Þjóðviljinn - 12.04.1978, Síða 7
Miðvikudagur 12. apríl 1978 ÞJÓÐVILJINN — SIÐA 7
„Stjórnkerfi Reykjavikur er byggt upp af
Sjálfstædisflokknum fyrir Sjálfstæðisflokkinn
og beinist aö þvi aö halda áunnum völdum
og áhrifum Flokksins eins lengi og stætt er”
Borgin þeirra
1 meira en hálfa öld hefur
Sjálfstæðisflokkurinn fengið að
ráðskast með málefni
Reykvikinga. Sá timi er að
sjálfsögðu orðinn alltof langur,
enda verður þess vart með
hverju árinu sem liður, að
Sjálfstæðisflokkurinn ræður
ekki lengur við stjórn borgar-
innar. Stjórn Reykjavikur-
borgar ber öll einkenni þeirrar
þróunar, sem óhjákvæmilega
verður, þegar einn stjórnmála-
flokkur fer með of mikil völd i of
langan tima.
Að visu er það átakanlegt
fyrir ýmsa ágæta Sjálfstæðis-
flokksmenn að verða vitni að
þvi, að sjá Flokkinn sinn verða
slikri þróun að bráð. En enginn
veit sin örlög fyrir.
Stjórnkerfi Reykjavikur-
borgar er byggt upp af Sjálf-
stæðisflokknum fyrir Sjálf-
stæðisflokkinn og beinist að þvi
að halda áunnum völdum og
áhrifum Flokksins eins lengi og
stætt er.
Skulu nú tilfærð nokkur dæmi
um stjórnkerfi þetta.
1. Engin lýðræðisleg kjörin
stjórn er yfir verklegum
framkvæmdum borgarinnar.
Alþýðubandalagið hefur lagt á
það áherslu, að kosin verði
sérstakt framkvæmdaráð
borgarinnar, sem hafi yfirsýn
yfir verklegar framkvæmdir á
vegum hennar. Þá hefur
Alþýðubandalagið lagt á það
áherslu, að komið verði á fót
virkri fjármálastjórn innan
borgarkerfisins. Allar slikar
sjálfsagðar breytingar hafa
verið hunsaðar af hálfu borgar-
stjórnarmeirihlutans og er nú
svo komið, að enginn maður,
hvorki borgarf ulltrúar eða
embættismenn borgarinnar,
hafa lengur neina heildaryfir-
sýn yfir stjörnkerfi þetta.
Vissulega er það undarlegt að
Sjálfstæðisflokkurinn geti
hvorki haft yfirsýn né stjórn á
þvi bákni, sem hann ber einn
ábyrgð á og smiðað hefur verið
umhverfis hann á undanförnum
áratugum. Úr þjóðsögum
okkar Islendinga er að vísu
mörg dæmi um uppvakningu
drauga, sem erfiðlega hefur
gengið að kveða niður. A meðan
Sjálfstæðisflokkurinn geturekki
haft stjórn á sinu eigin afkvæmi,
verður svo að lita á, að þjóð-
sögur og ævintýri geti átt sér
hliðstæður i raunveruleikanum.
2. Fyrir hver áramót hefst
undarlegt sjónarspil Sjálf-
stæðisflokksins i borgarstjórn,
þegar gengið er frá svokallaðri
fjárhagsáætlun borgarinnar.
Látið er undir veðri vaka viö
kjósendur, að nú sé verið að
ganga áætlun um rekstur
borgarkerfisins fyrir næsta
fjárhagsár.
Fjárhagsáætlun þessi er þó
engan veginn marktæk, þar sem
veigamiklum þáttum hennar er
algjörlega sleppt. Þannig er
t.a.m. ekki gerð áætlun um
ýmsar fjármagnshreyfingar,
sem skipta hundruðum miljóna
kr. Sem dæmi má taka, að á
árinu 1976 hækkuðu skuldir við-
skiptamanna borgarinnar um
rúman hálfan miljarð, en alls
ekki var áætlað fyrir þessari
hækkun , hvað þá að gert væri
ráð fyrir að sjóðir og bankainni-
stæður borgarinnar kynnu að
breytast frá ári til árs. Ýmsum
öðrum fjármagnshreyfingum
sem þó var áætlað fyrir, fóru
ennfremur algjörlega úr
böndunum.
Auk þess virðast ýmis fyrir-
tæki og embættismenn á vegum
borgarinnar nokkurn veginn
geta ráðið þvi, hvort farið sé
yfirleitt eftir fjárhagsáætlun-
inni i mörgum veigamiklum
atriðum. Þótt bilíð á milli fjár-
hagsáætlunar og ársreikninga
borgarinnar sé oft breitt i
mörgum stærstu þáttum stjórn-
kerfis borgarinnar, verður ekki
séð aö neinn af embættis-
mönnum borgarinnar sé dregin
til ábyrgðar i þessum efnum.
Tómlætið og seinagangur i
stjórnkerfi borgarinnar er svo
yfirþyrmandiað undir hælinn er
lagt, hvort hægt er að breyta
þar nokkru til betri vegar.
3. I sveitarstjórnarlögunum
er ákvæði þess efnis i 13. gr, að i
Reykjavik skulu borgarfulltrú-
ar eigi vera færri en 15 og eigi
fleiri en 27.
1 borgarstjórn sitja nú .15
fulltrúar, og hefur sú tala verið
óbreytt a.m.k. i hálfa öld. Þrátt
fyrir að umsvif og fésýsla hafi
stóraukist i stjórnkerfi Sjálf-
stæðisflokksins hjá borginni,
hefur ekki mátt fjölga hinum
kjörnu fulltrúum borgarbúa i
borgarstjórninni.
Alþýðubandalagið hefur þrá-
faldlega beitt sér slikum breyt-
ingum, en ávallt talað fyrir
daufum eyrum borgarstjórnar-
meirihlutans. Allir réttsýnir
menn, jafnt innan Sjálfstæðis-
flokksins sem utan hafa viður-
kennt að breytinga sé þörf, en
P’lokkurinn hefur aldrei léð
máls á sliku.
Skyldi ástæðan vera sú, að
Sjálfstæðisflokkurinn sé
hræddur um að missa tök sín á
Reykvikingum, ef borgar-
fulltrúum yrði fjölgað, t.d. úr 15
i 27? Allt frá árinu 1930 hefur
Sjálfstæðisflokkurinn haft 8
borgarfulltrúa af 15, ef frá eru
skilin 4 kjörti'mabil. A árunum
1966 til 1974 hafði Sjálfstæðis-
flokkurinn 8 borgarfulltrúa
þrátt fyrir að meirihluti
Reykvikinga hafnaði stjórnar-
forystu Flokksins með þvi að
kjósa fulltrúa minnihluta-
flokkanna.
I kosningunum 1970 fékk
Sjálfstæðisflokkurinn 20.902
atkvæð: eða 47,7% Ef borgar-
fulltrúum hefði verið fjölgað i
27, eins og lögin um sveitar-
stjórnarmál heimila, hefði
Sjálfstæðisflokkurinn aðeins
fengið 13 borgarfulltrúa, en
m innih 1 ut af 1 okkarnir 14
fulltrúa. Meiri en hálfrar aldar
valdaferill Sjálfstæðisflokksins i
málefnum Reykvikinga hefði
þar með verið á enda runninn.
Betra, ef svo hefði verið, - en
Sjálfstæðisflokkurinn, sem
dyggilega hefur byggt upp
stjórnkeri borgarinnar i meira
en hálfa öld gætir Jiess
vendilega að missa ekki völdin
svo auðveldlega.
4. Það hefur vakið furðu
margra að nær allir starfs-
menn borgarinnar i 5
efstu launaflokkunum eru
yfirlýstir stuðningsmenn Sjálf-
stæðisflokksins. Slikt er
ofur skiljanlegt, þegar haft er i
huga, hversu lengi Flokkurinn
hefur verið við völd hér i
Reykjavik. Sanntrúaðir flokks-
menn Sjálfstæðisflokksins geta
vissulega litið með velþóknun á
stjórnkerfi borgarinnar.
Reyk javikurborg er a.m.k.
borgin þeirra.
Hrafn Magnússon
NÝ HFIMSSÝN FRÁ HVÍTA HÚSINU
Fjórskiptur heimur
Ath.s. Þjóðv.: Carter Banda-
rikjaforseti cr nú að visu kominn
heim úr þeirri ferö, sem ekki var
farin þegar grein þessi var skrif-
uð, en engu að síður er meginefni
hennar i fullu gildi.
1 dag er i Washington annars-
konar rikisstjórn en menn hafa
vanist að hafa þar á bæ. Hún hef-
ur þegar vakið athygli með stefnu
sinni i mannréttindamálum og
þeirri breytingu, sem hún hefur
gert á stefnu Bandarikjanna
gagnvart kynþáttahyggjustjórn-
unum i sunnanverðri Afriku. A
þessum grundvelli er ferð sú, sem
Jimmy forseti Carter hefur fyrir-
hugað þegar eftir páska. Ferö
þessi verður farin til þriðja
heimsins til þess að færa honum
fagnaðarboðskapinn um „nýja”,
„skilningsrikari” og „tillitssam-
ari” Bandarikjastjórn.
Carter forseti fer þessa ferð
þegar vinsældir hans meðal
bandarisks almennings eru öllu
minni en hann vildi að væri.
Samkvæmt nýlega birtum niður-
stöðum Gallup-könnunar voru
51% aðspurðra þeirrar skoðunar,
að forsetinn stæði sig sæmilega i
starfinu, en fyrir ári voru 77%
þeirrar meiningar.
1 þriðja heims reisu þessari fer
Carter fyrst til Venesúelu og
Brasiliu i Rómönsku-Ameriku og
siðan til Nigeriu og Liberiu i
Afriku. Gert er ráð fyrir að ferðin
taki átta daga.
Um áramótin fór Carter álika
ferð til nokkurra útvaldra landa i
Evrópu og þar að auki til Egypta-
lands, Saúdi-Arabiu og íran i
Austurlöndum nær. Ennfremur
til Indlands.
A bak við heimsóknir forsetans
til þeirra rikja i þriðja heimin-
um, sem Bandarikjastjórn telur
mikilvægust, er kenning þess efn-
is að „austrið” og „vestrið” i
hefðbundnum póiitískum skiln-
ingi orðanna nú, séu ekki lengur
drottnandi i heiminum öllum. Nú
Eftir Halldór
Sigurðsson
sé svo komið að nokkrir áhrifa-
miklir rikjahópar skipti með sér
völdum og áhrifum i heiminum.
Þessi kenning er mótuð af
Zbigniew Brzezinski, nánasta
ráðgjafa Carters i öryggis- og
utanrikismálum. Kenningin er i
samræmi við aðalefnið i frægri
ræðu Jimmy Carters, sem hann
flutti i Notre Dame-Háskólanum i
Bandarikjunum i mai s.l. ár. Þar
sagði forsetinn: „Þetta er nýr
heimur, og hann framkallar þörf
á nýrri utanrikisstefnu af hálfu
Bandarikjanna.”
I dag eru það ekki tveir, heldur
fjórir mismunandi heimar, sem
hafa áhrif hver á annan, segja
mennirnir bak við hina nýju ut-
, anrikisstefnu Bandarikjanna. I
fyrsta lagi, segja þeir, er það
heimur þróaðra iðnaðarrikja meö
lýðræðislegt stjórnarform, i öðru
lagi heimur rikja undir stjórn
kommúnista, sem nú er pólitlskt
sundraður, i þriðja lagi til þess aö
gera velstæð þróunarlönd, sér-
staklega þau sem oliu framleiða
og að lokum hinn svokallaði
„fjórði heimur”. 1 þeirri spyrðu
eru sárfátæk riki, sem mörg hver
halda sér aðeins á floti með lán-
um og þróunarhjálp.
Af þeim fjórum löndum, sem
Carter hefur kosið að heimsækja
nú, eru þrjú i næstsiðastnefnda
flokknum, það er að segja
Venesúela og Nigeria, sem bæði
eiga mikla oliu, og Brasilia, sem
er iðnvædd og tiltölulega þróuð.
Að lokum kemur Carter við hjá’
efnum fulltrúa hins stóra hóps
„öreiganna” i fjórða heiminum,
en þar i flokki eru reyndar um
það bil tvö af hverjum þremur
rikja heims, sem alls eru um 150
talsins. Sá fulltrúi er Liberia litla
i Vestur-Afriku.
Tilfinningamál hljóta að liggja
að baki siðasttöldu heimsókninni.
Bandariskir blökkumenn — leys-
ingjar — stofnuðu rikið Liberiu á
19. öld. I sambandi við þetta hefur
Carter einnig liklega i huga að
þorri bandariskra blökkumanna
kaus hann i forsetakosningunum.
1 niu rikjum réði fylgi þeirra
úrslitum um það, að hann hafði
vinninginn fram yfir Gerald
Ford.
Alkunna er að allt frá siðari
heimsstyrjöld hefur meginatriðiö
i utanrikisstefnu Bandarikjanna
verið ástandið i samskiptum
„austurs” og „vesturs,” Banda-
rikjanna og Vestur-Evrópu ann-
arsvegar og Sovétrikjanna og
fylgirikja þeirra hinsvegar.
Afstaða til hins mikla þriðja-
heimsrikis Kina er einnig innan
ramma þessarar bandarisku
heimsmyndar.
En, segir Carter-stjórnin, nú er
svo komið aö allnokkur riki i
viðbót hafa talsverð áhrif á svæð-
ið umhverfis sig eða jafnvel
heiminn allan. Þar er i fyrsta lagi
urn^að ræða Venesúelu, Brasiliu,
Saúdi-Arabiu, Iran, Nigeriu, Ind-
land og Indónesiu.
Kúba litla er ekki talin hér með,
Vance utanrikisráðherra Bandarikjanna (til vinstri) og Brzezinski —
reynt aðsýna þriðja heiminum „nýtt andlit” Bandarikjanna.
en það er þvi að kenna að stjórnin
i Washington litur á Fidel Castro
aðeins sem „framlengingu á
armlegg Sovétrikjanna.”
1 lok þessarar aldar verða
Bandarikin eina vestræna rikið i
hópi tólf fólksflestu rikja heims.
I bráðina verður að ganga út
frá þvi, að „engin hugmynda-
fræðileg fyrirmynd taki lengur til
heimsins alls.” Þetta er álit
Bandarikjastjórnar, miðað við
það sem Brzezinski sagði á lok-
uðum fundi i miðjum desember
s.l. ár.
Mikið atriði i samskiptum
Vesturlanda og þriðja heimsins
er sú staðreynd, að mörg þró-
unarlönd eru farin að framleiða
iðnaðarvörur, sem á heimsmark-
aðnum keppa við framleiðslu
Vesturlanda. Þar er um margt að
ræða, flugvélar frá Brasiliu,
skyrtur frá Hongkong, elektrón-
iskan varning frá Suður-Kóreu.
Þessi nýja samkeppni leiðir af sér
spennu á heimsmarkaðnum og
hefur jafnvel i för með sér vanda-
mál fyrir riku löndin, sem eru þvi
óvön að þurfa að keppa við ódýr-
ara vinnuafl þriðjaheims-
landanna. Þar að auki krefjast
riki þriðja og fjórða heimsins
nýrrar skiptingar á auðævum og
auðlindum heimsins. Þessi riki
krefjast þessarar umskiptingar
með það fyrir augum, að sá hluti
mannkynsins, sem sætir efna-
hagslegu misrétti, fái sinn hlut
réttan.
Þessu svarar Carter-stjórnin
svo, að Vesturlönd eigi að vera
„uppfinningasöm á skapandi hátt
(eins og það heitir á þokukenndu
dulmáli stjórnmálamanna i
Washington).” Vesturlönd verða
á sviði efnahagsmála að
„viðurkenna, að riki heims eru
hvert öðru háð.” A andlega
sviðinu eiga Vestmenn að berjast
fyrir mannréttindum, segja ráð-
gjafar Carters.
Ennfremur segja þeir að
Bandarikin og önnur vesturveldi
verði að geta áttað sig á, hvar
mestar likur séu á að út brjótist
hættuleg, svæðisbundin átök, og
hindra að þesskonar átök verði að
veruleika. Sem dæmi um slika
viðleitni Carters er sú fyrirhöfn,
sem hann leggur á sig til þess að
koma samningunum um
Panama-skurðinn gegnum
öldungadeild Bandarikjaþings.
og tilraunir stjórnar hans til þess
að jafna kynþáttaátökin i
Ródesiu, Namibiu og Suður-
Afriku.
Þannig lita þeir i Hvita húsinu á
málin. i fáum orðum sagt. Hitt er
enn ekki vitað að hve miklu leyti
er hægt að móta þau viðhorf i
stefnu. sem væru eitthvaö frá-
brugöin stefnu þeirra Nixons og
Kissingers. sem gáfu út engu
siöur hástemmdar yfirlýsingar
um sköpun „betri heims”. Was-
hington-stjórnin á enn eftir að
sýna og sanna. að einhver alvara
liggi á bak við slikar yfirlýsingar
hennar. Það verður henni ekki
auðvelt.