Þjóðviljinn - 12.04.1978, Qupperneq 2

Þjóðviljinn - 12.04.1978, Qupperneq 2
2 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Miðvikudagur 12. aprll 1978 r 2000 Islendingar vinna i þjónustu hersins: Hefur fjölgaö um 700 Um þessar mundir dvelja 5000 Bandarlkjamenn á Suðurnesjum og ekk- ert bendir til þess að þeim eigi eftir að fækka á næstunni. Allt bendir til þess að herinn sé að búa sig undir varanlega dvöl á landinu,m.a. eru fyrirhugaðar áframhaldandi ibúðabyggingar á vellinum á þessu ári. 70% þeirra eru Suöurnesjamenn Frá því að núverandi rikis- stjórn tók við völdum 1974 hafa umsvif bandariska hersins vaxiö stórlega hér á landi. Hjá Banda- ríkjaher beint vinna nú 1000—1100 íslendingar, i stað 700 áður. Hjá islenskum aðalverktökum og Kefla vikurverktökum vinna 600—700 manns, en voru áður 350—400. Hjá ýmsum öðrum þjón- ustufyrirtækjum vinna þarna um 300 manns, en voru áður 200. Alls vinna þvi um 2000 íslendingar i þjónustu hersins, og hefur fjölgað um 700 manns. Hér eru ekki með- taldir þeir islendingar, sem inna af höndum margvisleg af- greiðslu- og þjónustustörf utan og innan vallar jöfnum höndum i þágu herliðsins og islenskra að- ila. Auk þessarar miklu fjölgunar islensks starfsliðs á vellinum, hefur smám saman orðið sú breyting, að Suðurnesjamönnum hefur fjölgað þar hlutfallslega, en starfsmönnum af Reykjavikur- svæðinu fækkað að sama skapi. Er talið að um 70% þeirra Islendinga, sem nú vinna á veg- um hersins og i þágu hans séu Suðurnesjamenn, en 30% af Reykjavikursvæðinu. Nú eru tæplega 3000 hermenn og bandariskir starfsmenn hers- ,ins á Keflavikurflugvelli og aö auki konur ýmissa þeirra og börn, um 2000 manns. Alls eru það þvi um 5000 Bandarikjamenn, sem dveljast á Keflavikurflugvelli um þessar mundir. Á sama tima og sjávarútvegur á Suðurnesjum og allur atvinnu- rekstur i tengslum við hann er i lamasessi og þar liggur við stöðv- un, þá græða tslenskir aðalverk- takar svo um munar og munu auka veltu sina stórlega vegna mikilla framkvæmda sem fyrir- hugaðar eru á Keflavikurflugvelli á þessu og næsta ári. Þessar upplýsingar komu fram á Alþingi i i gær i ræðu Gils Guðmundssonar um utanrikis- mál, en umræður voru i gær á Alþingi um skýrslu utanrikisráð- herra um þessi efni. Tölur þær sem Gils birti voru byggðar á upplýsingum frá varnarmála- deild utanrikisráðuneytisins. Siðar verður greint frá umræðum um skýrslu utanrfkisráðherra. MÁLÞÓF í 9 ÁR INú mun málþóf vegna greiðslu af brunatjóni þvi sem ' varð er Iðnaðarbankinn i | Aöalstræti brann á árunum hafa ■ stðið yfir i niu ár, og er enn ekki | séð fyrir endann á þófinu. IA aðalfundi Iðnaðarbankans á dögunum vék formaður banka- ráðsins,Gunnar J. Friðriksson , að þessu máli og i fréttatilkynn- ■ ingu frá bankanum segir að | Gunnar hafi skýrt frá þvi, ,,að á ■ siðasta sumri hafi loks gengið ■ efnisdómur i málinu og hafi niðurstaöa dómsins verið á þá leið, að Húsatryggingar Reykja vikur skyldu greiða Iðnaðar- bankanum, Félagi islenskra iðnrekenda og Landssambandi iðnaðarmanna bætur, sam- kvæmt undirmati á sinum tima. Hin tildæmda upphæð hafi verið við dómsuppkvaöning- una rúmlega 10 millj. kr., þegar reiknaðir hafi verið einfaldir vextir, en hefði numið tæplega 45 milj. kr., væri tekið tillit til verðbreytinga. í samræmi við þennan dóm, hafi bankinn og samtökin ritað borgarráði bréf i október s.l. þar sem farið er fram á, að brunatjónið verði gert upp i samráði við niður- stöðu héraðsdóms og að látið verði af málþófi þvi, sem haldið hafi verið uppi i siðast liðin 9 ár. Svar við þessu erindi hafi bor- ist daginn fyrir aðalfundinn, og þar skýrði borgarstjóri frá þvi, að málinu hafi þegar verið áfrýjað til Hæstaréttar. For- maður bankaráðsins sagði, að likur væru á þvi, að Hæstiréttur mundi ekki dæma i málinu fyrr en árið 1979 eða 1980. Væri það hluthöfum bankans mikil von- brigöi, ef borgarráð ákvæði að halda málþófinu áfram og þar með að valda Iðnaðarbankan- um enn meira tjóni en þegar væri orðið vegna hinnar hröðu verðrýrnunar peninga.” Hætt er við að nokkurrar bjartsýni gæti i orðum banka- ráðsformannsins þegar hann gerir þvi skóna að dómur Hæstaréttar kunni að ganga á næsta ári eða þvi þarnæsta og viðbúið aö dæmdar bætur verði orðnar litils virði i krónum tald- ar i fyllingu timans. —úþ i ■ I i ■ I ■ I i ■ I ■ I ■ I ■ Annemarie Lorentsen Chen Feng Tveir nýir ambassadorar Nýlega afhcntu tveir nýir am- bassadorar hér á landi forseta íslands herra Kristjáni Eldjárn trúnaðarbréf sin. Þesir ambassadorar eru Annemarie Lorentzen frá Noregi og er hún fyrsta konan sem gegnir hér ambassadors- starfi fyrir Noreg. Hún er 56 ára gömul og var um tima þingmað- ur fyrir Verkamannaflokkinn i Noregi, og tvivegis hefur hún verið ráðherra, fyrst 1973 og svo aftur 1976 og gegndi i bæði skipt- in embætti samgöngumálaráð- herra. Hinn ambassadorinn er frá Alþýðulýðveldinu Kina, Chen Feng að náfni, 62 ára gamail og hefur áður verið ambassador lands sins i Burundi og Afganist- an. Fráfarandi ambassador Nor- egs hér á landi, Olof Lydvo.kom hingað 5.2. 1973, en frá 11.11. ’77 hefur Sven Knudsen sendifulltrúi veitt norska sendiráðinu hér for- stöðu. Fráfarandi ambassador Kina, Chen Tung kom hingað 8.9. 1976. —S.dór Frá aðalfundi Iðnaðarbankans Tekjuafgangur 9,5 miljónir Aöalfundur Iðnaðar- banka islands h.f. var haldinn fyrra laugardag, 1. april, á Hótel Sögu. Heildarinnlán i bankanum námu um s.l. áramót 4.842 milj. kr. og höfðu aukist á árinu 1977 um 1.318 milj. kr. eða 37,4%. Heildarútlán bankans voru í árslok 1977 alls 3.816 milj. kr. og höfðu aukist á árinu um 986 milj. kr. eða 34,8%. Á aðalfund- inum var ákveöið að auka Ný adferd til að losna við nýmasteina Vestur-þýsk stjórnvöld hafa leyft aö prófuð sé á mönnum aö- ferð sem getur gert óþarfan helm- ing þeirra skurðaðgerða sem nú eru framkvæmdar I þvi skyni aö fjarlægja nýrnasteina. Vfsindamálaraðuneytið i Bonn segir, að hér sé um merka nýjung að ræða sem ekki eigi sinn lika I heiminum. Hún er fólgin I þvi, að mögnuðum hljóöbylgjum er skot- ið á þessa kvalavaldandi steina. Hljóðbylgjurnar brjóta steinana niður i svo smágert duft, aö lik- aminn getur losnað við það meö þvaginu. Tilraunir meö þessa aðferö á dýrum hafa staöið yfir i fjögur ár og gengiö vel. Tilraunir á mönn- um verða reyndar i lok þessa árs við sjúkrahús háskólans I Munchen. Hljóðbylgjurnar eru magnaöar upp i sérstakri vél og er hægt aö stýra þeim á réttan staö af mikilli nákvæmni. Skothriðin á steinana varir aðeins i einn þúsundasta hluta úr sekúndu og skemmast nálægir vefir þvi ekki. Meðferö þessi er meö öllu sársaukalaus og henni fylgja engin eftirköst aö þvi er talsmaöur visindamálaráöu- neytisins hefur frá skýrt. Fylgst er með aðgerðinni með röntgengeislum, og steinabrot sem eftir kunna að verða eru „bombarderaðir” nokkrum sinn- um, þar til llkaminn getur sjálfur losnað við mulninginn: Frá aðalfundi Iðnaðarbankans hlutafé bankans í 500 milj. kr. Heildarinnlánin i bankanum námu i árslok 1977 samtals 4.842 miljónum króna og höfðu aukist á árinu um 1.318 milj. kr. eða 37,4%. Þetta væri hlutfallslega mesta aukning á einu ári i bank- anum s.l. 20 ár. Reksturskostnaöur bankans nam 325 miljónum króna og jókst á árinu um 44,5%. Er það minni hækkun en árið áður, en þá hækk- aði reksturskostnaður um 48,4%. Hæsti liður i rekstrarkostnaði er eins og áður launakostnaður en hann er um 73% af reksturskostn- aði. Meðalfjöldi starfsfólks jókst á árinu um 3,8% og væri það litil aukning miðað við aukin umsvif bankans, en færslufjöldi jókst um 13,3%. Tekjuafgangur bankans var 9,5 miljónir króna en var 29,4 miljónir króna áriö 1976. Eigið fé bankans nemur nú alls 462.3 milj kr. og jókst á árinu um 26,1%. Er eigið fé bankans 9,6% af heildarinnlánum hans. Bókfært verð fasteigna bank- ans er nú 632.8 milj. kr. og var aukning milli ára 229.6 milj. kr. Eru fasteignir bankans bókfærð- ar á 90% af fasteignamatsverði. A aðalfundinum var samþykkt að greiða hluthöfum 10% arð. Þá var samþykkt að fjórfalda hlutafé bankans, sem nú er 45 milj. kr. með útgáfu jöfnunarhlutbréfa og nemi hlutaféö að þvi loknu 180 milj kr. Einnig samþykkti aðal- fundurinn að hlutafé bankans yrði aukiö með útboði nýs hlutafjár, þannig að þaö verði alls 500 milj kr. og var bankaráði falið að framkvæma þá samþykkt. Formaöur bankaráðs lönaöar- bankans, sem er aö 72% i eigu einstaklinga en 28% i eigu rikis- ins, er Gunnar J. Friðriksson, iðnrekandi. Bankastjórar eru þeir Pétur Sæmundsen og Bragi Hannesson. _ úþ Mikil eftirspurn eftir dáleiðslu Eftir að nálastungur og hug- ieiðsla hafa veriö i tlsku kemur upp ný tiska i Bandarikjunum: menn fara ekki til læknis, heldur til dávalda. Takmarkaður árangur (og oft- ast ekki langvinnur) næst einatt með dáleiðslu i baráttu við ofát, reykingar og áfengissýki. Enda segjast heiðarlegir dávaldar ekki geta læknaö vanda fólks, heldur hjálpað mönnum til sjálfshjálpar.

x

Þjóðviljinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.