Þjóðviljinn - 16.03.1978, Blaðsíða 10
íslandsmótið í handknattleik:
Umsjón: Stefán Kristjánsson
„FRAM-JARÐARFOR”
í HAFNARFIRÐI
Haukar sigruðu Fram 32:18
Hafi eitthvert lið einhvern
tima verið tekið i kennslustund i
handknattleik þá var það i gær-
kvöldi. Þá léku Haukar og Fram
og er skemmst frá þvi að segja
að leiknum lauk með yfirburða-
sigri Hauka 32:18.
Haukar voru i essinu sinu i
gærkvöldi. Það fengu Framarar
svo sannarlega að reyna. Engu
likara en um jarðarför væri að
ræða. Haukar byrjuðu leikinn
með miklum látum og djöful-
gangi og eftir að leiknar höfðu
verið 8 minútur var staðan 6:1,
Haukum i vil. Eftir það fóru
Framarar að ranka við og náðu
aðminnka muninn niður i 8:7 en
eftir það settu Haukarnir á fulla
ferð áfram og ekki var að sök-
um að spyrja: Staðan i leikhléi
var 15:8, Haukum i vil.
1 siðari hálfleik var um enn
meiri yfirburði Hauka að ræða.
Þeir hreinlega möluðu Framar-
ana og ekki var heil brú i leik
Fram. Eftir að leiknar höfðu
verið 5 minútur af siðari hálfleik
var staðan orðin 21:8 og leikn-
um var lokið frá bæjardyrum
Fram séð.
Þar örlaði ekki fyrir baráttu
né leikgleði. Þessu var öfugt
farið hjá Haukunum. Þar var
barist um hvern bolta og ekkert
gefið eftir. Leiknum lauk siðan
eins og áður sagði með stórsigri
Hauka 32:18.
Það er greinilegt að lið Hauka
er að verða mjög sterkt. 1 liðinu
er engin stórstjarna, heldur
margir mjög góðir leikmenn og
þeir vinna mjög vel saman.
Það er fyrst og fremst ástæð-
an fyrir velgengni liðsins.
Erfitt er að gera upp á milli
einstakra leikmanna, þeir léku
allir skinandi vel.
MÖRK HAUKA: Andrés
Kristjánsson og Stefán Jónsson
5 hvor, Elias Jónasson, Þórir
Gislason og Sigurður Aðal-
steinsson, allir 4 mörk, Ólafur
Jóhannesson og Þorgeir Har-
aldsson 3 mörk hver, Ingimar
Haraldsson 2, og þeir Sigurgeir
Marteinsson og Arni Her-
mannsson eitt mark hver.
Lið Fram var ekki uppá
marga fiska að þessu sinni. Lið-
ið lék eins og það verst getur,
enda árangurinn eftir þvi.
MöRK FRAM: Arnar Guð-
laugsson og Atli Hilmarsson 3
hvor, Gústaf Björnsson, Jó-
hannes Stefánsson, Sigurbergur
Sigsteinsson og Pétur Jóhann-
esson,allir tvö mörk, og þeir
Ragnar Hilmars-
son, Birgir Jóhannsson, Jens
Jensson og Árni Sverrisson,allir
eitt mark. SK.
Andrés Kristjánsson átti mikinn þátt I sigri Hauka i leiknum gegn Fram. A meðfylgjandi mynd sést
hann skora eitt af fimm mörkum sinum.
Körfuknattleikssambandið
skuldar Herði 250 þúsund
Vegna keppnisferðar til Reykjavíkur. Félagið átti að leika sjö leiki
en gat aðeins leikið tvo vegna lélegrar framkomu KKÍ-manna
Ekki hefur þeim er þetta ritar
orðiö fárætt um peningavanda-
mál iþróttahreyfingarinnar 1
landinu. enda ekki ástæða til.
Fátt held ég að sé svivirðilegra
en þegar févana lið utan af
landieru dregin á asnaeyrunum
til Reykjavikur til keppni og sið-
an þegar liðið kemur til höfuð-
borgarinnar veröur ekkert úr
fyrirhuguðum leikjum. Skal hér
rætt um eitt slikt atriði sem eng-
in ástæða er til að fara i grafgöt-
ur með
Eins og flestum er kunnugt
stendur nú yfir Islandsmót I
körfuknattleik. Mikill misbrest-
ur hefur orðið á niðurröðun
leikja i þvi móti. Hér skal tekið
litið en jafnframt alvarlegt
dæmi um slikt.
Eitt þeirra liöa sem leika i
yfirstandandi Islandsmóti er lið
Haröar frá Patreksfirði. Um
siðustu helgi, nánar tiltekiö á
föstudag.kom liðið i bæinn meö
þrjá flokka þ.e. M.fl. félagsins
og 2. fl. kvenna og 3. fl. karla.
Allt gekk vel 1 sambandi viö M.
flokkinn en aðra sögu er þvi
miður að segja um hina flokk-
ana.
2. flokkur kvenna:
Lið Harðar kom i bæinn og
átti samkvæmt leikjabók KKl
aðleika þrjá leiki. Fyrsti leikur-
inn átti að vera gegn Fram. en
þegar til kom var liö Fram búiö
að draga sig út úr íslandsmót-
inu og þar af leiðandi fór sá leik-
ur ekki fram. Nú,en næsti leikur
átti að fara fram á sunnudaginn
og átti Hörður þá að leika gegn
KR. Sömu sögu var að segja um
þann leik og leikinn gegn Fram.
Lið KR hafði dregið sig úr
keppninni og þar af leiðandi fór
sá leikur ekki fram. Loks átti
liðið að leika gegn IR, og vitiö,
menn: Sá leikur fór fram.
3. flokkur karla:
Samkvæmt leikjabók KKI átti
Hörður að leika þrisvar sinnum
gegn Armanni. Það gat ekki
staðist.og þvi hafði þjálfari liös'-
ins, Sigurður Viggósson, sam-
band við formann mótanefndar
KKI, Kristin Magnússon, og
spurði hann hvernig stæði á að
málum væri svo háttað. Sagði
hann að um misskilning væri að
ræða og að Hörður ætti að leika
gegn IR á sunnudaginn 1 stað
Armanns. Vitanlega varö sá
leikur ekki leikinn, þvi að ekki
hafði verið haft samband við IR-
inga um þessa ákvörðun. (Ég
undirritaður þjálfari 3. flokks
1R talaöi við formann móta-
nefndar á laugardag og spurði
hann að því hvort rétt væri sem
ég hefði frétt frá þeim Patreks-
firðingum aö við ættum að leika
gegn Heröi. Sagði hann það af
og frá. Hörður ætti að leika gegn
Armanni.)
Það var svo loks á þriðjudags-
kvöldiö að Hörður og IR léku og
var það fyrir þá miskunn að 1R-
ingar lánuðu tíma sinn þann dag
~svo að leikurinn gæti farið fram.
Þessi framkvæmd og fram-
koma KKI er vægast sagt léleg
og skal það nú rökstutt enn bet-
ur.
Lið Fram og KR höfðu löngu
áöur en að umræddri keppnis-
helgi kom dregiö sig út úr mót-
inu og gátu þeir hjá KKI þvl
löngu verið búnir að láta þá 1
Herðivita. Það skal tekið fram
hér að samband var haft við
Sigurð Viggósson þjálfara á
Patreksfirði og honum sagt
tveimur dögum áður en aö liðið
lagði af stað að Fram heföi
dregið sig út úr mótinu og þvi
yrði ekki um leik að ræða þar.
Ekkert var minnst á KR. Sig-
urður Viggósson var búinn að
standa i miklum samningavið-
ræðum við skólayfirvöld á
Patreksfirði til þess að fá kepp-
endur liösins lausa úr skólapróf-
um og þvi var þessi timi, tveir
dagar, of stuttur fyrirvari svo
hægt væri að draga allt sem áð-
ur var gert til baka.
Ekki var þessi framkoma
þeirra hjá KKI íullkomnuð enn.
Ekki nóg komið. Þegar þeir
komu til Reykjavikur fól
Kristinn Magnússon formaður
mótanefndar KKI Sigurði
Viggóssyni að útvega dómara
og annað starfsfólk á leiki þá er
Hörður átti að spila. Er það
örugglega einsdæmi að lið sem
kemur langt að utan af landi sé
látið útvega dómara og starfs-
fólk á sina leiki i Reykjavik.
Formáður mótanefndar fann
enga köllun hjá sjálfum sér til
að kippa þessum málum i lag
fyrst þau voru ekki i lagi á ann-
að borð. Þetta er afarléleg
framkoma, vægt til orða tekið.
Þá er eftir að taka fyrir alvar-
legustu hlið málsins, en það er
peningahliðin. Þaðer ljóst að lið
Harðar tapar á þessari bless-
aðri ferð til Reykjavikur um það
bil 250 þúsundum króna. Já, 250
þúsund til svo að segja einskis.
Það er augljóst og það sér hver
heilvita maður, nema þeir sem
ráða gangi mála hjá KKl, að
’ þetta eru miklir peningar. Það
er ekki von að þeir geri sér grein
fyrir þvi, að lið eins og Hörður
eigi akkúrat enga peninga, þvi
þeir vaða sinar miljónaskuldir
upp að hnjám á hverjum degi.
Það siðasta sem gerðist var
það að Sigurður Viggósson
hefur krafist þess að þeir hjá
KKI endurgreiði Herði allan
kostnað I sambandi viö um-
rædda keppnisferð til Reykja-
vikur. Þaðer lágmarkskrafa og
verður gaman að fylgjast meö
þvi hvernig KKl bregst við
þeirri réttlátu kröfu.
SK.