Þjóðviljinn - 05.08.1978, Síða 5

Þjóðviljinn - 05.08.1978, Síða 5
Laugardagur 5. ágúst 1978 ÞJÓÐVILJINN — SÍÐA 5 Gils Gudmundsson alþingismaður skrifar Súkkulaðihertoginn endurborinn? Benedikt svaf ekki en fékk sig- urinn á silfurfati og heimtar nú að sér séfært súkkulaðið, segir Gils. Hertoginn af Marlborough er fyrirferðarmikil persóna f Breta- sögu. Afkomandi hans, Winston Churchili, taldi hann hafa verið mikilmenni, og vist var það, að á hans dögum vegnaði Bretum vel I hernaði. Ýmsir sagnfræðingar draga þó stjórnlist hertoga þessa nokkuð i efa og telja sigursæid breska hersins öðrum fremur að þakka en honum. Sú var venja hertogans, að drekka fulla könnu af nýhituðu súkkulaði á fastandi maga að morgni dags, áður en hann smeygði sér i úniformið og festi á sig orðurnar. Einhver afdrifarikasta orrusta i herforingjatið umrædds hertoga var háð aö næturlagi, og er dag- aði höfðu Bretar stökkt gjörvöll- um Frakkaher á flótta. Meðan þau tíðindi gerðust er sagt að her- toginn hafi sofið fast i herbúðun- um, en vaknað með andfælum að morgni við hróp og háreysti sigurglaðra hermanna sinna. Þá sagði hertoginn af Marlborough, svo sem frægt varð: „Hvern fjandann eruð þið að drolla, kom- ið með súkkulaðið mitt”. Með tilvisun til þessarar góðu sögu verður þvi naumast á móti mælt, að talsverður skyldleiki er með hertoganum af Marlborough og Benedikt Gröndal formanni Alþýðuflokksins. Launþegahreyf- ingar landsins eiga i langri og harðvitugri baráttu við tvo sterka stjórnarflokka, sem rift höfðu kjarasamningum og tekið af fólki hluta af umsömdu kaupi. Bene- dikt flokksformaður telst einn helsti hershöfðinginn i þessari styrjöld. A einum kosningadegi vinna launþegar landsins frægan sigur og stökkva liðsveitum stjórnarflokkanna gömlu á skipu- lagslitinn flótta. Rangt væri að halda þvi fram að formaður Alþýðuflokksins hafi sofið meðan þessi stórtiðindi gerðust, en hitt er ekki fjarri lagi að honum og flokki hans hafi verið færður sig- urinn á silfurfati. Og nú er það sem likingin með hertoganum af Marlborough og Benedikt Grön- dal verður ótviræð. Nær jafn- skjótt og tilraunir til myndunar vinstri stjórnar hefjast, gerir for- Komíð strax með súkkulaöið mitt hrópaöi Benedikt eftir orrahrið kosninganna. maður Alþýðuflokksins það að meginkröfu sinni, að i kjölfar 15% gengisfellingar sætti launþegar sig við 7% kauphækkun,allt að þvi helmingi meiri kjaraskerðingu en fráfarandi stjórn hafði staðið fyrir. Eins og hertoginn forðum hrópar Benedikt til launþega- samtakanna: Komiö þiö strax meö súkkulaöiö mitt. Enginn efi er á þvi, að mjög margir kjósendur Alþýðuflokks jafnt og Alþýðubandalags óskuðu þess af heilum hug, að þessir flokkar mættu bera gæfu til sam- komulags — 1 þvi skyni fyrst og fremst að breyta um stefnu, svo að hætt yrði að leysa rekstrar- vandamál atvinnuveganna með stöðugri skerðingu á kjörum lág- launafólks. Þetta reyndist þvi miður ekki hægt. Astæðan var fyrst og fremst sú, að leiðtogar Alþýðu- flokksins (og Framsóknarflokks- ins?) vildu ekki i vinstri stjórn fara. Það lá fyrir frá upphafi, að Benedikt Gröndal og helstu sam- starfsmenn hans vildu fara i stjórn með Sjálfstæðisflokknum. Þeir voru i rauninni neyddir til viðræðna um vinstri stjórn, en tóku þátt i þeim með hangandi hendi og án nokkurs áhuga. Allan timann sem viðræðurnar stóðu yfir, var i Alþýðublaðinu haldið uppi látlausum árásum á þá flokka, sem verið var að semja við, einkum Alþýðubandalagið, og minnist ég þess ekki að samningatilraunir um stjórnar- myndun hafi nokkru sinni farið fram við slik skilyrði. Innan Alþýðubandalagsins var fullur einhugur um að mynda þyrftj vinstri stjórn sem fylgdi fram vinstri stefnu. Það reyndist þvi miður ekki hægt. En þar heyr- ist engin rödd, sem hvetur til að- ildar að stjórn til að framfylgja verðbólgu- og kaupskerðingar- stefnu fráfarandi rikisstjórnar. Vinstri leiðin reyndist þvi miður vera harðlokuð. Það getur hvorki orðið hlutverk Alþýðubandalags- ins né verkalýðshreyfingarinnar og annarra launþegasamtaka að hjálpa til við framkvæmd ómeng- aðar ihaldsstefnu i efnahags- og kjaramálum. Það gera aðrir. Gils Guömundsson. r Akvöröun um lán- veitingar Húsnæöis- málastiórnar í águst, september og októbermánuði munu koma til greiðslu 5 lánveit- ingar Húsnæðismálastofn- unar ríkisins, samtals að Leiö- rétting I verðkönnun Neytenda- samtakanna, sem birt var i blaðinu i fyrradag, var ein misritun á tölum. 2 kg. af sykri i Kron við Langholts- veg kosta 280 kr. en ekki 380, eins og stóð i verðkönnun- inni. Þetta leiðréttist hér með. fjárhæð um 1250 miljónir króna, er húsnæðismála- stjórn tók ákvörðun um á fundum sínum hinn 11. og 21. júlí sl. Lánveitingar þær, sem hér um ræðir, eru þessar: 1) Frumlán (þ.e. I. hluti) eru veitt til greiðslu eftir 25. ágúst nk. þeim lánsumsækjendum til handa, sem áttu fullgildar og lánshæfar umsóknir fyrirliggjandi hjá stofnuninni fyrir 1. júli sl. og höfðu sent henni fokheldisvottorð vegna ibúða sinna fyrir þann tima. — Samtals nemur þessi lán- veiting um 360 miljónum króna. 2) Miðlán (2. hluti) eru veitt til greiðslu eftir 10. ágúst nk. þeim umsækjendum til handa, sem fengu frumlán sin greidd eftir 10. febrúar 1978. — Samtals nemur þessi lánveiting um 340 miljónum króna. 3) Lokalán (þ.e. 3. hluti) eru veitt til greiðslu eftir 15. ágúst nk. þeim umsækjendum til handa, sem fengu frumlán sin greidd eftir 15. ágúst 1977 og miðlán sin greidd eftir 6. mars sl. — Samtals nemur þessi lánveiting um 130 milj. kr. 4) Lokalán (þ.e. 3. hluti) eru veitt til greiðslu eftir 20. septem- ber nk. þeim umsækjendum til handa er fengu frumlán sin greidd eftir 20. september 1977 og miðlán sin greidd eftir 1. april sl. — Samtals nemur þessi lánveit- ing um 81 miljón króna. Allar ofangreindar lánveitingar eru veittar til húsbygginga. 5) Lán til kaupa á eldri ibúðum (G-lán) eru veitt til greiðslu eftir 1. október nk. þeim umsækjend- um til handa, er sóttu um þau á timabilinu 1. janúar-1. april sl. — Samtals nemur þessi lánveiting um 340 miljónum króna. Frá og með 1. október sl. til 1. april sl. hefur stofnunin þar með veitt lán tif kaupa á eldri ibúðum, samtals að fjárhæð um 500 miljónir króna. (Fréttatilkynning) Ellillfeyrisþegarnir munu dveljast á Helios hóteli á Mallorka. Sunna efnir til sólar- landaferða fyrir elli- lífeyrisþega Ferðaskrifstofan Sunna hóf þá nýbreytni fyrir nokkrum árum að efna til ódýrra og hagkvæmra sólarlandaferða bæði til lengri og skemmri dvalar fyrir ellillfeyris- þega.Þessar ferðir eru til Mall- orka og Kanarieyja. Feröaskrif- stofan hefur skipulagt þessar ferðir i samvinnu við ýmsa hópa, félagasamtök, söfnuði, félags- málaráð o.fl. aðila úr Reykjavik, Kópavogi, Keflavik, Akranesi, Austfjöröum og vlðar. A þessu hausti er ráðgert að skipuleggja 3 ferðir fyrir ellillf- eyrisþegana til Mallorka og eina eftir áramót. Þessar ferðir eru: Loks verður efnt til 3ja mánað- a dvalar frá 3. janúar — 6. april og er verðið miðað við ellilifeyr- inn eins og hann er frá Tryggingastofnun rikisins að við- bættri tekjutryggingu. Verðið er þvi áætlað 84 þúsund á mánuði eða 252 þúsund fyrir 3 mánuði. Innifalið i verðinu eru ferðir fram og til baka, dvöl i ibúð og ein aðal- máltið á dag. (Byggtá fréttatilkynningu. —Þig) 1. ferð: 1. okt. — 20. okt. 4 vikur Verð 116.800,-kr. 2. ferð: 29. okt. — 26. nóv. 4 vikur Verð 116.800,-kr. 3. ferð: 26. nóv. — 20. des. 25 dagar Verð 98.000.-kr. Dregið í kosningahappdrætti Alþýðubandalagsins Kínaferö á nr. 14.473 Dregið hefur verið I kosningahappdrætti Alþýðubandalagsins og komu vinningar á eftirfarandi miðanúmer: 1. Ferðtil Kina með hópferð.......................nr. 14.473 2. Orlofsferð fyrir 2 til Búlgariu ..\............nr. 15.317 3. írlandsferð 114daga............................nr. 2.546 4. trlandsferð 114 daga...........................nr. 7.341 5. Sólarlandaferð fyrir tvo.......................nr. 10.619 6. Orlofsferðfyrirtvotil Júgóslaviu.............. nr. 10.626 7. Skáldverk Halldórs Laxness.....................nr. 9.260 8. Ritverk Þórbergs Þórðarsonar ..................nr. 6.626 9- Skútuöldin eftir Gils Guðmundsson..............nr. 8.942 10. Ritverk aðeigin vali hjá M.M. fyrir 40.000 kr..nr. 2.245 Vinninga má vitja á skrifstofu Alþýöubandalagsins, Grettisgötu 3, simi 1 75 00. Sumartónleikar í Skálholtskirkju Sumartónleikar hafa verið haldnir undan- farnar helgar i Skál- holtskirkju. Hefur að- sókn að tónleikunum verið mjög góð. Um verslunarmannahelgina verða tónleikar laugardag, sunnudag og mánudag og hefjast þeir.allir kl. 3. Áð þessu sinni mun Manuela Wiesler leika einleiks- verk fyrir flautu eftir barokk- og tútimatónskáld. Mun hún á tón- leikunum frumflytja verkið „Söngvar úr fangelsi” eftir austurriska tónskáldið Paul Kont, en verk þetta er samið fyrir áhrif af ljóðum eftir Ghandi. Ennfremurer á efnisskrá henn- ar „Ascéses” (Meinlæti) eftir franska tónskáldið André Jolivet, Partita eftir Johann Sebastian Bach og tvær Fantasiur eftir Georg Philipp Telemann. Veit- ingasala er i Skálholti eftir tón- leikana. A sunnudag er messa i Skálholtskirkju- kl. 5. Aðgangur að Sumartónleikum i Skálholtskirkju er ókeypis. (Fréttatilkynning)

x

Þjóðviljinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.