Þjóðviljinn - 12.04.1978, Page 6
6 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Miövikudagur 12. aprfl 1978
Tillaga Helga Seljan og Vilborgar Harðardóttur:
Fjármagn verði aukið
til verkamannabústaða
Stofnaöur nýr lánaflokkur
til endurbóta á eldri íbúöum
lleigi Seljan og Vilborg
liaröardóttir hafa lagt fram á
Alþingi tillögu um húsnæöismál
þar sem skoraö er á rikisstjórn-
ina að beita sér fyrir þvi, að við
endurskoöun þá, sem nú fer
fram á lögum um llúsnæöis-
málastofnun rikisins verði
ákveöin atriöi sérstaklega tekin
til athugunar. Tillögunni fylgir
ýtarleg greinargerö sem birt
verður siðar, en þau atriði sem
lagt er til i tillögunni aö tekin
verði til sérstakrar athugunar
eru eftirfarandi:
„1. Fjármagn til byggingar
verkamannabústaöa veröi
aukið verulega og sveitar-
félögum gert kleift og skylt
að byggja verkamanna-
bústaði, enda verði hlutdeild
rikisins i lánveitingum til
þeirra aukin.
Jafnframt verði aukin og
bætt fyrirgreiðsla til þeirra
sveitarfélaga sem byggja
leiguibúðir.
2. Lán úr Byggingarsjóði rikis-
ins verði hækkuð verulega til
þeirra fjölskyldna sem ekki
eiga ibúð og ekki hafa átt
ibúð á s.l. 5 árum. Verði við
það miðað að slik lán nemi
allt að 60% af byggingar-
kostnaði ibúðar i fjölbýlis-
húsi, eins og hann er á hverj-
um tima, samkvæmt
útreikningum Hagstofu
Islands.
Lán þessi verði veitt tii
Helgi Seljan
byggingar eða kaupa á nýj-
um ibúðum og einnig til
kaupa og endurbóta á eldri
ibúðum.
3. Við ákvörðun á lánakjörum
hjá Byggingarsjóði rikisins
verði við það miðað, að
árlegar afborganir, vextir
og visitöluálag af lánum
sjóðsins til hverrar ibúðar
fari aldrei yfir 20% af laun-
um fyrir 8 stunda vinnu
samkvæmt 2. taxta Dags-
brúnar.
Vilborg llaröardóttir.
4. Stofnaður verði nýr lána-
flokkur til endurbóta á eldri
ibúðum. A þann hátt verði
dregið úr þörfinni fyrir
byggingu nýrra bæjarhverfa
og kostnaðarsamra opin-
berra mannvirkja til þjón-
ustu við ibúa þeirra hverfa.
Um framkvæmd slikrar
endurbyggingar verði tekin
upp samvinna við sveitarfé-
lögin um nýtingu á eldri
bæjarhverfum og þeim
mannvirkjum sem þar eru.”
FYRIRSPURN SVÖVU JAKOBSDÓTTUR:
Lögfræðiþjónusta
fyrir efnalítiö fólk
,,Hvað hefur rikisstjórnin gert
til að koma á fót lögfræöiþjónustu
fyrir efnalitið fólk i samræmi við
þingsályktunartillögu sem visað
var til rikisstjórnarinnar meö
jákvæðri umsögn 16. mai 1975”.
Þannig hljóðar fyrirspurn sem
Svava Jakobsdóttir hefur lagt
fram á Alþingi og beinir til dóms-
málaráöherra. Þingsályktunar-
tillaga sem hér er visað til var
lögð fram á Alþingi 1975 og voru
flutningsmenn hennar Svava
Jakobsdóttir og Ragnar Arnalds.
Tillaga þeirra var svohljóðandi:
„Alþingi ályktar að fela dóms-
málaráðherra að sjá til þess, að
komið verði á fót lögfræði-
þjónustu fyrir efnalitið fólk
óháðri gjaldskrá Lögmanna-
félags Islands.”
1 greinargerö er fylgdi þings-
ályktunartillögunni 1975 sagði
m.a.:
„Það er vitað og viðurkennt að
margt efnalitið fólk veigrar sér
við að leita lögfræðilegrar að-
stoðar er vanda ber að höndum
sakir kostnaðarins er þvi fylgir.
Er engan veginn verjandi að fólk
eigi þess ekki kost að reka réttar
sins sakir efnaleysis. Brýnt er þvi
að leysa vanda þessa fólks með
þvi að koma á fót hið allra fyrsta
réttaraðstoð sem óháð sé gjald-
skrá Lögmannafélags Islands.
Slik réttaraðstoð tiökast annars
staðar á Norðurlöndum, m.a. i
Sviþjóð, Danmörku og Noregi, og
hefur skipan slikrar aðstoðar ver-
iði endurskoðun þar á undanförn-
um árum. 1 þrem ofangreindum
löndum starfa sérstakar stofnan-
ir sem veita réttaraðstoð. t
Noregi t.d. eru almennar lög-
fræðilegar upplýsingar veittar án
endurgjalds. Arið 1973 gengu i
gildi ný lög um lögfræðiaðstoö án
endurgjalds i Sviþjóð. Samkvæmt
hinum nýju lögum Svia um þessi
efni er gert ráð fyrir, að 30 rikis-
reknar lögfræðisskrifstofur veröi
starfandi viðs vegar um landið,
og er hlutverk þeirra að sinna
þeirri lögfræðiaðstoð, sem lögin
gera ráð fyrir. Lögfræðiskrifstof-
ur i einkaeign geta einnig veitt
Svava Jakobsdóttir
lögfræöiaöstoö i samræmi við hin
nýju lög, en þeim er það i sjálfs-
vald sett. Upplýsingar um fyrir-
komulag réttaraðstoðar i þessum
löndum er að finna i grein eftir
Gunnar Eydal i Timariti lögfræð-
inga 4. hefti 1973. Er sjálfsagt að
halda svo á þessu máli hér,
aðhliðsjónsé höfð af reynslu ann-
arra Norðurlandaþjóða’
ustu fyrir efnalitið fólk staðar á Norðurlondum, m.a. í ur j einkaeign geta einnig veitt arra Norðurlandaþjóða”.
llaga 5 Alþýdubandalagsmanna um þjónustu-og úrvinnsluidnad i sveitum
„Þjónusta í syeitunum
styrkir búsetuna”
í siðuslu viku mælti lielgi Selj-
n fyrir þingsályktunartillögu
em hann flytur ásamt Ragnari
rnalds, Stefáni Jónssyni, Jónasi
rnasyni og Garðari Sigurðssyni
m þjónustu- og úrvinnsluiðnað i
veitum. Tillagan er svohljóð-
indi:
„Alþingi ályktar að fela rikis-
itjórninni að beita sér fyrir sér-
itökum stuðningi opinberra aðila
nð stofnun þjónustu- og úr-
nnnsluiðnaðar i sveitum.
3yggðadeild Framkvæmdastofn-
inar rikisins skal falið að
'annsaka möguleika smáiðnaðar
sveitahreppum, safna hug-
nnyndum um hugsanlegar fram-
leiðslugreinar, kanna viðhorf og
áhuga heimamanna viðs vegar
um land og gera áætlun um fram-
kvæmd.
Við undirbúning þessa máls ber
einnig að taka mið af þeirri alls-
herjarathugun og tillögugerð
varðandi atvinnumöguleika aldr-
aðra, sem samþykkt hefur verið á
Alþingi. Jafnframtskal Lánasjóði
Framkvæmdastofnunar rikisins
falið að veita heimaaðilum að-
stoð i stofnuifyrirtækja,sem kom-
iö er á fót samkvæmt þessari
áætlun og skipuleggja fjár-
magnsöflun til framkvæmda.
Sérstaklega ber að kanna mögu-
leika á stofnun framleiðslusam-
Vélstiórafélag íslands
29933
Vélstjórafélag íslands er flutt i Borgartún
18 er nýja simanúmerið 2 99 33.
Eldri númerum verður sagt upp.
Vélstjórafélag íslands.
vinnufélaga i sveitum ogskal þvi
rekstrarformi veittur sérstakur
stuðningur. Stuðla ber að þvi, að
veitt verði óafturkræf framlög úr
Byggðasjóði eða rikissjóði tíl
stuðnings smáiðnaði i sveitum,
allt að 15% stofnkostnaðar. Þegar
ár er liðið frá samþykkt þessarar
tillögu skal rikisstjórnin gefa
Alþingi skýrslu um framkvæmd
hennar.”
3 bréf að austan
Tillögu þessari fylgir ýtarleg
greinargerð sem birt hefur verið
hér i blaðinu. I framsöguræðu
sinni sagði Helgi að aðalkveikjan
að tUlögunni væri bréf frá fólki á
Austurlandi, sem telur að ein-
hvers markviss átaks sé þörf,
umfram það sem beint snertir
búskaparhliðina, ef búskap eigi
að tryggja i sveitum. Helgi las
siðan stutta kafla úr þremur
þessara bréfa.
1 fyrsta bréfinu segir: „Það er
ekki vansalaust, hve öll þjónusta
er sótt i þéttbýli, jafnvel nauðsyn-
legustu viðgerðir. Bein þjónusta
heim i sveitirnar mundi styrkja
búsetuna og ætti að vera krafa
okkar sveitafólks. En það vantar
leiðir og ráð.”
I öðru bréfi segir: „Éghef lengi
hugleitt leiöir að þvi marki að viö
tækjum virkari þátt i úrvinnslu
afurða okkar en nú er. Við björg-
um þvi á haustið, að unnt sé að
slátra búfé okkar, en siðan ekki
söguna meir. Hér þyrfti að verða
breyting á.”
I þriðja bréfi segir: „Hvað um
þá öldruðu i sveitinni? Satt er
það, að þeir vinna lengi ýmis bú-
störf, en aukin vélanotkun breytir
þar miklu. En þeirra vandamál
er ekki minna i raun en annarra
aldraðra, sem verða að hverfa af
almennum vinnumarkaði löngu
áður en hæfilegt og sæmilegt er,
þvi að til þeirra eru gerðar sömu
kröfur og annarra. Má ekki finna
einhverja leið til lausnar atvinnu-
vanda aldraðra I sveitum, svo að
gamla fólkið megi dvelja heima
sem lengst?”
I ræðu Helga kom fram að hann
hefur kynnt þessa tillögu austur á
Héraöi á bændafundi og þar haföi
komið i ijós meiri áhugi á
þessu málefni en hann hafði átt
von á.
Alþýðubandalagið
í Borgarnesi
Halldór
og Jenni
efstir
á framboðslistanum
til sveitarstjórnar-
kosninganna
Alþýðubandalagsfélagið i
Borgarnesi og nágrenni gekk i
fyrrakvöld frá framboðslista sin-
um til sveitarstjórnarkosn-
inganna i vor. Listinn var
samþykktur samhljóða og er sem
hér segir:
1. Halldór Brynjólfsson,
framkvæmdastjóri, 2. Jenni R.
Ólason, skrifstofumaður. 3. Ingvi
Arnason, trésmiöur. 4. Baldur
Jónsson, verkamaður. 5. Sigrún
Stefánsdóttir, starfsmaður Pósts-
og sima. 6. Böðvar Björgvinsson,
simvirki. 7. Herdis Einarsdóttir,
verkakona. 8. Pálina Hjartardótt-
ir. 9. Rúnar Viktorsson, tré-
smiður. 10. Kristin Steinþórsdótt-
ir, húsmóðir. 11. Guðbrandur
Geirsson, verkamaður. 12.
Brynjar Ragnarsson, linumaður.
13. Sigurður B. Guðbrandsson,
verslunarmaður 14. Guðmundur
V. Sigurðsson, verkamaður.
Bónus-
ráðstefna
VSÍ
Verkamannasamband
íslands gekkst fyrir ráð-
stefnu til undirbúnings
nýrra samninga um tíma-
mælda ákvæðisvinnu —
bónus — í frystihúsum.
Ráðstefnuna sóttu um 40
manns víðsvegar að af
landinu, að mestum hluta
trúnaðarfólk úr frystihús-
unum.
Vandamál ákvæðisvinnunnar
— bónusinn — voru ýtarlega
rædd, bæði i almennum umræð-
um og i vinnuhópum og luku ráð-
stefnufulltrúar upp einum munni
um að hún hefði verið mjög gagn-
leg.
Ráðstefnan kaus 5 manna nefnd
til að ganga endanlega frá breyt-
ingartillögum við ,,bónus”-samn-
ingana og kynna þær atvinnu-
rekendum, og hefur fyrsti fundur
um máliö verið ákveðinn n.k.
föstudag 7. þ.m. Lögð verður
áhersla á að hraða samningum.
eftir föngum.
I