Þjóðviljinn - 17.02.1978, Page 14
14 StÐA — ÞJÓÐVILJINN. Föstudagur 17. febrúar 1978
1 kvöld veröur frumsýndur
fyrsti griski harmleikurinn sem
Þjóðleikhúsið ræðst I aö sýna.
Þaö er ödipus konungur eftir
Sófókles. Leikurinn veröur
fluttur I áöur óbirtri þýöingu
Helga Hálfdánarsonar. Helgi
Skúlason leikstýrir þessum
forngriska harmleik, leikmynd
er eftir Gunnar Bjarnason, og
búninga hefur Guörún Svava
Svavarsdóttir gert.
Gunnar Eyjólfsson leikur
titilhlutverkiö, ödipus konung,
Helga Bachmann leikur Jóköstu
drottningu og Rúrik Haraldsson
Kreon bróöur hennar.
Yfir 30 manns koma fram i
sýningunni, þar á meðal ýmsir
helstu leikarar Þjóöleikhússins.
Valur Gislason leikur Teiresías
spámann, Ævar R. Kvaran
prest og einnig eru Þorsteinn ö.
Stephensen, Baldvin Halldórs-
son og Hákon Waage í mikil-
vægum hlutverkum. Ótalinn er
þá tólf manna talkór undir for-
ystu Róberts Arnfinnssonar.
Aörir i kórnum eru Kristbjörg
Kjeld, Þóra Friöriksdóttir, Her-
dis Þorvaldsdóttir, Guöbjörg
Þorbjarnardóttir, Guörún Þ.
Stephensen, Helga Jónsdóttir,
Flosi Ólafsson, Bjarni Stein-
grimsson, Sigmundur örn Arn-
grimsson, Klemens Jónsson og
Eyvindur Erlendsson. Einnig
koma fram nokkur börn og hóp-
ur leklistarnema.
ödipus konungur hefur ekki
verið fluttur áöur hérlendis, en
leikurinn er talinn meöal önd-
vegisverka leikbókmenntanna
og reyndar þekktasta leikrit
• •
Frumsýning i
Þjóðleikhúsinu
í kvöld:
Borgarar I Þebu.
Odipus konungur
eftir Sófókles
höfundar. Þjóöleikhúsiö hefur
áöur sýnt eitt forngriskt leikrit,
gamanleikinn Lýsiströtu eftir
Aristófanes. Leikfélag Reykja-
vikur sýndi fyrir nokkrum árum
annaö leikrit eftir Sófókles,
Antigónu, einnig I þýöingu
Helga Hálfdánarsonar og undir
stjórn Sveins Einarssonar.
Sófókles (494-406 f. Kr.) er
einn þriggja frægustu harm-
leikjahöfunda frá blómaskeöi
griskrar leikritunar, auk Æski-
losar og Evripidesar. Sófókles
samdi á annaö hundraö leikrit,
en einungis 8 þeirra hafa varö-
veist. Þekktust þeirra eru
Þebu-leikirnir svonefndu: ödi-
pus konungur, ödipús i Kólonos
og Antigóna. Þessi þrjú Ieikrit
eru samfelld aö efni en hvert um
sig þó sjálfstæö verk, enda eru
þau ekki samin sem reglulegur
þrileikur.
Frumsýningin á ödipusi kon-
ungi veröur i kvöld eins og áöur
segir, kl. 20 og önnur sýning
veröur sunnudagskvöldið 19.'
febr. kl. 20.30.
Gunnar Eyjólfsson (ödipus konungur)
(Kreon). Ljósm. —eik.
Rúrik Haraldsson
Þorsteinn Jónsson, kyikmyndagerdarmaöur:
Raunhæf leid í þróun sjálf-
stæðrar kvikmyndagerðar á
íslandi
Nýlega birtist i blöðum grein
eftir Hrafn Gunnlaugss. um hvað
gerá þurfi i málum islenskrar
kvikmyndageröar. Hann bendir
þar á tvær leiðir: í fyrsta lagi að
kvikmyndagerðarmönnum verði
gert kleift að kaupa tæki til
kvikmyndageröar meö lánafyrir-
greiðslu eins og stendur öörum
iðnaði i landinu til boða. t ööru
lagi leggur hann til, aö framlög
einstaklinga til kvikmyndagerðar
verði undanþegin skattskyldu.
Mig langar til að taka undir
fyrri tillöguna, sem ætti raunar
að vera svo sjálfsagt mál að ekki
þyrfti um að ræða. Þótt
kvikmyndagerðarmenn vilji
gjarnan lita á kvikmyndina sem
listgrein fremur en iönað, er þvi
ekki að neita að framleiösla
kvikmyndar lýtur aö miklu leyti
sömu lögmálum og framleiðsla
hverrar annarrar iðnaðarvöru.
Gerðkvikmyndar geturekki farið
fram á sama hátt og önnur list-
sköpun. Hún krefst dýrra tækja
og samvinnu fjölda manns. Lán
til tækjakaupa ættu ekki siður aö
standa kvikmyndagerðarmönn-
um til boða en öðrum iðnaöi.
Stærsta vandamál Islenskrar
kvikmyndagerðar er þó ekki
skortur á tækjum. Ef lagt væri
saman eru til tæki i landinu til að
gera kvikmyndir einfaldar að
sniöi. I sjónvarpinu er aöstaöa til
aö klippaog vinna hljóö. Félag á
vegum kvikmyndageröarmanna
er i þann m und að koma sér upp
aðstöðu til hljóövinnslu.auk klipp-
ingar.og nokkrir kvikmyndagerö-
armenn eiga oröiö tökuvélar sem
notast má við til töku á leiknum
kvikmyndum á 16 mm filmu.
Kvikmyndagerð annarra landá
hefur byggst upp sem hver önnur
viöskipti fyrst með fjármagni frá
peningamönnum og siöan meö
fjármögnun gegnum bankakerfi.
Þannig lenti kvikmyndin i hönd-
um blindrar gróöahyggju með
þeim afleiöingum aö kvikmynda-
geröarmenn hafa aldrei notiö
nema örlitils brots þess tjáning-
arfrelsis, sem listamenn njóta i
öðrum greinum. Aöferðin til að
spyrna gegn þessu hefur reynst
vera sú i löndum Vestur-Evrópu
að veita fé af opinberri hálfu til
kvikmyndageröarmanna og
frelsa þá með þvi undan gróða-
hyggjunni, sem sjaldan á samleið
meö menningarlegri kvikmynda-
gerö. Fyrir þetta framlag hins
opinbera greiða kvikmyndagerð-
armenn meðþvi aðkynna þjóðlif I
hverju landi á alþjóðlegum vett-
vangi og reka áróður fyrir menn-
ingu þjóðar sinnar með þessu
máttugasta áróðurstæki nútim-
ans.
Nú má vera að Hrafn Gunn-
laugsson eigi við framlög vel
meinandi hugsjónamanna til
framleiðslu mannbætandi kvik-
mynda, þegar hannleggur til að
framlög til kvikmyndagerðar
verði undanþegin skattskyldu.
Öskandi væri aö þjóðin ætti slika
hugsjónamenn. En hitt er vist aö
þetta myndi vera til mikils gagns
fyrir þá tegund fjáreignamanna,
sem hafa stóran hluta kvik-
myndagerðar heimsins i höndum
sér, bæði kvikmyndageröarmönn-
um og almenningi til mikils ó -
gagns. Meö þvi aö stuöla að slikri
fjármögnun kvikmynda er ekki
verið aö stiga skref fram á viö
heldur veriö að endurtaka sömu
mistökin og hafa átt sér staö I
öðrum löndum, þar sem kvik-
myndagerðamenn eiga I stööugri
baráttu við fjármálavaldið að fá
aðgera þær kvikmyndir sem þeir
telja framsæknar og mannbæt-
andi á þann hátt sem þeir hafa
kunnáttu til; að þeir hvorki þurfi
að gangast undir ritskoðun né séu
neyddir til aö setja i myndirsinar
efni, sem höfði til lægstu hvata
áhorfenda og seljist vel i þaö og
þaö skiptiö. Sé ætlunin aö skapa
þessari grein lifsskilyrði hér á
íslandi, þarf það að vera á þann
veg aö þessi sjónarmiö verði ekki
ofaná oghægt verði að framleiöa
kvikmyndir um málefni, sem
varða lifandi fólk I þessu landi i
staö mynda sem byöu upp á lifs-
flótta og andlegt s jálfsmorö af þvi
tagi, sem stór hluti kvikmynda-
framleiöslu heimsins er i dag.
Það sem gera þarf til þess að á
íslandi geti þróast þjóðleg sjálf-
stæð kvikmyndagerö er eftirfar-
andi:
1. Kvikmyndageröamenn þurfa
aö eiga kost á lánum eöa fram-
lögum úr sérstökum sjóöi til
einstakra kvikmynda. Sjóöur-
inn þarf aö vera svo stór aö
hann geti veitt umtalsverðu
fjármagni til a.m.k. tveggja
leikinna kvikmynda auk heim-
ildakvikmynda á ári hverju.
Frumvarp um kvikmyndasjóð
hefur verið lagt fram á Alþingi
af ménntamálaráöherra, og
vonandi ber þjóöin gæfu til aö
þaö veröi samþykkt og fjár-
magn tryggt til sjóðsins þannig
að hann komi að gagni.
2. Til viðbótar framlagi sjóösins
ætti islenska sjónvarpið að
leggja fram allt að helmingi
kostnaðar sem greiöslu fyrir
sýningarrétt i sjónvarpi á
íslandi og ef til vill á Norður-
löndum eftir að viðkomandi
kvikmynd hefur veriö sýnd i
k'vikmyndahúsunum. Þar fengi
sjónvarpið islenskar kvik-
myndir til sýninga á hálfvirði
miðað viö aö þurfa að standa i
framleiðslu þeirra sjálft og
gætiauk þess selt þær áfram til
sjónvarpsstööva á Norðurlönd-
um.
3. Gera þarf samkomulag við
Þorsteinn Jónsson
stjórnendur kvikmyndahúsa
sem mörg hver eru rekin af
opinberum aðilum og félags-
samtökum um sýningar á
islenskum kvikmyndum á viö-
ráöanlegum kjörum þannig aö
ágóðinnnýtist iáframhaldandi
framleiðslu islenskra kvik-
mynda og kvikmyndasjóðurinn
endurnýist.
Framhald á bls. 21'