Þjóðviljinn - 05.08.1978, Qupperneq 3

Þjóðviljinn - 05.08.1978, Qupperneq 3
Laugardagur 5. ágúst 1978 ÞJÓÐVILJINN — StÐA 3 Miðstjórnarfundur Framsóknarflokksins Gunnlaugur: Llst illa á þjóöstjórn og illa á þriggja flokka stjórn. Sé engan stjórnarmyndunar möguleika. Framsóknarflokkurinn á aö vinna til vinstri. Segir já vid Geir Myndun þriggja flokka stjórnar talin raunhæfari kostur Skiptar skodanir um samvinnu vid Framsóknarflokkinn Miðstiórnarfundur Framsóknarflokksins hófst um miðjan dag í gær á Hótel Sögu. Var hann f jölmennur og áttu miðstjórnarmenn von á löngum og miklum um- ræðum. Fundarefniö var staðan eftir kosningarnar, einkum var reiknaö meö miklum umræöum um þá stjórnarmöguleika sem nú þykja blasa við, „þjóðstjórn” eða stjórn þriggja ílokka, Framsóknarflokks, Sjálfstæöis- flokks og Alþýðuflokks. Þjóðviljinn leit inn á fundinn og tók nokkra miðstjórnarmenn tali um stjórnarmöguleikana. Fyrst varð fyrir okkur Gunn- laugur Finnsson frá Hvilft: „Mér list satt að segja illa á þjóðstjórnarhugmyndina — og mér list lika illa á þriggja flokka stjórn Framsóknarflokks, Al- þýðuflokks og Sjálfstæöisflokks. Þetta er þó allt mjög óljóst enn, og ekki er hægt að útiloka neitt fyrr en farið er aö kanna ein- staka þætti i málefnasamningi. Ég á ekki von á að fundurinn samþykki að taka þátt 1 þjóð- stjórn eöa þriggja flokka stjórn, eöa að gera það ekki. Málin verða ekki íögð fram á þann veg. Heldur tiltekið hvaða mál- efnalegar kröfur flokkurinn set- ur aö skilyrði fyrir þátttöku i rikisstjórn. Hugsanlegt er að mönnum veröi veitt umboð, þannig aö ekki þurfi að kalla miöstjórn saman á ný ef til stjórnarþátt- Framsóknarmenn þinguðu um stjórnarmyndun I gær. töku kæmi. Við munum leggja áherslu á málefni, en hins vegar verður hér ekki búiö neitt til af kröfum sem veröa að ásteytingarsteini. Mál sem mikilí ágreiningur gæti orðiö um, ef til viðræðna um þriggja flokka stjórn kæmi er visitalan og landbúnaðar- málin. Ég tel áframhaldandi stjórn núverandi stjórnarfiokka einnig óhugsandi, það væri að hundsa kosningaúrslitin, og auk þess ó- liklegt að allir þingmenn þess- ara flokka myndu styðja hana.” Gerður Steinþórsdóttir: „Ég tel aö þjóðstjórn væri æskileg ef menn vildu setja þjóðarhag ofar flokkshagsmun- unum. En eins og nú horfir er það útilokað.” Þjv: Hvað um þriggja flokka stjórn með Sjálfstæðisflokki og Alþýðuflokki? Gerður: „Ég vil að Fram- sóknarflokkurinn vinni til vinstri.” Gestur Kristinsson, einn nýju Möðruvellinganna var spurður um mat á þjóðstjórn: „Þvi get ég svaraö með einu orði: timasóun”. Þjv.: En þriggja flokka stjórn? Gestur: „Ég tel þann mögu- leika einnig mjög vafasaman.” Þjv.: Hvaða stjórnarmyndun- armöguleika séröu þá? Gestur: „Satt að segja eygi ég engan möguleika eftir að vinstri stjórnar möguleikinn fór út um þúfur”. Þriggja flokka viöræður Það er almennt hald manna að þótt engar samþykktir verði gerðar um stjórnarmyndun á þessum fundi, þá muni hin raunverulega niðurstaða af honum verða sú, að Framsókn- arflokkurinn taki þátt i myndun þriggja flokka stjórnar, með Sjálfstæðisflokki og krötum. Er ekki taliö óliklegt að slikar viðræður hefjist um eða eftir helgina. eng. Fyrnim leidtogi Frjálslynda flokksins sak- adur um hómósexúalisma og mordsamsæri Alvarlegustu ásakanir á hendur breskum stjórnmálamanni á síðari timum 4/8 — Jeremy Thorpe, fyrrum leiðtogi Frjálslynda flokksins i Bretlandi, kom fyrir rétt i dag i Minehead í Englandi vestan- verðu, ákærður fyrir aö standa að samsæri i þeim tilgangi að myrða mann nokkurn, Norman Scott að nafni, er heldur þvi fram að hómósexúalskt samband hafi verið á milli þeirra Thorpe. Þar með er meiriháttar hneykslismál, sem verið hefur i gerjun siðustu tvö árin, á allra vörum i Bret- landi. A siöari timum hefur enginn annar breskur stjórnmálamaður sætt svo alvarlegri ákæru og mál- ið gæti orðið Frjálslynda flokkn- um dýrt i næstu þingkosningum, sem búist er við aö fari fram i október. Thorpe, sem nú er 49 ára, var leiðtogi Frjálslynda flokksins, þriðja stærsta stjórn- málaflokks Bretlands, árin Salt Lake City: Módir grandaði sjálfri sér og sex börnum sínum 4/8 — Fertug kona, Rachel David að nafni, varð i gær sex börnum sinum að bana með þvi að henda þeim út af eða knýja þau til að stökkva fram af hótelsvölum á elleftu hæð. Konan réð sér siðan bana með þvi að stökkva á eftir 'börnunum. Gerðist þetta i mor- mónaborginni Salt Lake City i Utah, Bandarikjunum. Sjöunda barnið, 13 ára telpa, sem móðirin lét einnig stökkva fram af svölun- um, lifði af fallið vegna þess að hún kom niður á lik systkina sinna. Hún er i sjúkrahúsi, hættu- lega slösuö. Eiginmaður konu þessarar og faðir barnanna. Emmanuel David, framdi sjálfsborð sl. þriðjudag með þvi að soga að sér útblástursgas úr bil. Hann var gerður rækur úr mormónakirkj- unni fyrir fimmtán árum en leit til hins siöasta svo á, að hann væri einn af leiðtogum hennar. Haföi hann um sig eigin trúflokk og var sannfærður um að hann væri i eigin persónu Guð faðir, sonur og heilagur andi, að sögn lögreglu- foringja eins. Ekki lét hann börn sin ganga i skóla og þau og móðir þeirra komu sjaldan út úr þriggja herbergja ibúð, sem þau höfðu á leigu á hóteli nokkru i Salt Lake City. Talið er að fjölskyldan hafi lifað af tiund, sem fylgjendur Davids hafi goldið honum. Börnin, sem létu lifiö, voru á aldrinum 5-15 ára. Fólk úti á götunni horfði á, þegar konan var að henda yngstu börnunum fram af, og héldu þau sér i handriöið i dauðans angist þar til móðirin sleit þau laus. Lögreglumenn sögðu að eldri börnin hefðu getað hindrað móðurina i ásetningi sin- um, ef þau hefðu viljað, en töldu að þau likt og móðirin, heföu ver- ið sannfærð um að það eina rétta væri að fyrirfara sér til þess að komast sömu leið og heimilisfað- irinn. 1967—1976. Auk hans eru þrir menn sakaðir um aðild að morð- samsærinu gegn Scott, sem er 37 ára og fyrrverandi ljósmynda- fyrirsáti. Thorpe, sem naut i leiðtogatið sinni verulegra alþýðuvinsælda, hefur alltaf þvertekið fyrir að nokkuð sé hæft i fullyrðingum Scotts um samband þeirra, en Scott heldur þvi fram að þeir hafi átt með sér ástarævintýri snemma á siðastliðnum áratug. Flugmaður, sem fyrrum starfaði hjá flugfélagi, hefur i blaðagrein- um fullyrt aö háttsettur stuðningsmaður Frjálslynda flokksins hafi leigt hann til þess að drepa Scott, með það fyrir augum að tryggt væri að sam- skipti þeirra Thorpes yrðu áfram i þagnargildi. Hneykslismál þetta hefur smám saman veriö að sækja i sig veðrið undanfarna mánuöi og hefur viötæk rannsókn fariö fram. Fjöldi manna hefur veriö yfirheyrður., þar á meöal margir þekktir stjórnmálamenn. Hinir ákæröu eru auk Thorpes David Holmes, fyrrum aðstoðarfé- hirðir Frjálslynda flokksins, John le Mesurier, rúmlega fertugur kaupsýslumaður og George nokk- ur Deakin. Hægt er lögum sam- kvæmt að dæma menn til ævi- langrar fangelsisvistar fyrir sák- ir sem þessar, ef þeir verða sekir fundnir. Thorpe var að vonum fölur og niðurdreginn, þegar hann mætti i réttinum. Drápid á sendifulltrúa PLO í París: Verk arabísku synjun arfylkingarinnar 4/8— Menn þeir tveir, sem drápu sendifulltrúa aðalsamtaka Pale- stinumanna (PLO) i Paris og að- stoðarmann hans i gær, voru sendir af Abú nokkrum Nidal, Palestinumanni sem lengi hefur dvalist i Bagdað i skjóli íraks- stjórar. Nidal hefur þaðan út- varpað áróðri gegn Arafat, aðal- leiðtoga PLO, og grunur leikur á að menn hans hafi ráðið af dög- um sendifulltrúa PLO i Lundún- um og Kúvæt, sem báðir voru drepnir á þessu ári og voru stuðningsmenn Arafats. Abú Nidal var sjálfur áður i PLO, en 1974 varð missætti milli hans og félaga hans og átti hann fótum fjör að launa. PLO hefur siðan sakaö hann um að gera út flugumenn á hendur Arafat. Fyrir fimm vikum krafðist PLO þess af íraksstjórn að hún fram- seldi Nidal og félaga hans en trakar tóku litið undir það. Að sögn frönsku lögreglunnar eru banamenn sendifulltrúans, þess þriðja sem menn Nidals ráða af dögum, báðir jórdanskir þegn- ar og að likindum palestinskrar ættar. Lögreglan hefur einnig eftir þeim að bapði þeir og Nidal séu félagar i samtökum, sem heita Arabiska synjunarfylkingin og fór að heyrast frá eftir að það fór að fljúga fyrir að Arafat og fleiri leiðtogar PLO væru ef til vill tilleiðanlegir að slá eitthvað af 4/8 — Bandarikjadollar féll held- ur gagnvart vesturevrópskum gjaldmiðlum i dag, en þó minna en i gær, þegar seðlabankar Vest- ur-Evrópurikja urðu að bregðast við honum til hjálpar. Hinsvegar hélt dollarinn aldrei þessu vant sinu gagnvart japanska jeninu i vesturevrópskum kauphöllum, og er skýringin á þvi sú, að i gær rauk dollarinn allt i einu upp fyrir 190 jen i Tókió, eftir að hafa kom- ist niður i 183.80 jen — lægra en nokkru sinni fyrr — fáum dögum áður. kröfum sinum á hendur Israelum. Synjunarfylkingin telur að deilu- málin við Israel verði aðeins leyst með striði, og tekur Irak undir þá afstöðu. Franska stjórnin hefur nú tals- verðar áhyggjur af þvi að ara- biskir vigamenn séu búnir að kjósa Paris sem vettvang fyrir blóðhefndir sinar og Giscard d’Estaing forseti hefur fyrirskip- aö listinn yfir erlenda' sendi- ráðsmenn i borginni skuli yfirfar- inn og athuguð skilriki þeirra, sem tortryggilegir kunna að þykja. Tatsúó Múrajama, fjármála- ráðherra Japans, sagöi i dag, að þess yrði skammt að biöa, aö jen- ið yrði veikara, og aö hinn mikli völlur á þvi undanfarna daga ætti sér fremur sálfræöilegar rætur en en fjármálalegar. Dregið hefur úr eftirspurn eft- ir gulli við það að dollarinn sýnist vera að sækja i sig veðrið. 1 Lundúnum var gullveröið sið- degis i dag 201,55 dollarar únsan, en var i gær 202,20 dollarar. Fyrr i vikunni komst gullúnsan upp i 208,40 dollara, sem er met. Hver veit nema doll- arinn hressist Er aö ná sér upp gagnvart jeninu

x

Þjóðviljinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.