Þjóðviljinn - 12.04.1978, Page 12

Þjóðviljinn - 12.04.1978, Page 12
12 SÍÐA — ÞJÖÐVILJINN Miövikudagur 12. apríl 1978 SJOMENN vanir netaveiðum, óskast á báta, sem róa frá Patreksfirði. Upplýsingar i sima 29900 Hótel Sögu, herbergi 713. Lausar stöður 1 Kennaraháskóla islands eru eftirtaldar kennarastööur lausar til umsóknar: Lektorsstaöa 1 uppeldisgreinum, lektorsstaöa f ensku og lektorsstaöa I liffræöi. Laun samkvæmt launakerfi starfsmanna rikisins. Auk kröfu um fræöilega hæfni I viökomandi kennslugrein- um er lögö áhersla á starfsreynslu og kennslufræöiiega þekkingu. Umsóknir meö ýtarlegum upplýsingum um ritsmiöar og rannsóknir, svo og námsferil og störf, skulu hafa borist menntamálaráöuneytinu, Hverfisgötu 6, Reykjavfk, fyrir 8. mai n.k. Menntamálaráðuneytið, 7. april 1978. PÓST- OG SÍMAMÁLA- STOFNUNIN óskar að ráða Loftskeytamann/simritara að loftskeyta- stöðinni i Neskaupstað. Nánari upplýsingar verða veittar hjá starfsmannadeild og stöðvarstjóra i Nes- kaupstað. Blaðburðarfólk óskast Vesturborg: Miðsvæðis: Háskólahverfi Kópavogur: Kársnesbraut (lægri nr.) UOBVIUINN Siðumúla 6 simi 8 13 33 Grettisgata Óðinsgata Laufásvegur (frá 1. mai) Seltjarnarnes: Skólabraut BARNAVINAFÉLAGIÐ SUMARGJÖF Höfum flutt verslun vora VÖLUSKRÍN að Klapparstig 26 og bjóðum viðskiptavin- um úrval góðra leikfanga i rúmgóðri verslun. r Birkið stendur sig best / — segir Isleifur Sutnarliðason, skógarvörður á Vöglum i Fnjóskadal Þaö var mikiö um manna- feröir i húsi Skógræktarinnar, Kánargölu 18, er blaöamann bar þar að garði um 9-leytið einn morguninn nú fyrir skemmstu. Skógarverðir og fyrirliðar skógræktarmála hafa setið þar aö fundunt að undan- förnu svo sem venja er á vetri liverjum, en nú var fundahöld- um lokið og ntenn á förum. Þó tókst að ná tali af þeint tsleifi Sumarliöasyni, skógarvcrði á Vöglunt i Fnjóskadal og Jóni Loftssyni, starfsmanni Skóg- ræktarinnar á Hallormsstað. Fer hér á eftir skyndiviötal blaöamanns við tsleif á Vögl- um : — Hvaö hefur þú lengi verið skógarvörður á Vöglum Isleifur og hvert er þitt umdæmi? — Ég hef gengt skógræktar- starfi á Vöglum siðan 1939. Fyrirrennari menn þar var Ein- ar Sæmundsen yngri og þar áð- ur Einar Sæmundsen, eldri, en hann gerðist skógarvörður á Vöglum árið 1909, að éghygg og sá fyrsti i þvi starfi. Umdæmi mitt nær yfir Þing- eyjarsýslur og Eyjafjörð. — í hverju er aðalstarf skógarvarðanna fólgið? — Á Vöglum erum við með gróðrarstöð oguppeldisstöð fyr- ir tr jáplöntur. Þær plöntur fara siðan f girðingar Skógræktar rikisins, skógræktarfélaga og reiti, sem einstaklingar hafa komið upp. Nokkuð af plöntun- um fer í framhaldsræktun i gróðrarstöðvum, svo sem að Laugarbrekku i Skagafirði og Kjarna hjá Akureyri. Svo er nokkuðum uppeldi á garðplönt- um fýrir einstaklinga, þvi skort- Ur hefur verið á þeim. Þá vinn- um viðaðsjálfsögðuað umhirðu á friðuðu skóglendiog raunar að alhliða landgræðslustörfum. Brúttóverðmæti þeirra plantna, sem seldar voru frá Vöglum á s.l. ári, var tæpar 7 milj. kr. — Er mikið um friðaða skógarreiti i Þingeyjarsýslum? — Girt skóglendi i Þingeyjar- sýslum er um 2500 ha. en þar er þó mikið skóglendi ógirt og nær af þeim sökum ekki að yngja sig upp. Má raunar búast við að enn halli þar undan fæti, þvi bú- skaparhættir hafa að þvi leytí breyst i seinni tið að kúm fækk- ar en sauðfé fjölgar og er það ekki til hagsbóta fyrir skóglend- ið. Svo er það t.d. i Fnjóskadal en þar er mikið skóglendi en veðrátta þurrviðrasöm og land- ið viðkvæmt. Töluverður áhugi er á skóg- rækt í Þingeyjarsýslum og Eyjafirði en auðvitað hafa menn yfirleitt aðeins tima til að sinna þeim málum i stopulum tómstundum, þó að Tryggvi á Laugabóli virðist aldrei í tima- hraki þegar skógrækt er annars vegar. Viða eru þó smáreitir við heimili og Skógræktarfélag Þingeyinga er með 100 ha. innan girðingar i' Fossselsskógi. — Hvaða trjátegundir gefast best hjá ykkur? — Það er fyrst og fremst birkiskógurinn, sem hér þri'fst vel. Erlendu trjátegundirnar eru vangæfari og eiga yfirleitt erfiðara uppdráttar. Landið liggur nokkuð hátt og hér er fremur þurrviðrasamt, eins og éggat um áðan. Við leggjum þvi mesta áherslu á birkið. Töluvert er um sölu á timburafurðum frá okkur á hverju ári. Við seljum girðingastaura, smiðavið, sem einkum er notaður til húsgagna- iðnaðar, kurl tíl eldsneytis og svo sjáum við Þingeyingum fyr- ir jólatrjám. — Hversumargtfólk vinnurá vegum skógræktarinnar á Vögl- um? — Hér eru að jafnaði fjórir fastir menn, þótt ekki vinni þeir alltaf heila daga. Það fer eftir þvi hvernig á stendur. En flest fólk er á launaskrá hjá okkur i júnimánuði. Ætli það hafi ekki verið 24 s.l. ár. Þessi vinna er nokkur búbót fyrir sveitarfélag- ið þvi um 90% af launagreiðsl- unum fer til fólks i Hálshreppi. — Er ekki mikið um ferðafólk hjá ykkur á sumrin? — Jú, það er töluvert um það. Siðastliðið sumar voru um 200 tjaldstæði leigð út i skóginum og auk þess voru þar nálega 200 hjólhýsi. Þá voru og um 800 tjaldstæði i Ásbyrgi en litið var ■ þar hinsvegar af hjólhýsum. ■ Yfirleitt er ekki ástæða til að ■ kvarta yfir umgengni þessa I fólks en hinsvegar þyrfti að JJ bæta hér á ýmsa grein aðstöðu | fyrir ferðafólk. En það er eins ■ og fyrri daginn, fjárskorturinn | setur okkur takmörk á þvi sviði ■ -----------------------1 Huppa á Brúnastöðum | Eydis meöeinn afkomanda Huppu frá Kluftum. Eins og margir eflaust muna var efnt til samkcppni á s.l. hausti meðal barna og unglinga um aðfinna gottnafn á kúna og mjaltakonuna, sem er i vöru- merki mjólkuriðnaðarins. Eydis S. Einarsdóttir, Fýls- hólum 1, Reykjavik, vann til verðlauna, sem er ársnyt úr fyrsta kálfs kvigu i fjósinu á Brúnastöðum i Hraungerðis- hreppi. Eydis skirði kviguna verðlaunanafninu Huppa. Huppa átti að bera um miðjan febrúar. Ekki stóðst það alveg þvi hún barekki fyrr en 23. febr. Huppu heilsaðist ekki vel eftir burð en nú helur hún náð sér fullkomlega og er farin að mjólka ágætlega. Huppa eignaðist nautkálf, sem ekki var settur á. Nytin úr Huppu var vigtuð dagana 7. mars og 23. mars. Við fyrri mælingu reyndist dagsnytin vera 15,2kg. en þá siðari 15,5 kg. Á grundvelli þessara mælinga og mælingar daginn sem hún bar, reyndist nytin vera 482 kg. i mars. Þar sem lofað hafði verið að verðlaunahafinn fengi andvirði mjólkurinnar greitt samkvæmt verðlagsgrundvallarverði, þá fékk Eydis ávisun að upphæð 57.840kr. fyrir mjólkina i mars, frá Mjólkurbúi Flóamanna. út- borgunarverð hjá Flóabúinu er nú kr. 85,46 en það eiga fram- leiðendur að fá greitt fljótlega upp úr 20. april, fyrir mars- mjólkina. Frá þessari upphæð dregst strax flutningskostnaður á mjólkinni til búsins, en hann er 3,80 á kg. þannig að ávisun mjólkurbúsins til félagsbúsins fyrir sama mjólkurmagn og Huppa skilaði i mars verða kr. 39.360.-. Huppu var gefið 150 kg. af B-fóðurblöndu og heyfóðriö svaraði tU 290 kg. af þurrheyi, en helmingurinn af heyfóðrinu var gott vothey. Fóðurkostnað- ur varð þvi kr. 14.800,-. Annar kostnaöur vegna Huppu mun hafa veriö um 8.300 kr. i mán- uðinum. Þar eru vextir, af- skriftir, rafmagn, meðul og ýmislegt fleira. Eftir verða kr. 16.260. (Heim.: Uppl.þjón. landb.). —mhg VQf Umsjón: Magnús H. Gíslason

x

Þjóðviljinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.