sjónarhól borgarstéttarinnar til aft svipast um eftir honum. Verkalýftsstéttin gerir sig hreint ekki ánægöa meft þá söguskýringu aft þaft hafi verift „slys aö hann komst til valda”. Helstu áhrifavaldar á gang liftinnar sögu eru ekki slys og tilviljanir, fremur en aft sú lög- málsbundna þróun til sósialisma sem nú á sér staft um heim allan er tengd tiöni snjóflófta og skriftu- falla á tslandi. „Saga mann- félagsins hefur fram aft þessu veriö saga stéttabaráttu.” (Kommúnistaávarpift). Sú skylda hvilir á forustumönnum sósialiskra flokka aft setja villur Staiins i rétt samhengi i staft þess aft slá um sig meft fáránlegum staöhæfingum. Skitkast aft dæmi borgarastéttarinnar og leigu- penna hennar er slikum forustu- mönnum þaftan af siftur samboö- ift, jafnvel þótt skitkastiö sé bæfti „samræmt og fornt”. Jósep Stalin vann hvorki afrek sin né framdi villur sinar af þeirri ástæftu aft hann „hafi verift send- ur i skóla grisk-kaþólskra guftfræftikreddum eistara i Tvilýsi.” Sigfús heitinn Sigur- hjartarson, Steinþór heitinn Guömundsson, Þorsteinn heitinn Valdimarsson og Gunnar Benediktsson voru allir (sendir?) i skóla lútherskra guftfræöi- kreddumeistara. En nóg um þaft. Aft þessu sinni pexa ég ekki vift þig frekar um Jósep Stalin, enda eru þessar h'nur orftnarmeiri aft vöxtum en ég ætl- afti I upphafi.Má vera aft ég skrifi I þér siftar til um hann o.fl. En ! þetta langar mig til aft segja þér I svona i lokin: A sama hátt og ég 1 er reiöubúinn aft gagnrýna þær I villur i starfi sem Stalin urftu á, einkum á siöustu æviárum sinum, er ég lika reiöubúinn aft verja 1 hvenær sem er, og hvar sem er, þaft sem hann gerfti rétt. Þaft er skoftun min aft séu villur hans bornar saman viö afrek hans, séu villurnar veigaminna atriftift. — Meft kveftju. ólafur Þ. Jónsson, vitavörftur, Svalvogum. meu iiuyuiuuiii fráokkur Flugeldar - blys - gos - solir - stjörnuljós SKIPARAKETTUR - SKIPABLYS - TIVOLÍBOMBUR OG INNIBOMBUR MEÐ LEIKFÖNGUM OG SPÁDÓMUM ÚTSÖLUSTAÐIR: REYKJAVÍK: Skátabúðin, Snorrabraut Volvosalurinn, Suðurlandsbraut Fordhúsið, Skeifunni Alaska, Breiðholti Við Straumnes, Breiðholti Seglagerðin Ægir, Grandagarði Hagabúðin, Hjarðarhaga. Við Kjötmiðstöðina, Laugalæk Við Hreyfilsstaurinn, Árbæjarhverfi Tryggvagata, gegnt Tollstöðinni GARÐABÆR: fþróttahúsið v/Blómabúðina Fjólu AKUREYRI: Ferðaskrifstofunni v/ Geislagötu Skipagötu 12 Söluskúr v/ Hrísalund Söluskúr v/Höfðahlíð ÍSAFJÖRÐUR Skátaheimilinu KÓPAVOGUR: Nýbýlavegi 2 Skeifunni, Smiðjuvegi Skátaheimilinu Borgarholtsbraut Leikskólanum v/ Vörðufell SUÐURNES: Skátaheimilinu Njarðvík Kjörbúð Kaupfélagsins Njarðvík Saltfiskverkun Rafns HF. Sandgerði Vogabær Vogum VESTMANNAEYJAR: Kaupfélagshúsinu Hólagötu 28 Skólaveg 4 Reyni v/ Bárugötu HVERAGERÐI: Hjálparsveitarhúsinu BLÖNDUÓS: Hjálparsveit skáta Blönduósi HUlill TIMimIMCá- Fjölskyldupakkarnir eru 10% ódýrari - Þeir kosta 2500 kr. - um MUU LKHMrrin: 4000 kr. og 6000 kr.. í hverjum fjölskyldupakka er leiðarvísir um meðferð skotelda - inn í 10 slíka leiðarvísa höfum við m sett 20 þúsund króna ávísanir. Það borgar sig að gæta vel að & / leiðarvísinum, hann færir öllum aukið öryggi - og 10 manns lalr— mm þar að auki 20 þúsund krónur. OPIÐ TIL KL. 10 Á HVERJU KVÖLDI 7r#n Flugeldamarkaóir j Hjálparsveita skáta 1

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.