Þjóðviljinn - 12.04.1978, Síða 11

Þjóðviljinn - 12.04.1978, Síða 11
Miðvikudagur 12. aprfl 1978 ÞJÓÐVILJINN — SIÐA 11 hafa batnað síðastliðin 10 ár Vegna ummæla Péturs Eirikssonar, forstjóra Alafoss, i Þjóðviljanum s.l. fimmtudag þess efnis, að islenska ullin sé svo léleg, að nauðsynlegt væri að blanda nýsjálenskri ull i hana til þess að búa til úr henni gæðavöru, hafði Þjóðviljinn samband við Svein Hallgrims- son, fyrrverandi sauðfjár- ræktarráðunaut Búnaðarfélags íslands, en Sveinn starfar nú hjá Útflutningsmiðstöð iðnaðar- ins. Sveinn vildi ekki tjá sig um ummæli Péturs Eirikssonar sagði þetta vera hans persónu- legu skoðun, en engan dóm um islensku ullina sem söluvöru. Gæði uliarinnar hafa vissu- lega breyst frá þvi fyrir 40 ár- um, sagði Sveinn, þvi þá hirtu aUir bændur ullina, hún var verðmæt og áhersla var lögð á góða meðferð hennar. Eftir striðið breyttust gæðin, aðallega vegna breytilegs verðlags á ull- inni og breytilegrar flokkunar. Þá var lögð meiri áhersla á kjötframleiðslu en ullarfram- leiðslu. T.d. fengu bændur 8 krónur fyrir kjötkilóiö og 8 krónur fyrir ullarkitóið áriö 1948, en20árum siðar árið 1968 fengu bændur 10 krónur fyrir . ullarkilóið og 77.50 fyrir kjöt- kilóið. A undanförnum árum hefur þetta snúist við á nýjan leik og uliarframleiðsla hefur aukist um 250 tonn frá þvi 1972, og er nú i kringum 1600 tonn árlega. Hlutur vetrarrúinnar ullar hefur einnig stóraukist, en það er besta ullin. Árið 1970 var vetrarrúin ull aðeins 5% af heildarmagninu, sem þá var um 1300 tonn. Arið 1974 var hlutfall- iðkomið upp i 21%, og á siðasta ári 39%. Það má þvi fullyrða að gæði islensku ullarinnar hafa fremur batnað en versnað á undanförnum 10 árum. En það er fleira en eðlisgæði ullarinnar, sem skipta máli. Meðferðin ræður i raun meiru um hvernig hún flokkast. Helsti galli islensku ullarinn- ar erað hún er skitug; i henni er leir og sandur á vissum land- svæðum, moð og hlandbruni, hún er húsgul, sem kallað er eða þófin. Þar að auki hafa margir bændur, sérstaklega á Austurlandi ekki talið það svara kostnaði að rýja féð árlega og þvi er hluti ullarinnar tvireyfi svokölluð rúbaggaull. Arið 1975 voru sett ný lög um mat ogflokkun á ull og gera þau ráð fyrirsamræmdu ullarmati á öllu landinu. Verðlagningu og flokkun er þannig háttað að það ætti að örva menn til þess að hirða vel um ullina, sagði Sveinn. Fyrir ullarkiló i úr- valsflokki, hreina, hvita ull, með þéttan þelfót og gott tog fá menn 1064 krónur. I þennan flokk lenda 15—20% ullarinnar. Fyrir 1. flokk fá menn 766 kr. og er það milli 40—60% ullar- innar.Fyrir2.flokk307 kr.og3. flokk 115 kr. Þessi verðmunur hefur hins vegar engin áhrif meðan ullar- verksmiðjurnar kaupa inn óflokkaða ull og greiða jafn- aðarverð fyrir kilóið, hvort sem ullin er góð eða slæm, en það hafa þær gert, Alafoss ekki sið- ur en Sambandið, sagði Sveinn. Búnaðarfélagið hefur reynt að hvetja menn til þess að auka gæði ullarinnar með kynbótum og verðtilfærslur á niðurgreiðsl- um stefna að sama merki. Kyn- bætur kosta mikla fyrirhöfn og peninga, og við höfum talið eðli- legt að bændur fái nokkurn veg- inn hið sama fyrir kiló af kjöti og ull, en eins og nú er borgar það sig ótvirætt að setja á fyrir kjöt. Þrátt fyrir það hafa margir bændur lagt á sig mikla fyrir- höfn og kynbætt fé sitt með tilliti til ullar. Við vonumst til þess að þeir fái umbun fyrir sina vinnu, þótt siðar verði og ullin verði innan skamms metin að verðleikum, sagði Sveinn. Forsendan fyrir bættim gæð- um ullarinnar er að ullarverk- smiðjurnar hætti að kaupa óflokkaða ull. Meðan svo er, leggur enginn það á sig að vanda vöruna, sagði Sveinn að lokum. —AI. byggöinni á vegum Þjóðleikhúss- ins, nýtur greinilega mikilla vin- sælda. Sýningar eru nú þegar orönar 25 og alls staðar sýnt fyrir fullu húsi og viða aukasýningar. Nú er að hefjast ferð um Suð- vestur og Vesturland með verkið og verða sýningar sem hér segir: Fimmtud. 13. april, Bióhö'llin á Akranesi. Föstud. 14. april, Samkomuhúsið i Borgarnesi. Laugard. 15. april, Samkomuhús- ið I Borgarnesi Sunnud. 16. april, Logaland. Mánud. 17. april, Logaland Þriðjud. 18. april, Lýsuhóll. Miðv.d. 19. april, Hellissandur. Fimmtud. 20. april, Hellissandur Föstud. 21. aprll, Grundarfjörður Laugard. 22. april, Félagsheimil- iö I stykkishólmi. Sunnud. 23. aprll, Búöardalur. 40 ára leikafmæli Ævars R. Kvarans Hefur leikið 140 hlutyerk Síðasta sýning á ödipusi A timmtudauskvöldið verður siðasta sýning á Ödipusi konungi I Þjóðleikhúsinu og að lokinni þeirri sýningu verður minnst 40 ára leikafmælis Ævars R.Kvaran en Ævar fer með hlutverk prests Seifs i leikritinu. Ævar R.Kvaran hefur starfað við Þjóðleikhúsið frá stofnun þess og leikið þar fleiri hlutverk en nokkur leikari annar eða um 140 hlutverk alls. Ævar hóf leiklistar- feril sinn hjá Leikfélagi Reykja- vikur vorið 1938 i leikritinu Skirn sem segir sex og lék hjá Leik- félaginu um árabil en hélt þá utan til söng og leiknáms og nam við Royal Academy of Music og Royal Academy of Dramatic Art 1945-47. Meðal hinna fjölmörgu hlutverka Ævars i Þjóðleikhús- inu eru mörg óperu- og söngleikjahlutverk. Hann söng fyrst i Rigóletto, hlutverk Monterone greifa, siðar I La Traviata, Tosca, Töfra- flautunni (Monostratos), Rak- aranum i Sevilla, Madame Butterfly o.fl. óperum auk hlutverka í óperettum og söng- leikjum:i Nitouche, Betlistúdent- Ævar R. Kvaran hefurleikið fleiri hlutverk en nokkur annar ieikari við Þjóðleikhúsið. Hér er hann i- hlutverki prests Seifs i ödipusi. inum, Kátu ekkjunni(Zeta barón) að ógleymdri túlkun hans á Alfred P. Doolittle i My Fair Lady. Erfitt er að nefna einhver leikhlutverk Ævars öðrum fremur, svo margar eru þær persónurnar, sem hann hefur gætt lifi, bæði smá hlutverk og stór. Minna má þó á hlutverk eins og Lénharð fógeta I samnefndu leikriti, Hinrik Bjálka i Fyrir kóngsins mekt, Mr. Peacock I Silfurtunglingu, Van Daan I Dagbók önnu Frank, Þrjú hlutverk I tslandsklukkunni (von úffelen, Eydalin lögmaöur og Guttormur Guttormsson,), sækjandann i Þjónum Drottins, Kasper i Kardemommubænum, Fjasta i Þrettándakvöldi, Fö.ðurinn i Andorra, Sir Mallalieu i Beturmáef duga skal, Punt aðmiráll i Hafið, bláa hafið, Karl i Hvernig er heilsan og Medvédev i Nattbólinu, svo eitthvað sé nefnt. Ævar hefur löngum tekið virkan þátt i félagsmálum leikara, verið formaður Félags islenskra leikara, stofnandi og fyrsti formaður Bandalags is- lenskra leikfélaga, og Leikara- félags Þjóðleikhússins. Þá hefur Ævar ieikstýrt fjöida verkefna, bæðiá sviðiogiútvarpi. Bóadinn fser nú 818 krónur fyrir fyrsU flokka dllkskjöt ng 8t% kjötsins lendir I þeim flokki. Hins vegar fsr hann 1064 krónur fyrir úrvalsull, en aðeins 15—20% lenda I þeim flokki. Bessi og Margrét á ferd Sýna Á sama tíma að ári á Suð-Vestur- og Vesturlandi Bandariski gamanleikurinn, A sama tima að ári eftir Bernard* Slade, sem Bessi Bjarnason og Margrét Guðundsdóttir leika um þesar mundir úti á lands- Beisi og Margrét I gamanleiknum A sama tlma að ári.

x

Þjóðviljinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.