Þjóðviljinn - 06.01.1978, Page 9
8 SIÐA — ÞJÓÐVILJINN Föstudagur 6. janúar 1978
Föstudagur 6. janúar 1978 ÞJÓÐVILJINN — SIDA 9
Viðtal við
Almar Grímsson,
deildarstjóra
Við gerð fjárlaga fyrir árið 1978 ákvað rikis-
stjórnin að skera niður framlag rikisins til greiðslu
á lyfja- og sérfræðiþjónustukostnaði fyrir sjúklinga
um 500 miljónir króna eða um 14%.
Ekki er enn ljóst hvernig þessum háifa miljarði
verður deilt niður á sjúklinga eftir lyfjum og aðstoð
en von er á nýrri reglugerð þar um bráðlega.
Lytjasala og
lyflaiönaöur
á íslandi
í áætlun Tryggingastofnunar
rikisins var gert ráð fyrir þvi, að
niðurgreiðslur sjúkrásamlag-
anna á árinu 1978 næmu 3,5 mil-
jörðum króna, en hlutur rikisins i
þeim niðurgreiðslum er'85% og
hiutur sveitarfélagan'na 15%.
Aárinu 1977 námu niðurgreiðsl-
ur sjúkrasamlaganna um 2,7
miljörðum króna.
Lyf eru eðlilega misdýr, en frá
þvi vorið 1974 hafa sjúklingar
greitt eina ákveðna upphæð fyrir
lyf og sérfræðiþjónustu, en
sjúkrasamlögin greitt afganginn.
Nú greiða menn 600 krónur
fyrirheimsókn til sérfræðings eða
fyrir röntgenmyndatöku, svo
dæmi séu nefnd, en 325 krónur
fyrir lyf sem eru á lyfjaskrá I
(innlend lyf) og 650 krónur fyrir
lyf sem eru á lyfjaskrá II (erlend
lyf).
Þjóðviljinn leitaði til Almars
Grimssonar, lyfjafræðings og
deildarstjóra i heilbrigisráðu-
neytinu og spurði hann fyrst,
hvernig ráðuneytið hygðist velta
þessum hálfa miljarði króna yfir
á lyfjakaupendur.
Almarsagði, að engin ákvöröun
hefði verið tekin um það enn, en
von væri á reglugerð um hækkaða
greiðslu sjúklinga innan skamms.
Hann sagði að nokkrar leiöir
kæmu til greina, þvíauk þess sem
rikið greiðir niður lyf og sérfræði-
þjónustu fyrir almenning, greiðir
það allan kostnaö fyrir sjúklinga
ef um lifsnauðsynleg lyf er að
ræða, t.d. hjarta- og hormónalyf
og geðlyf.
Ef þær greiðslur verða óbreytt-
ar, sagði Almar, og helmingnum,
þ.e. 250 miljónum, yrði dreift á
lyfin, myndi hver innlendur lyfja-
skammtur hækka í 500 krónur og
erlend lyf í 1000 krónur. Hinn
helmingurinn yrði þá látin dreif-
ast á sérfræðiþjónustuna.
Innlend lyf
eru ódýrari
Þegar þessi breyting var gerð
vorið 1974, sagði Almar, breyttist
heildarframlag rikisins og
heildargreiðslur sjúklinga ekki.
Niðurgreiðslunum var aðeins
jafnað niður á sjúklingana, til
þess að menn þyrftu ekki að
gjalda þess að þurfa að nota dýr
lyf -
Þessi breyting hefur verið mjög
vinsæl, ekki sist hjá þeim, sem
þurfa að nota mikið af lyfjum eða
mjög dýr lyf.
Innlend lyf eru að jafnaði ódýr-
ari en erlend sérlyf, og þvi fer
stærsti hluti niðurgreiðslnanna til
þess að greiða mismuninn á
erlendum lyfjum.
Almar sagði að lauslega áætlað
væru á milli 450 og 500 innlend lyf
á markaði hér, en 20 — 30 algeng-
ustu tegundirnar nema meira en
helmingi innlendrar sölu.
Að söluverðmæti til nema inn-
lend lyf um 20%, en að magni til
milli 30 og 40%.
Innlendir framleiðendur lyfja
eru Lyfjaverslun rikisins,
Pharmaco h.f. sem er rekið af
lyfjasölum i lándinu, Stefán Thor-
arensen h.f. og nokkur stærstu
apótekanna á landinu.
Influtt lyf
A sinum tima lagði heilbreigðis-
og tryggingaráðuneyti vinstri
stjórnarinnar fram frumvarp til
laga um sameiningu lyfjafram-
leiðslunnar hér á landi, en það
náði ekki fram að ganga.
Þá voru einnig gerðar tilraunir
til þess að sameina lyfjainn-
flutning til landsins, en nú flytja 7
lyfjaheildsölur inn lyf, en það
frumvarp náði heldur ekki fram
að ganga.
A árinu 1976 voru flutt inn tilbú-
in lyf fyrir rúmlega 900 miljónir
króna. Heildsöluálagning á
erlendum lyfjum er 17,1% og
smásöluálagning 75%. Heildsölu-
álagning á innlendum lyfjum er
14.6% og smásöluálagning 75%.
✓
Avísa læknar á
dýru lyfin?
Nokkuð hefurveriðum það rætt
að læknar ávisuðu á dýrari lyf en
nauðsynlegt væri, t.d. á erlend lyf
þegar til væru sambærileg og
ódýrari innlend lyf.
Almar Grimsson sagði, að hann
teldi þetta nokkuð algengt. Eg tel,
sagði hann, að læknar viti ekki
nægilega mikið um verðlag á ein-
staka lyf jum og ávisi þvf frekar á
dýrari lyf af ókunnugleika.
Það er mjög erfitt fyrir opin-
bera aðila, sem á siðasta ári
greiddu 1100 miljónir i almennan
lyfjakostnað, að beina lyfjanotk-
un inn á ódýrari brautir á al-
menna markaðnum, sagði
Almar, nema með skipulegri
fræðslu.
Nú er i undirbúningi hjá heil-
brigðisráðuneytinu i samvinnu
Almar Grlmsson, deildarstjóri.
við landlækni og iyfjanefnd
útgáfa fyrsta fréttabréfsins, sem
einmitt er ætlað það hlutverk.
Fréttabréfinu verður dreift til
lækna og lyfsala, en í þvi verða
ýtarlegar upplýsingar um ein-
staka lyfjaflokka og verðmun
innan þeirra, auk upplýsinga um
aukaverkanir lyfjanna.
Fréttabréfinu er einkum ætlað
að kynna læknum þann mikla
verðmun sem oft er á sambæri-
legum iyfjum, sagði Almar, og
við væntum þess að það beri
nokkurn árangur.
Spítalar nota 22%
Mun auðveldara er að stjórna
lyfjanotkuninni á spitölunum og
koma þar við sparnaði, en lyfja-
notkun spitalanna er um 22% af
allri lyfjanotkun i landinu.
A stærstu spitölunum hefur
verið komið á fót svokölluðum
lyfjanefndum, sagði Almar. Þeim
er ætlað það hlutverk að gæta
hagkvæmni i lyfjainnkaupum
m.a. með þvi að minnka úrvalið
og notkunina, þar sem þvi verður
við komið og einnig með því að
kaupa frekar ódýrari lyf ef þau
eru jafngóð.
Þessar lyfjanefndir eru tiltölu-
lega nýtt fyrirbrigði og eiga
væntanlega eftir að skila góðum
árangri.
Heildarumsetning lyfjaversí-
ana i landinu árið 1976 var tæpar
1700 miljónir króna; þar af seldust
lyf fyrir 1420 miljónir. Óhætt mun
að ætla að með innkaupum spit-
alanna hafi verið seld lyf hérlend-
is fyrir riflega 2 miljarða króna
eða tæplega 10.000 krónur á hvert
mannsbarn
Ný lyfjaskrá
frá 1. jan.
Núum áramótin gekk i gildi ný
lyfjaskrá, sem unnin hefur verið
af Evrópuráðinu. Þá verður hætt
að gefa út norrænu lyfjaskrána,
sem hefur verið notuð hérlendis.
Þessi breyting hefur töluverðar
afleiðingar fyrir islenskan lyfja-
iðnað, sagði Almar, þvi i norrænu
lyf jaskránni voru forskriftir fyrir
hverju lyfi, en i þeirri nýju verða
öll lyf skráð sem sérlyf, þ.e. með
einkaleyfi til framleiðslu. Innlend
lyfjagerð hefur hingað til verið
háð þvi að fá slikar forskriftir af
nýjum lyfjum, aðallega frá Dan-
mörku.
Auðvitað verður haldið áfram
að framleiða þau lyf sem for-
skriftir eru til fyrir, sagðiAlmar,
en þetta hefur i för með sér að
forskriftir að nýjum lyfjum
vantar.
Nýrra forskrifta má afla með
tvennum hætti; fyrirtækin geta
keypt framleiðsluleyfi frá öðrum
löndum eða gert forskriftirnar
sjálf.
Það er tiltölulega auðvelt; en þó
lyf jafræðingar geti gert forskrift-
irnar sjálfir, verður að prófa öll
ný lyf vandlega áður en þau eru
sett á markað.
Ef við eigum i framtiðinni að
geta boðið upp á ódýrari lyf, verð-
um við að stórefla innlenda fram-
leiðslu, sagði Almar, og beina
henni i virkan farveg.
Opinberir aðilar, heilbrigðis-
yfirvöld og sjúkrahús geta veitt
lyfjaiðnaðinum aðstoð með þvi að
veita aðstöðu til rannsókna og
prófana á nýjum lyfjum.
Ef þeirri aðstöðu verður ekki
komið upp, er hætta á að fram-
leiðslan staðni og aðeins verði
framleiddd þau lyf sem þegar eru
á markaði.
—AI.
Innlend lyfjaframleiðsla I Pharmaco
Á árinu 1977 qreiddu sjúkra-
samlögin 1100 miljónir í lyfja-
kostnaö/ 836 miljónir i læknis-
kostnað oq 742 miljónir í ýmsan
sjúkrakostnað/ eða samtals um
2/7 miljarða.
Á árinu 1978 er áætiað að 1470
miljónir þurfi til að greiða niður
lyf jakostnað/1120 miijónir fari í
iækniskostnað og 890 miljónir í
ýmsan sjúkrakostnað/ eða sam-
tals um 3/5 miljarða króna.
Þetta hefur ríkisstjórnin ákveð-
ið að skera niður um 500 miljón-
ir eða 14%
Tæplega 500 tegundir innlendra
lyfja eru á markaði hér. Sölu-
verðmæti innlendra lyfja er
20% en að magni til nema inn-
lendu lyfin 30-40% af sölunni.
Á árinu 1976 voru f lutt inn tilbú-
in lyf fyrir 900 miljónir króna en
það ár seldust lyf fyrir 1420
miljónir. Sé notkun spítalanna
tekin með í reikninginn, hefur
hver islendingur notað lyf fyrir
10.000 krónur á árinu 1976.
Nú greiða allir jafnt fyrir lyf,
hversu dýr sem þau eru.
Greiðslunum er jafnað niður til
þess að menn þurfi ekki að
gjalda þess að þeir verða að
nota dýr lyf.
Opinberir aðilar verða að veita
lyf jaiðnaðinum aðstöðu til þess
að prófa og rannsaka ný lyf ef
innlend lyfjaframleiðsla á ekki
að staðna.
af erlendum vettvangi
Danskt Watergate:
Persónunjósnir
stundaðar
í áratug
KAUPMANNAHÖFN 4/1 frá
Stefání Asgrimssyni, fréttaritara
Þjóðviljans:
Hægriöfgamaðurinn Hans Hetl-
er, sem i mörg ár hefur stundað
persónunjósnir fyrir leyniþjón-
ustu danska hersins, var hand-
tekinn og settur i gæsluvarðhald
2. janúar s.I. Hetler, sem að nafn-
inu til er ritstjóri vikuritsins Min-
ut, hefur stjórnað hópi njósnara,
sem höfðu það verkefni að hlera
um hin ýmsu félagssamtök og
halda skýrslur um þá starfsemi. t
einkaskjaiasafni Iietlers munu
vera upplýsingar um þúsundir
einstaklinga.
Handtaka þessi á sér langan
aðdraganda, og er upphaf máls-
ins að rekja allt til ársins 1968,
þegar upp komst að leyniþjónustu
hersins hleraði fundi ýmissa
vinstrisinnaðra félagssamtaka,
stúdentafélaga og félaga stofn-
aðra af mönnum, sem neituðu að
gegna herþjónustu. Þessar njósn-
ir þóttu mikið hneyksli á sinum
tima og sá rikisstjórnin sig til-
neydda að setja nýjar reglur um
starfshætti leyniþjónustunnar og
gefa út yfirlýsingu, sem hljóðaði
þannig i lauslegri þýðingu; „Rik-
isstjórnin hefur ákveðið að njósn-
ir um og skrásetning á háttsemi
danskra rikisborgara séóheimil á
þeim grundvelli einum, að við-
komandi starfi i löglegum stjórn-
málasamtökum.”
Vann lika fyrir Á.P.
Möller
Svo virðistaðeftir að þessi yfir-
lýsing var gefin hafi leyniþjónust-
an að einhverju leyti breytt um
starfsaðferðir, en engu að siður
haldiö áfram uppteknum hætti.
Árið 1969 hefur Hans Hetier
njósnastarfsemi sina og virðist
hafa komið viða við sögu. Meðal
annars hefur verið gott samband
milli hans og háttsettra manna i
stjórn auðhringsins A.P. Möller.
A.P. Möller rekur meðal annars
Maersk-stórútgerðina og flugfé-
lagið, hefur einkaleyfi á leit og
vinnslu oliu á dönsku landgrunni
og á námuvinnslu á Grænlandi i
félagi við bandariskt fyrirtæki.
Hefur upp komist að i sameiningu
hafa þeir Hetler og ráðamenn
A.P. Möller rannsakað feril f jölda
starfsmanna A.P.Möller. Hefur
fátt verið undanskilið i skráning-
unni og tind til atriði er varða allt
frá pólitiskum skoðunum til
framhjáhaids og matarvenja.
Siikar skýrslur hafa og verið
gerðar um aðra en sjómenn hjá
Maersk. Núverandi samgöngu-
málaráðherra, Kjeld Olesen, er
einnig á skrá og talinn vafasamur
laumukommi.
„Verkbeiðnir” leyni-
þjónustunnar
Samstarf Hetlers og leyniþjón-
ustunnar virðisthafa fariðþannig
fram ihöfuðatriðum að herforingi
nokkur, Ulrik Schmidt, kaptajn-
löjtnant að nafnbót, hefur skrifað
Hetler einskonar verkbeiðnir,
sem sá siðarnefndi hefur siðan
unnið eftir. Extrabladet hefur að
eigin sögn komist yfir heilmikið
af gögnum i þessu máli og meðal
annars birt ljósrit af einni slikri
beiðnidagsettri2.nóvember 1971,
stilaðri til Hans Hetler. „Verk-
beiðni” þessi fjallar um það að
varnarmálaráðherra Dana hafi
þá nýverið boðið kjarnorkumála-
nefnd Nató að halda næsta fund
sinn i Kaupmannahöfn i mai 1972.
Daginn eftir að ráðherrann lagði
fram boðið hafði þáð verið rætt á
fundi hjá Danmarks kommunist-
iske Ungdom (æskulýðssamtök-
um Kommúnistaflokksins) i
Grönnegade 37. Er Hans Hetler
þvi beðinn að safna upplýsingum
um allar fyrirætlanir Danmarks
kom m un i s tis ke Ungdom
(skammstafað DKU) og annarra
andstæðinga Nató, svo að koma
megi i tima i veg fyrir óeirðir og
ókyrrð af þvi tagi, sem átt hafi
sér stað i sambandi við fund Al-
þjóðabankans.
ÞóttHetler hafi sennilega feng-
ið flest fyrirmælin frá leyniþjón-
Hetlers er ekki gott að segja, en
svo virðistsem hann teljisighafa
veriðhlunnfarinná einhvem hátt.
Aðurnefndur Ulrik Schmidt hefur
hinsvegar trúlega talið sig hafa
það tak á Hetler að hann myndi
ekkert segja, sem gæti komið sér
illa fyrir leyniþjónustuna. Extra-
bladet heldur þvi fram, að ein-
hverntima ársins 1976 hafi Ulrik
Schmidt gert sér ferð heim til
Hetlers til að fá alla pappira og
bréf, sem reynst gætu leyniþjón-
ustunni skeinuhætt, og hefði Hetl-
er þ'á látið Schmidt hafa allt, sem
um var beðið, en verið búinn að
taka afrit af öllu saman áður.
Hans Hetler virðist nú um sinn
að minnsta kosti aigerlega hafa
hætt við að afhenda dómaranum
gögn þau, er hann sagðist hafa
undir höndum, og er nú á honum
að skilja að hann sé tilbúinn að
sitja i fangelsi þessvegna allt að
sex mánuðum, en hann var settur
i fangelsi á grundvelli laga-
ákvæðis um að ef eðlis málsins
krefðist, mætti halda vitni i
gæsluvarðhaldi allt að sex mán-
uðum.
Anker Jörgensen —Hetler segir stjúrn hans hafa fulla ástseöu til aö ótt-
ast efni njósnaskránna, sem hann neitar að segja til.
ustunni munnlega, þá hefur hann
fengið slikar skriflegar ,,verk-
beiðnir” þegar um stærri verk-
efni var að ræða, og hefur eftir
þvi sem næst verður komist feng-
ið 32 slíkar beiðnir á timabilinu
1969-73.
Hringing á aðfanga-
dagskvöld
Þegar Extrabladet hóf skrif sin
um þessi mál s.l. sumar og lagði
fram gögn um samvinnu Hetlers
og leyniþjónustunnar, var settur
á stofn sérstakur rannsóknadóm-
stóU, er starfaði að mestu fyrir
luktum dyrum. Litið mun hafa
komið út úr starfsemi dómsins
nema þó það, að ofannefnd
„verkbeiðni” var rakin til föður-
húsanna og taldist sannanlega frá
leyniþjónustunni. Aðspurður full-
yrti Hetler þá, að ekki væri um
fleiri beiðnir að ræða og hefði
aldrei verið. Eitthvað hefur samt
sem áður orðið til þess að hann
breytti þeim framburði og
hringdi i dómsforsetann, Frank
Poulsen, á s.l. aðfangadagskvöld
og kvaðst hafa fundið i fórum sin-
um 31 beiðni i viðbót. Poulsen bað
hann þá að koma með plöggin
strax, en Hetler bar þá ýmsu við
og siðast þvi, að þau væru á ótil-
teknum stað i Sviþjóð. Svo fór að
Poulsen dómara brást þolinmæð-
in og hneppti Hetler i varðhald.
Dularfullt sjónarspil
Hvað felst i þessu sjónarspili
Rikisstjórnin hrædd?
Hetier sagði fyrir réttinum i
fyrradagaðekkikæmitilmála að
hann afhenti gögnin réttinum og
bað siðan um að hann yrði ekki
ómakaður aftur næstu sex mán-
uðina. Þegar Hetler var færður úr
réttinum i fyrradag i fangelsið,
hafði danska sjónvarpið við hann
eftirfarandi viðtal:
„Hvað hugsarðu þér að sitja
lengi inni?”
„Allan timann,” svaraði Hetl-
er.
„Sex mánuði?” spurði sjón-
varpið.
„Já.”
„Hversvegna viltu ekki iáta
pappfrana af hendi?”
„Af þvi að það stendur svo
margt skemmtilegt i þeim,”
svaraði Hetler.
„Ertu hræddur um að rikis-
stjórnin geri eittluigð við pappir-
ana, eyðileggi þá eða láti þá týn-
ast, eða geri þér einhvern óleik?”
var spurt.
„Já, það er ég,” svaraði Hetler.
„Rikisstjórnin mun örugglega
reyna að láta eyðileggja pappir-
ana.”
„Ertu hræddur um að rikis-
stjórnin reyni eitthvað til að
skaða njósnara þina?”
„Það er ég lika. Rikisstjórnin
hefur þegar sýnt það.”
„Hefur rikisstjórnin ástæðu til
þess að óttast efni skjalanna?”
var spurt.
,,Já, það er vist alveg ábyggi-
legt,” svaraði Hetler.