Þjóðviljinn - 30.06.1978, Síða 16
Föstudagur 30. júnl 1978
A&aisfmi Þjóöviljans er 81333 kl. 9-21 mðnudaga til föstu-
daga, kl. 9-12 á laugardögum og sunnudögum.
Utan þessa tima er hægt aö ná 1 blaöamenn og aöra starfs-
menn blaösins I þessum simum: Ritstjórn 81382, 81527,
81257 og 81285, útbreiösla 81482 og Blaöaprent 81348.
C 81333
Einnig skal bent á heima-
slma starfsmanna undir
nafni Þjóöviljans i sima-
skrá.
:
Nýkjörin stjórn SVR á fyrsta fundi sinum i gær
Fá SVR sjoppuna
þrátt fyrír allt? j
Nýkjörin stjórn Strætisvagna
Reykjavikur kom saman til sfns
fyrsta fundar i gær. Guörún
Agústsdóttir, (Alþbl.) stjórnar-
formaöur SVR, sagöi isamtali viö
Þjóöviljann i gær aö á fundinum
liefði verið farið yfir tilboð sem
boristhöfðu i verslunaraðstöðu á
áningarstaönum viö Hlemm.
Stjórnin ákvað aö visa útboðinu á
sælgætissölunni aftur til umfjöii-
unar I borgarráöi.
Stjórn SVR haföi fyrir borgar-
stjórnarkosningar samþykkt aö
sælgætissalan skyldi rekin af
fyrirtækinu sjáifu en Birgir tsleif-
ur Gunnarss., þáv. borgarstjóri
ákvaö að öll verslunaraöstaöan
skyldi boöin út. Stjórn SVR telur
aö fyrirtækiö geti illa veriö án
þeirra tekna sem fyrirsjáanlega
veröa af búöinni. Þessvegna var
samþykkt á fundi stjórnarinnar
aö vísa málinu aftur til borgar-
ráös gegn mótatkvæöum Sjálf-
stæöismanna.
A fundinum i gær var Leifur
Karlsson, (Fr.) kjörin varafor-
maöur stjórnar SVR. — ekh
Guðrún Agústsdóttir, stjórnarfor-
maður Strætisvagna Reykjavik-
ur.
Dráttur á lánveitingum til kaupa á eldra hásnæöi:
Hvenær koma G-lániri.
Fjöldi manns biður þessa dag-
ana eftir að fá G-lán hjá
Húsnæöismálastjórn til kaupa á
eldra húsnæöi . Húsnæðismála-
stjórn mun fjalla um máiið á
fundi næstkomandi þriðjudag.
Skömmu fyrir sveitarstjórnar-
kosningarnar eða 25.mai sendi
félagsmálaráðuneytiö út frétta-
tilkynningu þar sem tilkynnt var
það álit ráöuneytisins aö hækka
bæri hámark G-lána til kaupa á
eldra húsnæöis úr l.miljón i 1,8
miljón króna. Rýmka átti jafn-
framt lánsheimildir og stuðla
þannig aö betri nýtingu á eldri i-
búðum og auðvelda ungu fólki að
eignast ibúöir i eldri hverfum .
Þetta kosningaloforð Gunnars
Thoroddsens félagsmálaráðherra
var siðan sent til Húsnæðismála-
stjórnar sem enn i dag hefur ekki
afgreitt tilmæli ráöuneytisins.
Umsóknafrestur um þessi lán
rennur út 1. júli n.k. Vitað er aö
mikill fjöldi ungs fólks hefur fest
kaup á eldri ibúðum i trausti þess
að fá fyrrgreinda lánveitingu.
Sýnt er aö dráttur verður á út-
hlutun lánanna og liklega hæpið
að nægilegt fé sé i sjóöi til aö
standa undir fyrrgreindri hækk-
un. A meðan veröa umsækjendur
aö velta á undan sér þeim skuld-
um og meðfylgjandi vaxtabyrði.
Og óvissan um fyrirgreiðslu veld-
ur þvi mörgum hugarangri þessa
dagana. Á meðan situr stjórn
Húsnæðismálastjórnar á ráö-
stefnu um húsnæöismál á Hótel
Höfn i Hornafirði.
„Eyðilegging
tómata ekki
forsvaranleg”
— segja Neytendasamtökin í bréfi
til Sölufélags Garðyrkjumanna
t gær skýröi Dagblaðið frá þvi
að Sölufélag garðyrkjumanna
hefði látib eyðileggja mikiö magn
af „umframframleiðslu” á
tómötumog gúrkum. Vegna þess-
arar fréttar sendu Neytendasam-
tökin fréttatilkynningu þar sem
þau greina frá ábendingum sem
samtökin höfðu sent Sölufélagi
garðyrkjumanna 21. júli 1977, um
nýtingu umframframleiðslunn-
ar”. Þar segir m.a.
„Neytendasamtökin hafa tekið
eftir fréttum i fjölmiðlum um
eyðileggingu á gúrkum og tómöt-
um. Sé tekiö tillit til þess, að is-
lenzkur matur er heldur snauður
af vitaminum og að verð á gúrk-
um og tómötum i verslunum er
svo hátt, að margar fjölskyldur
geta ekki keypt nægilegt magn af
þessum vörum, er eyðileggingin
ekki forsvaranleg, þar aö auki er
nauðsynlegt að hafa i huga, að
niðursoðið gúrkusalat og asiur á
háu verði er flutt inn erlendis frá.
Vilja NS þvi vinsamlega benda
yður á eftirfarandi möguleika
varðandi fullnýtingu þessara
vara.
1) Selja aftur i verzlunum
gúrkur og tómata 2. flokks á lágu
verði eins og fyrr.
2) Frysta niðurskornar gúrkur
og selja að vetri.
3) Selja á heildsöluverði og
með afslætti kassa af gúrkum og
tömötum beint til neytenda og
auglýsa slika sölu vel.
4) Leiðbeina neytendum varð-
andi frystingu og niöursuðu græn-
metis. Til hliðsjónar mætti hafa
þær leiðbeiningar, sem SG gaf út
fyrir nokkrum árum um notkun
og meðferð grænmetis, enda var
sú hugmynd mjög til fyrirmynd-
ar.
Viljum við vinsamlegast biðja
yður um skriflegt svar sem allra
fyrst.”
Alþýöu-
banda-
lagið
Vinnugleði
Alþýðubandalagið I
Reykjavik heldur kosninga-
hátið i Þórscafé n.k. sunnu-
dagskvöld.
Húsið verður opnað kl. 21,
en klukkan 22 hefst stutt
dagskrá, með ávarpi
Svavars Gestssonar ritstjóra.
Dagskráin verður nánar
auglýst i Þjóðviljanum á
morgun, en að henni lokinni
verður dansað til kl. 2 eftir
miðnætti. Aðgöngumiðar
verða seldir við innganginn
og kosta þeir 500 krónur.
Allir stuðningsmenn
Alþýðubandalagsins, félagar
og þó sérstaklega þeir sem
voru i störfum fyrir G-list-
ann á kjördag er velkomnir.
Ferð
Akveðið hefur verið að
fara i hina árlegu sumarferð
i lok sumars að þessu sinni.
Ferðin er ákveðin um
mánaðamótin ágúst
september og verður
áfangastaður auglýstur síð-
ar.
Félagsfundur
Félagsfundur verður haid-
inn miðvikudaginn 5. júli
Fundarstaöur og dagskrá
nánar auglýst i Þjóðviljan-
um þriðjudag og miðviku-
dag.
Frá aöalfundi SÍS í Bifröst
Heildarvelta SÍS jókst um
tæp 50% á árinu
í gær morgun hófst að Bifröst I
Borgarfirði ’76. aöalfundur Sam-
bands isl. samvinnufélaga. Gert
er ráö fyrir, að honum ljúki sið-
degis á morgun, fóstudag. Fund-
inn sækja um 100 fulltrúar frá
rúmlega 40 Sambandsféiögum,
auk stjórnar Sambandsins, fram-
kvæmdastjórnar og allmargra
gesta.
Formaður Sambandsstjórnar,
Eysteinn Jónsson, setti fundinn
og minntist i upphafi látinna sam-
vinnumanna. Fundarstjóri var
kjörinn Hjörtur Eldjárn Þórar-
insson og Friðfinnur ólafsson til
vara og fundarritarar þeir Páll
Lýðsson og Björn Teitsson.
Eysteinn Jónsson flutti siðan
skýrslu stjórnar og skýrði frá
helstu viöfangsefnum hennar á
liönu ári. 1 lok ræðu sinnar lýsti
Eysteinn Jónsson þvi yfir, aö
hann bæðist undan endurkosn-
Eysteinn Jónsson
lætur af
formennsku
ingu sem formaður og þar með i
stjórn Sambandsins, en þar hefur
hann átt sæti i þrjá áratugi.
Heildarveltan jókst um
48,9%
Heildarvelta Sambandsins 1977
nam 43.429 milj. króna og jókst
um 14.255 milj. frá árinu á undan
eða 48,9%. Veltan skiptist þannig
niöur á einstakar deildir Sam-
bandsins: Búvörudeild 10.020
milj., S já varafurðadeild
14.916 milj., Innflutn-
ingsdeild 8.272 milj., Véla-
deild 3.682 milj., Skipadeild
1.633 milj. Iðnaðardeild 4.829
milj. og smærri starfsgrein-
ar 77.1 milj. Af veltu Sambands-
ins var útflutningur 21.5 miljarö-
ar króna. Þar af var útflutningur
Búvörud. 5.3 miljarðar, Sjáv-
arafurðadeildar 14.2 miljarðar
og Iðnaðardeildar 2 miljarðar
króna. Jókst útflutningurinn um
58.7% frá árinu á undan i krónum
talið.
Rekstrarkostnaður jókst
um 49,3%
Hinar miklu hækkanir, sem
fylgdu í kjölfar kjarasamning-
anna i júni á siðasta ári, settu
svip sinn á rekstur Sambandsins
á árinu. Rekstrarkostnaður
hækkaði mjög mikiö, eða um
49.3%, en brúttótekjur jukust að-
eins um 38.8%. Þrátl fyrir þetta
Eysteinn vikur úr stjórn eftir 30
ára setu.
tókst að ná hallalausum rekstri,
og varð tekjuafgangur af rekstri
Sambandsins fyrir árið 1977 103.6
milj. kr. á móti 376.9 milj. kr. árið
1976. Er þábúið að taka tilgreina
fyrningar fastafjármuna að upp-
hæð 428.9 milj. kr., vexti að upp-
hæð 852.0 milj. kr. og opinber
gjöld að upphæð 334.5 milj. kr.
Auk þess eru tekjur utan
rekstrarreikningsaf sölu eigna og
jöfnunarhlutabréfum 96.9 milj.
kr. færöar á höfuðstólsreikning.
Lokafærslur á rekstrarreikningi
eru endurgreiðslur til kaupfélaga
og frystihúsa, 108.7 milj. kr., og
minnkun birgöavarasjóðs 6.4
milj., svo aö eftir þær er óráð-
stafaður tekjuafgangur 1.3
miljónir króna, envar 125.6 milj.
kr. árið á undan.
Nær hálfur miljarður i
Holtagarða.
Fjárfestingar Sambandsins i
fasteignum, skipum, vélum og
áhöldum námu samtals 1.222.3
Framhald á bls. 13