Þjóðviljinn - 31.01.1978, Blaðsíða 16
DJODvium
Þriöjudagur 31. janúar 1978.
Aðalsimi Þjóöviljans er 81333 kl. J-21 mánudaga til föstu-
daga, kl. 9-12 á laugardögum og sunnudögum.
Utan þessa tlma er hægt aö ná i blaöamenn og aöra starfs-
menn blaösins i þessum simum: Ritstjórn 81382, 81527,
81257 og 81285, útbreiösla 81482 og Blaöaprent 81348.
81333
Einnig skal bent á heima-
sima starfsmanna undir
nafni Þjóöviljans I sima-
skrá.
Pólitísk embættisveiting:
Mikil reidi á
Austurlandi
Menn hafa sagt upp störfum hjá Vegagerðinni og sagt
sig úr Framsóknarflokknum vegna þessa máls
Nýverið skipaöi Halldór E.
Sigurösson samgöngumálaráð-
herra i embætti umdæmisverk-
stjóra Vegagerðarinnar á Austur
landi og fékk starfiö rafvirki frá
Reyöarfiröi, sem aldrei hefur
komiö nálægt vegamálum, en er
Framsóknarmaöur. A móti hon-
um sótti maöur, sem unniö hefur
hjá Vegagerðinni fyrir austan og
meö honum mælti umdæmisverk-
fræöingur stofnunarinnar eystra.
En hann var ekki framsóknar-
maöur og Eékk þvi ekki starfiö.
Þessi embættisveiting hefur
valdiö mikilli reiöi á Austurlandi,
einkum á Reyöarfiröi, þar sem
bækistöövar vegageröarinnar á
Austurlandi eru. Héldu starfs-
menn Vegagerðarinnar fyrir
austan fund með sér. sl. föstudag,
og þar var samþykkt að senda
samgöngumálaráöherra harðort
mótmælabréf vegna þessa máls,
svo og skoraöi fundurinn á raf-
virkjann sem fékk starfið aö
draga sig til baka og hafna þvi.
Svo mikil er reiði manna að
hópur manna er um þaö bila aö
segja upp störfum hjá Vega-
gerðinni, en mun sennilega biða
svars ráðherra viö bréfi þvi sem
honum var sent um helgina. Um-
dæmis verkfræöingur Vegagerö-
arinnar á Austurlandi, Björn
Þorvaröarson vildi ekki staöfesta
að hann heföi sagt upp störfum,
en viðurkenndi að það væri mikil
reiði og hiti i mönnum eystra útaf
þessu máli. Að ööru leyti vildi
hann ekki tjá sig um málið á
þessu stigi.
Þá má geta þess að 4 menn á
Reyðarfirði hafa sagt sig úr
Framsóknarflokknum vegna
þessa máls, svo mikið hefur
mönnum ofboðið þessi pólitiska
embættisveiting. Tómas Arnason
alþingismaður Framsóknar-
flokksins i Austurlandskjördæmi
hefur verið á Reyðarfiröi alla
siðustu helgi til að reyna aö lægja
öldurnar, en honum mun litiö
hafa orðið ágengt. —Sdór.
Þriðju talningu Framsóknar i Reykjavík lokið:
Röðin breyttist ekki
— en Kristján Benediktsson bætti við sig 100 atkvæðum — sem
höfðu gleymst. Grunur um kosningasvindl hreinsunardeildar
Þriðja og siöasta þætti I próf-
kjörsgamanleik Framsóknar-
ftokksins er nú lokið. Um helgina
voru talin I þriðja sinn atkvæði i
prófkjörinu. Við þaö breyttust
ekki niðurstöður um röð fram-
bjóðenda eins og eftir aðra taln-
ingu, en m.a. komu nú fram 100
atkvæði á Kristján Benediktsson,
borgarfulltrúa, sem gleymst
hafði aö reikna honum við hinar
talningarnar tvær!
Astæðan til þess að talið var
upp i þriöja sinn um helgina var
sú, að fram komu á milli 50 og 60
atkvæðum fleira við talninguna,
en svaraði til kjörsóknar. Skýr-
ingu kalla Framsóknarmennþað,
að fólkiö i kjördeildunum 20, sem
kosið var i, hafi merkt vitlaust viö
á lausum blöðum og öðruvisi en i
kjörskrám'.
Sterkur orðrómur er uppi um
kosningasvindl. Atti til dæmis að
fá prentlærðan mann til þess að
úrskurða h vort allir kjörseðlarnir
hefðu verið prentaöir i Prent-
smiðjunni Eddu, en amk. tveir
frambjóðendur halda þvi fram i
sinn hóp, að mörg hundruð kjör-
seðlar hafi komið upp úr kössun-
um, kjörseðlar sem hafi verið
prentaöir á vegum Skákprents,
en þar ræöur rikjum bróðir
mannsins úr „hreinsunardeild-
Framhald á 14. siðu
fyrir bókhlöðu
Vilhjálmur Hjálmarsson menntamálaráðherra tók fyrstu skóflustung-
una að Þjóðarbókhlöðu tslendinga á laugardagsmorgun. Hálfnað er
verk þá hafið er sagði hann við það tækifæri.
Bókhlaðan mun rfsa við Hringbraut og Birkimel. Hún mun sameina
helstu bókasöfn landsins og geyma meira en miljón binda. Nánar f
blaðinu á morgun (ljósm. Leifur)
Krataprófkjör
á Reykjanesi
Kratar höfðu prófkjör i þremur
kaupstöðum I Reykjaneskjör-
dæmi þessa helgi, i Ilafnarfiröi,
Kópavogi og f Keflavik. t tveimur
fyrrtöldu bæjuum voru ekki I
framboði bæjarfulltrúar krata á
þeim stöðum.
1 Kópavogi urðu úrslit þau, aö
Miðstjórn Alþýðubandalagsins:
Fordæmum notkun erlends
tjár í íslenskum stjórnmálum
Fjársvikin eiga rætur í viðskiptakerfí auðstéttarinnar
A fundi miöstjórnar Alþýðu-
bandalagsins s.l. föstudag og
laugardag varsamþykkt einróma
sú ályktun, sem hér fer á eftir:
Að undanförnu hefur hvert fjár-
svikamálið af öðru vakið athygii
og umtal almennings. Þessi fjár-
svikamál eru mörg hver tengd er-
lendum viöskiptum af margvis-
legu tagi. 1 þvi sambandi má
minna á gjaldeyrisreikningana i
Finansbanken, skipakaup erlend-
is og skilasvik á umboöslaunum.
Nú nýverið hefur komið fram aö
erlendir aðilar seilast til vaxandi
Itaka i islensku stjórnmálalifi,
auöhringar og erlendir stjórn-
málaflokkar. Þannig hefur komið
fram opinberlega að útgáfa AI-
þýðublaðsins verði kostuð að
verulegu leyti af erlendum
stjórnmálasamtökum
Miöstjórn Alþýðubandalagsins
telur það eitt brýnasta verkefni
islenskra stjórnmála að berjast
gegn þeim stórfelldu hættum sem
felast i vaxandi spillingu og aukn-
um áhrifum erlendra aðila á Is-
lenska stjórnmálastarfsemi og
efnahagslif. Miðstjórnin telur þvi
nauðsynlegt að gera þegar I stað
ráðstafanir til þess að sporna við
þessari háskalegu öfugþróun.
Bendir miðstjórnin í þvi sam-
bandi á nauösyn þess að gerð
verði itarleg rannsókn á öllum
gjaldeyrisskilum, innflutnings-
verslun og umboðslaunum. Þá er
augljós nauðsyn þess að endur-
skipuleggja bankakerfið með til-
liti til eftirlits og endurskoðunar
og einföldunar þess f heild. Enn-
fremur er brýnt að sett verði lög-
gjöf sem bannar islenskum
stjórnmálaflokkum að taka við
fjárstuðningi erlendis frá.
Forsendur spillingarinnar fel-
ast m.a. i verðbólgunni og við-
skiptakerfi auðstéttarinnar. Gegn
þvi stjórnkerfi I heild mun Al-
þýðubandalagið berjast, en for-
senda þess að unnt sé að heyja
árangursrika stjórnmálabaráttu
á Islandi er að komiö veröi I veg
fyrir fjármálaleg itök erlendra
aðila i islenskri stjórnmálastarf-
semi.
flest atkvæði i fyrsta sæti hlaut
Guömundur Oddsson. Kratar
höfðu þaðaf að fá einn mann kos-
inn i bæjarstjórn i Kópavogi við
siðustu kosningar.
1 Hafnarfirði hlaut Hörður
Zophaniasson flest atkvæði í
fyrsta sætið og Jón Bergsson i
annað sæti. Kratar fengu tvo
menn kjörna I bæjarstjórn f Hafn-
arfirði við siðustu kosningar.
í Keflavik hlaut ólafur Björns-
son flest atkvæði i fyrsta sæti.
Hann situr i bæjarstjórn fyrir
krata þar syðra, sem fengu tvo
menn kjörna við siðustu bæjar-
st jórnarkosningar. Guðfinnur
Sigurvinsson fékk flest atkvæöi i
annað sæti en Karl Steinar
Guðnason fékk flest atkvæði i
þriðja sæti. Hann bauö sig ekki
fram i fyrstu tvö sætin, en situr nú
I bæjarstjórn sem annar tveggja
bæjarfulltrúa krata. — úþ.
Ekki verður hlúð að
mannlifí í miðbænum
með því að rífa hann
t lok hins fjölmenna og vel
heppnaða útifundar á Hótel ts-
lands (eða Hallæris) -planinu á
iaugardaginn var eftirfarandi
ályktun samþykkt:
„Um leið og baráttufundurinn
lýsir yfir stuðningi við öll áform
um að hlúa aö mannlifi i mið-
bænum, mótmælir hann að það
verði gert með þvf aö rffa hann.
Þessi bær er sameign okkar
allra og enginn einn getur i
krafti eignarréttar ráðskað með
einstök hús hans. í stað þess að
hin dauða hönd viöskipta fái að
kæfa hann, hvetjum við til að
hafist verði handa um aö bæta
fyrir þau spjöll sem þegar hafa
verið unnin og mannlifi gert
kleift að dafna hér áfram og efl-
ast.” — eös
Loðnan:
Bara
kropp
Það viröist hvorki ganga né
reka hjá loönuveiðiskipunum enn
sem komiö er, og má segja að enn
séu loönuveiöarnar aöeins kropp.
t fyrri nótt fengu 14 skip 5 þúsund
lestir og var heildaraflinn þá orð-
inn 66 þúsund lestir, en var á
sama tima f fyrra 105 þúsund lest-
ir. Sæmilegur afli var um síðustu
helgi og á sunnudag tilkynntu 21
skip um samtals 10.850 lestir.
Ekki var hægt að fá nákvæmar
tölur um það i gær hvaöa skip
væri aflahæst, en eftir þvi sem
næst verður komist eru það örn
GK, Vikingur og Gisli Arni RE,
sem mestan afla hafa fengiö, eða
i kringum 3 þúsund lestir hver.
1 gærdag var komin bræla á
loðnumiðunum og ekki veiðiveður
en aðal veiöisvæðiö er nú n-a af
Melrakkasléttu og færist hægt og
bftandi austur. —S.dór