Þjóðviljinn - 26.08.1978, Blaðsíða 1
UÚÐVIUINN
Meintum ekki
samning um öll
svid þjóðlífsins
Laugardagur 26. ágúst 1978 —183. tbl. 43. árg.
segir Benedikt Gröndal nú
Benedikt Gröndal formaður
Alþýðuflokksins sagði i samtali
við Þjóðviljann eftir að viðræðu-
fundi lauk I g®r, að haldið hefði
verið beint áfram frá þvi sem
horfið var. Viðræðurnar urðu
nokkuð aimennar meðal annars
en nýr skipstjóri
um það vandamál hvað 1.
september er nálægur. Akveðið
var að vinna alla helgina.
Undirnefndin sem fjallar um
Samskonar viðræöur
Kl. 14 í gær hófst viðræðufundur
Aiþýðubandaiags, Alþýðuflokks
og Framsóknarflokks um mynd-
un vinstri stjórnar á nýjan leik
eftir þá uppstyttu sem varð með
ályktun flokksstjórnar Alþýðu-
flokksins er leiddi til að Lúðvik
Jósepsson skilaði umboöi sfnu til
forseta. Viðræðurnar eru nú undir
forystu Ólafs Jóhannessonar, en
forseti islands, dr. Kristján Eld-
járn, kallaði hann á fund sinn i
gærmorgun og fól honum að hafa
forystu um myndun stjórnarinn-
ar.
Viðræðunefndin er skipuð
sömu mönnum og áður, þeim
Lúövik Jósepssyni og Ragnari
Arnalds frá Alþýðubandalaginu,
Benedikt Gröndal og Kjartani
Jóhannssyni frá Alþýðuflokki og
Ólafi Jóhannessyni og Steingrimi
Hermannssyni frá Framsóknar-
flokki.
Viðræðurnar munu standa yfir
alla helgina. í dag og á sunnudag
starfa undirnefndir, en kl. 16 á
sunnudaginn hittist viðræðu-
nefndin á nýjan leik.
-big
Frá Bessastööum I gærmorgun: ólafur Jóhannesson gæti veriö aö segja viö dr. Kristján „ætii maður
bindi ekki skútuna fyrst Lúðvlk er búinn að sigla henni f höfn”, en raunar var hann aðeins að segja:
„Það er naumast þeir blossa”, og átti við Ijósnyndarana sem til staðar voru.
Alþýðubandalagið á Siglufirði
Frekleg móðgun við þjóðina
enda andstætt lýðræðislegri hugsun
A fundi Alþýðubandalagsfélags-
ins á Siglufirði I fyrrakvöld var
gerð ályktun þar sem lýst er
andstyggö á þeirri ólýðræöis-
Iegu skoðun að lýðræðisflokkur
eins og Alþýðubandalagið sé
óhæft til stjórnarforystu, og
bent á að þessi kenning sé frek-
leg móðgun við Islensku þjóð-
ina.
„Fundur I Alþýðubandalaginu
á Siglufirði undrast stórum
framkomu Alþýðuflokksins i
umræðum um myndun vinstri
stjórnar, og telur hana bera vott
um tvöfeldni.
Sérstaklega átelur það þá
framkomu áð gefa aðeins loðin
og óákveðin svör við ákveðnum
spurningum um stjórnarfor-
ystu. Hefði Alþýðuflokkurinn
viljað krefjast forystu i ríkis-
stjórn hefði honum vitanlega
borið að leiða umræðurnar á
lokastigi samninganna og virö-
ist svo sem hann hafi ekki
treyst sér að takasf þann
vanda á hendur en viljað njóta
Framhald á 18. siöu
efnahagsmál mun halda áfram
með sömu mönnum og áður sátu
i henni og svo var ákveöið að setja
á fót nýja nefnd, sem myndi fjalla
um aðra málaflokka en efnahags-
mál. Alyktun Alþýðuflokksins
kom dálitið til umræðu i
viðræðunum. Lúðvik spurði um
hana og ég sagði að þótt sumir
skildu hana þannig að við vildum
fara að byrja á einhverjum
heildarsáttmála, þá væri nú á bak
við þetta, að minnt var á að til eru
mál, sem ekki neitt eða litið hafa
verið rædd enn, og má ekki skilja
hana svo að við ætlum að gera
kröfu um itarlega samninga i
öllum málum, heidur er ég sann-
færður um að við getum orðið
ánægðir án þess að það þurfi að
tefja nokkuð gang mála.
Benedikt var þá spurður hvort
hann byggist við þvi að róðurinn
yrði þungur að ná samkomulagi i
sambandi við utanrikismál.
— Ég vona það ekki. Ég hef
haft þaö á tilfinningunni i viðræð-
unum alllengi, að við mundum
finna lausn sem allir flokkarnir
geti, eftir atvikum, sætt sig við.
Hvaða atriði það eru, vildi
Benedikt ekki tjá sig um á þessu
stigi. Hann vildi heyra betur hvað
Alþýðubandalagið hefði að segja.
Alþýdubandalagið
Mið-
stjómar-
fundur
Fundur verður haldinn í
miðstjórn Alþýðubanda-
lagsins á morgun,
sunnudag, kl. 6 síðdegis,
að Grettisgötu 3. Á dag-
skrá verða stjórnar-
myndunarviðræðurnar.
Flokksráðsfundur verð-
ur væntanlega haldinn i
næstu viku.
Lúðvík Jósepsson.
Feiknalegt atvinnuleysi
ef öll frystihúsin loka
70-80% í sumum byggdalögum, 6-7 þúsund manns
Frá biaöamannafundinum með forystumönnum Verkamannasambandsins. F.v.: Arnmundur Bach-
man , Iögfræðingur sambandsins, Þórir Danfelsson framkvæmdastjóri Vcrkamannasambandsins,
Guðmundur J. Guðmundsson formaður, og Karl Steinar Guðnason varaformaöur.
6-7 þúsund manns verða at-
vinnuiausir á landinu öllu um
næstu mánaðamót ef atvinnu-
rekendur standa við þá hótun
sina að loka frystihúsunum á
Vesturlandi, Austurlandi og i
Reykjavik. Nú þegar hafa
atvinnurekendur stöðvað
rekstur frystihúsa i Vest-
mannaeyjum og á Suöurnesjum
og þar munu 1500-1600 manns
þegar hafa misst atvinnuna að
meðtöldum sjómönnum.
Þetta kom fram á fundi sem
Verkamannasamband Islands
boðaði til með blaðamönnum
siðdegis i gær.
Á fundinum kom fram aö alls
munu um 8000 manns starfa við
fiskvinnslu á Islandi, 6000 i
frystihúsum og um 2000 við salt-
fiskverkun. 75-80% af þessu
fólki eru konur.
Verkamannasambandið hefur
ákveðið að höfða mál á hendur
þeim atvinnurekendum, sem
þegar hafa sagt sinu fólki upp,
og einnig mun mál verða höfðaö
á hendur þeim atvinnurek-
endum, sem ætla að stöðva
reksturinn 1. september n.k.
I lögnm um rétt verkafólks til
uppsagnarfrests frá störfum nr.
16. 9. april 1958 segir, að eigi
megi segja upp verkafólki nema
með minnst mánaðar fyrirvara.
Undanþága frá þessari reglu er,
ef aflabrestur verður, út-
skipunarvinna sé ekki fyrir
hendi, og ef fyrirtækið verður
fyrir áfalli s.s. bruna eða skips-
tapi. Arnmundur Bachman,
lögfræðingur Verkamannasam-
bandsins, en hann mun reka
málið fyrir þaö, sagði á blaöa-
mannafundinum að túlkun at-
vinnurekenda á þessari laga-
grein væri forkastanleg, þar
sem rekstrarstöðvun þeirra
fellur alls ekki undir ákvæði þau
i lögunum sem veita undan-
þágu frá þessari meginreglu i
réttindum verkafólks, sem er
mánaöaruppsagnarfresturinn.
Forystumenn Verkamanna-
sambandsins létu þá skoðun i
ljós að þessi ákvörðun atvinnu-
rekenda, lýsti svo mikilli fyrir-
litninguá réttindum þessa fólks,
þ.e. aðsegja þvi upp með aöeins
viku fyrirvara, burtséð frá hinu
skýlausa lögbroti, sem það
væri, að engu tali tæki. Þetta
fólk sem vinnur við það i óreglu-
legri og illa launaðri vinnu 14
Framhald á 18. siðu